Morgunblaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
STJÓRNVÖLD í Íslamabad for-
dæmdu í gær ummæli Baracks
Obama þess efnis að hann myndi
sem forseti Bandaríkjanna ekki hika
við að fyrirskipa árásir gegn stöðv-
um hryðjuverkamanna í Pakistan ef
stjórnvöld þar brygðust ekki við ógn-
inni með fullnægjandi hætti. Um-
mæli Obama, sem sækist eftir því að
verða útnefndur frambjóðandi
demókrata í forsetakosningunum
vestra á næsta ári, hafa vakið furðu
en með þeim leitast hann við að snúa
gangi kosningabaráttunnar.
Tariq Azeem, upplýsingaráðherra
Pakistan, sagði í gær að ummæli
frambjóðandans lýstu „hreinni fá-
visku“. Hver sá sem léti slík orð falla
þekkti sýnilega ekkert til viðleitni
stjórnvalda í Pakistan til að hefta
umsvif hryðjuverkamanna á landa-
mærunum við Afganistan og væri
greinilega öldungis ókunnugt um
stöðu mála á þessum slóðum.
Yfirlýsing frambjóðandans kemur
mörgum á óvart ekki síst sökum þess
að hún er mjög í anda ummæla, sem
ýmsir háttsettir embættismenn
stjórnar George W. Bush forseta
hafa látið falla á undanliðnum vikum.
Obama hefur fram til þessa fundið
utanríkisstefnu Bush-stjórnarinnar
flest til foráttu en hljómar nú sem
eindreginn stuðningsmaður þeirrar
afstöðu, sem mótuð hefur verið
gagnvart Pakistan. Undirsátar Bush
forseta hafa ítrekað lýst yfir því að
einhliða hernaðaraðgerðir Banda-
ríkjamanna gegn hryðjuverkamönn-
um á landamærum Pakistan og Afg-
anistan komi til greina.
Í liðinni viku brást Pervez Mush-
arraf, forseti Pakistan, hart við hót-
unum Bandaríkjamanna og upplýs-
ingaráðherrann ítrekaði í gær, að
stjórnvöld í Pakistan myndu aldrei
fá liðið slíka árás gegn fullveldi
landsins. Tariq Azeem gekk raunar
lengra en talsmenn stjórnvalda hafa
gert til þessa og sagði ummæli
Obama og bandarískra embættis-
manna endurspegla vaxandi örvænt-
ingu vestra; Bandaríkjamenn stæðu
frammi fyrir auknu mannfalli í Afg-
anistan þar sem þeim hefði ekki tek-
ist að hefta aukin umsvif herflokka
talibana. Sagði ráðherrann Banda-
ríkjamenn nú leitast við að skella
skuldinni á aðra og þar með skaða
málstað sinn.
Ummælin lét Obama falla í ræðu
er hann flutti á miðvikudag og var
tilgangur þeirra án nokkurs vafa sá
að marka honum sérstöðu á vett-
vangi utanríkismála og bregðast við
fullyrðingum þess efnis, að hann búi
ekki yfir nægilegri reynslu á sviði al-
þjóðamála til að geta tekið við hús-
bóndavaldi í Hvíta húsinu. Með ræð-
unni leitast frambjóðandinn einnig
við að taka frumkvæði í kosningabar-
áttunni enda sýna skoðanakannanir
að fylgi við hann er í besta falli stöð-
ugt á meðan Hillary Clinton, fyrr-
verandi forsetafrú og öldungadeild-
arþingmaður frá New York, styrkir
stöðu sína. Ummæli Obama kunna
að sýnast gáleysisleg í meira lagi en
hafa ber í huga að þorri Bandaríkja-
manna tekur alvarlega „hnattræna
stríðið gegn hryðjuverkaógninni“,
sem Bush forseti lýsti yfir í septem-
bermánuði 2001. Ræða Obama hafði
að geyma harða gagnrýni á stefnu
forsetans og einkum innrásina í Írak,
sem frambjóðandinn hefur löngum
haldið fram að hafi verið ástæðulaus
með öllu þar sem stjórn Saddams
Husseins hafi ekki átt samstarf við
hryðjuverkamenn. Innrásin í Írak
hafi þannig orðið til þess að minnka
getu herafla Bandaríkjanna til að
takast á við hina nýju ógn. Obama
batt hótun sína um hernaðaraðgerðir
því skilyrði að fyrir lægju traustar
upplýsingar, sem unnt yrði að bregð-
ast við og það myndu Bandaríkja-
menn gera, væri hann forseti, ef
stjórnvöld í Íslamabad reyndust treg
í taumi. „Þarna í fjöllunum er að
finna hryðjuverkamenn, sem drápu
3.000 Bandaríkjamenn. Þeir ráðgera
frekari árásir,“ sagði Obama. Tilvilj-
un réð ekki orðavalinu.
Ásakanir um „barna-
skap og ábyrgðarleysi“
Freistandi er og að tengja yfirlýs-
ingu þessa ummælum Obama þess
efnis, að hann myndi á fyrsta ári sínu
sem forseti leita eftir viðræðum við
stjórnvöld í Íran, Sýrlandi, Norður-
Kóreu og Venesúela, sem öll teljast
óvinveitt Bandaríkjunum. Þessi yf-
irlýsing, sem ekki var bundin skil-
yrðum af hálfu Obama, vakti einnig
nokkra furðu og sagði frú Clinton
m.a. að ummælin væru til marks um
„barnaskap og ábyrgðarleysi“ keppi-
nautarins. Obama svaraði reyndar
kröftuglega fyrir sig og sagði stuðn-
ing frú Clinton við innrásina í Írak
hafa afhjúpað barnaskap hennar og
ábyrgðarleysi. Þessi hörðu orða-
skipti má túlka á þann veg, að í her-
búðum Obama telji menn nauðsyn-
legt að frambjóðandinn leggi til
atlögu við forsetafrúna fyrrverandi;
kyrrstaðan sé aðeins ávísun á ósigur.
Herská ummæli Obama má því
hafa til marks um það að ekki sé til
árangurs fallið að vera staðinn að
meintri linkind á vettvangi „hryðju-
verkastríðsins“ auk þess sem herða
þurfi róðurinn í baráttunni, einkum
gegn Hillary Clinton.
Ummæli Obama vekja reiði og furðu
Með yfirlýsingu sinni um hugsanlegar hernaðaraðgerðir í Pakistan leitast Barack Obama við að
ná frumkvæði í kosningabaráttu demókrata og sýna festu í „hnattræna hryðjuverkastríðinu“
Í HNOTSKURN
»Barack Obama verður 46ára á morgun og hefur
setið í öldungadeild Banda-
ríkjaþings í tvö og hálft ár.
» Í ræðu sinni í Washingtoná miðvikudag vændi hann
Bush forseta um að rang-
túlka hryðjuverkaógnina m.a.
á þann veg að í Írak færi
fram stríð gegn hryðjuverka-
mönnum í stað þess að við-
urkenna að þar geisaði borg-
arastríð.
»Obama sagði tímabært aðbreyta utanríkisstefnunni
og gaf enn á ný í skyn að
Hillary Clinton væri fulltrúi
hins liðna.
Reuters
Stigmögnun Vaxandi harka einkennir baráttu þeirra Hillary Clinton og
Baracks Obama. Sá síðarnefndi leitast nú við að rjúfa kyrrstöðuna.
GRÍSKA ríkisstjórnin býður nú hin-
um almenna skattgreiðanda frá-
drátt frá skatti ef sýnt er fram á
kvittanir. Hægt er að fá skattaaf-
slátt vegna ferða á nektardans-
staði, bari, nuddstofur og fleira en
þar er mest dregið undan skatti. Er
þetta liður í baráttunni gegn skatt-
svindli í landinu en áætlað er að um
25% þjóðarveltunnar séu á svörtu.
Skattvænar
nektarbúllur
Washington. AP. | Leikfangarisinn Fisher
Price hefur innkallað 83 gerðir leikfanga
sem framleidd voru í Kína. Ástæðan er sú
að leikföngin voru máluð með málningu
sem inniheldur mun meira blý en leyfilegt
er.
Um 967.000 leikföng, meðal annars af
vinsælum teiknimyndafígúrum vestra, hafa
verið afturkölluð en leikföngin eru ætluð
börnum undir sex ára aldri.
Þetta er í fyrsta sinn sem Fisher Price
hefur þurft að endurkalla leikföng en fyr-
irtækið er þekkt fyrir áreiðanleika. Kína
hefur hins vegar legið undir ámæli fyrir
skort á öryggiseftirliti með ýmsum vörum og hafa ýmis hneykslismál
varðandi varning frá Kína komið upp undanfarna mánuði, yfirleitt
vegna magns eiturefna í vörum. Er þar skemmst að minnast fisks, tann-
krems og dekkja. Í júní afturkallaði leikfangaframleiðandinn RC2 um
1,5 milljónir leikfanga af sömu ástæðu og nú – vegna blýs í hættulegum
mæli. Blý er eitrað og getur valdið alvarlegum skaða ef börn innbyrða
það en leyfileg blýmörk í leikföngum eru 0,06%.
Framkvæmdastjóri Fisher Price sagði viðbrögð fyrirtækisins hafa ver-
ið skjót og að um 2/3 leikfanganna hefðu strax verið tekin til baka.
Fisher Price innkallar
tæpa milljón leikfanga
Hættuleg Fígúran Dóra.
TALSMAÐUR ríkisstjórnarinnar í
Kongó segir 100 farþega í það
minnsta hafa látið lífið og fjöl-
marga slasast, er vöruflutningalest
fór af sporinu norður við Kananga í
Kongó. Margir farþeganna voru
laumufarþegar, ýmist flóttamenn
frá Zambíu eða efnalítið fólk. Lest-
arslys eru algeng í Kongó sökum
lítils viðhalds á teinunum.
Minnst 100 lét-
ust í lestarslysi
HJÓN í Arkansas í Bandaríkjunum
eignuðust sitt 17. barn í gær, sjö-
undu stúlkuna. Hjónin segja guð
hafa blessað sig með barnaskar-
anum og segjast endilega vilja fleiri
börn og þá sérstaklega fleiri stúlk-
ur. Konan hefur verið ólétt alls í
10,5 ár eða 126 mánuði af lífi sínu.
Eiga 17 börn
og vilja fleiri
VINSÆLDIR tölvuleiks á netinu,
þar sem spilarar eiga að „útrýma“
spilltum embættismönnum, eru
með eindæmum.Hefur leiknum ver-
ið hlaðið niður af netinu meira en
100.000 sinnum á átta dögum. Spill-
ing embættismanna hefur verið
áberandi að undanförnu í Kína.
Barist við spill-
ingu í tölvuleik
HITINN hefur lagst þungt á bæði
mannfólk og dýr víða um heim
þetta sumarið. Ísbirnirnir í Ever-
land-skemmtigarðinum í Yongin í
Suður-Kóreu eru engin undantekn-
ing. Starfsfólk skemmtigarðsins
hefur hins vegar ráð undir rifi
hverju og brá á það ráð að frysta
vatnsmelónur og ýmsa aðra ávexti
inn í stórar ísblokkir og gefa ís-
björnunum. Þeir virðast sáttir við
sitt en spurning er þó hvernig í
ósköpunum ísbirnirnir ætla að
nálgast góðgætið. Hver veit nema
úr verði skemmtilegur leikur.
AP
Hollir og góðir frostpinnar fyrir ísbirni
Moskva. AP, AFP. | Rússar settu í gær
niður fána sinn á botni Norður-Ís-
hafs í umdeildum leiðangri, sem þeir
vonast til að sanni eignarrétt Rússa
á stórum hluta Norðurpólsins. Utan-
ríkisráðherra Kanada sagði leiðang-
urinn fáránlegan og bætti við að
þetta væri ekki 15. öldin og menn
gætu því ekki ferðast um heiminn og
stungið niður fánum hvar sem þeim
hentaði til að eigna sér land. Talið er
að um 25% af olíubirgðum heims séu
á heimsskautssvæðinu.
Tveir smáir kafbátar, með sex
manns innanborðs, komu fánanum á
botninn en hann er gerður úr ryðfríu
títaníum-stáli. Kafbátarnir köfuðu
niður um 4 km og tók ferðin átta
tíma og 40 mínútur. Skipuleggjend-
ur ferðarinnar sögðu mestu hættuna
þá að kafbátarnir kæmust ekki upp á
yfirborðið aftur en annar kafbátur-
inn, Mir-1, eyddi 40 mínútum undir
ísnum í að leita leiðar upp á yfirborð.
Rússar eigna sér stórt
svæði á Norðurpólnum