Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 20

Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Eftir Gunnar Gunnarsson Fljótsdalur | Þrjú verkefni hlutu styrk úr rannsóknarsjóði Fljóts- dalshrepps og Landsbanka Íslands. Tvö verkefni fengu aðalstyrk, þrjú hundruð þúsund krónur, en eitt verkefni aukastyrk, fimmtíu þús- und kr. Aðalstyrkina fengu Lárus Heiðarsson skógverkfræðingur og Jón Benjamínsson jarðfræðingur. Lárus stundar meistaranám og vinnur að verkefni um kolefn- isbindingu í hreppnum. „Hug- myndin kom upphaflega í nefnd sem vann að staðardagskrá 21 fyrir hreppinn. Ég safna upplýsingum um kolefnisbindingu í hreppnum, með það að markmiði að komast að því hvort Fljótsdælingar binda eða losa kolefni,“ sagði Lárus. Jón hefur um langt árabil unnið að rannsóknum á heitum lindum í Fljótsdalshreppi. „Ég er afskaplega ánægður með að fá þennan styrk sem gerir mér kleift að setja semí- kommu aftan við verkefni sem hófst fyrir 36 árum. Hann verður notaður til að greiða fyrir efna- greiningar í Svíþjóð og ísótópa- greiningar við Háskóla Íslands. Ég vona að hann leiði til aukins skiln- ings á jarðhita sem tilheyrir Fljóts- dalshreppi og hver veit nema þetta leiði til nýtingar á jarðhita.“ Dagný Arnarsdóttir, sem stundar meistaranám í umhverfis- og auð- lindastjórnun, fékk aukastyrkinn. Hún hefur seinustu tvö sumur starf- að sem fornleifafræðingur á Skriðuklaustri. „Ég tiltók allar auð- lindir í dalnum, sem eru marg- víslegar og ekki síst menning- arlega, setti í pott og greindi út frá kúnstarinnar reglum. Niðurstöð- unum verður síðar skilað til hreppsins sem vonandi getur nýtt sér þær,“ segir Dagný. Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson Viðurkenning Jón Benjamínsson, Gunnþórunn Ingólfsdóttir oddviti, Lárus Heiðarsson, Tryggvi Karlesen í Landsbankanum og Dagný Arnarsdóttir. Styrkir til rannsókna á jarðvarma og skógrækt AUSTURLAND SKIPULAG Urriðaholts í Garðabæ er komið í lokaúrslit LivCom verð- launanna sem eru alþjóðleg um- hverfisverðlaun, veitt með stuðn- ingi Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Þá hefur skipulag svæðisins hlotið verðlaun fyrir framúrskarandi skipulag frá Boston Society of Architects og að auki hefur Nordregio, norræn rannsóknarstofnun í skipulags- og byggðamálum, nefnt svæðið sem dæmi um árangursríkt skipulags- verkefni. „Við erum auðvitað mjög ánægð með að þetta skipulag skuli vera tilnefnt til verðlauna og komast í úrslit,“ segir Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar. „Þetta undirstrikar áherslu sem við höf- um lagt á við skipulag þessa hverf- is að vanda okkur vel og láta þarna gæðin stjórna ferð.“ Umhverfisáherslur mikilvægar Spurður hvaða þættir hverfisins hafi vakið jafnmikla athygli og raun ber vitni segist Gunnar telja það vera þær umhverfisáherslur og sjálfbæru þróun sem mikil áhersla hafi verið lögð á. Sem dæmi megi nefna ofanvatnslausnir sem fela í sér að regnvatn verður leitt niður í Urriðavatn en ekki út í sjó, en það er gert til að viðhalda gæðum vatnsins. En hvað þýða þessar miklu við- urkenningar sem skipulagi hverf- isins hafa hlotnast á alþjóðavísu? „Þetta þýðir vonandi að það verð- ur eftirsóknarvert að búa þarna og það þýðir líka að þetta undir- strikar okkar áherslur í Garðabæ um að gera bæinn að umhverf- isvænsta og snyrtilegasta bænum á Íslandi. Við erum með ýmis áform uppi um að láta það verða að veru- leika og þetta skipulag í Urr- iðaholti smellpassar inn í þá hug- myndafræði.“ Verðlaunaskipulag í Urriðaholti Verðlaunaskipulag Skipulag Urriðaholts í Garðabæ hefur vakið athygli víða um heimsbyggðina. Það er komið í lokaúrslit LivCom-verðlaunanna, alþjóðlegra umhverfisverðlauna, sem veitt eru með stuðningi Umhverfisstofn- unar Sameinuðu þjóðanna. Skipulagið hefur þegar verið verðlaunað í Bandaríkjunum og norræn rannsóknar- stofnun í skipulags- og byggðamálum hefur nefnt svæðið sem dæmi um árangursríkt skipulagsverkefni. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is HÖFUÐBÓLIÐ Grund í Eyjafirði hefur verið auglýst til sölu. Lárus L. Blöndal, hæstaréttarlögmaður hjá Al- mennu lögfræðistofunni sf., annast sölu jarðarinnar. Hann sagði að það væri ekki á hverjum degi sem svo fornfrægt höfuðból væri til sölu. Lárus sagði að jörðinni hefði strax verið sýndur töluverður áhugi þegar hún var auglýst. Spurður um uppsett verð sagði Lárus að óskað yrði eftir tilboðum í jörðina og það sem henni fylgdi. Nánar tiltekið er um jarðirnar Grund I og Grund II A að ræða. Með í kaupunum fylgja m.a. öll hús, vélar, tæki, bústofn og mjólkurframleiðsluréttur, en Grundarkirkja fylgir ekki með. Grund er á meðal kunnustu höfuðbóla hér á landi. Þar bjuggu m.a. Sturlungar á 13. öld og Sighvatur Sturluson fór frá Grund til Örlygsstaðabardaga. Á Grund bjuggu einnig sögufrægir kvenskörungar. Grundar-Helga bjó þar á 14. öld og Þórunn, dóttir Jóns Arasonar biskups á Hólum, á 16. öld. Magnús Sigurðsson, bóndi og verslunarmaður, kom að Grund árið 1874 og keypti smám saman alla jörðina. Áð- ur hafði verið prestssetur á Grund. Dóttir hans er Að- alsteina Magnúsdóttir, fædd 1925 og uppalin á Grund. Magnús dó sama ár og Aðalsteina fæddist. Móðir hennar og ekkja Magnúsar, Margrét Sigurðardóttir, bjó á Grund I í tíu ár. Þá giftist hún Ragnari Davíðssyni hreppstjóra og bjuggu þau á Grund I. Aðalsteina og maður hennar Gísli Björnsson byrjuðu að búa á hálfri Grund I árið 1950 á móti Ragnari og Margréti. Þau tóku síðan við allri jörð- inni og bjuggu þar til 1998. Síðan hefur Bjarni sonur þeirra búið á Grund I og II A sem hann keypti. Magnús, faðir Aðalsteinu, var mikill framkvæmda- maður og gerði Grund að stórbýli á nýjan leik. Hann rak m.a. stórt sláturhús á Grund og seldi bæði kjöt, smjör og fleira til útlanda. Magnús lét reisa kirkjuna á Grund á eigin kostnað árið 1905. En hvers vegna er kirkjan und- anskilin við sölu jarðarinnar? „Við eigum kirkjuna áfram eins og er og skika í kringum hana. Svo fer hún bara til safnaðarins þegar fram líða stundir,“ sagði Aðalsteina. „Þar er messað reglulega og athafnir, giftingar og jarðarfarir. Það er vinsælt að gifta sig í kirkjunni. Svo er svo mikið að fjölga í Eyjafjarðarsveit, það er svo mikið byggt uppi á Hrafnagili. Þar af fjölgar mikið í söfnuðinum.“ Aðalsteina sagði kirkjuna þurfa mikið viðhald og tekjur af athöfnum hrökkvi tæplega til þess. En mun hún ekki sjá eftir Grund? „Auðvitað gerir maður það, en maður er ekki eilífur. Ég er farin að eldast og þegar maður getur ekki sjálfur gert hlutina verður maður bara að sætta sig við það.“ Sögufrægt og fornt höfuðból til sölu Ljósmynd/Sigurður Ægisson Bændakirkja Grundarkirkja fylgir ekki með í kaup- unum þegar jörðin verður seld. NÝLEGAR at- hugasemdir um niðurrif hússins Hafnarstrætis 98, eða Hótels Ak- ureyrar, og bygg- ingu nýs húss á lóðinni eru heldur seint fram komn- ar, að mati Jóns Inga Cæsars- sonar, formanns skipulagsnefndar Akureyrarbæjar. Margrét Hall- grímsdóttir þjóð- minjavörður sagði í Morgunblaðinu í gær að á Ak- ureyri gæti orðið stórslys í minja- vörslu. Umrætt hús væri hluti af mjög sterkri heild og kvaðst Mar- grét vonast til að beitt yrði aðgerð- um til að verja það. „Þessu deili- skipulagi var breytt 1981 og þá var gert ráð fyrir að byggt yrði með þessum hætti á þessum reit,“ sagði Jón Ingi um þá byggingu sem þarna á að rísa. Samkvæmt deiliskipulaginu á stígur milli Skipagötu og Hafnarstrætis að mynda línu milli gatnanna en um- rætt hús skagar 7-9 metra inn í fyrirhugað götustæði. Jón Ingi nefndi að húsin París og Hamborg, innan við Hótel Akureyri, hefðu verið gerð upp með glæsibrag. „Ég veit að margir hugsjónamenn sem unna gömlum húsum, þeirra á með- al ég, biðu eftir því að einhver vildi byggja þetta hús upp með sama hætti. Á þessum 26 árum hefur það ekki gerst. Húsið hefur verið í nið- urníðslu allt of lengi,“ sagði Jón Ingi. Erki ehf. keypti Hafnarstræti 98 af Brauðgerð Kristjáns Jónssonar ehf., Sparisjóði Norðlendinga, Vinstri grænum og Akureyrarbæ í fyrrasumar. Jón Ingi sagði að Erki ehf. hefði lagt fram tillögu að breytingu á deiliskipulaginu frá 1981 varðandi húsið. Breyting- artillagan hefði verið afgreidd frá skipulagsnefnd Akureyrarbæjar í júní í sumar. „Eigandi hússins sótti um að fá að byggja hús samkvæmt gildandi deiliskipulagi og við getum ekki komið í veg fyrir það nema þá að beita eignarupptöku eða ein- hverju slíku. Ég held að það hafi aldrei verið í spilunum. Það sem skiptir meginmáli er að þarna sé ekki gamalt, ónýtt hús sem enginn notar,“ sagði Jón Ingi. Tölvuteikning/Kollgáta Tillaga Mögulegt útlit nýbyggingar í Hafnarstræti. Athugasemdir of seint fram komnar Jón Ingi Cæsarsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.