Morgunblaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 27
orðnar „úreltar“ vegna þess að þær stæðust ekki þær reglur sem nú giltu. Kostnaðurinn við að loka brúnum og smíða nýjar myndi nema sem svarar 580 milljörðum króna á ári í 20 ár. Dagblaðið Star Tribune sagði að í gagna- grunni bandaríska samgönguráðuneytisins kæmi fram að burðarvirki brúarinnar hefði verið álitið „ófullnægjandi“ í tveggja ára gamalli skýrslu og hugsanlega þyrfti að smíða nýja brú. „Við höfum séð skýrsluna og þekkjum hana vel,“ sagði Jeanne Aamodt, talsmaður samgönguráðuneytis Minnesota, og bætti við að margar aðrar brýr í Bandaríkjunum hefðu fengið sömu umsögn í skýrslunni. Fyrir fjórum árum var komið fyrir tölvu- stýrðum búnaði sem úðaði efnum á yfirborð brúarinnar til að koma í veg fyrir ísingu á veturna, að því er fram kemur í skjali á vef- setri samgönguráðuneytis Minnesota. Um átján starfsmenn verktaka voru að störfum við brúna þegar hún hrundi og ekki er vitað um afdrif eins þeirra. Á meðal þeirra sem björguðust voru sextíu börn í rútu sem var á brúnni en féll ekki niður. Tíu barnanna voru flutt á sjúkrahús. Talið er að það taki langan tíma að ná öll- um bílunum af botni fljótsins því til þess þarf að færa mjög stóra og þunga brúarhluta. Brúin var ein af meginumferðaræðum Minn- eapolis og 200.000 bílar óku yfir hana á dag. úarinnar ábótavant að brú í Minneapolis hrundi og tugir bíla féllu ofan í stórfljótið u ófullnægjandi eða standist ekki núgildandi öryggisreglur  %?; %'   >;% %   %#%   , %;  %   34/5' 20    H  GIE GI   &A6)7 K*+C**- 6 -<+& - *!!  -* / * % 6(C%& +C* ( ! *( * + 0      %  ./0 1023 0   3  %%11+%:  C) *9 #(6+J /6(C#*K6($ 1   4 /%%.%8 % ; C "* (" ($ D%%56  %0.%; J" ( 4 /#-#*  ( /+C*$ D%1,%# 9D%    ! %%%:9%<  , %? %  Reuters Björgun Manni bjargað af brúnni í Minnea- polis. Aðstæður voru mjög erfiðar. Reuters Eyðilegging Bílar í braki brúarinnar I-35W í Minneapolis í Minnesota-ríki. AP Hætta Óttast var að hluti brúarinnar gæti hrunið á björgunarmenn á slysstaðnum. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 27 Kvótakerfinu má líkjavið ófrágengið oghugsanlega óhaf-fært skip. Smíðin hófst um miðjan níunda áratug síð- ustu aldar eftir skipbrot skrap- dagakerfisins. Út- gerð kvótakerf- isins hófst á grundvelli bráða- birgðahaffær- isskírteinis sem var endurnýjað nokkrum sinnum uns Alþingi lét undan þrýstingi hagsmunaaðila og gaf út varanlegt haffærisskírteini ár- ið 1990. Útgerð kvótakerfisins hefur sýnt að vissir þætt- ir eru í lagi en aðrir ekki. Í þessari grein og tveim til við- bótar verður rifjað upp til hvers kvóta- kerfinu var komið á, sagt frá að það ýtti undir hagræð- ingu hraðar og harkalegar en nokk- urn grunaði, sagt frá misjöfnum áhrif- um hagræðing- arinnar á jóna og séra jóna sjávarbyggðanna, undirstrikað að kvótakerfið gefur enga leiðsögn um hvern- ig ákvarða skuli hámarksafla. Stungið er upp á leiðum til að takast á við helstu vankanta kvótakerfisins. Hvernig átti kvótakerfið að virka? Kvótakerfinu var komið á þegar þorskstofninn var í mik- illi lægð. Kvótakerfið var sagt vera tæki til að byggja stofn- inn upp: Koma ársafrakstr- inum í einhver 250-400 þúsund tonn. Það kom fljótlega í ljós að uppbygging þorskstofnsins gekk afar, afar hægt. En kerf- ið kom höfundum sínum á óvart vegna þess að í skjóli þess dró stórlega úr kostnaði við sjósókn. Meðalafkoma út- gerðarfyrirtækja batnaði, en eitthvað voru samt kompás og dýptarmælir sem stýrt var eft- ir rugluð, fleyið skrapaði botn- inn illilega: Fyrrverandi sjó- menn sem misstu vinnuna í kjölfar hagræðingar komust í fjárhagsþrengingar. Heilu byggðarlögin riðuðu til falls vegna tilflutnings á kvóta. Enda fjárhagslegur kostnaður af hagræðingunni ekki borinn af þeim sem höfðu ávinning af lækkandi sóknarkostnaði. Við- brögð þeirra sem urðu fyrir skakkaföllum voru að berjast gegn kvótakerfinu: sumir vildu sóknarmark, aðrir frjálsar veiðar á afkastalitlum fleytum. Slík viðbrögð við breytingum á atvinnuumhverfi eru ekki ný. Í upphafi iðnbyltingar í Eng- landi voru dæmi um að verka- menn gerðust vélbrjótar í von um að halda vinnunni. En krafa um afnám kvótakerfisins voru ekki einu viðbrögðin. Til- lögur um að hið opinbera hefði milligöngu um að flytja fé milli þeirra sem græddu á hagræð- ingunni til þeirra sem töpuðu komu upp. Lagt var til að handhafar veiðiheimilda greiddu veiðigjald. Slík gjald- taka myndi enda auka svigrúm opinberra aðila til að takast á við vanda sem hagræðingin skapaði. Útgerðarmenn, hand- hafar veiðiheimildanna, dauf- heyrðust við þessum kröfum af slíku offorsi að þess munu fá dæmi í seinni tíma sögu lýð- veldisins. Hagræðing en ekki stofnstækkun Vankantar núverandi út- færslu kvótakerfisins hafa komið fram af fullum þunga á þessu ári. Fyrst í tengslum við fyrirhugaða sölu Kambs á Flat- eyri á veiðiheim- ildum úr pláss- inu. Síðar í tengslum við nið- urskurð heildar- aflamagns á fisk- veiðiárinu 2007 til 2008: Eftir að kvótakerfið hef- ur verið við lýði í yfir 20 ár kemur til 30% nið- urskurðar afla- heimilda í þorski samtímis sem fiskifræðingar hafi umtals- verðar áhyggj- ur af hruni þorskstofnsins. Kvótakerfið dugar ekki eitt og sér til að byggja upp stofn þó það sé ágætis tæki til að draga úr sóknarkostnaði. Á þetta hefur verið bent fyrr. Nefnd á vegum forsætisráðu- neytisins fékk Martin Weitz- man, prófessor við Harvard til skrafs og ráðagerða árið 2000. Weitzman lagði til að kvóta- ákvörðunin yrði tekin úr hönd- um sjávarútvegsráðherra og færð sjálfstæðri stofnun sem hefði ekki annað markmið en að tryggja sjálfbærni fiskveið- anna við Ísland. Einn af fyrr- verandi sjávarútvegs- ráðherrum lýðveldisins og núverandi ritstjóri eins dag- blaðanna hefur nýlega lagt fram svipaðar hugmyndir í leiðara í blaði sínu. Í umræðu fyrstu dagana eft- ir að sjávarútvegsráðherra til- kynnti um þorskaflahámark fyrir fiskveiðiárið 2007-8 beindi bæjarstjóri úti á landi kastljósinu óvart að þeim al- varlega ágalla kvótakerfisins að innan þess var ekki búin til nein leið til að flytja fjármuni milli þeirra sem hagnast vegna kerfisins til þeirra sem tapa vegna upptöku þess. Bæj- arstjórinn benti á að fjár- magnstekjuskattur til ríkisins frá bæjarfélagi hans næmi um 300 milljónum króna á ári. Fjármagnstekjur hafi því verið um 3 milljarðar króna í bæj- arfélaginu og fjármagnseignin á bilinu 15 til 30 milljarðar króna. Í bæjarfélaginu búa 900 manns. Meðalfjármagnseign hverrar 4 manna fjölskyldu er þá á bilinu 65 til 130 milljónir króna. Meðaltal fyrir landið allt er 1/5 af þessum tölum eða þar um bil. Líklega er megnið af fjármagnseign í bæjarfélagi bæjarstjórans unga til kominn vegna sölu á kvóta. Fjölskylda sem á 65-130 milljónir króna í verðbréfum eða á bankabókum getur auðveldlega tekist á við tímabundið atvinnuleysi. Vand- inn er hins vegar sá að í bæj- arfélagi bæjarstjórans eru sumir sem kvótakerfið hefur auðgað um milljarða meðan aðrir hafa ekki séð krónu af þeim auðæfum. Í næstu grein verður fjallað um aflamarksákvörðunina og spurt hvort við höfum byggt stofnanir sem að þeirri ákvörð- un koma upp með skyn- samlegum hætti. Er kvótakerfið haffært? Eftir Þórólf Matthíasson Þórólfur Matthíasson » Vandinn erað í bæjar- félagi bæjar- stjórans eru sumir sem kvótakerfið hef- ur auðgað um milljarða meðan aðrir hafa ekki séð krónu af þeim auðæfum. Höfundur er prófessor í hag- fræði við viðskipta- og hag- fræðideild Háskóla Íslands (VHHÍ). frað út um glugga bílsins og synt að bakkanum. „Þetta var eins og nd, mjög hrollvekjandi.“ rn Arnar, aðalræðismaður Íslands í polis, sagði í samtali við Morgun- að ekki væri vitað til þess að Íslend- æru á meðal þeirra sem slösuðust eða ílunum sem féllu í fljótið. Margir Ís- ar búa í Minneapolis, m.a. um fimm- msmenn, auk þess sem fjölmargir ís- ferðamenn koma til borgarinnar í arflugi Icelandair. myndum fá upplýsingar um það fljót- í ljós kæmi að Íslendingur hefði lent í “ sagði Örn Arnar. „Það er svo mikið iti á staðnum og aðstæður svo erfiðar öfum ekki komist í símasamband við stjórna björgunarstarfinu.“ aldi sennilegt að það tæki nokkra ð ná bílunum úr fljótinu. „Það er mjög ð komast að slysstaðnum. Í fyrsta lagi a á að hluti af brúnni hrynji og að narmenn geti orðið fyrir honum, að þeir vilja styrkja hann og athuga etur. Það er líka stífla fyrir ofan þannig að þeir komast aðeins öðrum að henni.“ elfingaróp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.