Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 6

Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is „ÞAÐ er mannlífið sem skapar miðbæinn, ekki einhver stein- steypa,“ segir Guðmundur Sverris- son, talsmaður Miðbæjarfélagsins sem mótmælt hefur fyrirhuguðum framkvæmdum í miðbæ Selfoss. Félagsmenn afhentu í gær Ragn- heiði Hergeirsdóttur bæjarstjóra lista með 1.100 undirskriftum sem safnað var meðal bæjarbúa. „Við fundum fyrir miklum stuðningi og það er samdóma álit okkar sem stóðum að þessu að af þeim bæj- arbúum sem við náðum til heima hafi verið allt að 80% sem skrifuðu undir,“ segir Guðmundur. Miðbæjarsamtökin gagnrýna helst byggingamagnið sem reisa á í miðbænum, m.a. með þeim afleið- ingum að stórum hluta bæjargarðs- ins svokallaða verður fórnað. Guð- mundur segir garðinn geta nýst mun betur sem grænt útivistar- svæði ef hann yrði efldur og bættur. Verslanir frekar en íbúðabyggð „Við gerum líka athugasemdir við hið mikla magn íbúðarhúsnæðis sem stendur til að reisa, sem kallar nátt- úrlega á gífurlegan fjölda bílastæða. Við viljum sjá því breytt meira í verslunar- og þjónusturými, sem kallar á meira líf í miðbæinn. Eins er það bæjartorgið svokallaða, sem er reyndar að okkar mati of lítið. Um það liggja krossgötur og bíla- stæði við, svo það er að okkar mati ekki líklegt til að blómstra mikið.“ Með undirskriftasöfnuninni von- ast Miðbæjarfélagið til að bæjar- stjórnin bregðist við og komi til móts við íbúana. Að sögn Guðmund- ar var það fólk á öllum aldri og úr öllum flokkum sem skrifaði undir, bæði rótgrónir íbúar og nýaðfluttir. „Við megum ekki gleyma því að þegar við skipuleggjum svona miðbæ frá grunni erum við í raun að skipuleggja til allrar framtíðar, því það er alveg sama hvað hérna verð- ur stór borg, þetta mun alltaf verða miðbærinn og andlit Selfoss, bæði út á við og inn á við.“ Guðmundur segist vongóður um að fjöldi undir- skriftanna verði tekinn alvarlega í bæjarstjórn og Miðbæjarfélagið verði fengið til viðræðna um fram- haldið. „Auðvitað vildum við helst að skipulagið yrði hreinlega gert upp á nýtt og jafnvel farið í nýja sam- keppni þar sem arkitektar væru ekki bundnir af þessu mikla bygg- ingarmagni. Hins vegar teljum við líka að það sé hægt að breyta þessu og bæta og reyna þannig að mætast á miðri leið.“ Mannlífið á Selfossi fái að blómstra í nýjum miðbæ Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Baráttuhugur Miðbæjarfélagið afhendir bæjarstjóra undirskriftir 1.100 bæjarbúa Selfoss. Magnús Árnason, Esther Óskarsdóttir, Árni Valdimarsson, Guðmundur Sverrisson og Ragnheiður Hergeirsdóttir. Ljósmynd/Árni Valdimarsson Sögulegt Pakkhúsið hýsti áður alla innflutta vöru auk afurða bænda í sveitinni. Það hefur síðan gegnt margbreytilegu hlutverki. BREYTINGAR eru fyrirhugaðar á stjórnkerfi borgarinnar sem að sögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar borgarstjóra miða að því að efla vægi umhverfisins við rekstur borgarlandsins og mótun sam- göngumannvirkja. „Við ætlum að taka til hendinni og verja auknu fjármagni í viðhald sem hefur verið vanrækt í mörg ár.“ Breytingarnar fela annarsvegar í sér stofnun Eignasjóðs sem á að fara með framkvæmdir og rekstur á eignum borgarinnar og hinsvegar verða samgöngumál færð undir umhverfissvið borgarinnar, svo það verður framvegis umhverfis- og samgöngusvið. Um leið leggjast framkvæmdasvið og Skipulagssjóð- ur af. Borgarstjóri bar tillögu þessa efnis upp í borgarráði í gær. Gísli Marteinn Baldursson mun stýra hinu nýja umhverfis- og sam- göngusviði. Hann segir samgöngur skapa mestu ógnina við umhverfið í borginni, hvort sem litið er til svif- ryksmengunar, útblásturs eða há- vaða. Að sögn Gísla Marteins verður áhersla lögð á að efla almennings- samgöngur og fjölga þeim valkost- um sem borgarbúum bjóðast til þess að komast leiðar sinnar um borgina. Það sé ekki hægt nema samgöngurnar og umhverfismálin séu á sömu hendi. „Með því að hugsa um þetta saman náum við að hanna um- ferðarmannvirki og göturnar okk- ar þannig að það sé ekki bara hugsað um einn þátt heldur alla.“ Óskar Bergs- son, formaður framkvæmda- ráðs, sagði að stærsta breytingin sem fylgdi stofnun Eignasjóðs væri að þar með yrði hann aðskilinn frá aðalsjóðnum. „Við höfum lengst af verið með stofnframkvæmdirnar og viðhaldið inni í þessari hefðbundnu fjárhagsáætlanagerð á hverju hausti. Með því að aðskilja þennan rekstur í eignasjóð og aðalsjóð get- um við farið að horfa á fram- kvæmdirnar og viðhaldið alveg sér- staklega, án þess að það hafi áhrif á almennan rekstur í borginni.“ Gísli Marteinn segir að kostn- aður verði óverulegur við þessar breytingar, enda hafi flutningar staðið fyrir dyrum hjá stofnunum hvort sem er og ekki komi til stór- vægilegra útgjalda að öðru leyti. Engar uppsagnir eru fyrirhugaðar vegna skipulagsbreytinganna, held- ur er gert ráð fyrir því að starfs- menn fylgi verkefnum til nýrra stofnana. Meiri pening- ar í viðhald Borgin ætlar að efla vægi umhverfisins Gísli Marteinn Baldursson Í SKIPULAGI um uppbyggingu miðbæjarins á Selfossi er gert ráð fyrir niður- rifi Pakkhússins, sem reist var 1941 sem vöru- geymsla þegar skipakomur hurfu frá Eyr- arbakka og til Reykjavíkur í byrjun seinna stríðs. Árni Valdimarsson, forsvars- maður Hollvinasamtaka Pakkhúss- ins, segir húsið í toppstandi og nýt- ingarmöguleika þess mikla, en það hýsir nú m.a. jarðskjálftamiðstöð Háskóla Íslands. „Mér finnst mik- ilvægt að leggja enn þyngri og meiri áherslu á Pakkhúsið, því ef við getum varið það er óhjá- kvæmilegt annað en að þessar áætl- anir breytist mikið í kjölfarið.“ Húsið er yfir 200 fermetrar að stærð og þótti mikið stórhýsi á sín- um tíma. Árið 1991 var það að mestu endurbyggt eftir bruna og lagði arkitektinn, Helgi Bergmann Sigurðsson, mikinn metnað í að halda upprunalegri mynd hið ytra og í samræmi við Kaupfélagshúsið sjálft og fellur það því að sögn Árna vel inn í þá sögulegu heild sem myndaðist á austurbakka Ölfusár þegar uppbygging þéttbýlis á Sel- fossi varð fyrst að veruleika. „Það er því mjög villandi að segja í skipulagstillögunni að húsið sé ekkert líkt því sem það var, því það er alveg eins og það er nú ekki svo mikið af sögulegum stöðum hér á Selfossi svo við leggjum mikla áherslu á að varðveita sögu þessara húsa.“ Og Árni segir skömm að því að það skuli vera framsóknarmenn í bæjarstjórn sem gangi harðast fram í eyðileggingunni. „Mér finnst sorglegt að horfa upp á að það skuli ekki vera fyrst og fremst framsókn- armenn sem ganga fram fyrir skjöldu að varðveita þessa merku sögu, sem samvinnumenn eiga hér og tengdust stórhuga uppbyggingu kaupfélagsins á Selfossi.“ Sorglegt að horfa upp á Árni Valdimarsson ÞRJÚ fyrirtæki skiluðu tilboðum vegna gegnumlýsingarbúnaðar fyrir gáma sem Tollstjórinn í Reykjavík hyggst kaupa. Hæsta tilboð hljóðaði upp á um 181 milljón króna en lægsta boð var 66,5 milljón krónum lægra. Lægsta boðið, upp á 114,5 millj- ónir króna barst frá kínversku fyr- irtæki, Nuctech Company, næst- hæsta boð, 151,6 milljónir, átti breska fyrirtækið Rapiscan Systems en hæsta boð kom frá Smith og Nor- land í samvinnu við Hyman. Ríkiskaup og tollstjóraembættið munu fara yfir tilboðin á næstu vik- um áður en ákveðið verður hvaða tæki verður keypt. 66,5 milljóna munur á tilboðum KÓPAVOGSBÆR mun á næstunni auglýsa tillögu til breyt- inga á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna svo- nefnds Glaðheimasvæðis. Harkalega var deilt um skipulag svæðisins í vor en þá strönduðu áform bæjarins um að heim- ila þar byggingu víðáttumikilla skrifstofubygginga þegar umhverfisráðuneytið úrskurðaði að fyrirhuguð breyting á skipulaginu gæti ekki talist óveruleg – líkt og Kópavogsbær hélt fram. Vegna þessa úrskurðar ráðuneytisins – sem það hafnaði að taka upp á nýjan leik – þarf málið að fara fyrir samvinnu- nefnd um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Sú nefnd hefur nú samþykkt að heimila Kópavogsbæ að auglýsa til- lögu að nýju svæðisskipulagi og þar með hefst ferli sem getur tekið töluverðan tíma, nokkra mánuði í það minnsta. Ekki verður af málsókn Þegar deilur um skipulagið stóðu sem hæst í vor sagði Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, m.a. að það stefndi í stríðsástand í skipulagsmálum á höfuðborgarsvæð- inu ef önnur sveitarfélög féllust ekki á tillögu bæjarins og að líklegt væri að bærinn myndi höfða dómsmál til að fá ákvörð- un ráðuneytisins hnekkt. Að sögn Smára Smárasonar, skipu- lagsstjóra Kópavogs, verður ekki af málsókn og eftir á að koma í ljós hvort sveitarfélögin samþykkja tillöguna. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í maí árið 2006 að kaupa Glaðheimasvæðið og nam kostnaður um 3,5 milljörðum. Ný tillaga fyrir Glað- heima í deiglunni Morgunblaðið/ÞÖK Umdeilt Deilt hefur verið um skipulag Glað- heimasvæðisins í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.