Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 25 MYGLUSVEPPUR er ekki góður sambýlingur ef marka má banda- ríska rannsókn. Rök híbýli þar sem myglusveppir hafa hreiðrað um sig geta nefnilega beinlínis leitt til þunglyndis. Að sögn forskning.no hafa nokkr- ar eldri rannsóknir frá Bretlandi sýnt fram á samhengi milli þung- lyndis og myglusvepps á heimili en Edmond Shenassa og kollegum hans við Brown University í Banda- ríkjunum þóttu þær niðurstöður ekki sannfærandi. Þeir ákváðu því að afsanna kenninguna … með harla slökum árangri. „Við vorum sannfærðir um að um leið og tillit yrði tekið til annarra þátta sem geta leitt til þunglyndis, s.s. atvinnu viðkomandi og húsnæð- isþrengsla, myndu þessi tengsl milli myglusveppa og þunglyndis hverfa,“ segir Shenassa í frétta- tilkynningu. „En þar skjátlaðist okkur. Við fundum sterk tengsl milli þunglyndis og þess að búa í röku húsnæði þar sem myglu- sveppir höfðu gert sig heima- komna.“ Hann bendir engu að síður á að ekki sé hægt að segja hver sé orsök þessa samhengis. Það er t.d. ekki víst að sjálfur myglusveppurinn hafi líkamleg áhrif á þá sem búa við hann heldur geta húsnæðisaðstæð- urnar sem slíkar einfaldlega haft áhrif á andlega líðan. Framleiðir eiturefni Í rannsókninni voru skoðuð gögn frá 5.882 fullorðnum frá 2.982 ólík- um heimilum í Evrópu. Gögnin voru hluti af stórri könnun sem Alþjóða- heilbrigðisstofnunin (WHO) stóð að á árunum 2002 og 2003. Þátttak- endur svöruðu fjölda spurninga sem margar hverjar snerust um klassísk einkenni þunglyndis. Viðtölin voru tekin heima hjá þátttakendum og þeir sem stýrðu þeim reyndu að taka eftir vísbendingum um myglu í húsunum sem þeir sóttu heim. Nið- urstöðurnar sýndu greinilega að húsnæði hafði áhrif á heilsu þeirra sem þar bjuggu, þar með talið and- lega heilsu. Vísindamennirnir telja tvær mögulegar ástæður fyrir því að samhengi er á milli myglusvepps í húsnæði og þunglyndis. Önnur er að íbúanum finnist hann ekki hafa stjórn á aðstæðum. Á hinn bóginn gæti verið um líkamleg áhrif af völdum myglusveppsins að ræða. Þannig er myglusveppur tengdur öndunarörðugleikum, úthaldsleysi og kvefsækni enda er vitað að hann framleiðir ákveðið eiturefni. She- nassa og félagar hans rannsaka nú hvort þau efni geti haft áhrif á taugakerfi manna, ónæmiskerfi og heila. Morgunblaðið/Ásdís Þunglyndi Getur sambýli við myglusveppi verið orsakavaldur? Þunglyndi af völdum myglusvepps KARLMENN horfa grunnt og konur djúpt þegar kemur að mökunarferl- inu að því er nýleg rannsókn við In- diana-háskólann í Bandaríkjunum leiðir í ljós. En á meðan karlar eru líklegir til að horfa á útlit kvenna þeg- ar kemur að kærustuvalinu hallast konurnar frekar að mönnum sem eru líklegir til að veita efnahagslegt ör- yggi. Rannsóknarteymið horfði á hegð- un 46 einstaklinga sem þátt tóku í hraðstefnumótum. Að mati rannsak- enda eru slík stefnumót góð leið til að skýra þætti, sem fólk er að vega og meta innra með sér, sem skiptir máli í makaleitinni. Þátttakendur voru spurðir eftir hverju þeir væru helst að leita í fari verðandi maka. Í lang- flestum tilfellum voru svörin á þá leið að helst vildi fólk af báðum kynjum einhvern sem líktist því sjálfu. Þegar á hólminn var komið fór fólk þá fljót- lega að munstra sig við ákveðnar fyr- irmyndir auk þess sem karlar voru að meðaltali líklegri en konur til að fara á mörg stefnumót að því er segir í ný- legri frétt á vefmiðli BBC. „Á meðan mannfólkið gortar sig af þroska umfram aðrar lífverur hér á jörðu haga flestir menn sér eins og týpískir apar þegar kemur að mök- unarferlinu,“ segir Peter Todd, yf- irmaður rannsóknarinnar. Konur vandlátari í mökunarferlinu Reuters Fegurð eða fjárhagsöryggi? Do- nald og Marla Trump falla vel að niðurstöðvum rannsóknarinnar. -hágæðaheimilistæki vi lb or ga @ ce nt ru m .is Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is CUPesf3553 Stærð: h 180,6 sm/br 60 sm/d 63,2 sm Kælir: 230 ltr Frystir: 92 ltr Orkuflokkur A+ Með ryðfríum stálhurðum Verð áður kr. 185.200 stgr. Þýskir gæðakæliskápar AFSLÁTTUR 30% kr. 129.640 stgr. LIEBHERR TILBOÐ Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri og í Reykjavík og kynnið ykkur Liebherr kæliskápana. Tilboðið gildir meðan birgðir endast. Decorette Bæjarlind 14-16 Glæsileg gjafavöruverslun Stærð: 171,8 fm Fjöldi herbergja: 0 Byggingarár: 0 Brunabótamat: 0 Bílskúr: Nei Verð: 19.900.000 Rekstur á glæsilegri gjafavöruverslun er nú til sölu ásamt vörulager. Decorette er í vel staðsettu 200 fm leiguhúsnæði við Bæjarlind í Kópavogi. Verslunin er með umboð á þekktum erlendum vörumerkum og einnig með eigin innflutning. Mjög góð viðskiptasambönd eru fyrir hendi og stór viðskiptamannalisti. Verslunarhúsnæðið er með leigusamning til tveggja ára í senn. Verslunin er öll hin glæsilegasta og björt með stórum gluggum á framhlið. Næg bílastæði að framan. Mörg ónýtt tækifæri til staðar. Lind Þórarinn Jónsson Lögg. fast. hdl. Skúli Örn Sölufulltrúi thorarinn@remax.is skuli@remax.is Eyþór Jónsson Sölufulltrúi eythorj@remax.is Gott tækifæri og miklir möguleikar RE/MAX Lind - Bæjarlind 14-16 - 201 Kópavogur - Sími: 5209500 - www.remax.is 897 0798 892 2325

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.