Morgunblaðið - 31.08.2007, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Það var með nokkurri til-hlökkun sem ég tróð föggummínum niðrí tösku nú fyrir
sléttri viku. För var heitið til Lund-
úna, en þangað hafði ég aldrei áður
komið. Fróðir menn og margvitrir
höfðu haldið yfir mér magnaðar og
innblásnar prédikanir um hvílíkt
himnaríki borgin væri fyrir bóka-
béusa. Ég settist uppí flugvél með
fiðring í tám, kláða í fingurgómum.
Vélin lenti, ég grýtti ferðatösku
inn á herbergi, rassakastaðist niður
hóteltröppurnar og steyptist koll-
hnís útúr lobbýinu. Og varð ekki
fyrir vonbrigðum; ég trúði vart eig-
in augum! Í Lundúnum eru fleiri
bókabúðir en bækur í íslenskum
bókabúðum. Ég reikaði framá hlið-
argötur þar sem leyndust tugir
fornbókaverslana. Stórar bókabúð-
ir á breiðstrætum svo langt sem
augað eygði.
Óboj, þessu lendir maður skosjaldan í hér heima!
Þegar maður steig inn hjá stóru
bókahöndlurunum stöðvaðist tím-
inn. Allt útí skruddum, blöðum,
bæklingum, kiljum, doðröntum,
fræðiritum, skáldsögum, ljóðakver-
um – og allir eitthvað svo rólegir og
yfirvegaðir. Ekkert stress. Engin
tónlist. Ég ranglaði alsæll inní heilu
deildirnar helgaðar „póetrý“,
kraup dolfallinn á kné og tók
skyndilega að hnusa úr hverri ein-
ustu hillu. Stóð svo upp og sveif á
skýi eftir endalausum rangölum og
afkimum. Í risaversluninni Foyle’s
eru heilu skáparnir eingöngu til-
einkaðir bókum um hernaðarbún-
inga. Þetta var útí hött. Og alstaðar
fólk að grúska, glugga, skoða,
kaupa.
Auðvitað er ekki hægt að reka
viðhafnarverslun með skrifum um
hernaðarbúninga hér heima. En
munum samt, – Íslendingar eru
bókaþjóð. Svo hermir tuggan.
Hvað eru margar bókabúðir á Ís-landi í dag? Athugum málin.
Nýlega lagði hin ágæta Bókabúð við
Hlemm upp laupana. Mér skilst að í
staðinn hafi spilavíti nokkurt fært
út kvíarnar og nú skrölti í smámynt
þar sem áður skrjáfaði í pappír. Er
þetta þróunin?
Ég þori ekki að leita uppi svarið.
Afstaða Íslendinga til lesturs er
skrítin. Fyrir allnokkru síðan rak
ég augun í spjall Fréttablaðsins við
nokkra menntaskóladúxa. Þar var
meðal annars spurt eitthvað á þessa
leið: „Hvort kýstu heldur, góða bók
eða góða bíómynd?“ „Speking-
arnir“ áttu náttúrlega að segja:
„Bók, að sjálfsögðu“, en töffararnir:
„Bíó, … Einn dúxinn gelti og komst
greinilega í uppnám; ljóstraði því
stoltur upp að hann læsi ekki aðrar
bækur en kennslubækur.
Á bóklestur undir högg að sækjaá Íslandi? Vonandi ekki. Af
einhverjum orsökum þykir samt
meira töff að horfa á feita sprelli-
gosann Jack Black reka við en að
lesa um Steina og Olla.
Og þá spyr ég á sömu nótum:
Hvort kýstu heldur, – góðan fisk
eða gott kjöt?
Góður fiskur eða gott kjöt?
» Í risaversluninniFoyle’s eru heilu
skáparnir eingöngu til-
einkaðir bókum um
hernaðarbúninga.
Reuters
Engar bækur? Hinn snoðaði í leddaranum, Justin, og sá er orgar í gjall-
arhornið, Jack, eru, að margra mati, æði.
sverrirn@mbl.is
AF LISTUM
Sverrir Norland
UM helmingur þeirra heimild-
armynda sem sýndar verða á Al-
þjóðlegri kvikmyndahátíð í lok sept-
ember er bandarískur, en í
flokknum eru einnig myndir frá
Belgíu, Danmörku, Kína og Búlg-
aríu svo eitthvað sé talið. Í frétta-
tilkynningu frá RIFF segir að
myndirnar eigi það allar sameig-
inlegt að fást við áhugaverð við-
fangsefni á nýstárlegan og spenn-
andi hátt.
Í flokknum eru m.a. myndir um
afbrýðisemi, rokk, krabbamein,
mannréttindi, konur, samkyn-
hneigð, kynskiptinga, tjáning-
arfrelsi, myndlist, umhverfismál og
svona mætti áfram telja.
A Lion in the House (Ljón í hús-
inu) er átakanleg mynd sem veitir
innsýn í líf fimm krabbameinsveikra
barna og baráttu hverrar fjöl-
skyldu. Leikstjórinn Julia Reichert
hefur tvívegis verið tilnefnd til Ósk-
arsverðlauna og er gestur kvik-
myndahátíðar í ár. Sérstök styrkt-
arsýning verður haldin þar sem
ágóðinn rennur til krabbameins-
sjúkra barna.
Crazy Love (Tryllt ást) er sláandi
mynd sem segir af ungum manni
sem afskræmir andlit konunnar
sem hann elskar í afbrýðiskasti og
er dæmdur í margra ára fangelsi
fyrir vikið. Þegar hann losnar úr
prísundinni biður hann konunnar og
hún játast honum.
Dixie Chicks: Shut Up and Sing
(Haltu kjafti og syngdu!) segir frá
hljómsveitinni Dixie Chicks og því
mótlæti sem sveitin þurfti að þola
eftir að þær sögðust skammast sín
fyrir að Bush Bandaríkjaforseti
væri frá Texas eins og þær. Leik-
stjóri er Barbara Kopple en hún
hefur unnið Óskarsverðlaun í tví-
gang.
El Ejido, The Law of Profit (El
Ejido, Lögmál hagnaðarins) segir af
Almeria-svæðinu á Suður-Spáni þar
sem 80.000 innflytjendur vinna við
framleiðslu á þriðjungi vetrarneyslu
Evrópubúa á grænmeti og ávöxtum.
Þessir verkamenn hafa sumir ekki
séð fjölskyldur sínar í fjölda ára og
búa við ömurleg skilyrði.
Fabulous! The Story of Queer Ci-
nema (Æði! Saga hinsegin kvik-
myndagerðar) rekur sögu hinsegin
kvikmynda allt frá Fireworks frá
1947 til Brokeback Mountain.
Flying: Confession of a Free
Woman (Á flugi: Játningar frjálsrar
konu). Stórbrotin, sex klukkustunda
löng heimildarmynd þar sem leik-
stýran Jennifer Fox leitar svara við
því hvort til sé einhver rauður þráð-
ur sem bindi konur um alla hnatt-
kringluna saman.
Girls Rock (Stelpur rokka!). Í
rokkbúðunum í Portland, Oregon,
fá stúlkur á aldrinum 8-18 ára að
spila á hvaða hljóðfæri sem er,
stofna hljómsveit, semja lag og
leika á tónleikum – allt á einni viku.
Leikstjórinn Arne Jonhson er af ís-
lenskum ættum og mun sækja há-
tíðina.
Metamorphosis (Hamskipti).
Einn af hverjum 4.600 Kínverjum
vill gangast undir kynskiptiaðgerð –
eða um 280.000 manns. Síðan 1986
hafa um 400 manns látið drauminn
rætast en mætt mikilli andstöðu í
samfélaginu. Þetta er saga þeirra.
My Kid Could Paint That
(Krakkinn minn gæti málað þetta)
spyr hvort nútímalist sé ekkert
nema nýju fötin keisarans með því
að fylgja hinni fjögurra ára gömlu
Marla Olmstead eftir, en árið 2004
seldi hún málverk fyrir 300.000 dali
og var líkt við Pollock og Picasso.
Screamers (Öskrarar) er mynd
sem segir af armenska þjóðarmorð-
inu, en hvorki Bretland né Banda-
ríkin – né Ísland – hafa tekið af-
stöðu til atburðanna. Hljómsveitin
System of a Down er af armenskum
uppruna og hefur verið ötul við að
breiða út boðskapinn og þessi mynd
fjallar til jafns um hljómsveitina og
þjóðina sem hún tilheyrir.
The 11th Hour (Á elleftu stundu)
vísar til þeirrar stundar sem nú er
runnin upp í umhverfismálum.
Leonardo DiCaprio er meðframleið-
andi myndarinnar og þulur hennar.
The Monastery (Klaustrið). Hinn
86 ára gamli piparsveinn Hr. Vig
þarf að gefa eftir þegar hópur rúss-
neskra nunna krefst endurbóta á
kastala hans eigi hann að vera hæf-
ur til klausturssetu.
The Mosquito Problem and Other
Stories (Móskítóvandræðin og fleiri
sögur) er saga bæjarins Belene við
bakka Dónár í Búlgaríu. Ofvaxnar
móskítóflugur ásækja bæinn, til
stendur að byggja kjarnorkuver og
skuggar fortíðar sveima um stræt-
in.
Spennandi heimildarmyndir á RIFF
Dixie Chicks „Og við skömmumst okkur fyrir það að vera úr sömu sveit og forseti Bandaríkjanna.“
UPPLÝSINGAR sem teknar voru
af vefsíðu Nútímadanshátíðar í
fyrradag og birtust í Morgunblaðinu
í gær reyndust vera rangar. Beðist
er velvirðingar á því. Rétta dagskrá
má finna á vefsíðunni dancefest-
ival.is.
Röng
dagskrá á
vefnum
LEIÐRÉTTING
Miðasala hefst
Miðasala og sala áskriftarkorta
á www.leikhusid.is eða í síma 551 1200
3. september
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is
Miðapantanir í síma: 437-1600
2007–2008
Óvitar!
Frábær fjölskyldusýning. Forsala hafin!
Frumsýning 15. september kl. 20. UPPSELT
Áskriftarkortasala hafin!
Vertu með!
Sunnud. 16/9 kl. 20
Fimmtud. 20/9 kl. 20
Föstud. 21/9 kl. 20
Laugard. 22/9 kl. 20
Fimmtud. 27/9 kl. 20
Föstud. 28/9 kl. 20
Laugard. 29/9 kl. 20
4 600 200
leikfelag.is
LÍK Í ÓSKILUM
Lau 1/9 kl. 20 FRUMSÝNING upps.
Mið 5/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20 upps.
Sun 9/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
LADDI 6-TUGUR
Sun 2/9 kl. 20 upps. Fim 6/9 kl. 20
Fös 7/9 kl. 20 upps. Sun 16/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN ÁST
Í kvöld kl. 20 Lau 1/9 kl. 20
Fös 7/9 kl. 20 Lau 8/9 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Mið 12/9 kl. 20 Mið 19/9 kl. 20
Mið 26/9 kl. 20
SÖNGLEIKURINN GRETTIR
Sun 9/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20
Lau 22/9 kl. 20
KILLER JOE
Fim 6/9 kl. 20 Fim 13/9 kl. 20
DAGUR VONAR
Fim 13/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20
HAUSTSÝNING Íd
Sun 9/9 kl. 20 Sun 16/9 kl. 20
Miðasala 568 8000 - www.borgarleikhús.is
Fréttir
í tölvupósti