Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 22
daglegtlíf Veitingastaðurinn Le Rendez-vous er franskur fram í fingurgóma, segir Steingrímur Sigurgeirsson. » 27 veitingastaðir Berjatínsla er eitt af því sem gerir síð- sumarið heillandi og Friðrik V. Karlsson lumar á fjölda góðra uppskrifta. » 26 matur PÚÐLUHUNDURINN Ginger stillir sér upp hjá flíkum frá Fifi and Romeo, fyrirtæki í Los Angeles sem sérhæfir sig í hundaklæðum fyrir þá ríku og frægu, en sýning á flíkunum var haldin í Tókýó í Japan á dögunum. Fleiri hundar eru nú í Japan en börn yngri en tíu ára, þeir voru 13,1 milljón árið 2006, og er markaðurinn fyrir hundaklæði og leikföng því í miklum vexti. Klæði fyrir ferfætlinga Reuters Þessa dagana er starfsfólk Kaffitárs íNjarðvík að æfa sig í uppáhellingu ánýrri kaffivél. Það væri svo sem ekkií frásögur færandi nema fyrir þær sakir að með kaffivélinni bætist nú við ný teg- und af uppáhellingu. „Það voru tveir Bandaríkjamenn sem hönn- uðu kaffivélina Clover fyrir þremur árum,“ segir Aðalheiður Héðinsdóttir, eigandi Kaffi- társ, þegar forvitnast er um gripinn sem er svipaður á stærð og espressóvél en kostar um 800.000 krónur. „Markmiðið hjá hönnuðunum var að hanna vél sem gæti hellt upp á einn bolla í einu á skömmum tíma og með lítilli fyr- irhöfn en næði betur fram bragðgæðum baun- arinnar en aðrar vélar hafa náð að gera. Það tekur 20 sekúndur að hella upp á espresso en það töldu þeir að væri of stuttur tími til að bragðeiginleikar kaffibaunarinnar kæmu fram til fullnustu. Clover-vélin sam- einar tækni tveggja þekkta aðferða við uppá- hellingu, en það er pressukönnuaðferðin og svo lofttæming. Báðar þessar aðferðir við uppáhellingu eru hundrað ára gamlar og tekur um fimm mínútur að hella uppá. Með Clover tekur það hinsvegar um eina mínútu. Vélin hefur hlotið lof hjá fagfólki og fyrir okkur sem erum að selja og framleiða kaffi þá skiptir máli að hafa tækni þar sem bragðgæði kaffisins koma sem best fram.“ Kynna vélina á Ljósanótt –Fannstu mikinn mun þegar þú fékkst fyrsta bollan af kaffi úr Clover-vélinni? „Kaffið var mitt á milli þess að vera espresso og filterkaffi. Það er tært eins og fil- terkaffi en með meiri fyllingu. Það er heldur enginn salli í bollanum.“ – Verður kaffibollinn ekki rándýr? „Nei, hann verður eitthvað dýrari en venju- lega uppáhellt kaffi en ekki dýrari en vínglas.“ Aðalheiður segir að á hátíðinni Ljósanótt sem stendur yfir í Reykjanesbæ um helgina verði vélin kynnt. Ingibjörg Jóna, sem er Ís- landsmeistari kaffibarþjóna, ætlar að gefa fólki að bragða á kaffinu og það verður kaffið Cup of excellence sem notað verður í vélina. „Kaffið hefur hlotið að minnsta kosti 84 stig í gæðaprófunum sem kaffismakkarar víðsvegar um heim hafa gefið því í einkunn.“ – Spáir þú þessari vél vinsældum? „Ég held hún nái aldrei vinsældum espressó en hún verður vinsæl hjá kaffinördunum. Það er nefnilega stór hópur fólks sem hefur af- skaplega gaman af því að spá í blæbrigðin í kaffinu og með þessari nýju vél erum við að koma til móts við þann hóp.“ Heimsækir bændurna Aðalheiður segist aðspurð ekki drekka sjálf nema 3-4 bolla af kaffi á dag. „Mér finnst gam- an að smakka gott kaffi. Ég bragðaði til dæmis mjög sérstakt kaffi frá Kólumbíu í vikunni sem ég fékk hjá bónda sem ég heimsótti í vor. Það var heil sinfónía af bragði og slíkt er ótrúlega skemmtilegt.“ Aðalheiður fer á vorin og veturna að heim- sækja bændurna sem hún á í viðskiptum við. „Á þessu ári hef ég farið til Kólumbíu, Ník- aragva og Gvatemala og hitt bændur. Ég reyni að ganga úr skugga um að við séum að fá fyrsta flokks vöru og að fólkið sem vinnur við ræktunina fái sanngjörn laun. Bændur sem eru með gott kaffi fá gott verð.“ – Áttu uppáhaldskaffiræktunarland? „Ég var afskaplega hrifin af Gvatemala en þangað kom ég fyrst í ár. Kaffið er alls staðar gott, mannlífið skemmtilegt og litirnir svo stórkostlegir. Ég hef hinsvegar sterkar taugar til Níkaragva. Þangað hef ég komið nokkrum sinnum og þekki orðið vel þá bændur sem ég á í viðskiptum við. Kaffið frá þessum löndum er í uppáhaldi. Það er ólíkt en með sterk sér- einkenni.“ Aðalheiður segir að alltaf sé að verða meiri og meiri áhersla á þá staði sem framleiða í litlu magni . „Með tilkomu Netsins þá er heimurinn alltaf að smækka. Nú get ég verið í nánu sam- bandi við bónda sem býr langt uppi í sveit í Níkaragva. Ég get fylgst með því hvernig upp- skeran gengur hjá honum og fæ reglulega myndir.“ – Ertu að taka inn kaffi frá nýjum stöðum? „Ekki svo mikið frá nýjum stöðum, frekar nýjum bændum. Ég er að fá Cup of excellence kaffi frá Níkaragva, Kosta Ríka og Gvatemala. Við höfum einnig verið að prófa kaffi frá Rú- anda í Afríku og vonandi verður áframhald á þeim viðskiptum. Uppskeran þar stendur yfir núna og það er ekki nema svona mánuður í að hægt sé að smakka á framleiðslunni þaðan.“ gudbjorg@mbl.is Vélin er aðallega fyrir kaffinörda Ljósmynd/Hilmar Bragi Kaffibollinn Aðalheiður Héðinsdóttir eigandi Kaffitárs segir að gestir á Ljósanótt muni geta gætt sér á kaffibolla sem lagaður er í Clover-vélinni nýju. Það verður ekki amalegt að fá sér kaffibolla hjá Kaffitári í Reykjanesbæ á Ljósanótt. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir forvitnaðist um nýja og rándýra kaffivél sem dregur víst með eindæmum fram sérkenni kaffibaunarinnar. Öðruvísi Þeir sem leggja mikið uppúr góðu kaffi ættu að prófa að fá sér kaffibolla sem lagaður er með nýju að- ferðinni. Helgarnar: Að fólk noti helgar til að fara á listsýningar og sérstaklega um þessa helgi sýningunni hans Einars Fals Ingólfssonar sem stendur yfir í Listasafni Reykjanesbæjar. Garðvinna: Að undirbúa garðinn fyrir haustið eins og að sjá til þess að enginn arfi sé í beðunum svo minna sé að reyta næsta vor… Eftirrétturinn: Góð súkkulaðimús í eftirrétt. Hreyfingin: Fara í góðan göngutúr um bæinn sinn. Útiveran: Fara í berjamó og tína bláber eða krækiber. Hádegismaturinn: Nýtt brauð og nýmalað Nígaragva kaffi. Aðalheiður mælir með Árlegt Landsmót hagyrðingaverður haldið í félagsheim- ilinu á Blönduósi annað kvöld, laugardagskvöld, undir yfirskrift- inni: Bragaþing á Blönduósi. Landsmót hagyrðinga eru kvöld- samkomur með borðhaldi og þjóðlegum skemmtiatriðum, sem að hluta eru skipulögð og und- irbúin, auk þess efnis sem móts- gestir hafa fram að færa í bundnu máli. Að loknu borðhaldi er svo stig- inn dans. Landsmótin eru opin öllu fólki sem ánægju hefur af góðum vísum, hvort sem það tel- ur sig til hagyrðinga eða ekki. Heiðursgestur og ræðumaður verður séra Hjálmar Jónsson, Ósk Þorkelsdóttir verður veislu- stjóri og Ingi Heiðmar Jónsson söngstjóri. Sá síðastnefndi yrkir: Verða útbær ýmis stáss, orðaprjál og stuðlagóss er hagyrðingar hasla pláss og hópa sig til Blönduóss. Þau yrkisefni sem tekin verða fyrir um kvöldið eru: Grettir: unglingavandamál? Löggæsla í Húnaþingi Hvernig á hann/hún að vera (draumadísin/draumamaðurinn)? Nokkur sæti eru laus í hópferð Kvæðamannafélagsins Iðunnar norður Kjöl til Blönduóss á Landsmótið. Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni í fyrramálið og komið til baka að kvöldi sunnudags. Gist verður á Blöndu- ósi í svefnpokaplássum eða á hót- eli. Kveðið verður fyrir gamla fólkið á dvalarheimili og sjúkra- húsi á sunnudagsmorgni, áð í Borgarvirki, ekið fyrir Vatnsnes, áð í Hamarsbúð og att kappi við Vatnsnesinga í kvæðamennsku og kveðskap. Áhugasamir geta haft samband við Sigurð Sigurðarson dýralækni á netfanginu sig- sig@hi.is. VÍSNAHORNIÐ Bragaþing á Blönduósi pebl@mbl.is |föstudagur|31. 8. 2007| mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.