Morgunblaðið - 31.08.2007, Side 29

Morgunblaðið - 31.08.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 29 ✝ Guðmundur Elí-as Árnason fæddist í Hafn- arfirði 14. mars 1916. Hann lést á heimili sínu Hraun- vangi 1, miðviku- daginn 15. ágúst. Foreldrar hans voru Árni Sigurðs- son trésmiður og rafvirki, f. 1878, d. 1959 og Sylvía Jón- ína Ísaksdóttir, f. 1879, d. 1966. Systkini Guðmundar voru Ingv- ar Gísli Árnason f. 1909, d. 1930, Ingibjörg Árnadóttir f. 1910, d. 1990 og Hrefna Árnadóttir f. 1921, d. 1984. Guðmundur kvæntist hinn 18. 5. 1940 Grétu Líndal sjúkraþjálfara f. 6. 8. 1914, d. 13. 9. 1998. Þau bjuggu að Brekkugötu 8 í Hafn- arfirði til ársins 1953 en frá 1954 að Sunnuvegi 1. Börn þeirra eru: fyrir aldurssakir. Auk þessa kenndi hann bókfærslu í Flensborgarskól- anum í 19 ár. Guðmundur var virkur í hinum ýmsu félagsstörfum í Hafn- arfirði og sem dæmi má nefna að hann var gjaldkeri í stjórn Fimleika- félags Hafnarfjarðar 1940-1945 auk þess sem hann sat í ýmsum nefndum og ráðum á vegum félagsins. Hann var í fyrstu stjórn Íþróttabandalags Hafnarfjarðar við stofnun þess árið 1945, formaður Íþróttanefndar Hafn- arfjarðar 1954-58 og formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar 1956-58. Þá var hann gjaldkeri í fyrstu stjórn Lionsklúbbs Hafnarfjarðar 1956, gekk í Frímúrarastúkuna St. Jóhann- esarstúkuna Eddu í Reykjavík 1957 og varð svo stofnfélagi í St. Jóhann- esarstúkunni Hamri í Hafnarfirði 1963 þar sem hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. Guðmundur var gjaldkeri safnaðarstjórnar Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði um árabil og var stjórnarmaður og stjórnarformaður Rafha nær allan starfstíma verk- smiðjunnar. Um tíma var hann for- maður Starfsmannafélags Bún- aðarbankans. Útför Guðmundar Elíasar Árna- sonar verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag 31. ágúst og hefst athöfnin kl. 15. 1) Birna Bertha, frv. aðstoðarútibússtjóri, f. 28. 11. 1943, gift Pétri Joensen, frv. varðstjóra, eiga þau þrjú börn. 2) Árni Hrafn, vélstjóri, f. 15. 4. 1945, kvæntur Jó- hönnu H. Sæmunds- dóttur, ritara, eiga þau tvö börn. Lang- afabörnin eru orðin níu. Guðmundur Elías lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum 1937. Við stofnun Raftækjaverksmiðunnar Rafha ár- ið 1937 var hann ráðinn skrif- stofustjóri verksmiðjunnar. Árið 1944 hóf hann störf sem bæj- argjaldkeri Hafnarfirði og gegndi því starfi til ársins 1958. Þá hóf hann störf hjá Búnaðarbanka Ís- lands og gegndi þar ýmsum störf- um, síðustu árin sem aðstoð- arbankastjóri þar til hann hætti Elsku afi minn og vinur. Nú ertu allt í einu farinn og ég fékk ekki að kveðja þig. Ég sakna þín alveg óheyrilega mikið og minningarnar streyma í gegnum höfuðið á mér. Ég minnist þess hversu mikilvægt var að koma við á Sunnuveginum þegar maður átti leið fram hjá. Sunnuvegur 1 var alltaf hálfgerð umferðarmið- stöð. Einnig minnist ég allra ferð- anna okkar upp í Sléttuhlíð með þér, ömmu og Grétu frænku og hvað við stelpurnar kepptumst við að vinna þig í krokket. Veiðiferðirnar með ykkur ömmu voru alltaf skemmtilegar. Veiðidellan mín er að stórum hluta ykkur ömmu að þakka. Svo minnist ég þess þegar að ég fylgdist með þér klæða þig upp til þess að fara á Frímúrarafund. Mér þótti alltaf kjólfötin vera svo skrítin. Mjög eftirminnileg er ferð í kringum landið sem ég, þú og amma fórum þegar þú varst nýbúinn að kaupa Sa- abinn. Gistum í bankaíbúðunum í Vík, á Höfn (Eddu hótel), Egilsstöð- um og Akureyri og áttum yndislegar stundir saman. Einnig þegar þið amma, mamma, pabbi og ég fórum til Spánar. Svo var það auðvitað viku- lega sunnudagskaffið þar sem stór hluti fjölskyldunnar hittist heima hjá þér á hverjum sunnudagsmorgni. Hefð sem byrjaði með því að við Gréta frænka fórum alltaf í sunnu- dagaskólann í Fríkirkjunni en á með- an biðu mamma og Árni frændi eftir okkur heima hjá ykkur ömmu. Og þó að við Gréta hættum að fara í sunnu- dagaskólann hélt sunnudagskaffið alltaf áfram. Og svo var það spilamennskan sem hefur alltaf fylgt okkur. Ég hugsa til þess þegar við og amma spiluðum sprautu. Rosalega var það alltaf gam- an. Og eftir að amma dó héldum við tvö áfram að spila en þá var það rommý. Fimmtudagarnir voru alltaf fastir spiladagar hjá okkur þó að það hafi eitthvað aukist í fæðingarorlof- unum mínum. Talan 7 fylgdi þér allt- af og var uppáhaldstalan þín. Svo lengi sem ég man eftir mér hefur þú keyrt bíla með númerinu G777, þú varst 7 ár í Rafha, 14 ár hjá bænum og 21 ár í bankanum. Alltaf var talan 7 í kringum þig. Stundum af tilviljun en stundum viljandi. Því þótti mér það ekkert sérlega skrítið að þegar þú yfirgafst spilamennskuna okkar fyrir fullt og allt, þá höfðum við spilað 207 leiki frá því að við byrjuðum að halda utan um stöðuna. Þar af voru sigrarnir þínir 107 og þú varst því með 7 leiki í forystu. Ég elska þig, sakna þín og bið þig um að knúsa ömmu og Hrefnu frænku frá mér. Takk fyrir allar minningarnar og stundirnar sem við eyddum saman. Þín dótturdóttir, Margrét Hrefna. Þriðjudagurinn 14. mars 1914 var eflaust eins og hver annar dagur í lífi þeirra sem þá byggðu Hafnarfjörð. Kaldur morgun, hitastig rétt undir frostmarki en lygnt og bjart veður. Í húsi stöðvarstjóra rafstöðvarinnar á Hörðuvöllum réð þó mikil gleði ríkj- um þennan dag. Þar kviknaði ljós, þar kviknaði líf. Árna Sigurðssyni og Sylvíu Ísaksdóttur fæddist sonur, þriðja barn þeirra hjóna, sonur sem síðar hlaut nafnið Guðmundur Elías Árnason. Nú nýverið, rúmu 91 ári síðar, slokknaði þetta ljós, lauk þessu lífi. Guðmundur var minn eini afi og hann var afi eins og afar eiga að vera. Hann fylgdist ávallt grannt með því sem við barnabörnin vorum að gera, hvort sem var í leik, námi, íþróttum eða starfi. Hann hafði áhuga á okkar lífi og var ávallt boðinn og búinn að veita aðstoð ef hann gat. Það var allt- af gaman að koma í heimsóknir á Sunnuveginn, Hraunvanginn eða uppí Sléttuhlíð og morgunkaffið á sunnudögum var einn af þessum föstu punktum í tilverunni sem hægt var að treysta á. Þau ár sem ég hef sinnt starfi bæjarminjavarðar hefur hann verið mér dýrmætur og djúpur upplýsingabrunnur um allt sem teng- ist sögu Hafnarfjarðar, fólkinu sem bæinn byggði og lífsbaráttuna á öld- inni sem leið. Það voru forréttindi að eiga afa að, hann var öðlingur og mik- ið ljúfmenni sem ávallt verður minnst sem höfðingja. Minningarnar eru margar, góðar og hlýjar, og þær munu lifa um ókomna tíð. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Björn Pétursson. Ég var engan veginn viðbúin skyndilegu fráfalli afa, þó ýmis teikn hefðu verið á lofti allt þetta ár. Sann- arlega voru árin orðið mörg, komin á tíunda tuginn og heilsan farin að gefa sig. En hugurinn var skýr, hann fylgdist vel með, hvort sem það var þjóðfélagsumræðan eða fjölskyldan og var virkur þátttakandi í lífi af- komenda sinna fram á síðasta dag. Ég tel mig mjög lánsama, því ég er alin upp af tveimur kynslóðum. Allt fram á þennan dag hef ég átt ömmur og afa sem litað hafa líf mitt ríkulega og miðlað mér reynslu og visku sem alltaf mun gagnast mér. Minningarnar eru endalausar. Afi var ekki maður margra orða, en hlustaði þeim mun betur og fátt fór fram hjá honum. Hann hafði þessa hlýju, traustu nærveru sem laðaði svo marga að. Alla sína tíð kom hann að félagsstarfi í einhverri mynd, sat í stjórnum fyrirtækja og stofnana. En maður vissi lítið af því. Ég held að honum hafi fundist sjálfsagt að gefa af sér til samfélagsins án þess að hafa frekari orð um það. Þegar ég hugsa til baka og rifja upp allan þann tíma sem ég átti með afa sem barn, er amma samofin minningunni. Sunnuvegurinn var mitt annað heimili, þar gekk ég inn og út að vild. Heimilinu fylgdi mikið líf, þar komu margir og mikið var skeggrætt við eldhúsborðið. Afi og amma voru ólík en einstaklega sam- hent og tókst að skapa stemmningu sem laðaði að sér hóp ættingja og vina. Þau voru óþreytandi í að sinna okkur barnabörnunum. Öll eigum við ógleymanlegar minningar úr Sléttuhlíðinni, af ferðalögum um landið þvert og endilangt að ekki sé minnst á allar veiðiferðirnar. Amma veiktist sumarið 1990. Hún dvaldi á sjúkrahúsi og við endurhæf- ingu í hálft ár. Ég var rúmlega tvítug á þessum tíma og ákvað að flytja til afa. Mér fannst það hið allra eðlileg- asta að gerast ráðskonan hans. Ég kunni á þessum tíma varla að sjóða kartöflur skammlaust hvað þá meira. Svo allri minni tilraunaelda- mennsku var skellt á hann. Matur- inn var missoðinn og steiktur, krydd- ið ýmist of eða van og stundum var sósan tilbúin þegar allt annað var orðið kalt. Aldrei lét afi mig finna neitt annað en að ég væri snilldar kokkur. En það sem var mest um vert var að þarna fékk ég tækifæri til að kynnast honum nánar. Við spiluð- um og spjölluðum saman á kvöldin og áttum saman tíma sem ég get aldrei fullþakkað. Afi var ótrúlega ern. Hann keyrði fram á síðasta dag, bjó einn og versl- aði inn. Hann sótti frímúrarafundi allan síðasta vetur og var enn að til- einka sér nýja hluti. Bara í fyrra kenndi ég honum að leysa talnagátur, sem hann varð býsna glúrinn í. Hann var bókelskur og las mikið og var sjálfur mjög fær í að binda inn bæk- ur. Í áratugi höfum við fjölskyldan hist hjá afa og ömmu á sunnudagsmorgn- um. Þessum sið hélt afi áfram eftir að amma féll frá. Þessi samvera var afa tilhlökkunarefni alla vikuna og óend- anlega mikilvæg því fólki sem stóð honum næst. Við gleymum gjarnan í öllum erli hversdagsins að rækja hvert annað. Þarna söfnuðumst við fjölskyldan saman og ófum tengsl sem eru svo dýrmæt í hraða nú- tímans. Við erum sterkari heild fyrir vikið. Hafðu þökk fyrir allt. Þín, Erna Sylvía. Látinn er tryggur félagi í FH, Guð- mundur Árnason. Snemma í sögu FH lágu leiðir félagsins og Guðmundar saman er systir hans, Ingibjörg, gift- ist Hallsteini Hinrikssyni, einum helsta forystumanni FH. Guðmund- ur var virkur í félagsstarfinu og var hann m.a. gjaldkeri í aðalstjórn FH 1940-1945 auk þess sem hann átti sæti í mörgum nefndum og ráðum fé- lagsins um langt skeið. Hann var fulltrúi FH í fyrstu stjórn Íþróttabandalags Hafnar- fjarðar við stofnun þess árið 1945 og átti sæti í fulltrúaráði félagsins til dauðadags, en árið 1991 var Guð- mundur sæmdur gullmerki FH fyrir störf í þágu félagsins. Í Guðmundi sló hið sanna FH-hjarta og fylgdist hann með starfi og árangri félagsins á öll- um vígstöðvum fram á síðasta dag. Fyrir hönd aðalstjórnar FH þakka ég Guðmundi vegferðina og trygg- lyndið. Börnum hans og ættingjum öllum sendir aðalstjórn FH innilegar sam- úðarkveðjur með þeirri von og vissu að merki og verk Guðmundar innan FH verði lengi haldið á lofti. Ingvar Viktorsson, formaður FH. Guðmundur Elías Árnason ✝ Guðmundur J.Kristjánsson fæddist í Reykjavík 8. ágúst 1921. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- túni 22. ágúst sl. Foreldrar hans voru Þóranna Rósa Sigurðardóttir og Kristján Schram Guðjónsson. Systk- ini Guðmundar eru Sigurjón Guð- mundsson, Stein- unn Kristjánsdóttir og Sigurbjörg Kristjánsdóttir. Árið 1943 kvæntist Guð- mundur Þórlaugu Svövu Guðna- dóttur, f. 2.12. 1924, d. 23.10. 2001. Börn Guðmundar og Þór- laugar eru 1) Guðni, f. 30.9. 1942, sambýliskona hans er Guðný Há- konardóttir. 2) Örn, f. 14.7. 1946, kvæntur Svövu Ei- ríksdóttur. 3) Ás- laug, f. 28.11. 1949, gift Þorvarði Jóni Guðmundssyni. 4) Þórlaug, f. 25.12. 1954, gift Baldvini Gunnlaugi Heim- issyni. 5) Albert, f. 20.10. 1965, sam- býliskona hans er Ingibjörg Júl- íusdóttir. Útför Guðmundar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Nú er hann Guðmundur Krist- jánsson, tengdafaðir minn, dáinn. Áslaugu, dóttur hans, kynntist ég á K.R. balli árið 1974 og upp úr því hófust kynni okkar Guðmundar. Fyrstu hjúskaparár okkar Ás- laugar bjuggum við í risinu í Bakkagerðinu hjá þeim Munda og Lillu. Guðmundur var alla tíð ein- stakt ljúfmenni og kunni sig vel á allan hátt. Hann var dúklagningameistari og vann mikið, eða nánast myrkr- anna á milli, fyrstu árin sem ég þekkti hann. Hann var m.a. for- maður í Meistarafélagi dúklagn- ingamanna og tók þátt í stjórnum fleiri félaga. Þegar börnin uxu úr grasi og það fór að hægjast um hjá honum gat hann farið að sinna áhugamálum sínum, svo sem tón- listinni. Hann keypti sér píanó, fór í tíma hjá Aage Lorange og hafði af því mikla skemmtun. Nokkrum árum seinna færði hann sig upp á skaftið og fjárfesti í flygli. Hann lét ekki þar við sitja og eignaðist m.a. nokkrar harmonikkur, gítar og orgel. Á allt þetta spilaði hann. Guðmundur var í Oddfellowregl- unni þar sem menn fengu auðvitað að njóta tónlistaráhuga hans sem og annarra starfa. Eftir að Þórlaug eiginkona hans, eða Lilla eins og hún var kölluð, lést árið 2001 fór svolítið að halla undan fæti hjá Munda. Allra síð- ustu árin, þegar hann var orðinn veikur, spurði hann mikið um Lillu sína. Ég er viss um að núna hefur Mundi fundið Lillu sína aftur. Nú þegar komið er að leiðarlok- um vil ég þakka Guðmundi sam- fylgdina. Hún var alltaf ánægjuleg. Starfsfólki Sóltúns vil ég þakka fyrir frábæra umönnun og góða viðkynningu. Störf þess verða seint of metin. Þorvarður Jón Guðmundsson. Fel þú, Guð, í faðminn þinn, fúslega hann afa minn. Ljáðu honum ljósið bjarta, lofaðu hann af öllu hjarta. Leggðu yfir hann blessun þína, berðu honum kveðju mína. L.E.K. Elsku afi minn, þó við munum sakna þín mikið þá vitum við það að þú ert á góðum stað við hlið ömmu Lillu. Jón Þór og fjölskylda. Minn kæri bróðir er látinn og langar mig að kveðja hann með ljóði eftir föður okkar. Það birtist í ljóðabókinni ,,Einn ég vaki“ og er ég Munda afar þakklát fyrir að hafa staðið að út- gáfu hennar. ,,Mannanna er misskipt högum, meistarinn þeim ræður lögum, áður fyrr og enn á dögum allar heims um tíðir. Allir ganga eina leið um síðir. (Kristján Schram Guðjónsson.) Börnum Munda og fjölskyldum þeirra sendi ég innilegar samúðar- kveðjur, Sigurbjörg Schram Krist- jánsdóttir (Bagga systir.) Kveðja frá Félagi dúklagn- inga- og veggfóðrarameistara Guðmundar J. Kristjánssonar verður minnst sem ötuls félaga og þau voru ófá árin sem hann varði af sínum tíma í þágu Félags dúk- lagninga- og veggfóðrarameistara. Hann var einn af stofnefndum Fé- lags veggfóðrarameistara í Reykja- vík sem hét áður Félag veggfóðr- ara. Guðmundur var varaformaður og formaður í alls 23 ár og sat á þeim tíma einnig í stjórn Meist- arasambands byggingamanna. Hann gegndi mörgum trúnaðar- störfum fyrir félagið og má þar nefna setu í iðnráði og á Iðnþingi. Á þessum tíma var hann einnig í sveinsprófsnefnd og formaður próf- nefndar og var framkvæmdastjóri félagsins. Guðmundur var einn af mörgum hvatamönnum að bygg- ingu húsnæðis meistarafélaganna í Skipholti 70 sem hefur verið einn af okkar hornsteinum í gegnum ár- in. Sat hann þar í bygginganefnd og húsnefnd. Í stjórnartíð Guð- mundar var gerð verðskrá fyrir sveina í veggfóðrun og hvatti hann til stofnunar sveinafélags í iðn- greininni. Auk þess efldi hann mælingastofu veggfóðrarameistara í samvinnu við þá nýstofnað sveina- félag og var mælingamaður til fjölda ára. Guðmundur vann að stofnun Lífeyrisjóðs bygginga- manna og inngöngu veggfóðrara í hann og var fulltrúi þar í mörg ár. Guðmundur var sæmdur gullmerki félagsins á 60 ára afmæli þess og gerður að heiðursfélaga árið 1991. Eins og sjá má af þessari upp- talningu kom Guðmundur að mörg- um málum félagsins og þótti fé- lagsmönnum gott að leita til hans. Þórlaug, kona Guðmundar, tók virkan þátt í félagsstörfum með manni sínum. Þau hjónin eignuðust tvær dætur og þrjá syni sem allir eru lærðir veggfóðrarar. Sendum börnum Guðmundar og fjölskyldum þeirra innilegar sam- úðarkveðjur. Guðmundur J. Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.