Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 21
SUÐURNES
Stapi og Hljómahöll Tónlistarskóli Reykjanesbæjar fær húsnæði fyrir nýj-
ar höfuðstöðvar í viðbyggingu við félagsheimilið Stapa í Njarðvík.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | Bæjarráð Reykja-
nesbæjar hefur heimilað Eignar-
haldsfélaginu Fasteign hf. að hefja
framkvæmdir við endurbætur á fé-
lagsheimilinu Stapa og viðbyggingu
fyrir tónlistarskóla og poppminja-
safn. Áætlað er að byggingin kosti
með búnaði um 1,5 milljarða kr. og
að Hljómahöllin verði tekin í notkun
eftir tvö ár.
„Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
er eitt af flaggskipunum í starfsemi
bæjarins,“ segir Böðvar Jónsson,
formaður bæjarráðs og rifjar upp að
bærinn hafi verið brautryðjandi í því
að gera fornám tónlistarskólans að
hluta af námi allra barna í fyrstu
tveimur bekkjum grunnskóla. Þá
hafi verið komið upp góðri aðstöðu
fyrir tónlistarkennslu í öllum grunn-
skólunum. Nemendur í síðustu
þremur bekkjum grunnskóla og
eldri hljóðfæranemar hafi stundað
nám í eldra húsnæði tónlistarskólans
í Keflavík og Njarðvík, við alls ófull-
nægjandi aðstæður.
Nemendum fjölgar
Ákveðið var að byggja höfuðstöðv-
ar og kennsluaðstöðu við félagsheim-
ilið Stapa. „Þetta verkefni hefur ver-
ið í undirbúningi lengi. Með því
gerum við eldri nemendum tónlistar-
skólans hátt undir höfði, á sama hátt
og yngri nemendunum,“ segir Böðv-
ar.
Hann segir að stöðug aukning hafi
verið í hljóðfæranámi, meðal annars
vegna þess fyrirkomulags sem sé á
tónlistarnámi í grunnskólunum og
fjölgunar íbúa. Nemendur eru nú um
300 en möguleiki er á að tvöfalda
þann fjölda í nýju aðstöðunni. Böðv-
ar tekur þó fram að engar ákvarð-
anir hafi verið teknar um fjölgun
nemenda.
Í tengslum við höfuðstöðvar tón-
listarskólans verður aðsetur Popp-
minjasafns Íslands. Böðvar segir að
þessi nýi hluti hússins hafi verið
nefndur Hljómahöllin með vísan til
þess að þar muni tónlistin hljóma.
Aðspurður segir hann að með nafn-
giftinni sé ekki verið að vísa til
hljómsveitarinnar Hljóma en nafn
hennar skemmi heldur ekki fyrir.
Þá verður húsnæði Stapa endur-
bætt og segir Böðvar að hann verði
áfram aðalfélagsheimili bæjarbúa,
með sama heiti. Þar verður jafn-
framt góð ráðstefnuaðstaða.
Gert er ráð fyrir því að hönnun
ljúki á þessu ári og framkvæmdir
geti hafist í byrjun næsta árs.
Tillagan um að hefja framkvæmd-
ir var samþykkt af fulltrúum meiri-
hluta Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
ráði. Fulltrúar A-listans greiddu
atkvæði á móti, vildu að leitað yrði
annarra leiða til þess að leysa úr hús-
næðismálum Tónlistarskóla Reykja-
nesbæjar, meðal annars vegna mik-
ils rekstrar- og leigukostnaðar.
Byggja höll þar sem
tónlistin mun hljóma
Í HNOTSKURN
»Eignarhaldsfélagið Fast-eign hf., sem Reykjanes-
bær á stóran hlut í, byggir
Hljómahöllina og mun Reykja-
nesbær taka húsið á leigu.
»Kostnaður við bygginguhússins ásamt búnaði er
áætlaður um hálfur annar
milljarður kr. Má búast við að
árleg leiga Reykjanesbæjar
geti numið liðlega 100 millj-
ónum króna.
Reykjanesbær | Lagið Meistari
Jakob var sungið á mörgum tungu-
málum við setningu menningar- og
fjölskylduhátíðarinnar Ljósanætur
í gær. Var það gert til að leggja
áherslu á það að Reykjanesbær er
fjölmenningarlegt samfélag þar
sem fólk af ýmsum þjóðernum býr í
sátt og samlyndi.
Setningarathöfn Ljósanætur fór
fram við Myllubakkaskóla í Kefla-
vík fyrir hádegið í gær. Þangað
komu í skrúðgöngum börn úr öllum
grunnskólum bæjarins og leik-
skólum, auk annarra gesta. Nylon
söngflokkurinn skemmti og söng
síðan fyrsta Ljósanæturlagið og
Meistara Jakob ásamt Steinþóri
Jónssyni formanni Ljósanætur-
nefndar, Árna Sigfússyni bæjar-
stjóra og skólabörnunum.
Ljósanótt var sett þegar börnin
slepptu mislitum blöðrum til himins
en það var einnig gert til að vekja
athygli á fjölmenningarsamfélag-
inu. Fram kom hjá Árna Sigfússyni
að íbúar af 53 þjóðernum byggja
Reykjanesbæ.
Hápunktur á laugardag
Dagskrá Ljósanætur heldur
áfram í dag, meðal annars með opn-
un sýninga í Duushúsum og dag-
skrá sem hefst kl. 19.30 á útisviði á
Keflavíkurtúni, á móti Duushúsum.
Aðalhátíðin er síðan á morgun,
laugardag. Þá verður dagskrá allan
daginn sem nær hápunkti um
kvöldið, með mikilli hátíðardagskrá
og með því að kveikt verður á lýs-
ingu Bergsins og flugeldum skotið
á loft.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Fjölmenning Börn úr grunnskólum og leikskólum Reykjanesbæjar slepptu
marglitum blöðrum til himins við setningu Ljósanæturhátíðarinnar í gær.
Meistari Jakob sunginn
á mörgum tungumálum
Selfoss | Brúarhlaup Selfoss fer
fram nk. laugardag. Að venju er
boðið upp á 5 og 10 km hjólreiðar
og 2,5 km, 5 km, 10 km hlaup og
hálfmaraþon. Það verða allir ræstir
á Ölfusárbrú, hjólreiðar kl. 11, hálf-
maraþon kl. 11.30 og aðrar vega-
lengdir kl. 12.
Allar hlaupa- og hjólavegalengd-
ir eru með tímatöku og eru leið-
irnar löggildar, teknar út af viður-
kenndum aðila að sögn Helga S.
Haraldssonar, formanns frjáls-
íþróttadeildar Selfoss, sem sér um
hlaupið. Hann sagði einnig að nú
væru farnar nýjar leiðir í hlaupinu
og nauðsynlegt fyrir hlauparana að
kynna sér þær vel fyrir hlaupið.
Hlaupinu lýkur á Bankavegi við
hlið Landsbankahússins og skammt
frá Sundhöll Selfoss og þar fer
verðlaunaafhending fram kl. 14.
Skráning fer fram á hlaup.is, í
Landsbankanum á Selfossi og á
hlaupadag frá kl. 9 í Landsbank-
anum á Selfossi. Skráningu í hverja
keppnisgrein á hlaupadag lýkur
klukkustund fyrir upphaf hennar.
Nýjar hlaupa-
leiðir í Brúar-
hlaupi Selfoss
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Leiðin Helgi S. Haraldsson merkir
nýja hlaupaleið Brúarhlaupsins.
LANDIÐ
Siglufjörður | Liðin eru 75 ára
frá vígslu Siglufjarðarkirkju.
Haldið verður upp á tímamótin
með hátíðarguðsþjónustu næst-
komandi sunnudag, klukkan 14.
Forveri þessarar kirkju var
guðshús sem reist hafði verið ár-
ið 1890 niðri á Eyrinni. Þá voru
ekki nema 319 manns í Hvann-
eyrarhreppi sem sveitarfélagið
þá hét, og þar af einungis 72 í
kauptúninu. En kirkjan varð
fljótlega of lítil, enda síldarævin-
týrið að hefjast. Þegar kirkjan
hafði staðið á Þormóðseyri í tvo
áratugi, eða til 1910, voru íbúar
hreppsins orðnir nær 700. Íbúa-
talan hafði þannig meira en tvö-
faldast frá því kirkjan var reist.
Mönnum varð því ljóst að hún,
jafn lítil og hún var, gæti ekki
fyllilega þjónað hlutverki sínu.
Var því ákveðið að reisa nýja
kirkju sem tæki mið af fólksfjölg-
uninni. Vegna plássleysis á gamla
staðnum var ákveðið að flytja
kirkjustæðið upp í svonefnt
Jónstún þar sem kirkjan hefur
síðan verið, í hjarta bæjarins.
Þegar Jón Helgason biskup
vígði kirkjuna, 28. ágúst 1932,
voru liðnir rúmir 15 mánuðir frá
því að byggingarframkvæmdir
hófust. Íbúarnir voru þá orðnir
2.180. Siglufjarðarkirkja var
lengi eitt stærsta guðshús lands-
ins.
Alls hafa níu sóknarprestar
þjónað við núverandi kirkju. Séra
Sigurður Ægisson hefur þjónað
þar frá árinu 2001.
Undanfarið hafa miklar lagfær-
ingar verið gerðar á húsinu, m.a.
skipt um allt járn á þaki kirkju-
skipsins og lokið við að klæða
kirkjuna að utan.
Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Veglegt guðshús Siglufjarðarkirkja setur svip á bæinn en hún var lengi
ein af stærstu kirkjum landsins. Myndin var tekin á 75 ára afmælisdaginn.
Haldið upp á 75
ára vígsluafmæli
Hvolsvöllur | Sýning á verkum Nínu
Sæmundsson stendur yfir í Sögu-
setrinu á Hvolsvelli. Árni Mathiesen
fjármálaráðherra opnaði sýninguna
síðastliðinn laugardag en hún stend-
ur til 22. september.
Jónína Sæmundsdóttir eða Nína
eins og hún kallaði sig, var fædd í
Nikulásarhúsum í Fljótshlíð 1892.
Nína var aðeins 23 ára þegar hún
fékk inni í Tekniske skole í Kaup-
mannahöfn 1915-16. Síðan fer hún í
Konunglegu listaakademíuna þar
sem hún er við nám til 1920. Fljót-
lega var farið að sýna verk Nínu á
sýningum heima og erlendis. Nína
veikist af berklum 1920 og átti við
heilsuleysi að stríða um nokkurt
skeið. Árið 1921 fer hún til Rómar
þar sem hún dvelur í ár og leggur
frekari grunn að myndlistarferli.
Eftir að Nínu býðst að sýna í New
York 1926, sest hún að fyrir vestan,
fyrst í New York og síðan í Holly-
wood. Þar bjó hún og starfaði í þrjá
ártugi. Í Bandaríkjunum vann hún
mörg opinber verkefni og öðlaðist
vinsældir sem næmur og fágaður
portrettlistamaður. Meðal opinberra
verkefna hennar má nefna Afreks-
hug fyrir Waldorf Astoria hótelið í
New York 1931, mynd af Prómeþeifi
í Los Angeles 1935 og minnisvarða
um Leif Eiríksson 1936, einnig í Los
Angeles. Af mannamyndum má
nefna portrett af Hedy Lamarr, Pet-
er Freuchen og Vilhjálmi Stefáns-
syni. Meðal verka Nínu á Íslandi eru
Móðurást í Lækjargötu í Reykjavík.
Maríumynd í Selfosskirkju, Rökkur
á Sólheimum í Grímsnesi, Ung móðir
við Hlíðarendakirkju, Þorsteinn
Erlingsson í Þorsteinslundi í Fljóts-
hlíð og Njáll á Sögusetrinu.
Síðustu árin tók hún nokkurn þátt
í íslensku listalífi, m.a. með sýning-
um á höggmyndum og olíumálverk-
um. Hún lést 1965.
Sýning á
verkum Nínu
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Bedúínakona á bæn Eitt verkanna
á sýningu Nínu í Sögusetrinu.
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ
Nóatún Hafnarfirði
Spirulina
Orkugefandi og brennsluaukandi.