Morgunblaðið - 31.08.2007, Síða 38
Þetta var rosalega
gaman, og ég fékk
fullt af bravóum og
svoleiðis … 42
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
„Blær er búin að fylgja mér lengi –
það er eins og Silvía Nótt sem fylgir
Ágústu Evu. Hún er dálítil tík, veit
hvað hún vill og er algjör glamúrgella
– svolítil Paris Hilton.“ Þannig talar
Steini díva, Þorsteinn Jóhannsson,
um Blæ – hlutverkið sem færði hon-
um titilinn drag-drottning Íslands.
Hann leggur mikla áherslu á drag
sem listform, sem leiklist.
„Menn vilja oft gleyma hversu
drag er gamalt listform. Í gamla daga
máttu konur ekki leika í leikhúsi og
þá léku karlar öll kvenhlutverkin líka.
Og þetta er enn til staðar – sjáðu bara
Spaugstofuna. Fólk virðist stundum
gleyma því hvað það þarf mikið til –
það þarf helvíti mikla hæfileika til
þess að verða falleg kona, sérstaklega
ef maður er strákur til að byrja með.“
Og hann væri til í að leika konur
Shakespeares. „Ég myndi segja já
um leið. Ég hef verið að leika konu í
nokkur ár og ég stefni á leiklist í
framtíðinni, þannig að vonandi fæ ég
tækifærið. Það væri gaman að leika
Júlíu. En fyrir mér er ég alltaf að búa
til karakter og þannig hef ég alltaf
unnið. Þetta er svolítið eins og maður
fái handrit, svo þarftu að finna kar-
akterinn inni í þér. Þú vaknar ekkert
á morgnana og hugsar; ég ætla í drag
í dag og verða gullfalleg kona – það
kostar marga mánuði í undirbúning.“
Fordómarnir, ástin og trúin
Steini er alinn upp á Selfossi en
flutti til Reykjavíkur sextán ára og
gerðist þá drag-drottning. „En drag-
ið var alltaf í mér. Alveg frá því ég var
lítill hef ég dregist að kvenmanns-
fatnaði. Ég og vinkonur mínar lékum
okkur í grunnskóla og ég klæddi mig
upp í „kreisí“ drag – en þetta byrjaði í
alvöru þegar ég flutti til Reykjavíkur
þegar ég var sextán ára. Þá var ég
með „show“ hverja einustu helgi í
hálft ár.“
En þrátt fyrir meint umburð-
arlyndi Íslendinga lifir ennþá í göml-
um glæðum gamalla fordóma og það
að vera opinskár kallar oft á þá. „Það
eru um 20 þúsund búnir að skoða
MySpace-síðuna mína á hálfu ári og
ég held að það sé af því það er svo lítið
af fólki á Íslandi sem er svona op-
inskátt um hvað það er og hver það
sé. Mér er alveg sama þótt ég sé að
ganga Laugaveginn og einhverjir litl-
ir strákar öskra á mig; „ógeð“ eða
„hommi“. Ég hef fengið „ímeil“ frá
litlum strákum í Breiðholti – „hvað er
málið með þig?“ – og ég virði það, all-
ir mega hafa sínar skoðanir. Ég
„gúglaði“ mig og las einhver blogg
um mig og hugsaði bara, guð minn
góður! – en það er bara gott. Svo
lengi sem þú vekur umtal er það gott.
Fólk þarf ekkert að elska mig, fólk
má hata mig og elska mig.“
En hvernig er með ástina – er
drag-drottning Íslands á lausu? „Já,
hún er á lausu. Ég er svo „outgoing“
karakter, ég sker mig úr hvar sem ég
fer. Ég fer í Bónus og allir í búðinni
horfa á mig. Fólk vill ekki horfa á það
sem er inni, það horfir bara á umbúð-
irnar. Þegar ég fer á djammið þorir
fólk oft ekki að tala við mig því ég er í
svo biluðum fötum. Fólk er hrætt við
það sem það þekkir ekki og sumir
segja bara: „Steini minn, þú ert að-
eins of „kreisí“ fyrir mig.“ En ég ætla
ekki að tóna mig niður eða breyta
mér fyrir neinn. Á endanum finn ég
einhvern sem á eftir að elska mig eins
og ég er.“
Trúarbrögð hafa verið mikið í um-
ræðunni varðandi samkynhneigð og
Steini hefur hafnað kirkjunni en farið
aðrar leiðir en flestir. „Ég hef alltaf
verið mikið fyrir trúmál – síðan ég
var lítill hef ég lesið allt sem ég hef
komist í varðandi trúmál.“ En í
kringum fermingaraldurinn kynntist
hann wicca – náttúrutrú sem á rætur
hjá nornum. „Kristni hefur aldrei
höfðað til mín, öll þessi boð og bönn
og samkynhneigð fær slæma útreið
þannig að ég fann mér bara annað
trúarbragð. Wicca er svo falleg trú –
snýst um að finna hið fallega í öllu, þú
mátt lifa eins og þú ert. Wicca hvetur
þig til að verða það sem þú ert og
gera það sem þú vilt. Ég veit ekki
hversu margir prestar myndu vilja fá
mig í messu í dragi. En það skiptir
engu máli hverrar trúar þú ert – það
sem er inni í þér skiptir máli, það er
mitt mottó í lífinu. Þetta er svo per-
sónubundið í dag, hvaða trú höfðar til
hvers. Ég trúi ekki að það sé einn guð
og ein rétt trú, þetta er bara spurning
um hvað fólk finnur sér og hvað það
vill trúa á.“
Að gera barnastjörnu fullorðna
En hvað gerir drag-drottningin á
daginn? „Lifi á listinni og stílísera,
hef gert það síðustu átta mánuði. Ég
var rosalega heppinn, ég komst strax
inní þetta en það er fullt af fólki sem
er að reyna í langan tíma að komast
inní þetta.“ Hann hefur unnið mikið
með Svölu Björgvins og Jóhönnu
Guðrúnu, gömlu barnastjörnunni
sem nú er orðin sautján ára. „Ég er
svolítið að breyta ímyndinni úr
barnastjörnu í fullorðna stjörnu. Ef
þú byrjar svona ung og verður rosa
fræg þá vill þetta svolítið festast við
þig. Fólk vill ennþá sjá þig sem litla
krakkann sem er að syngja. Þannig
að þetta snýst um að búa til aðeins
meiri töffaraímynd fyrir hana, hjálpa
henni að velja föt og svona. Svo er ég
bara að gera drag, drag-show, stegg-
japartí og brúðkaupsveislur.“ Stegg-
japartíin eru raunar í uppáhaldi. „Það
er afslappaðast og frjálslegast, mað-
ur getur látið alveg eins og hálfviti.“
En þrátt fyrir dragið þá leggur
hann áherslu á að þetta spretti ekki
af löngun til þess að verða kona.
„Drag-drottingar eru menn sem hafa
of mikinn áhuga á tísku til þess að
halda sig við eitt kyn. Ég horfi á vin-
konur mínar og hugsa; mig langar í
þetta. Þegar ég fer út og kaupi mér
föt horfi ég aldrei á hvort þetta sé
karla- eða konudeild. Ef það er flott
og ég fíla það á mér þá kaupi ég það.
Allar þessar reglur, karlmenn mega
ekki vera á hækkuðum skóm og
svona, ég brýt allar þessar reglur.
Mér er alveg sama svo lengi sem mér
finnst þetta flott. Föt eru bara föt og
þurfa ekki að vera fyrir þetta kyn eða
hitt.“
Dragdrottning Íslands
Morgunblaðið/ÞÖK
Steini díva „Ég brýt allar þessar reglur. Föt eru bara föt.“
Þorsteinn Jóhannsson er sannkölluð díva, dragdrottning, stílisti og leikari
myspace.com/steinidiva
Dívan Steini hefur búið til marga
athyglisverða karaktera.
Myndband eitt á Youtube, sem
sýnir frá kostulegu svari Ungfrú
Suður-Karolínu
í fegurð-
arsamkeppni
sem fram fór í
Bandaríkjunum
á dögunum, fer
eins og eldur
um sinu um net-
heima þessa
dagana. Þar vefst fegurðardrottn-
ingunni tunga um tönn þegar hún
er spurð út í ástæður fyrir slakri
landafræðikunnáttu Bandaríkja-
manna en eins og svo oft áður er
sjón sögu ríkari.
Fegurðardrottningar hafa lengi
haft þann ósanngjarna stimpil á sér
að vera sparar á mannvitið en
landafræðin er ekkert grín eins og
sannaðist í viðtali við Ungfrú Ís-
land, Jóhönnu Völu Jónsdóttur, í
Fréttablaðinu á dögunum þar sem
hún sagðist hvorki hafa komið til
Kína né Asíu áður.
Landafræðin flækist
fyrir mörgum
Ef marka má orðið á götunni er
það álit tónlistaráhugamanna að
hljómsveitin Musik Zoo sé að verða
sú svalasta í bænum og ganga sum-
ir svo langt að segja að viðlík sval-
heita-sveit hafi ekki sést síðan Bub-
bleflies var og hét. Musik Zoo hélt
mikla tónleika á Organ um síðustu
helgi sem vel var látið af en einna
helst var tekið eftir sviðsframkomu
meðlima sem var skotheld. Skot-
held!
Musik Zoo ná nýjum
svalheita-hæðum
Guðmundur Steingrímsson,
pistlahöfundur, tónlistarmaður og
pólitíkus hefur tekið upp fyrri
bloggiðju nú
þegar líður að
vetri. Guð-
mundur var einn
fjögurra blogg-
ara sem Byr fjár-
festingarfélag
auglýsti hjá enda
skemmtilegur stílisti með ákveðnar
skoðanir á málefnum líðandi stund-
ar. Guðmundur sat ekki auðum
höndum í sumar þó hann hafi tekið
sér bloggfrí. Segir hann m.a. frá
því að hann hafi í sumar verið send-
ur til Kasakstan á vegum Öryggis-
og samvinnustofnunar Evrópu til
að fylgjast með framkvæmd kosn-
inga þar í landi. Guðmundur endar
síðan færsluna með því að segja frá
því að hann hafi í fyrradag eignast
nýjan föðurbróður: „Hljómar dálít-
ið eins og plott í Arrested Develop-
ment, ég veit, eða ekta gamaldags
íslensku útvarpsleikriti ... Ég segi
bara eins og ein persónan í sögu
eftir Einar Kárason: „Ég skal segja
þér það, skal ég segja þér.““
Eins og í gamaldags ís-
lensku útvarpsleikriti
Ljósmynd/SvarTTrasT