Morgunblaðið - 03.08.2007, Page 49

Morgunblaðið - 03.08.2007, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 2007 49 / AKUREYRI / KEFLAVÍK NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is WWW.SAMBIO.IS NANCY DREW kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára THE SIMPSONS kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ NANCY DREW kl. 8 - 10 B.i. 7 ára GEORGIA RULE kl. 9 B.i. 7 ára HARRY POTTER 5 kl. 6 B.i. 10 ára SHREK 3 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ eeee FGG - Fréttablaðið eeee ÓHT - Rás2 eeee Morgunblaðið eeee RUV eeee DV eeee Tommi - Kvikmyndir.is Frá leikstjóra „Pretty Woman“ og „Princess Diaries“ FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS STEFNUMÓTAMYND SUMARSINS HEFURÐU UPPLIFAÐ HIÐ FULLKOMNA STEFNUMÓT? ÁSTIN ER BLIND HLJÓÐ OG MYND 45.0 00 G ESTI R VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is HLJÓMSVEITIN Johnny and the Rest bjóða upp á blúsveislu á Gaukn- um í kvöld. Með þeim spila hljóm- sveitin Mood, Elín Ey og saxafónleik- ararnir bandarísku Stephon Alexander og Jason Harden. En hver er þessi Johnny? „Hann er sálin í bandinu,“ segir Hrafnkell Már Ein- arsson, söngvari og gítarleikari sveit- arinnar. „Við erum restin og reynum að uppfylla óskir Johnny.“ Þeir hafa spilað saman í tvö ár og byrjuðu að halda tónleika fyrir ári, byrjuðu í bíl- skúrnum en „enduðum svo upp á Granda hjá Danna Pollock og höfum verið þar síðan að púsla okkur sam- an“. Af gestaspilurum kvöldsins kann- ast margir betur við trúbadorinn El- ínu Ey sem Elínu Eyþórsdóttur, dóttur tónlistarmannanna Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs Gunn- arssonar. Saxafónleikararnir banda- rísku hafa svo báðir tónlistina sem aukabúgrein, Alexander kennir stjörnufræði við Harvard og Harden spilar körfubolta fyrir Þór í Þorláks- höfn. Samhljómur alheimsins Stephon Alexander kennir stjörnu- fræði við Harvard-háskóla í Banda- ríkjunum auk þess að kenna tónlist og spila á saxafón sjálfur. Hann kom þó til Íslands á vegum National Geographic vegna vinnu við heimild- armynd um tengsl tónlistar og vís- inda. Þá er hann einnig að vinna efni fyrir Closer to Truth sem er verkefni þar sem vísindamenn, fræðimenn og listamenn reyna að byggja brýr á milli greinanna og halda bæði út vef- síðu (closertotruth.com) sem og sjón- varpsþætti í almenningssjónvarpi í Bandaríkjunum. Hann hefur aðeins einu sinni áður spilað með Johnny and the Rest. „Vinkona gítarleik- arans þekkir mig og fékk mig til að koma á Grand rokk og þar endaði ég uppi á sviði og tók nokkrar lykkjur með þeim.“ Þannig gekk það í gegn- um kvöldið og menn voru svo ánægð- ir með samstarfið að framhald verður á. En hvernig gengur að samræma músíkina og vísindin? „Þjóðfélagið setur vissulega á mann pressu um að velja, hver maður á helst bara að vera eitthvað eitt. En mér hefur tekist að flétta þetta sam- an. Þetta snýst líka allt um samhljóm, samhljóminn í alheiminum og sam- hljóminn í tónlistinni.“ Frá Líbanon til Þorlákshafnar Jason Harden flutti til Íslands árið 1999 til að spila körfubolta og hefur stundað þá iðju síðan á Egilsstöðum, í Reykjavík og Þorlákshöfn með að- komu í körfuknattleiksdeildum Líb- anon og Kýpur. Hann hafði þó verið í löngu fríi frá tónlistinni þegar hann kom til Íslands. „Þegar ég var fjórtán ára stal ein- hver horninu mínu og ég spilaði ekki í fimmtán ár. Þegar ég fór aftur heim sumarið 1999 fékk ég mér loksins nýtt og keypti auk þess stóran stafla af bókum og kenndi sjálfum mér á saxófóninn alveg upp á nýtt,“ segir Harden og ég sýti það mjög að þetta sé blaðaviðtal þannig að lesendur geta ekki heyrt tilfinninguna sem blúsarinn leggur í orðin „my horn“. Síðan þá hefur hann meðal annars unnið mikið með söngkonunni Ke- nýu, en það var á gangi um Kolaport- ið síðustu helgi sem hann komst í kynni við stjörnufræðinginn Alex- ander og í kjölfarið við Johnny and the Rest sem hann treður upp með í kvöld. En tónlistarlífið er einnig líf- legt í körfuboltanum „enda spila allir á Íslandi á hljóðfæri“ og hann segir að Þór í Þorlákshöfn gæti vel náð saman í band. „Ég get sungið og spil- að á saxófón og hljómborð, einn í lið- inu spilar á píanó, annar á gítar og þriðji á trommur.“ Stjörnur, körfubolti og saxófónn Í HNOTSKURN »Það verður tónlistarveislaá Gauknum alla helgina og kostar 500 krónur inn hvert kvöld. »Á laugardaginn spila Múg-sefjun, Ultramegateknó- bandið Stefán, Dikta, Miri og Zodogan. »Á sunnudaginn spilar Jón-as Sigurðsson og hljóm- sveit hans Þar sem malbikið svífur. Morgunblaðið/ÞÖK Félagarnir Liðsmenn Johnny and the Rest, Hrafnkell, Bragi og Guðmundur, með Stephon (með derhúfu) og Jason. www.johnnyandtherest.com R&B-söngvarinn R. Kelly hefur verið ákærður fyrir að brjóta á barni kynferð- islega og hefjast réttarhöld í mál- inu 17. sept- ember. Málið hef- ur verið fimm ár í undirbúningi, þ.e. frá því hann var kærður. Kelly heitir réttu nafni Robert Kelly og er fertugur. Hann á yfir höfði sér 15 ára fangelsisvist, verði hann sekur fundinn. Kelly er gefið að sök að hafa haft samfarir við stúlku undir lögaldri og tekið upp á myndband. Verjendur Kelly segja aldur stúlkunnar ekki liggja fyrir og auk þess sé ekki ljóst hvort Kelly sé á myndbandinu. Réttarhöld í september Robert Kelly WOODY Allen kvikmyndagerðar- maður segir í sérstöku viðtali við Time vegna andláts Ingmar Berg- mans og Michelangelo Antonioni, að fráfall þeirra á sama degi sé sann- arlega hörmulegt. Allen er þekktur fyrir aðdáun sína á verkum Berg- man en um Antonioni segir hann: „Hann var frábær í ping-pong. Ég keppti við hann; hann vann mig allt- af af því hann gat seilst svo langt.“ Reuters Spaugari Allen dáði Bergman. Góður í ping-pong

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.