Morgunblaðið - 31.08.2007, Side 17

Morgunblaðið - 31.08.2007, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 17 ERLENT OLÍUVERÐ á heimsmarkaði hækkaði í gær, aðallega vegna minni eldsneytisbirgða í Banda- ríkjunum en einnig vegna þess, að verð á hlutabréfum hefur hækkað eftir mikla ókyrrð að undanförnu. Í New York sleikti olíuverðið 74 dollara fyrir fatið, komst í 73,73 dollara, og Norðursjáv- arolía af Brent-svæðinu fór í 72,19 dollara. Bandaríska orkuráðuneytið til- kynnti í fyrradag, að eldsneyt- isbirgðir í landinu hefðu minnkað um 3,5 milljónir fata í síðustu viku eða um sexfalt meira en spáð hafði verið. Skýrt hefur verið frá því, að hagvöxtur hafi verið 4% í Banda- ríkjunum á öðrum ársfjórðungi en þrátt fyrir það hafa margir áhyggjur af efnahagshorfunum, ekki síst vegna vaxandi eftir- spurnar eftir olíu um allan heim. Gengi hlutabréfa hækkaði veru- lega á Wall Street í fyrradag en lítið framan af degi í gær. Olían gælir við 74 dollara fyrir fatið á heimsmarkaði Reuters Dropinn dýri Líklega er það líðin tíð að bensínið lækki í verði. LARRY Craig, öldungadeildarþingmaður repúblikana fyrir Idaho í Bandaríkjunum, sem játaði á sig ósæmilega hegðun á karlaklósetti, einangrast meir og meir í sínum eigin flokki. Hafa nokkrir flokksbræður hans hvatt hann til að segja af sér sem þingmaður. Craig var handtekinn í júní á karlaklósetti í flughöfn- inni í Minneapolis-St Paul og sakaður um að hafa reynt að gefa öðrum körlum undir fótinn inni á klósettinu. Ját- aði hann sig sekan um það en dró síðar játninguna til baka og sagði, að hún hefði verið gefin í þeirri von, að málinu væri þar með lokið. Segist hann ekki vera sam- kynhneigður og hefur raunar barist gegn hagsmuna- málum þeirra á þingi. Fyrrverandi vinir Craigs, sem var í miklum metum í Repúblikanaflokknum, forðast hann nú eins og heitan eldinn og John McCain, öldungadeildarþingmaður fyrir Arizona og einn af þeim, sem vilja verða forsetaefni flokksins, segist óttast, að þetta mál eigi eftir að sverta ímynd flokksins „enn frekar“. Flokksbræður Craigs hvetja hann til að segja af sér Þingmaðurinn Larry Craig. SJÖ Suður-Kóreumenn, sem talíb- anar í Afganistan höfðu í gíslingu, voru í gær látnir lausir og er gísla- tökunni þar með lokið. Alls tóku talíbanar á sínum tíma 23 s-kór- eska gísla sem störfuðu að mannúðarmálum á vegum krist- inna safnaða í heimalandi sínu. Talíbanar myrtu tvo þeirra til að leggja áherslu á kröfur sínar um að afganska stjórnin léti lausa upp- reisnarmenn. Fólkið var tekið 12. júlí sl. og hafnaði stjórn Afganistan með öllu kröfum talíbana. Fulltrúar Suður- Kóreustjórnar náðu loks sam- komulagi við talíbana og fóru við- ræðurnar fram í húsakynnum Rauða hálfmánans í Ghazni-héraði. AP Úr haldi Tveir af suður-kóresku gíslunum í Afganistan. Síðustu gísl- arnir frjálsir RÚSSNESKIR saksóknarar hafa sleppt úr haldi tveimur mönnum, sem handteknir voru vegna morðsins á blaða- konunni Önnu Polítkovskaju. Þá er þriðji maðurinn ekki lengur talinn tengjast málinu. Skýrt var frá því á mánudag, að 10 menn hefðu verið handteknir vegna rannsóknar á morðinu en margir rússneskir blaðamenn tóku tilkynningunni strax með miklum efasemdum. Ljóst er, að Polítkovskaja átti sér margar óvildarmenn vegna skrifa sinna um mannrétt- indabrot í Tétsníu en Júrí Tsjaíka, yfirsaksóknari í Rúss- landi, heldur því fram, að tétsenskur glæpaflokkur í Moskvu hafi myrt hana. Við það hafi hann notið aðstoðar manna í rússnesku lögreglunni. Tilgangurinn hafi m.a. verið að koma höggi á Vladímír Pútín forseta. Efasemdir um málatilbúnað Anna Politkovskaja MIKIÐ hneyksli er hugsanlega í uppsiglingu í Hollandi. Óttast er, að um 500 manns hafi smitast í sumar af lifrarbólgu eða alnæmi á sjúkra- húsi. Er ástæðan sögð galli í sótt- hreinsunarvél. Sjúkrahússmit Æ OFTAR koma upp taugaveiki- tilfelli í Bretlandi og segja læknar ástæðuna þá, að fólk ferðist til hinna ýmsu afkima veraldarinnar án þess að láta sprauta sig. Taugaveikismit ÞAU hjónin Victoria og Tim Lasita áttu þríbura í maí í fyrra en langaði þó til að eiga eitt barn enn. Það kom í heiminn í gær ásamt tveimur systkinum, sem sagt aðrir þríburar. Það þýðir 300 bleiuskipti á viku. Tvisvar þríbura NORSKI auðkýfingurinn Kjell Inge Røkke hóf í gær að afplána 30 daga dóm fyrir að hafa mútað embættis- manni árið 2001. Fékk Røkke að hefja afplánun degi fyrr en til stóð til að losna við ágang fjölmiðla. Byrjar afplánun ÍTALSKA lögreglan handtók í gær yfir þrjátíu menn í illræmdri mafíufjölskyldu sem talin er hafa staðið á bak við morð á sex Ítölum í þýsku borginni Duisburg fyrir hálfum mánuði. Eru morðin rakin til illdeilna inn- an fjölskyldunnar. Hér sést lögreglumaður á verði við inngang neðanjarðarvígis mafíufólksins í bænum San Luca. Lögreglan lét til skarar skríða eftir að saksóknarar fyrirskipuðu handtöku 40 manna í Calabria-héraði á sunnanverðri Ítalíu. Ítölsk yfirvöld segja að ættvíg fylkinga í mafíusamtökunum ’Ndrangheta hafi leitt til morðanna á Ítölunum sex í Duisburg. Fimm þeirra voru skyldir. Um 350 sérsveitarmenn tóku þátt í handtökunum sem hófust í dögun í gær í San Luca. Á meðal hinna handteknu eru fimm konur, tveir bræður tveggja þeirra sem voru myrtir í Duisburg, og foringi einnar af fylkingum mafíufjölskyldunnar. AP Tugir mafíumanna handteknir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.