Morgunblaðið - 03.08.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 35
✝ Soffía KristínÞorkelsdóttir
fæddist á Álftá á
Mýrum 4. apríl 1915.
Hún lést á elli- og
hjúkrunarheimilinu
Hlévangi 26. júlí síð-
astliðinn. Hún var
dóttir hjónanna
Ragnheiðar Þor-
steinsdóttur, f. 1880,
d. 1955 og Þorkels
Guðmundssonar, f.
1880, d. 1968 og
önnur í röð fjögurra
systkina. Hin eru El-
ín, f. 1909, d. 1994, Lóa, f. 1917 og
Halldór, f. 1921.
Soffía giftist 1944 Ólafi Sigurðs-
syni matsveini, f. 1915, d. 1995,
þau skildu. Saman áttu þau tvær
dætur, Ásu, f. 1945 og Gunnhildi, f.
1949, d. 1998. Gunnhildur eign-
aðist sjálf engin börn en tók drjúg-
an þátt í að ala upp börn og barna-
barn seinni eiginmanns síns
Borgars H. Ólafssonar. Ása á eina
dóttur, Tinnu Manswell Stef-
ánsdóttur, f. 1973, gift Ingimari
Þór Jóhannessyni, f. 1969. Dóttir
Tinnu er Hrafnhildur Ása Ævars-
dóttir, f. 1991 en synir Tinnu og
Ingimars eru Stefán
Ólafur, f. 1997, Dag-
ur, f. 2002 og Freyr,
f. 2005.
Soffía fluttist til
Keflavíkur og hóf
búskap í kjall-
aranum að Suð-
urgötu 46, en á efri
hæðinni bjuggu þau
Elín systir hennar
og eiginmaður El-
ínar, Valtýr Guð-
jónsson. Soffía flutti
að Ásabraut 10 árið
1950 og fimm árum
síðar stofnaði hún Hannyrðaversl-
unina Álftá ásamt Elínu systur
sinni og rak hana fram að árinu
2006. Soffía stundaði námskeið í
Baðstofunni í teikningu og málun
um árabil, undir handleiðslu Ei-
ríks Smith og annarra myndlist-
armanna. Hún hélt nokkrar einka-
sýningar á verkum sínum og
margar hópsýningar með félögum
sínum úr Baðstofunni. Soffía flutti
á dvalarheimili aldraðra, Hlévang
í Keflavík, haustið 2006.
Útför Soffíu Kristínar verður
gerð frá Keflavíkurkirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
Nú hefur ein úr kjarnanum í Bað-
stofunni lokið vegferð sinni. Það er
ekki ofsögum sagt að Soffía var
kjarnakona. Það var sama hvort það
var myndlist, hannyrðir eða smíðar,
allt lék í höndum hennar. Soffía var
sérstök, mjög ákveðin, hreinskilin og
var kannski ekki allra. Við erum
þakklátar fyrir að hafa verið svo lán-
samar að kynnast Soffíu. Í minning-
unni geymum við allar morgun-
stundirnar sem við áttum saman yfir
kaffibolla. Það er svolítið sérstakt að
við hugsuðum aldrei um aldur þegar
Soffía var annars vegar. Hún var svo
hress og framúrstefnuleg í klæða-
burði. Þegar við sjáum fjólubláan lit
dettur okkur gjarnan Soffía í hug. Í
ferðinni til London var hún alltaf
tilbúin til að taka þátt í öllu, fara á
söfn, eða fara út kvöldstund til lyfta
sér upp, enda var hún létt á fæti. Við
munum sakna símhringinganna frá
henni, hún var svo dugleg að halda
tengslum. Söknuður verður þegar
við förum á sýningar án hennar.
Við kveðjum Soffíu Þorkelsdóttur
í dag og þökkum henni samfylgdina.
Við sendum samúðarkveðjur til Ásu
og fjölskyldu hennar og biðjum Guð
að blessa þau.
Ásta, Þórunn og Sigríður.
Að fæðast og deyja er það sem all-
ir ganga í gegnum og það er hún
Soffía búin að reyna. Hún er búin að
ganga lífsleiðina og við tekur eitt-
hvað annað tilverustig sem er okkur
sem eftir lifum hulið. Mig langar að
skrifa hér nokkur minningarorð. Ég
kynntist Soffu, eins og hún var alltaf
kölluð, sem krakki heima í Álftár-
tungu. Þá kom hún með Gunnhildi
dóttur sína til sumardvalar hjá for-
eldrum mínum frá Álftá suður að
Álftártungu. Síðan þetta gerðist eru
liðin um 50 ár.
Mikið vatn hefur runnið til sjávar
síðan og margt fór öðruvísi en áætlað
var. Fyrir um átta árum síðan dó hún
Gunnhildur og missti Soffa þá mikið.
Hún var dugleg að koma vestur á
Mýrar og vitja kunningja sinna og
núna seinni árin kom hún til mín á
sumrin og stoppaði í þrjár til fjórar
vikur í senn. Á meðan naut hún lífs-
ins í Borgarnesi. Hún tók að sér
eldamennskuna og önnur húsverk á
heimilinu og þótti húsmóðurinni það
afar notalegt að koma að tilbúnu
matarborðinu og ég tala nú ekki um
frágang eftir matinn. Á meðan ég
var að vinna fór hún um bæinn og
heimsótti gamla vini og svo brennd-
um við vestur á Mýrar. Soffa var
ákaflega listhneigð kona. Hún saum-
aði, prjónaði og málaði myndir. Hún
hélt málverkasýningar í Keflavík og
einnig hér í Borgarnesi. Gaf hún
okkur systkinunum margar myndir
og er það svo að á mörgum heimilum
í dag er að finna málverk eftir Soffu.
Það var gaman að hlæja með Soffu
og gera að gamni sínu og eyddum við
mörgum stundum saman hlæjandi.
Fyrir um það bil hálfum mánuði síð-
an fórum við hjónin til Keflavíkur að
vitja hennar. Þá var augljóst að
hverju stefndi. Þegar ég fór út um
dyrnar veifaði hún mér í kveðju-
skyni. Viku síðar var hún öll.
Ása, Tinna og fjölskylda, innilegar
samúðarkveðjur.
Steinunn og Sigurður
Borgarnesi.
Nú eru dagarnir taldir hjá henni
Soffu minni. Það er ekki laust við að í
huga mér komi upp þakklæti til
hennar á þessari stundu. Hún á sinn
þátt í því hvaða stefnu ég hef tekið í
lífi mínu. Á sumrin var Soffa vön að
koma upp í Borgarnes þar sem hún
heimsótti gamla vini og naut lífsins.
Þessar ferðir einkenndust af leit
hennar að innblæstri í verk sín sem
hún vann þegar hún kom heim. Soffa
var nefnilega mikill listamaður og
þar kemur að þakklæti mínu. Soffa
gaf sér alltaf tíma til að skoða mynd-
ir sem ég hafði teiknað og ljósmyndir
sem ég hafði tekið og hvatti mig til
dáða í listinni.
Alltaf man ég eftir gjöf sem hún
gaf mér þegar ég var lítill, kassa með
olíulitum og pensil svo ég myndi nú
halda áfram að skapa. Þess vegna
finnst mér sem hvert strik sem ég
dreg í dag hafi anda Soffu og þó svo
mín list liggi í öðrum miðlum en
hennar.
Hún tók líka Önnu Siggu minni
alltaf vel og er hún einnig þakklát í
hjarta nú þegar allt er um garð
gengið.
Sigursteinn og Anna Sigríður.
Soffía Kristín
Þorkelsdóttir
Á haustmánuðum 1984 hittist
hópur kvenna sem allar voru makar
rótarýmanna og tóku þá ákvörðun
að stofna Inner Wheel klúbb en svo
nefnist félagsskapur okkar. Þeirra á
meðal var Aldís Benediktsdóttir .
Hún var félagi í Inner Wheel Breið-
holti frá upphafi klúbbsins og til
dauðadags.
Hún var góður félagi okkar. Hún
var ekki ein af þessum sem tala
mest og hæst en hún hafði ákaflega
þægilega nærveru. Hún var dugleg
og ráðagóð og það var gott að vinna
með henni. Henni voru því falin
Aldís Pála
Benediktsdóttir
✝ Aldís PálaBenediktsdóttir
fæddist á Gríms-
stöðum á Hóls-
fjöllum í Norður-
Þingeyjarsýslu hinn
8. júlí 1940. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi fimmtu-
daginn 12. júlí síð-
astliðinn og var út-
för hennar gerð frá
Fríkirkjunni í
Reykjavík 24. júlí.
ábygðarstörf bæði
fyrir klúbbinn og um-
dæmi Inner Wheel á
Íslandi.
Þegar hún greind-
ist með krabbamein
hófst barátta sem hún
háði af miklum dugn-
aði og ærðuleysi.
Lengi vel gerðum við
okkur vonir um að
hún mundi sigra í
þeirri baráttu en á
endanum var það
sláttumaðurinn slyngi
sem fór með sigur af
hólmi.
Það er alltaf erfitt að kveðja góð-
an vin hinstu kveðju. Um leið og við
þökkum henni samveruna viljum við
votta eiginmanni og börnum og öðr-
um aðstandendum okkar dýpstu
samúð og biðjum guð að blessa þau.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyri allt og allt.
Gekkst þú með guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
F.h. I.W.-Breiðholt.
Ásthildur Pálsdóttir
Ég elska þig amma mín.
Guð blessi þig og ég sakna þín
mjög mikið.
Þín
Emilíana.
Elsku amma.
Ég elska þig og sakna þin.
Svo þakklát fyrir að hafa fengið að
koma til þín.
Ég mun aldrei gleyma þér.
Þín
Amanda Eir.
Við elskum þig amma.
Við söknum þín líka.
Þinn
Amos Esra og Thea Lív.
Sigríður
Tryggva-
dóttir
✝ Sigríður Tryggvadóttir fædd-ist í Gröf í Eyjafjarðarsveit
20. júní 1923. Hún lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
þriðjudaginn 24. apríl síðastliðinn
og var útför hennar gerð í kyrr-
þey frá Höfðakapellu 2. maí.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og frænka,
ARNÞRÚÐUR G. GUÐMUNDSDÓTTIR,
er látin.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Örn Guðmundsson
og fjölskylda.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
RAGNHEIÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR
GUÐJOHNSEN,
áður til heimilis
í Hvassaleiti 58,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 1. ágúst á hjúkrunarheimilinu
Skógarbæ, Árskógum 2 í Reykjavík.
Stefán Guðjohnsen, Árný J. Guðjohnsen,
Eiður Guðjohnsen, Arnrún Sigfúsdóttir,
Guðbrandur Þór Guðjohnsen,
barnabörnin og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSTA EINARSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Víðinesi, mánudaginn
30. júlí.
Ágústa Guðmundsdóttir, Ólafur Gunnarsson
Egill Guðmundsson,
Böðvar Guðmundsson, Hólmfríður Kolka Zophoníasdóttir,
Einar Guðmundsson, Björg Anna Björgvinsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
SVANBORGAR SIGVALDADÓTTUR,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
sem lést 12. júlí.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dalbraut.
Hólmfríður Guðmundsdóttir, Jón M. Baldvinsson,
Jóhannes Guðmundsson, Sigríður Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
BERGÞÓRA SIGMARSDÓTTIR
Skipasundi 57,
Reykjavík,
lést miðvikudaginn 1. ágúst.
Sveinn Karlsson,
Ásdís Karlsdóttir, Maríus J. Lund,
Sigmar Karlsson, Elke Amend,
Sigríður Karlsdóttir, Pétur H. Ísleifsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐJÓN BJARNASON
frá Bæjarstæði,
Höfðagrund 1,
Akranesi,
lést fimmtudaginn 2. ágúst á Sjúkrahúsi Akraness.
Útför auglýst síðar.
Sigurður Guðjónsson, Gígja Garðarsdóttir,
Vigdís H. Guðjónsdóttir, Kristján Jóhannesson,
Bjarni Guðjónsson, Margrét Grétarsdóttir,
Ástríður L. Guðjónsdóttir, Margeir Þorgeirsson.