Morgunblaðið - 05.09.2007, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 05.09.2007, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Í HNOTSKURN »Framkvæmdastjóri BM Vallár gerir ráðfyrir 20% samdrætti á sementsmarkaði í ár, miðað við síðasta ár. »Hann segir ljóst að þensla undanfarinnaára sé á undanhaldi og nú sé tímabært að bregðast við. Eftir Andra Karl andri@mbl.is LJÓST er að verulegur samdráttur verður í sölu sements á þessu ári miðað við undanfarin ár, m.a. sökum þess að hægt hefur á stóriðjuframkvæmd- um. Framkvæmdastjóri BM Vallár telur heildar- samdrátt nema um 20% á árinu, og gerir ráð fyrir að sama staða verði uppi á teningnum á næsta ári. Hann segir eftirspurn hafa minnkað og spyr hvort ástæða sé til þess að halda vaxtastigi áfram jafn háu. „Við erum að sjá á bak mjög miklum fram- kvæmdum á Austurlandi og áhrifa þess er þegar farið að gæta,“ segir Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri BM Vallár. „Ef við berum saman júlí og ágúst sl. við sama tímabil á síðasta ári þá er markaðurinn að dragast saman um 25–30%.“ Þorsteinn segir ástandið á almennum bygginga- markaði nokkuð gott og telur enn betra jafnvægi ríkja þar en áður. „Mér sýnist á öllu að þessi mikla þensla sem verið hefur sé í rénun. Til að mynda hefur mér sýnst vera rólegra yfir markaðnum á síðari hluta ársins, miðað við sama tíma í fyrra.“ Heildarsala á sementi á síðasta ári var um 340 þúsund tonn og sér Þorsteinn fram á að ef fari sem horfi í ár verði salan um 270–280 þúsund tonn. Á næsta ári spáir Þorsteinn því að salan fari jafnvel niður í 220–230 þúsund tonn. „Það er ekkert sér- stakt í pípunum fyrr en kannski um mitt næsta ár, og þá ekki í sama mæli og við höfum séð á umliðn- um árum.“ Þorsteinn segir því komin nægilega skýr merki um að þenslan sé á undanhaldi og tími sé kominn til að lækka vexti. „Þessi mikla eftirspurnarspenna er ekki lengur fyrir hendi, og það er tímabært að fara að bregðast við. Verðbólga hefur verið á undan- haldi, eins og sést á verðbólgumælingum undanfar- inna mánaða, jafnvægi að færast yfir fasteigna- markaðinn og því spyr ég hvort ástæða sé til þess að keyra svona hátt vaxtastig áfram inn í veturinn og jafnvel lengur.“ Verulegur samdráttur á sementsmarkaði milli ára Morgunblaðið/ÞÖK Steypa Minni eftirspurn er eftir sementi.  Framkvæmdum á Austurlandi að ljúka  Áhrifa þess þegar farið að gæta ÚRKOMUSAMT hefur verið á landinu síðustu daga og skýrist það af síð- sumarslægðum sem nú ganga yfir landið hver á fætur annarri. Meðan sum- ir bölva rigningunni taka aðrir henni fagnandi, ekki síst sökum þess að þá gefst tækifæri til að sjá litskrúðugan regnboga skreyta himininn. Löngum hefur verið sagt að fjársjóður leynist við enda regnbogans. Spurning hvort ábúendur á þessum bæ í Hvalfirði geti tekið undir það. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Leynist gull við enda regnbogans? Lægðir ganga yfir landið hver á fætur annarri „ÉG SKORA hér með á íslensk stjórnvöld að leið- rétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til sam- ræmis við íslenskan veruleika. Raunveruleiki þessarar ungu einstæðu móður sem berst við krabbamein er skyldulesning fyrir ykkur: http:// thordistinna.blog.is/blog/thordistinna/ entry/299482/. Það er löngu ljóst að meðferðin á öryrkjum, fötluðum, sjúkum og öldruðum er til skammar í þessu þjóðfélagi okkar sem á að heita velferð- arþjóðfélag. Það er í ykkar höndum að snúa þessu upp í manneskjulegt umhverfi.“ Þannig byrjar tölvupóstur sem bloggarar voru í gær hvattir til að senda Guðlaugi Þór Þórðarsyni, heilbrigðis- ráðherra, og Jóhönnu Sigurðardóttur, félagsmála- ráðherra, og ráðuneytum þeirra. Tilefni póstsendinganna er bloggfærsla Þórdís- ar Tinnu Aðalsteinsdóttur, sem berst við lungna- krabba á lokastigi. Í bloggfærslu sinni upplýsir Þórdís að örorkubæturnar sem hún fái útborg- aðar séu 95 þúsund krónur á mánuði. „Mæli með því að heilbrigðis- og líka félagsmálaráðherra fái örorkubætur í lágmark eitt ár og það verði eina framfærsla þeirra. Mikið held ég að það myndi snarbreyta stöðunni og bæturnar yrðu þá kannski loksins viðunandi,“ skrifar Þórdís m.a. í færslu sinni. Hvetur hún til þess að örorkubætur verði tekjutengdar þannig að sjúklingar þurfi ekki að hafa fjárhagsáhyggjur á erfiðum tímum lífs síns. „Ég á samkvæmt dómum læknanna ekki eftir að lifa lengi og þá einhvern veginn verður maður enn reiðari að hugsa um þetta kerfi. Að maður þurfi virkilega að hafa fjárhagsáhyggjur síðustu mán- uði lífsins. Það er […] skömm af þessu kerfi.“  Í fjöldapósti til heilbrigðisráðherra og félagsmálaráðherra er skorað á ráð- herrana að leiðrétta kjör öryrkja  Lagt til að örorkubætur verði tekjutengdar Meðferðin er til skammar Morgunblaðið/Kristinn BÆJARFULLTRÚAR Sjálfstæðis- flokksins lögðu til á bæjarstjórnar- fundi Hafnarfjarðar í gær, að bærinn seldi hlut sinn í Hitaveitu Suður- nesja til Orkuveitu Reykjavíkur. Telur oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði, Haraldur Þór Ólason, að verði andvirðinu varið til að greiða niður skuldir verði hægt að lækka útsvar og fasteignaskatta bæjarbúa. Sjálfstæðismenn eru í minnihluta í bæjarstjórninni en Samfylkingin, sem er í meirihluta, fór fram á frestun afgreiðslu þessa máls fram í næstu viku. Að sögn Haraldar Þórs vilja menn þrýsta á að gengið verði frá málinu þar sem nú séu liðnir tveir mánuðir af þeim sex sem kauptilboð OR stendur. Hafnarfjarðarbær fengi 7,9 milljarða kr. fyrir sinn hlut en skuld- ir bæjarins nema 9,6 milljörðum og telur Haraldur Þór að með sölunni skapist ný tækifæri fyrir Hafnar- fjarðarbæ til að endurskipuleggja fjármálastjórn bæjarins og svigrúm til að minnka álögur. Selja ætti hlut bæjarins í HS ♦♦♦ JOHN Craddock hershöfðingi, yfir- maður herafla Atlantshafs- bandalagsins, NATO, í Evrópu (SACEUR), sæk- ir Íslendinga heim í dag, en hann tók við embætti um sl. áramót. Craddock mun eiga viðræður við Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utan- ríkisráðherra. Einnig hittir hann að máli embættismenn í utanríkisráðu- neytinu. Loks mun Craddock skoða aðstæður á Keflavíkurflugvelli og hitta þátttakendur í sprengjueyðing- aræfingu NATO sem á ensku nefnist Northern Challenger. Craddock er úr landhernum, kvæntur og á tvær dætur. Hann er Bandaríkjamaður eins og allir fyrir- rennarar hans í embætti og hefur gegnt margvíslegum trúnaðarstörf- um fyrir þjóð sína. Var hann yfirmað- ur svonefndrar suðurherstjórnar Bandaríkjanna áður en hann tók við embættinu hjá NATO. Craddock í heimsókn á Íslandi John Craddock Er yfirmaður her- afla NATO í Evrópu BORGARSTJÓRN greiddi á fundi sínum í gær atkvæði um þá liði í fundargerðum borgarráðs og bygg- ingafulltrúa þar sem heimilað er að rífa hús við Laugaveg 4 og 6 og byggja ný hús á reitnum. Fundar- gerðirnar voru samþykktar með átta atkvæðum Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Fjórir borgar- fulltrúar greiddu atkvæði á móti en þrír sátu hjá. Endurmat á löggæslu Tillaga Samfylkingar um beiðni um endurmat á löggæsluþörf í mið- borg og hverfum borgarinnar sem fari fram af hálfu lögreglu höfuð- borgarsvæðisins og dómsmálaráðu- neytisins var einnig samþykkt á fundinum. Verður leitast við að meta löggæslu þá sem að almenningi snýr, með áherslu á sýnilega löggæslu í miðborginni og hverfislöggæslu. Húsin verða fjarlægð ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.