Morgunblaðið - 31.08.2007, Page 31

Morgunblaðið - 31.08.2007, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 31 ✝ Kristín Jóseps-dóttir fæddist á Ísafirði 7. janúar 1945. Hún lést á Líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 23. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Jósep Ástráður Hálfdánarsson, f. 30.1. 1914, d. 21.12. 1962, og Sigríður María Gísladóttir, f. 9.1. 1918, d. 16.8. 1967. Systkini Kristínar eru Guðbjörn Hálfdán, f. 22.3. 1942, Gísli Frið- rik Magnús, f. 22.3. 1942, d. 12.10. 1988, Jóhanna Svandís, f. 17.1. 1949, Þórður, f. 6.11. 1951, Svan- hildur, f. 22.8. 1953, Fjóla, f. 28.11. 1954 og Jósep, f. 19.1. 1959, d. 7.2. 1960. Kristín giftist 9.4. 1966 Frið- þjófi G. Kristjánssyni, f. 16.6. 1945, d. 17.11. 2004. Börn þeirra eru: 1) Margrét Valdís, f. 8.2. 1964, maki Stefnir Þór Krist- insson, börn þeirra eru Böðvar Freyr, Freyja Sif og Run- ólfur Stefnir. 2) Sig- ríður María, f. 4.4. 1965, maki Tómas Valdimarsson, börn þeirra eru Frið- þjófur, Ástþór og Ír- is. 3) Ingibjörg, f. 19.4. 1970, börn hennar eru Ágúst Þór, Kristín Margrét, Halldór Þór og Hilmar Geir. Kristín vann við fiskvinnslu frá unga aldri, en eftir að hún flutti til Reykjavíkur vann hún á Elliheim- ilinu Grund, við aðhlynningu. Útför Kristínar fer fram frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku mamma mín. Ég trúi því varla ennþá að þú skulir vera farin, ég kveð þig með trega en með þakklæti fyrir að þú þurfir ekki að berjast lengur við þennan erfiða sjúkdóm og vitandi að þú ert nú í faðmi pabba, þíns ástkæra eigin- manns. Það eru óteljandi minningar sem streyma fram á meðan ég er að skrifa þetta, en orðið baráttujaxl er efst í huga, það var sama hvað var í gangi hjá mér, þú sagðir mér alltaf að gefast ekki upp, við myndum komast í gegn- um þetta og stóðst svo þétt við bakið á mér. Þannig varst þú alltaf, tilbúin að hjálpa þeim sem þurftu hjálp, enda kallaði ég þig alltaf þúsundþjalasmið því þú varst mikill kennari í þér, þú gast allt sem þú tókst þér fyrir hend- ur enda sjómannskona og þurftir að sjá um allt sem viðkom heimilinu. Þú prjónaðir, smíðaðir, ekki má gleyma öllum veislunum sem þú bak- aðir í eða eldaðir fyrir. Það var alltaf mikil umferð í eld- húsinu, hvort sem það voru vinkonur þínar eða vinkonur okkar systranna sem voru í heimsókn, alltaf var til nóg af kaffi og meðlæti. Það eru margar góðar minningar sem ég á, um göngu- ferðirnar okkar þegar þú varst að hjálpa mér að koma fæðingu barnanna af stað og stuðninginn við uppeldi barnanna. Þú varst góð móðir og frábær amma, barnabörnin leituðu mikið til þín og toppurinn var að fá að gista hjá ömmu því þau vissu að þau voru örugg í faðmi þínum. Ég er stolt að vera dóttir þín og á eftir að sakna þín sárt. Ég mun halda hefðunum sem við tvær vorum búnar að koma á áfram og mun passa að börnin haldi þeim. Ég kveð þig með trega, mamma, en veit að þú og pabbi munið halda áfram að fylgjast með okkur þar til við hitt- umst á ný. Guð blessi þig, elsku mamma. Þín Ingibjörg Friðþjófsdóttir og börn. Elsku mamma. Í dag kveðjum við þig með trega en jafnframt með þakklæti fyrir þann tíma sem við fengum saman. Síðustu daga hafa minningarnar streymt fram og eru þær svo ótal margar hvort sem það er í gleði eða sorg. Ekki óraði okkur fyrir því að sum- arið myndi enda svona. Í byrjun sum- ars var allt í blóma, þú hugðist flytja og fórst til útlanda. Fljótlega eftir ut- anlandsferðina komu upp veikindi hjá þér og ekkert var hægt að gera. Því miður höfðu veikindin þín betur. Eftir sitjum við með sárt ennið en við verðum að sætta okkur við að það er aðeins einn sem ræður og það er guð! Hann hlýtur að hafa haft stærra og mikilvægara hlutverk fyrir þig. Elsku mamma, það er gott að hugsa til þess að þér líður betur núna. Við, makar okkar og börn kveðjum þig með eftirsjá og söknuði. Margrét Valdís og Sigríður María. Elsku amma mín. Nú ertu laus við baráttuna við þenn- an ljóta sjúkdóm og ert farin til hans afa þar sem hann hefur örugglega útbúið fallegt heimili fyrir ykkur í guðsríki, þar sem þið getið fengið að vera saman án veikindanna sem tóku ykkur alltof snemma frá okkur. Heimili ömmu var annað heimili mitt, þegar ég þurfti frið hringdi ég í ömmu og spurði hvort ég mætti koma og alltaf var svarið já. Það eru svo margar góðar stundir sem ég átti með þér, elsku amma mín. Allar helgarnar sem við áttum saman, moka snjóinn, fara í búðarferðir, liggja upp í sófa á meðan við borð- uðum nammi og töluðum saman. Að vita að þetta er ekki lengur til staðar er svo rosalega sárt. Elsku besta amma mín, ég á eftir að sakna þín svo sárt og dísudraumsins þíns líka, en ég mun standa við loforð mitt og hugsa vel um mömmu og systkini mín. Ég elska þig, amma mín, megi guð geyma þig. Þinn Ágúst Þór. Elsku amma mín Nú ert þú farin frá mér og hvílir í ró. Ég er glöð að þú skulir hafa fengið að fara til afa því þá ertu ekki lengur veik og með svona mikla verki. Ég mun passa allar góðu stundirnar sem við áttum saman í hjarta mér, þegar þú varst að kenna mér að prjóna og þegar þú hjálpaðir mér við að læra undir ferminguna, jólasiðina, kaffihúsaferðirnar okkar og fullt fullt meira. Ég vona að nú líði þér betur og ég veit að þú munt fylgjast vel með mér. Elsku amma mín, ég mun alltaf hafa þig í hjarta mínu. Guð blessi þig. Þín nabba, Kristín Margrét. Elsku amma mín. Þú varst allaf sú sem sagðir við mig að láta eins og ég væri heima hjá mér og tókst svo vel á móti mér þegar ég kom í heimsókn til þín. Nú er gott að hugsa til þess að það er tekið vel á móti þér, og gert allt til að gera dvöl þína þægilegri, rétt eins og þú gerðir við mig. Guð blessi minningu þína. Kveðja. Íris. Elsku bestasta amma. Mamma sagði okkur að nú hefðu englarnir komið til að sækja þig, við vissum að þú værir að flytja en við vissum ekki að þú mundir flytja upp til englanna strax, en núna ertu hjá afa svo þú ert ekki lengur veik og það er gott. Núna færðu að baka og elda fyrir alla englana, afi hefur örugglega saknað kjötsúpu þinnar. Það var alltaf gott að fara til ömmu, þar beið alltaf stórt knús, kalt mjólk- urglas og kökusneið eftir okkur. Þú lést okkur alltaf finna hversu velkom- in við vorum til þín, við fengum að hjálpa þér að baka, elda og föndra. Jólin voru okkar tími, við vorum alltaf hjá þér, hjálpuðum þér að baka smá- kökurnar og skreyta jólatréð. Elsku amma, við eigum eftir að sakna þín svo sárt, en geymum í hjarta okkar minninguna um bestu ömmu sem hægt var að eiga. Elsku amma, láttu þér líða vel hjá afa og englunum. Halldór Þór og Hilmar Geir. Kveðja frá samstarfsfólki Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum Þér síðar fylgja í friðarskaut. (V. Briem.) Kæra vinkona og starfsfélagi, með þessum fallega sálmi kveðjum við þig hinstu kveðju. Dætrum, tengdasonum og barna- börnum sendum við okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur. Kveðja, Samstarfsfólk á V4. Kristín Jósepsdóttir REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is ✝ Elsku hjartans drengurinn okkar, yndislegur bróðir, mágur og barnabarn, GUÐNI RÚNAR KRISTINSSON flugmaður, Digranesheiði 2, Kópavogi, sem lést af slysförum í Kanada þann 18. ágúst, verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn 4. september kl: 15:00. Kristinn Jóhannesson, Áslaug Erla Guðnadóttir, Ragnheiður Kristinsdóttir, Davíð Ásgrímsson, Kristinn Rúnar Kristinsson, Ingi Rúnar Kristinsson, Bjarki Rúnar Kristinsson, Magni Rúnar Kristinsson, Guðrún Magnea Jóhannesdóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI HELGASON, verður jarðsunginn í Stokkseyrarkirkju laugardag- inn 1. september kl. 14:00. Erlingur Bjarnason, Eygerður Þórisdóttir, Sigrún Bjarnadóttir, Páll Sigurðsson, Jóhannes Bjarnason, Hafdís Óladóttir, Helgi Bjarnason, Margrét Bjarnadóttir, Hafdís Bjarnadóttir, Guðjón Guðjónsson, Steinunn Bjarnadóttir, Kjartan Jóhannsson, Sigríður Bjarnadóttir, Hafþór Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, VALGERÐUR HANNA JÓHANNSDÓTTIR, Sporhömrum 6, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut þriðjudaginn 28. ágúst. Jarðarför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 7. september kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Flosi Óskarsson, Gylfi Óskarsson, Sigríður Konráðsdóttir. ✝ Okkar ástkæri STEFÁN T. HJALTALÍN rafvirki, Hrafnistu Hafnafirði, áður Klapparstíg 9, Reykjavík, verður jarðsunginn mánudaginn 3. september kl 13:00 frá Víðistaðarkirkju í Hafnarfirði. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á heima- hlynningu Krabbameinsfélagsins. Gerða K. Hammer, Sigurbjörg M. Stefánsdóttir, Guðmundur M. Sigurðsson Ingibjörg St. Hjaltalín, Jóhannes Sv. Halldórsson Sigurður J. Stefánsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Okkar hjartkæra ANNA EINARSDÓTTIR, lést mánudaginn 27. ágúst. Útförin fer fram í Víðistaðakirkju föstudaginn 7. september kl. 13.00. Systur og fósturdóttir. ✝ Elskulegur sonur okkar, dóttursonur og bróðir, HILMAR MÁR GÍSLASON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 4. september kl. 13.00. Gísli Sigurgeir Hafsteinsson, Heiður Sverrisdóttir, Ragnheiður Hilmarsdóttir, Steinar Jónsson, Hilmar Mýrkjartansson og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.