Morgunblaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 35
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa er opin kl. 9-16.30.
Leikfimi kl. 8.30. Bingó kl. 14.
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 9-16, smíðastofa opin
kl. 9-16.30, bingó kl. 13.30 bingó (2. og 4. föstudag í
mán.).
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn
handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, há-
degisverður, frjálst að spila í sal, kaffi. Nk. mánudag
3.9. byrjar bútasaumsnámskeiðið kl. 9 og kl. 13. Kl.
13 byrjar leikfimin. Upplýsingar í síma 535-2760
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Farið
verður í berjaferð fimmtudaginn 6. september.
Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnuð kl. 9, brids kl. 13.
Hæðargarður 31 | Starfið er öllum opið. Enn er
möguleiki að skrá sig. Hauststarfið hefst á fullu
mánudag 3. sept. Munið laugardagsgönguna kl. 10
árdegis. S. 568-3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaðaklúbbur og um-
ræður kl. 10. Leikfimi í salnum kl. 11 „opið hús“ spil-
að á spil kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9.15-14.30 handavinna. Kl. 11.45-12.45 hádegis-
verður. Kl. 13.30-14.30 sungið v/flygilinn. Kl. 14.30-
14.45 kaffiveitingar. Kl. 14.30-16 dansað í aðalsal.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17-
22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í
kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858-7282.
Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir.
Áskirkja | Velkomin í guðsþjónustu á Dalbraut 27
kl. 14. Sr. Sigurður Jónsson sóknarprestur Áskirkju
þjónar og Furugerðiskórinn syngur við undirleik
Ingunnar Guðmundsdóttur.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgunstund, leikfimi,
hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofur opnar allan dag-
inn. Bingó kl. 13.30, allir velkomnir.
Brottför frá Gullsmára kl. 13 og Gjábakka kl. 13.15.
Leitað verður berja í Hvalfirði og nágr. Eigið nesti.
Verði veður óhagstætt til berjatínslu verður farið í
óvissuferð „út í bláinn“. Skráning í félagsmiðstöðv-
unum.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin.
Hádegisverður kl. 11.40. Félagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður. Kl. 10
ganga. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 14 kynning
vetrarstarfseminnar.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Félagsvist í
Garðabergi í dag kl. 13-16, allir áhugasamir látið sjá
ykkur, það verður heitt á könnunni og skráning-
arblöð fyrir hauststarfið liggja frammi. Upplýsingar
hjá forstöðumanni í síma 820-8565.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Ennþá eru
nokkur sæti laus í ferð til Strandarkirkju laugardag-
inn 1. sept. Lagt af stað frá Hlaðhömrum kl. 13.
Skráning í síma 586-8014 e. hádegi og 692-0814.
Félagsstarf Gerðubergs | Opið kl. 9-16.30, m.a. kl.
10 ,,Bragakaffi“ á eftir er létt ganga um nágrennið.
Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.20 kóræfing hjá
Gerðubergskór nýir félagar velkomnir. Föstud. 7.
sept. er Breiðholtsdagur, fjölbreytt dagskrá og við-
burðir, nánar kynnt síðar. S. 5757720.
60 ára afmæli. Á morgun,laugardaginn 1. sept-
ember verður Brynjar M.
Valdimarsson kennari sex-
tugur. Af því tilefni mun hann
og fjölskylda hans taka á móti
gestum í Vinabæ, Skipholti 33,
kl. 19.30 þann dag.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ættar-
mót og fleira lesendum
sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn „Senda inn efni“.
Einnig er hægt að senda
vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
dagbók
Í dag er föstudagur 31. ágúst, 243. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Háskóli Íslands býður í vetur ífyrsta skipti upp á byrjend-anám í þýsku. Námið skipt-ist í tvö námskeið: Þýsku
fyrir byrjendur I á haustmisseri, og
Þýsku fyrir byrjendur II á vormisseri.
Magnús Sigurðsson er aðjunkt í
þýsku við hugvísindadeild og segir frá
náminu: „Háskólinn hefur um langt
skeið boðið upp á námsleiðir á borð við
BA-nám í þýsku, og þýsku fyrir atvinnu-
lífið, en þær miða við að nemendur hafi
lokið a.m.k. 2-3 ára þýskunámi í fram-
haldsskóla,“ útskýrir Magnús. „Með því
að bjóða upp á byrjendanám í þýsku
getum við komið til móts við þá sem t.d.
völdu sér annað þriðja tungumál í fram-
haldsskóla eða eru orðnir of ryðgaðir til
að treysta sér í þyngra nám í málinu eða
beita því að ráði.“
Námið er opið nemendum við allar
deildir: „Kennt er í hádegishléi, 4 tíma á
viku, svo námið á ekki að skarast við
stundaskrár annarra deilda. Við gerum
okkur grein fyrir að í mörgum tilvikum
eru nemendur að sækja námskeiðið
samhliða öðru námi og því gætum við
þess að vinnuálagið verði ekki of mikið,
um leið og við tryggjum að nemendur
nái talsvert góðum tökum á þýskunni,“
segir Magnús.
Að sögn Magnúsar er leitast við að
hafa námið í senn fræðandi, aðgengilegt
og skemmtilegt: „Við leggjum jafna á
herslu á alla færniþætti; ritun, lestur,
hlustun og tal. Málfræðin vefst inn í
námið, en í samræmi við nýjustu
kennsluaðferðir forðumst við að læra
þurrar málfræðitöflur og leitumst frek-
ar við að læra „ósjálfrátt“ og með upp-
götvunarnámi,“ segir hann.
„Að loknum tveimur misserum ættu
nemendur að vera ansi vel staddir, ef
þeir stunda námið vel, og vera komnir á
efri hluta grunnstigs (eða stig A2) á
mælikvarða evrópskrar málafærniflokk-
unar,“ segir Magnús. „Með slíkan grunn
geta nemendur t.d. tekist á við akadem-
ískt nám í þýskri tungu, eða spreytt sig
á skiptinámi í þýskumælandi landi“.
Magnús bætir við að kunnátta í þýsku
geti verið bæði gefandi og arðbær:
„Þýskaland er mikilvægasta viðskipta-
land Íslands og sækjast mörg fyrirtæki
eftir þýskumælandi starfsmönnum. Þá
er kunnátta á þýskri tungu einnig til
þess fallin að víkka sjóndeildarhringinn
og opna dyr að ríkri menningu þýsku-
mælandi þjóða.“
Menntun | Háskóli Íslands býður upp á nýtt byrjendanám í þýsku í vetur
Lykill að tækifærum
Magnús Sig-
urðsson fæddist
1957 og ólst upp í
Lundarreykjadal í
Borgarfirði. Hann
lauk stúdentsprófi
frá Mennta-
skólanum að Laug-
arvatni 1976 og
MA-gráðu í þýsku
sem erlendu máli og almennum mál-
vísindum frá Heidelbergháskóla 1983.
Magnús var stundakennari við HÍ
1983-1985, fastráðinn stundakennari
1985-2001 og aðjunkt frá 2001.
Skemmtanir
Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Von Leikur fyrir dansi
um helgina föstud. og laugard. Húsið opnað kl. 22, frítt inn
til miðnættis.
Uppákomur
Menningarmiðstöð Hornafjarðar | Menningarmiðstöð
Hornafjarðar efnir til Hafnarrölts kl. 13-23. Í Nýheimum
verður fjölbreytt dagskrá og fjölmörg fyrirtæki og veit-
ingastaðir verða með tilboð.
NÝSKÖPUNARMIÐSTÖÐ tók til starfa um síðustu mán-
aðamót en hún varð til með sameiningu Iðntæknistofnunar
og Rannsóknarstofnunar byggingariðnaðarins. Í gær var
haldinn óvenjulegur starfsmannafundur í Sambíóunum í
Mjódd þar sem Þorsteinn Sigfússon framkvæmdastjóri
gerði grein fyrir áformum stofnunarinnar. Á eftir bauð
Þorsteinn starfsfólkinu að horfa með sér á bíómynd. Starfs-
menn voru harla glaðir með boðið.
Í bíó
Héldu starfsmannafund í bíósalnum
Morgunblaðið/G.Rúnar
Mótorhjól
Til sölu Yamaha R-6 í toppstandi,
árg. '05, fæst gegn yfirtöku láns.
Uppl. í síma 692 6406.
Til sölu Suzuki GSX - R 600.
2002 árg. ekið aðeins 11.000 þ. í
toppstandi. Verð 600.000.
Upplýsingar í síma 669 1487.
Suzuki GSX R600 árgerð 2006
ekið 5500km. Glæsilegt hjól í pott-
þéttu ástandi. Hjól úr Suzuki um-
boðinu. Lán 16 þús á mán. Verð: Til-
boð (verð að selja). Kristján
695 6450 og 847 6847.
Harley-Davidson
Low Rider FXDL árgerð 2003, Anni-
versary Edition, ekið 4.800 mílur. Verð
1.750.000, sími 897 0100.
Bílar
Toyota árg. '05 ek. 64 þús. km. Til
sölu Toyota Land Cruiser 120GX. 5
sæta árg. 06.2005. Ekinn 64 þús.
Engin skipti. Upplýsingar í síma
892-3436
Land Cruiser 90 árg. '02
ek. 84.000 km, VX-Common Rail-
3000-5dyra-Turbo Diesel-sjálfskiptur.
Þjónustaður af Toyota frá upphafi.
Uppl.: Sími 898-2009
Til sölu Pajero Sport GLS
diesel árg. 2000, ek. 152 þús. km.
Breyttur f. 35" dekk, er á 33" nýlegum
dekkjum, dráttarkúla, skoðaður ´08.
Verð 1.590 þús. Skipti möguleg á
ódýrari. Uppl. í síma 694-8710.
Smáauglýsingar
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík
SÚ breyting hefur verið
gerð á skráningu í Stað
og stund að nú birtist
skráningin á netinu um
leið og skrásetjari stað-
festir hana. Skrásetjari
getur nýtt sér þann
möguleika að nota leið-
réttingaforritið Púkann
til að lesa yfir textann
og gera nauðsynlegar
breytingar. Einnig hef-
ur verið gerð sú breyt-
ing að hægt er að skrá
atburði í liði félagsstarfs
og kirkjustarfs tvo mán-
uði fram í tímann. Allur
texti sem birtist í Morg-
unblaðinu er yfirlesinn.
Breytingar
á skráningu
inn í Stað og
stund