Morgunblaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Skógarhlíð 6,
Reykjavík - 5, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Ármúli 5, 222-7739, Reykjavík, þingl. eig. Alexander Örlygsson,
gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf og Tollstjóraembættið,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Barðavogur 30, 202-2776, Reykjavík, þingl. eig. Hildur Snjólaug
Bruun, gerðarbeiðandi Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, miðviku-
daginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Bárugata 11, 200-1853, Reykjavík, þingl. eig. Gistihúsið Ísafold ehf,
gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv., miðvikudaginn
8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Berjarimi 12, 221-3136, Reykjavík, þingl. eig. Dagmar Ögn Guðfinns-
dóttir, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv. og Reykja-
víkurborg, miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Bíldshöfði 18, 204-3237, Reykjavík, þingl. eig. Guðný María Guð-
mundsdóttir og Magnús Árnason, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður
Austurlands og Sýslumaðurinn í Kópavogi, miðvikudaginn 8. ágúst
2007 kl. 10:00.
Dvergaborgir 8, 222-5616, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Árni Róbert
Sigurðsson, gerðarbeiðendur Flügger ehf og Sýslumaðurinn í
Kópavogi, miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Einarsnes 42-42a, 202-9426, Reykjavík, þingl. eig. Anna Jóna
Karlsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7, Reykjavíkurborg og Sjóvá-Almennar tryggingar hf,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Eirhöfði 17, 0104, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Ásgeir Einar Steinars-
son, gerðarb. Tollstjóraembættið, miðvikud. 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Eldshöfði 17, 204-2893, Reykjavík, þingl. eig. Faktoria ehf, gerðarb.
Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Engjateigur 19, 201-9516, Reykjavík, þingl. eig. Byggingarfélag K
Pálmasonar ehf, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Esjuberg 2, 221-3188, Reykjavík, þingl. eig. Ragnheiður Hauksdóttir,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Siglufjarðar,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Esjugrund 38, 208-5632, 33,33% ehl. Kjalarnesi, þingl. eig. Hólmar Þór
Stefánsson, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf, miðvikudaginn 8. ágúst
2007 kl. 10:00.
Ferjubakki 12, 204-7654, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Jóna Þórð-
ardóttir, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf, útibú 527, miðvikudaginn
8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Fornistekkur 9, 204-7095, Reykjavík, þingl. eig. Sigríður Jónatans-
dóttir, gerðarbeiðandi Ármúlaútibú SPRON, miðvikudaginn
8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Grenimelur 47, 202-6180, Reykjavík, þingl. eig. Edda Hrönn Krist-
insdóttir, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf, miðvikudaginn 8. ágúst
2007 kl. 10:00.
Hjallavegur 9, 201-7745, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Bjarni Magnús
Gunnarsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn
8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Hraunbær 54, 204-4673, Reykjavík, þingl. eig. Ólafur Ásmundsson,
gerðarbeiðendur Glitnir banki hf og Tollstjóraembættið,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Kristnibraut 101, 50% eignahl. fnr. 226-7425, Reykjavík, þingl. eig.
Guðmundur Þór Magnússon, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Krummahólar 8, 204-9614, Reykjavík, þingl. eig. Ómar Freyr Sig-
urðsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 8. ágúst
2007 kl. 10:00.
Krummahólar 25, 204-9328, Reykjavík, þingl. eig. Guðlaugur J.
Guðlaugsson og Fjóla Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan
hf, miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Maríubaugur 141, 225-3265, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Gunnar
Vagn Gunnarsson, gerðarbeiðendur Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
og Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Mosarimi 12, 222-0374, Reykjavík, þingl. eig. Magni Guðjón Gunnars-
son, gerðarb. Tollstjóraembættið, miðvikud. 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Prestbakki 15, 204-7010, Reykjavík, þingl. eig. Svala Guðbjörg
Jóhannesdóttir og Herbert Þ. Guðmundsson, gerðarbeiðendur
Íslandsspil sf, Kaupþing banki hf og Reykjavíkurborg, miðvikudaginn
8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Reyðarkvísl 3, 204-3961, Reykjavík, þingl. eig. Ragnar Bragason og
Kristín Ólafsdóttir, gerðarbeiðendur Frjálsi fjárfestingarbankinn hf og
Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Rósarimi 2, 221-9845, Reykjavík, þingl. eig. Helgi Már Veigarsson,
gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands hf, aðalstöðv., miðvikudaginn
8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Strandasel 9-11, 205-4613, Reykjavík, þingl. eig. Sigrún Eygló
Davíðsdóttir, gerðarb. Húsasmiðjan hf, Íbúðalánasjóður, Kaupþing
banki hf og Ríkisútvarpið ohf, miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Stýrimannastígur 2, 200-1348, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig.
Þorfinnur Ómarsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Tunguvegur 78, 203-6299, Reykjavík, þingl. eig. Ína Björg
Ágústsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf, Reykjavíkurborg,
Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib. og Tollstjóraembættið,
miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Túngata 33, 200-2205, Reykjavík, þingl. eig. Jónína G. Sigurgeirsdóttir
og Gunnar Kristinn Gunnarsson, gerðarbeiðandi Landsbanki Íslands
hf, aðalstöðv., miðvikudaginn 8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Týsgata 6, 200-5882, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Magnea J.
Matthíasdóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, miðvikudaginn
8. ágúst 2007 kl. 10:00.
Vatnsstígur 3b, 225-9268, Reykjavík, þingl. eig. Björn Einarsson og
B & G ehf, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 8. ágúst
2007 kl. 10:00.
Vatnsstígur 5, 200-4654, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Sturla Sig-
hvatsson, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf, miðvikudaginn 8. ágúst
2007 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
2. ágúst 2007.
Raðauglýsingar
MINNINGAR
Hrærð skrifa ég nokkur
fátækleg minningarorð um
Guðmund Kristjánsson –
Gumma, eins og ég kallaði
hann alltaf. Ég var svo
lánsöm að hann kom til
starfa í stjórn eldri borgara í Grindavík
ásamt mörgu góðu fólki.
Hann var einn af þessum mönnum
sem alltaf var hægt að treysta með allt
sem hann tók að sér, því heiðarleiki og
einlægni voru honum í blóð borin. Það
var oft kátt á hjalla í félagsstarfi eldri
borgara, t.d. gleymast seint litlu jólin
þegar þeir vinirnir voru komnir með
svunturnar og allt á fullu í eldhúsinu í
safnaðarheimilinu. Þá voruð þið ekki
lengi að ganga frá, jafnvel eftir 50 manna
matarveislu, sú minning vekur alltaf
bros hjá mér.
Það var fyrir nokkrum árum að við,
lítill vinahópur, fórum að stunda böll á
sunnudagskvöldum í Reykjavík, að
ógleymdri vikudvöl á Örkinni á vorin,
þetta hefur veitt mér margar gleðistund-
ir. Það eru forréttindi að fá að njóta
góðra vina og frábærra dansherra – að
sjá þig og vinkonu þína svífa um gólfið er
nú komið í minningabankann, en ég er
viss um að þú átt eftir að dansa þar sem
ekki þarf kertavax neðan á skóna.
Ég kveð þig Gummi minn með þakk-
læti fyrir einlæga vináttu. Að lokum
votta ég öllum ættingjum og vinkonu
Gumma mína innilegustu samúð.
Jóhanna Sigurðardóttir.
Þó að ég hafi alllengi vitað að farið
væri að halla undan fæti hjá vini mínum
Guðmundi Kristjánssyni kom mér á
óvart sú frétt er mér barst að morgni 27.
júlí sl. að hann hefði andast þá um nótt-
ina. Kannski virkar það svona vegna
þess að þá skynjar maður sterkt hve
stutt getur verið milli lífs og dauða.
Kynni okkar Guðmundar munu hafa
orðið fljótlega eftir að ég kom til Grinda-
víkur. Það er þó ekki fyrr en árið 1958
eða 1959 sem ég minnist þess sérstak-
✝ Guðmundur JóhannKristjánsson fæddist
í Grindavík 18. maí
1928. Hann andaðist á
Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja 27. júlí síðastlið-
inn og var útför hans
gerð frá Grindavík-
urkirkju 2. ágúst.
lega. Þá vorum við kjörnir
í stjórn hjónaklúbbs sem
verið var að stofna og sát-
um í þeirri stjórn í ein tíu
ár ásamt þeim Jóhanni
Ólafssyni og Helga Hjart-
arsyni. Nokkru síðar var
stofnaður Lionsklúbbur
Grindavíkur og þar unnum
við saman í nokkra áratugi
og síðar kom hvað af öðru
sem störf okkar lágu sam-
an.
Það var alltaf ánægju-
legt að vinna að félagsmál-
um með Guðmundi, alltaf
var hann ósérhlífinn, orðheldinn og
stundvís. Auðvitað sluppum við ekki við
að vera nokkuð pólitískir stundum. En
þótt við rérum hvor í sína áttina olli það
engri sundrung okkar á milli, enda átta-
vitarnir hárréttir þó atkvæðin féllu eitt
gegn einu.
Við Guðmundur urðum ekkjumenn um
svipað leyti, hann þó nokkru fyrr. Á
þeim tíma fór hann að stunda golf og
náði þar ágætum árangri. Hér á árum
áður æfðum við saman badminton og
blak og náðum vel saman þar enda mikl-
ir keppnismenn báðir og tapsárir.
Guðmundur var prýddur mörgum
hæfileikum sem íþróttamenn þurfa að
hafa til að bera. Hann var snöggur og
léttur í hreyfingum, kappsamur og alltaf
stutt í gamansemina. Á seinni árum spil-
uðum við mikið billjard og höfðum nú
ákveðið að bæta verulega við það á kom-
andi tímum. Jafnframt var mikið spilað á
spil og til margra ára stundaðir eldri
dansar.
Mjög fljótlega eftir að við urðum einir
má segja að okkur hafi verið þrýst inn í
félagsskap eldri borgara og höfum við
starfað þar mörg undanfarin ár en hætt-
um þar að loknu síðasta starfsári F.E.B.
Ég vil svo að lokum þakka Guðmundi
fyrir langt og ánægjulegt samstarf og
trygga vináttu í gegnum árin og margar
ógleymanlegar samverustundir á langri
lífsleið um leið og ég votta fjölskyldu
hans, vinum og vandamönnum mína
dýpstu samúð.
Guð blessi minningu þína.
Bogi G. Hallgrímsson.
Látinn er kær vinur og félagi í kór
Grindavíkurkirkju, Guðmundur Krist-
jánsson.
Guðmundur var 19 ára gamall þegar
hann hóf að syngja í kirkjukórnum, svo
að árin eru orðin 60 sem Grindvíkingar
sem og aðrir hafa notið krafta hans við
hinar ýmsu athafnir. Að auki sinnti hann
ýmsum trúnaðarstörfum innan kirkjunn-
ar af trúmennsku.
Guðmundur var afskaplega traustur
og góður félagi. Hann var ljúfmenni, sem
vildi öllum vel. Hann var kátur og léttur í
lund og hafði gaman af að grínast og
koma fólki til að hlæja. Við eigum ótal
ljúfar minningar um vin okkar og eigum
eftir að sakna hans.
Það verður tómlegt að heyra ekki
lengur hans fallegu tenórrödd í sam-
hljómi radda kórsins okkar.
Við sendum fjölskyldu hans og vinum
innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Guðmundar Krist-
jánssonar.
Félagar í kór Grindavíkurkirkju.
Kveðja frá Lionsklúbbi
Grindavíkur.
Guðmundur Kristjánsson kom til liðs
við Lionsklúbb Grindavíkur á fyrsta
starfsári hans
eða í október 1965 en klúbburinn var
formlega stofnaður 1. maí 1965.
Guðmundur var mikill félagsmaður og
öll þau störf sem hann tók að sér fyrir
frjáls félagasamtök voru rækt af sér-
stakri elju og fórnfýsi. Auk þess að
starfa fyrir Lionsklúbbinn var Guð-
mundur, einhvern hluta af ævi sinni,virk-
ur félagi í flestum þeim frjálsu félaga-
samtökum sem starfa í Grindavík. Má
þar nefna Slysavarnadeildina Þorbjörn
og Hjónaklúbb Grindavíkur. Auk þess
sat Guðmundur í bæjarstjórn Grindavík-
ur um tíma.
Það var gott að starfa við hlið Guð-
mundar í Lionsklúbbnum, hann var létt-
ur í lund og einstaklega jákvæður. Það
var sama hvaða verkefni klúbburinn tók
að sér, alltaf var Guðmundur tilbúinn og
í fararbroddi. Í langri veru innan klúbbs-
ins tók Guðmundur að sér flest þau
nefndar- og stjórnunarstörf sem klúbb-
urinn skipar í.
Fyrir nokkrum árum réðu ytri að-
stæður því að Guðmundur hætti að
sækja fundi, þrátt fyrir það bar hann
ætíð hag klúbbsins fyrir brjósti og
minntist oft á þær mörgu og skemmti-
legu stundir sem hann átti innan klúbbs-
ins.
Við Lionsfélagar hans gegnum árin
söknum góðs félaga og sendum fjöl-
skyldu hans
innilegar samúðarkveðjur.
Halldór Ingvason.
Guðmundur Kristjánsson
Pálmi föðurbróðir minn
er látinn – blessuð sé
minning hans. Hann var
frumburður ömmu og afa,
myndarlegur og flottur
maður, fæddist í Kjósinni og flutti sem
unglingur til Reykjavíkur. Ömmu hefði
ekki órað fyrir að hann kveddi fyrstur
þeirra barna hennar sem komust til full-
orðinsára. Hann lærði rafvirkjun og vann
tengt þeirri iðn alla starfsævina fyrst sem
rafvirki og síðan seldi hann vörur til raf-
lagna. Hann átti sér þann draum að þegar
starfsævinni lyki myndu hann og Heiða,
kona hans, leggjast í ferðalög en það var
sárt að sá draumur rættist ekki nema að
litlu leyti. Heilsan brást og nú er hann bú-
inn að fá hvíldina.
Þegar hugsað er til Pálma eru það eink-
um ýmsar smámyndir sem koma upp í
hugann – bæði frá bernskunni og fullorð-
insárunum – hann var þríkvæntur og átti
Ninnu, Stellu og síðast Heiðu og skipast
þessar myndir nokkuð í þrjá kafla miðað
við það. Hann var reglusamur en virtist
ekki hafa sérstakan áhuga á of miklum
fjölskyldutengslum til að byrja með. Hann
eignaðist ekki börn en var svo heppinn að
hann fékk með Heiðu hlutdeild í hennar
barnabörnum og veittu þau honum mikla
gleði.
Pálmi Gunnarsson
✝ Pálmi Gunnarssonfæddist á Reyni-
völlum í Kjós 29. maí
1930. Hann lést á
Droplaugarstöðum í
Reykjavík 26. júní síð-
astliðinn og var útför
hans gerð frá Bústaða-
kirkju 6. júlí.
Elstu myndirnar og
þær yngstu snúa að
sauðfé – Móra og Mýrar –
í bernsku minni í Reykja-
vík talaði hann gjarnan
um Móru kindina sem
hann átti og við áttum að
borða öll haust í mörg ár –
það virðist hafa leynst
bóndi í honum. Sauðfé
kemur aftur inn í myndina
á Mýrum í Dýrafirði þeg-
ar hann gat á fullorðins-
árum notið sín og glaðst
við að hjálpa til við sauð-
burð og velta fyrir sér og
ræða um hvernig bregðast átti við þeim
vandræðum að sýsla með þrílemburnar …
Spilin eru á öllum myndunum – spilaá-
huginn og allur hávaðinn og vesenið í
kringum töpuð spil og spilastokkurinn í
vasanum er ástæða þess að ég að spila
ekki bridge – það eru Ljósheimarnir og
allir fínu púðarnir sem ekki mátti
óhreinka og flottu dúkkufötin sem enn þá
bera af – það er bústaðurinn við Meðal-
fellsvatn og njólajafningurinn og fíni
veggurinn sem var smíðaður og svolítið
golf – það er ferðin til Hannover að skoða
rafmagnsvörur og dvölin á Hilton hótelinu
– það er húsið Höfn við Skipholtið – stríðn-
in og galsinn í honum og viðbrögð ömmu
sem stundum tók hann í karphúsið og kitl-
aði hann.
Það sem stendur upp úr eru þó eftir á að
hyggja spjallið sem við tvö áttum í miðbæ
Reykjavíkur þegar við hittumst þar óvænt
í hádeginu – hann að fara í útréttingar í
bankann – einyrkinn notaði hádegishléið –
og ég í hádegismat – það var gott, opið og
einlægt spjall sem við áttum þessi skipti
sem við náðum að hittast á þessum tíma –
tveggja manna tal og rætt um hluti og til-
finningar sem liggja nú í þagnargildi.
Það var ánægjulegt að sjá hve vel hann
reyndist afa og ömmu á síðustu árunum
þeirra og hve vel hann leit eftir þeim.
Við Jóhannes sendum fjölskyldunni
samúðarkveðjur og þökkum Heiðu fyrir
hve vel hún studdi hann á þessum síðustu
erfiðu veikindaárum.
Málfríður Finnbogadóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar
alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum
vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella
á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins –
þá birtist valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt
að senda lengri grein. Hægt er að senda
örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-
15 línur, og votta þeim sem kvaddur er
virðingu sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir for-
máli, sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar
og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og loks
hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Minningargreinar