Morgunblaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.08.2007, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sveinbjörn Guð-jón Guðjónsson fæddist á Hesti í Ön- undarfirði 14. júní 1940. Hann varð bráðkvaddur þar 20. júlí síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Guðjón Gísli Guðjónsson, bóndi á Hesti, f. 28.10. 1897, d. 29.3. 1980, og Guðbjörg Svein- fríður Sigurð- ardóttir húsfrú, f. 22.8. 1901, d. 25.3. 1980. Systkini Sveinbjörns eru: Þorvarður, f. 28.1. 1929, Sig- urbjörg Hervör, f. 27.1. 1931, María Guðrún, f. 19.3. 1932, Helga Jóna, f. 27.4. 1933, Svava, f. 19.5. 1934 og Ingólfur Hafsteinn, f. 16.7. 1935, d. 25.7. 1987. Alls voru systk- ini Sveinbjarnar 12, en 6 af systk- inum hans dóu í bernsku. Hinn 30. desember 1961 kvænt- ist Sveinbjörn Halldóru Jónu G. Sölvadóttur, f. í Aðalvík 26. júlí 1940. Foreldrar hennar eru hjónin Sölvi Páll Jóhannes Jónsson, f. 5.4. 1908, d. 9.10. 1999, og Laufey Jak- obína Guðmundsdóttir, f. 27.5. 1914. Börn Sveinbjarnar og Hall- dóru eru fimm: 1) Laufey Jak- obína, f. 2.7. 1959, fyrrv. maki Guð- mundur Helgi Þórarinsson, f. 7.8. 1959. Börn þeirra eru Ragnheiður Ósk og Halldóra Jóna. 2) Guðbjörg Sveinfríður, f. 4.5. 1962. Börn hennar eru Svein- björn Guðjón Magnason og Ugla Rós Ingadóttir. 3) Viðar Örn, f. 20.7. 1963, maki Brynja Helgadóttir, f. 6.3. 1965. Börn þeirra eru Helga Sigríður og Arnar Hafsteinn. Dóttir Viðars úr fyrra sambandi er Harpa Valdís. 4) Halla Sigrún, f. 28.6. 1980, maki Krist- mundur Magnússon, f. 1.9. 1979. Dóttir þeirra er Auður María. 5) María Guðrún, f. 28.6. 1980, maki Eyjólfur Bjarni Sig- urjónsson, f. 16.6. 1979. Dætur þeirra eru Vigdís Helga og Iðunn Anna. Barnabarnabörn Svein- bjarnar og Halldóru eru þrjú. Sveinbjörn ólst upp með for- eldrum sínum, á fæðingarstað sín- um fram að 16 aldri. Hann flutti þá til Reykjavíkur og stundaði nám í Iðnskólanum í Reykjavík og hjá K. R. Kristjánssyni, hann lauk sveins- prófi í bifvélavirkjun. Hann starf- aði sem bifvélavirki til marga ára en lengst af hjá Steypustöðinni og síðar hjá Sambandinu á Kirkju- sandi. Seinustu árin starfaði hann sjálfstætt með eiginkonu sinni, Halldóru, í HS-kleinum. Sveinbjörn verður jarðsunginn frá Digraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku pabbi minn. Að þú skulir fara á þessum tíma, við vorum að byrja okkar 3ja vikna ferðalag. Við byrjuðum á þínum stað, Hesti í Ön- undarfirði, ætluðum svo að fara kringum landið. Þar voru öll systkinin þín komin saman í vinnuferð ásamt fleirum í fjölskyldunni. Ég reyni að hugga mig við það að þú hafir farið á staðnum sem þú fæddist á og elskaðir mest. Það var svo yndislegt þegar við systkinin vorum lítil, þá vorum við öll svo sérstök á okkar hátt í þínum aug- un og þú kallaðir okkur öðrum nöfn- um. Þú kallaðir mig „gullið mitt“, mér þótti svo vænt um það. Elsku pabbi minn, þú vildir hjálpa mér með svo margt og varst tilbúinn til að gera hvað sem er fyrir mig og fyrir það er ég svo mikið þakklát. Elsku pabbi minn, þetta eru erfiðir tímar hjá okkur núna, en ég veit að þú fylgir okkur alltaf og vakir yfir okkur. Ég sakna þín rosalega mikið. Guð blessi þig. Gullið þitt, Laufey. Elsku pabbi minn, ég veit ekki hvernig ég á að byrja kveðjuorðin mín til þín, ég veit það ekki vegna þess ég vil alls ekki trúa því að þú sért farinn frá mér. En nú sit ég hér í Vallhólm- anum og skrifa þessi orð, svo fátæk- leg miðað við líðan mína. Ég sakna þín mikið og mun gera það áfram. Þú varst þannig maður að við finnum vel fyrir því þegar þú ert ekki nálægur. Þú varst mikið fyrir fjölskyldu þína og lifðir fyrir hana, okkur öllum fannst við vera sérstök á okkar hátt vegna þinna orða. Ég t.d. var „stúlkan þín“ þú lést mig alltaf vita hvað þér þótti vænt um mig og ég fékk líka vel að finna fyrir því. Við vorum fjöl- skylda þín, vinir þínir og allt. Þú kenndir syni mínum margt og eru ófáar stundirnar sem þið áttuð saman í bílskúrnum. Það er svo erfitt að vita til þess að allt það sem við ætluðum að gera saman í framtíðinni verður ekki gert af okkur saman. Hvað þú varst stoltur af okkur öllum og hvað þú hlakkaðir til þegar Halla og María kæmu heim úr námi sínu og nú er stundin að koma og þú ekki hér. Ef þú hefðir ráðið einhverju með okkur, þá hefðir þú viljað að við systkinin vær- um öll í kringum þig, helst í sama húsi eða í næstu húsum. Hvað við gátum hlegið saman, svo mikið að við náðum varla andanum. Hvað þér þótti gaman af dýralífs- myndum. Hvað þér þótti gaman að ferðast og þið mamma gerðuð mikið af því. Hvað þér þótti yndislegt að vera úti að slá blettinn, finna fyrir lyktinni af nýslegnu grasi. Hvað þér þótti gaman að dansa og eru ófáar stundirnar sem var „tjúttað“ í stof- unni, þú með rassinn út í loftið okkur til mikillar kátínu. Stundirnar sem þú eyddir í bílskúrnum, alltaf að reyna að hafa röð og reglu á hlutunum sem við systkinin gerðum stundum af engu og hrúguðum okkar dóti til þín, stundum varst þú pirraður út í okkur út af þessu. Þegar þú varst fúll gastu rokið upp en það var fljótt úr þér aftur og ef þú varst óréttlátur í okkar garð, þá varst þú ekki lengi að biðja okkur af- sökunar. Það hefur aldrei verið vafi hjá mér að þú elskaðir mig og aldrei verið vafi hjá þér að ég elskaði þig. Það sem þú dekraðir við mig, svo þol- inmóður að keyra mig hvert sem ég þurfti að fara og sækja mig. Ég þurfti bara að hringja í þig og þú komst um hæl. Það var svo gaman að sjá þig við tölvuna þína, svo duglegur og ákveð- inn í að læra. Þó ég sé ekki tilbúin að kveðja þig elsku pabbi minn, þá þakka ég fyrir allar stundirnar með þér. Stundirnar sem börnin mín fengu með þér. Þakka þér fyrir alla greiðvikinna við mig og börnin mín. Þakka þér fyrir allt, sem var mjög mikið. Ég bið þig elsku pabbi að hjálpa mömmu í sorg sinni, þetta er mikil sorg fyrir hana að hafa misst félaga sinn eftir 50 ára samvist- ir, það var þó gott að þú kvaddir hana án þess að vita það að það yrði þín síð- ustu orð: „Ég elska þig, elsku Hadda mín.“ Ég kveð þig nú með þessum orðum en þau eiga eftir að vera fleiri í bænum mínum. Eins veit ég það, hvert sem mig hrekur og ber, og hverju sem annars ég gleymi, þá man ég þó allt sem ég unni með þér og elska það, faðma og geymi. (Þorsteinn Erlingsson.) Þín, Fríða. Pabbi minn er dáinn, hvernig er hægt að skrifa svona orð án þess að finna eins og hjartað sér að bresta? Ég á erfitt með að kveðja þig, pabbi minn, ég vil ekki trúa því að þú sért farinn. En ég veit að þú vildir hvergi annars staðar fara yfir móðuna miklu en á Hesti í Önundarfirði. Þessi dagur mun verða mér erfiður um ókomna tíð sérstaklega af því að þetta er afmæl- isdagurinn minn 20. júlí, sama dag og þú náðir í mig og mömmu fyrir fjöru- tíu og þrem árum á fæðingardeildina. Ég veit ekki hvað ég hef heyrt oft söguna frá þér af því þegar þú náðir í mig og mömmu á fæðingardeildina á Skódanum sem þú varst svo stoltur af. Þér fannst ég vera svo lítill og brothættur og þú keyrðir svo hægt að það lá við að þú yrðir sektaður fyrir of hægan akstur enda einkasonurinn kominn í heiminn. Ég veit ekki hvað ég á að segja, pabbi minn, það eru svo margar stundirnar sem við áttum saman og af svo mörgu að taka. Mér eru svo minn- isstæðar sérstaklega þær útilegur sem ég, þú og mamma fórum í þegar ég var ungur drengur og hvað þér fannst gaman að fara í útilegu, alltaf var ég tilbúinn að koma með enda varst þú ekki bara faðir minn heldur einnig minn besti vinur. Ég hlæ núna á milli tára að þeirri útilegu sem við fórum einu sinni í þegar ég var um 7 ára gamall til Þingvalla og við tjöld- uðum við vatnið. Við vorum með pínu- lítið tjald og þú fékkst krampa í fótinn rétt eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir og þú renndir þér út til að rétta úr fætinum, við hlógum svo mik- ið ég og mamma. Þegar þú gafst mér fyrstu veiði- stöngina, hvað ég var montinn, ég á hana enn í dag og varðveiti. Allar þær stundir sem við áttum saman í bíl- skúrnum, þú vildir kenna mér allt um bifvélavirkjun áður en ég fengi bíl- prófið, það eru ófáar stundirnar sem við áttum saman þar. Mína fyrstu íbúð var ég ákveðinn að kaupa nálægt ykkur og keypti í Furugrund rétt fyr- ir neðan ykkur, hvað okkur fannst gaman að hittast á kvöldin og taka tafl, þú leyfðir mér að vinna stundum svo að ég gæfist ekki upp. Þú lagðir mikla áherslu á að við systkinin menntuðum okkur og þú varst svo stoltur þegar ég fór í Tækniháskól- ann, fyrstur af systkinum í fram- haldsnám. Þú vildir gera allt fyrir mig af því að þú vissir að það var erfitt að vera í námi og kaupa íbúð. Svo flutti ég til Ísafjarðar, burtu frá ykkur eftir námið, en við töluðum mikið saman í síma og stundum ekk- ert því að við hlógum svo mikið, við áttum svo auðvelt með að smita hvor annan og gátum ekki hætt að hlæja. „Hestur“, fæðingarstaður þinn sem þér fannst svo vænt um, er stutt frá Ísafirði, það er gott að vita til þess að getað skroppið þangað og notið dýrð- arinnar. Síðasta samtal okkar var þar og þú sagðir: „Umm, finnið lyktina, alveg er hún yndisleg“ og andaðir djúpt að þér. Elsku pabbi minn, það er svo sárt að halda áfram og hvað ég mun sakna þín mikið. Ég geymi þig á góðum stað í hjarta mínu. Þinn sonur, Viðar Örn Sveinbjörnsson. Elsku pabbi minn, ég trúi því ekki að þú sért farinn frá okkur. Mér finnst svo leiðinlegt að það skuli vera ár síðan ég sá þig síðast, þar sem ég bý svo langt í burtu. Ég sé svo eftir því að hafa hætt við að koma í sumar og þar sem ég ætlaði mér að vera um jólin á Íslandi. Ég hefði átt að hafa það öfugt, þótt við værum í góðu símasambandi þá er það bara ekki það sama. En ég er fegin að síðustu orðin mín til þín skuli hafa verið: Pabbi ég elska þig, þú veist það, er það ekki? Elsku pabbi minn, ég sakna þín svo mikið. Ég gat alltaf talað við þig um allt, hvað sem var mér í huga og ég vissi að ég gæti alltaf treyst þér. Ég man þegar ég var ólétt af dóttur minni, hvað þú hjálpaðir mér mikið. Þegar hún kom í heiminn þá varst þú, ásamt mömmu og Maríu frænku, fyrstur til að koma og sjá hana. Þá sagðir þú mér að þú værir byrjaður að stækka herbergið okkar og setja nýtt í loftið og nýtt parket, jú því ekkert væri of gott fyrir nýja fjölskyldumeð- liminn. Þú varst svo stoltur af Auði Maríu, litlu afastelpunni. Ég man þegar ég fékk þig til að passa hana, þú varst svo stressaður. Hún svaf í vagninum fyrir utan, og þú varst að vinna niðri. Þegar ég kom til baka, þá sastu úti við vagninn, þótt það væri hávetur og allt á kafi í snjó. Þú varst búinn að klæða þig upp eins og þú værir á leið upp á jökul og lést alla vinnu bíða. Þú varst svo hræddur um að heyra ekki í Auði Maríu ef hún mundi gráta. Mér finnst þetta lýsa þér svo vel, þú gerðir allaf alla hluti 100%, passaðir vel upp á þitt fólk. Elsku pabbi minn, mér þykir svo vænt um stundirnar okkar þegar þú sagðir mér og Maríu sögur frá því þegar þú varst lítill og sögurnar um afa og ömmu. Af öllum þessum sögum fannst mér ég þekkja ömmu og afa, þótt ég kynntist þeim aldrei. Þú tal- aðir um þau með svo mikilli ást og virðingu. Þannig mun ég tala um þig við börnin mín. Þú munt alltaf lifa í minni minningu og sögum mínum. Ég gleymi því aldrei hversu mikið fjör gat verið hjá okkur, þegar þið mamma settuð tónlist í gang og byrj- uðuð að dansa. Fjörið gat heyrst langt niður á götu. Það var alltaf dansað inn í nýtt ár, af mikilli gleði. Þú predikaðir oft yfir okkur Maríu, um hversu mikilvæg menntun er og að hún væri lykillinn að góðri framtíð. Þegar ég og María útskrifuðumst úr menntaskóla varst þú svo stoltur af okkur. Nú erum við í háskóla og ég veit að þú verður hjá okkur þegar við útskrifumst. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð leiddu mig og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson) Þín dóttir, Halla Sigrún. Elsku pabbi minn, ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur svona fljótt. Ég sakna þín svo mikið. Þetta er mér mjög erfitt. Mér finnst erfitt að hugsa til þess að hafa ekki haft tækifæri til að kveðja þig, taka utan um þig og segja hversu mikið mér þykir vænt um þig. Ég hef verið svo lengi langt í burtu frá þér en þó höfum við alltaf verið í góðu sam- bandi í gegnum nýju tölvuna þína og í símasambandi. Þú varst svo stoltur af mér fyrir að vera í verkfræðinámi í Danmörku því þú lagðir svo mikla áherslu á að ég menntaði mig. Þú kallaðir mig og Höllu alltaf „litlu blómin þín“. Við ætluðum að gera svo margt saman. Seinasta símtalið okkar var að planleggja Danmerkurferð fyrir þig og mömmu. Við ætluðum að ferðast um Danmörku eftir útskrift mína, en fyrst ætlaðir þú að hjálpa okkur Eyfa að bera í gáminn, þar sem við yrðum á heimleið. Þú hlakkaðir svo til að fá mig og mína litlu fjölskyldu aftur heim. Núna þegar við erum að flytja ertu ekki hér. Ég man okkar stundir í bílskúrn- um, þegar ég bara lítil stúlka fékk það hlutverk að vera aðstoðarmanneskja þín. Þú lést mig halda að það væri mikil hjálp frá mér, lést mig finna hversu mikilvæg ég var og að þú gæt- ir ekki skipt um olíu án minnar hjálp- ar. Þessar góðu stundir okkar í skúrn- um kveiktu áhugann minn á vélum sem leiddu mig í vélaverkfræði. Þér fannst öll tækni svo skemmti- leg. Ég man þegar við systkinin gáfu þér þinn fyrsta GSM-síma. Þú varst svo ánægður með hann. Ég fór svo til Þýskalands þetta sama sumar í tvo mánuði í málaskóla og ég sendi þér mörg SMS-skilaboð í nýja símann þinn en ég fékk engin svör til baka. Þegar ég kom heim tók ég eftir því að þú hafðir ólesin skilaboð í símanum þínum og ég benti þér á það. Þá sagðir þú: „Já, þetta „merki“ er búið að vera í meira en mánuð á símanum og ég veit ekkert hvað það merkir.“ Þá voru þetta öll skilaboðin sem ég hafi sent þér. Það er alveg vitað að það að eiga tvíbura er oft tvöföld vinna og til að gefa mömmu tíma fyrir sjálfa sig fórstu með okkur í bíltúr, en oftast á sunnudögum. Bíltúrinn byrjaði alltaf með ís og svo þræddir þú allar bílasöl- ur höfuðborgarsvæðisins, því næst var farið niður á höfn að skoða skipin og endaði svo túrinn með pulsu á Bæj- arins bestu. Ég á svo erfitt með að kveðja þig, elsku pabbi minn, og ég er alls ekki tilbúin til þess. En ég vil þakka þér, elsku pabbi minn, fyrir allar góðu stundirnar sem ég fékk með þér. Þakka þér fyrir allar góðu stundirnar sem þú áttir með börnum mínum. Þér fannst svo gaman að öllum börnum þínum og barnabörnum og varst stoltur af okkur öllum. Þú lést okkur öll finna hversu sérstök við vorum, hvert og eitt. Þakka þér fyrir allt, pabbi minn. Sorgin er mikil hjá mömmu því það er erfitt að missa elskuna sína, vin og vinnufélaga sinn í sömu andrá. Það er líka mikil sorg hjá okkur hinum. Við reynum okkar besta að vera sterk, sérstaklega fyrir mömmu. Það sem huggar okkur mest er að þú dóst á þeim stað sem þér þótti vænst um, á Hesti í Önundarfirði. Vertu blessaður, elsku pabbi minn, blómið þitt María. Elsku afi minn. Það er svo sárt að kveðja þig núna. Ég sakna þín svo mikið. Núna þegar ég sest niður að skrifa kveðjuorð til þín koma upp ýmsar góðar minning- ar. Tveimur dögum áður en þú fórst frá okkur kom ég til þín að tala við þig og ömmu til að fá lykla hjá ykkur, því ég átti að vera að passa húsið á meðan þið væruð í ferðalagi. Þegar ég kom varst þú einn heima og við stóðum lengi í bílskúrnum að tala saman um allt og ekkert. Það var alltaf svo gam- an að tala við þig. Þú hafðir alltaf svo gaman af ferða- lögum. Ég man sérstaklega eftir einu ferðalagi, þá sátum við á tröppunum fyrir utan „þitt“ hús í Hesti í Önund- arfirði og þú varst að segja mér sögur frá því þú varst barn. Svo vildir þú endilega taka smá göngutúr því það var svo mikil dalalæða. Þá sagðir þú mér að þér fyndist alltaf svo gaman að labba í dalalæðu, sérstaklega þegar hún var svo mikil að maður sá ekki fram fyrir sig en svo allt í einu snerir þú við og sagðir að þetta væri ekkert gaman því að það væri svo lítil dala- læða. Mér fannst það svo fyndið. Elsku afi minn þú fórst í aðeins lengra ferðalag en var áætlað. Ég sakna þín svo rosalega mikið og það gerum við öll. Börnin og barnabörnin þín eru öll sterk og við stöndum við bakið á ömmu okkar. Hvíl þú í friði elsku afi minn. Þín afastelpa, Halldóra Jóna. Elsku afi minn. Mikið fórstu fljótt frá okkur. Það var svo mikið sem þú og amma áttuð eftir að gera saman, rétt orðinn 67 ára og í fullu fjöri. En maður veit aldrei hvenær kallið kemur, þetta var með því síðasta sem við töluðum um. Það var alltaf svo gaman að koma upp í Vallhólmann til ykkar ömmu, maður var alltaf velkomin og þið alltaf tilbúin í kaffi og spjall. Þú varst reyndar alltaf á þönum alla daga og alltaf var það einhver annar staður en sá sem þú varst á sem þú þurftir að vera á. Þú varst alltaf að fara eitthvert annað. Alltaf varstu tilbúinn að rétta hjáp- arhönd og við barnabörnin vorum þinn veikleiki. Þú gast aldrei sagt nei við okkur. Og hvað þá langafabörnin, það var bannað að segja nei við þau að þínu mati. Og oft fékk ég að heyra frá þér, „Hvað er þetta Ragnheiður mín, gefðu barninu meira nammi, sérðu ekki að hana langar svo í meira?“ en aldrei var þá hægt að segja við þig „Nei afi, þetta er bara frekja í barninu,“ því svarið var alltaf „Rugl er þetta, barnið er ekkert frekt, það langar bara í nammi.“ Alltaf sástu það besta í okkur krökkunum þínum. Og alltaf varstu stoltur af okkur. Æi, afi minn ég veit eiginlega ekki hvað ég á að skrifa til þín sem hinstu kveðju því ég hef of margs að minnast og ég var því miður ekki viðbúin því að kallið þitt kæmi. Ég man þegar ég var lítil, hvað þú knúsaðir mig alltaf fast og kitlaðir mig með skeggbroddunum í hálsakot- ið mitt. Hvað það var alltaf gaman að horfa á þig raka þig. Fyrst notaðir þú burstann til að dreifa sápunni og var þá alltaf klínt smá sápu á nefbroddinn á mér. Þegar ég varð eldri þá urðum við svo góðir vinir og sérstaklega þegar við vorum að keyra út kleinurnar saman. Við vorum í samkeppni um hvor væri með stærri bumbu þegar ég var ólétt af stelpunum mínum og alltaf sagðir þú þá brosandi út í ann- að: „Mín er engin bumba, bara einn stór vöðvi“. Sveinbjörn Guðjón Guðjónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.