Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 15 ERLENT FRÉTTASKÝRING Eftir Ásgeir Sverrisson asv@mbl.is FÖR George W. Bush Bandaríkjafor- seta til Íraks á mánudag markar upp- haf næstu lotu þeirra deilna sem geisa vestra um framhald stríðsins í land- inu. Í næstu viku mun David Petra- eus, yfirmaður herafla Bandaríkj- anna í Írak, skila skýrslu sinni um gang herfararinnar frá því að Bush forseti ákvað fyrr í ár að fjölga í liðs- aflanum þar um 30.000 manns. For- setinn lætur engan bilbug á sér finna og ummæli hans öll síðustu vikurnar benda til þess að hann hyggist láta kröfur um að heimkvaðning heraflans verði hafin sem vind um eyru þjóta. Algengt er að slíkar heimsóknir séu afskrifaðar sem „fjölmiðlabrell- ur“ en sú lýsing á ekki við í þessu til- felli. Heimsókn Bush var að sönnu stutt en engu að síður tókst forset- anum að koma frá sér mikilvægum pólitískum skilaboðum. Umræðan um Írakstríðið mun á næstu vikum kom- ast á nýtt stig í Bandaríkjunum; von er á mikilvægum skýrslum og full- yrða má að forsetinn muni hvergi gefa eftir í þeim málflutningi sínum, að sú ákvörðun hans að fjölga í herlið- inu í Írak hafi skilað árangri og því beri að gefa stefnu þessari meiri tíma til að sanna gildi sitt. Bush sótti heim liðsaflann í Anbar- héraði en stuðningsmenn herafarar- innar halda ástandinu þar mjög á lofti því til sannindamerkis að stefna for- setans sé fallin til að skila árangri. Í Anbar eru súnnítar ráðandi og þar hafa leiðtogar ættbálka og fyrrum andstæðingar innrásarliðsins gengið til liðs við Bandaríkjamenn í því augnamiði að sigrast á herflokkum, sem tengjast al-Qaeda-hryðjuverka- netinu. Bush fundaði m.a. með leið- togum þessum og lagði þunga áherslu á mikilvægi þeirra umskipta sem orð- ið hefðu í héraðinu. Ljóst er að staða mála í Anbar þar sem dregið hefur úr ofbeldinu verður ein mikilvægasta röksemd forsetans fyrir því að fylgja beri óbreyttri stefnu í Írak. För forsetans til Íraks var þaul- hugsuð pólitísk aðgerð. Sú ákvörðun hans að halda ekki til höfuðborgarinn- ar, Bagdad, fól í sér þau skilaboð að stjórnvöld í Bandaríkjunum teldu framgöngu íraskra ráðamanna óvið- unandi. Um leið var lögð áhersla á þá röksemdarfærslu forsetans, að þróun mála í Anbar veki vonir um að unnt reynist að ná árangri, þ.e. auka öryggi og stuðla að pólitískum sáttum, í ein- stökum héruðum, sem aftur geti haft jákvæð áhrif á vettvangi landsmála. Og með því að funda með Nouri al- Maliki, forsætisráðherra Íraks, og leiðtogum súnníta í Anbar leituðust Bush og menn hans við að sýna and- stæðingum Íraksstríðsins fram á að sjítinn al-Maliki væri fær um að ná samningum við súnníta, sem stjórn- uðu landinu í valdatíð Saddams Húss- eins. Þeir sem gagnrýna stefnu for- setans halda því margir hverjir fram að al-Maliki hafi engan hug á því að freista þess að ná sáttum við súnníta m.a. um skiptinu olíutekna Íraka. Fundurinn með súnnísku ættarhöfð- ingjunum var því táknrænn og fallinn til að auka þrýsting á al-Maliki. Biðin senn á enda Væntanleg skýrsla Davids Petra- eus hefur nú þegar öðlast sérstakan sess í umræðum vestra um Íraks- stríðið og ágæti hernaðarstefnu Bush forseta. Sjálfur hefur Bush iðulega beitt þeirri vörn í erfiðri stöðu að bíða beri skýrslu hershöfðingjans áður en næstu skref verði ákveðin. Í þessu viðfangi ber að hafa í huga að sú ákvörðun Bush að fjölga í herlið- inu í Írak var rökstudd á þann veg að með því móti mætti draga úr ofbeld- inu og skapa forsendur fyrir því að leiðtogar sjíta, súnníta og Kúrda gætu gert út um ágreiningsmál sín með víðtæku samkomulagi. Við blasir að í þessu efni hefur stefna forsetans ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt; stjórn al-Malikis er nánast óstarfhæf og engar vísbendingar hafa borist um að von sé á umskiptum til hins betra á hinu pólitíska sviði. Líklegt er því að skýrslan, sem svo margir hafa beðið, muni í raun litlu breyta um gang mála í Írak þótt hún muni án vafa hafa víðtæk pólitísk áhrif í Washington. Petreaus hers- höfðingi mun vafalaust halda því fram að greina megi jákvæð áhrif á hern- aðarsviðinu og trúlega vísa til árang- ursins í Anbar-héraði. En um leið mun hann fá andstæðingum forsetans það sóknarfæri að fjölgun í herliðinu hafi litlu sem engu breytt í pólitískum efnum á vettvangi landsmála. För Bush til Íraks var því fallin til að leggja drög að þeirri vörn sem hann hyggst beita á næstu mánuðum enda deginum ljósara að forsetinn hefur engin áform uppi um að kalla herliðið heim. Fækkun í liðsaflanum í Írak mun trúlega fyrst koma til þegar yf- irmenn hersins gera forsetanum grein fyrir að 160.000 manna liði verði að óbreyttu ekki lengur haldið úti í landinu. Í því efni ber að horfa til apr- ílmánaðar á næsta ári. Von forsetans er sú að þá hafi árangri á borð við þann í Anbar verið náð víðar í landinu, sem aftur skapi forsendur fyrir þeim málflutningi að unnt sé að fækka bandarískum hermönnum í Írak. Bush býr sig undir næstu lotu För George W. Bush til Íraks á mánudag var liður í þeirri vörn sem Bandaríkjaforseti hyggst beita í kjölfar þess að skýrsla Davids Petraeus um gang hernaðarins verður gerð opinber í næstu viku Í HNOTSKURN »Þetta var þriðja förGeorge W. Bush til Íraks frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í landið og steyptu stjórn Saddams Hússeins. For- setinn sótti heim bandaríska hermenn í Írak árið 2003 og kom þar við í júnímánuði í fyrra. » Í Anbar er um 95% íbú-anna súnnítar og héraðið var forðum helsta miðstöð valda Saddams Hússeins. Eftir innrásina í Írak 2003 varð hér- aðið hið hættulegasta í Írak fyrir bandaríska heraflann að höfuðborginni, Bagdad, slepptri. Reuters Óbugaður George W. Bush hefur oftlega vísað til skýrslu Davids Petraeus hershöfðingja, sem líklega mun þó engu breyta um gang mála í Írak. BANDARÍKJAMAÐURINN Ed Jarrett hvílir sig eftir að hafa lokið við tíu metra háan sandkastala í Casco í Maine-ríki. Jarrett vonast til þess að kastalinn verði við- urkenndur sem hæsti sandkastali heims. Það tók hann tvo mánuði að reisa kastalann með hjálp 1.500 sjálfboðaliða til að safna fé fyrir at- hvarfi fyrir börn með banvæna sjúkdóma. „Það tók mig fjögur ár að undirbúa kastalann og sjálf- boðaliðarnir lögðu mjög hart að sér til að slá metið,“ sagði Jarrett, sem hafði áður sett heimsmet með því að reisa 8,85 m háan kastala. Heimsmetabók Guinness hefur ekki enn staðfest að nýi kastalinn standist viðmiðunarreglur, sem banna m.a. notkun véla og kveða á um að hæð kastalans þurfi að vera meiri en breiddin. AP Hæsti sandkastali heims? London. AP. | Þegar fólk veikist á geði í fátækum löndum felst meðferðin við sjúkdómnum stundum í því að fólkið er hlekkjað við tré. Öðrum er haldið í búrum eða þeir eru látnir sjá sér farborða sjálfir á flakki um sveitirnar. Þótt slík tilvik séu ekki mjög algeng sýna þau hvernig geðræn vandamál hafa oft verið vanrækt í fátækum löndum. Sérfræðingar á þessu sviði hafa skrifað greinaflokk í læknatímaritið The Lancet þar sem þeir hvetja til þess að teknar verði upp nýjar að- ferðir og meira fé verði lagt í með- ferðarúrræði fyrir geðveikt fólk í þróunarlöndum. Margir íbúa þeirra eru veikir á geði vegna ófriðar, fá- tæktar og sjúkdóma og verði þeim ekki komið til hjálpar er hætt við því að önnur þróunaraðstoð beri ekki til- ætlaðan árangur. Nær 90% geðveiks fólks í fátæku löndunum fá enga sjúkdómsmeð- ferð. Góð fjárfesting Samt eru til einföld úrræði. Hægt er t.a.m. að þjálfa ólært fólk í því að greina geðræna sjúkdóma í sam- félagi sínu til að hægt verði að sjá sjúklingunum fyrir viðeigandi með- ferð. Á Indlandi hefur þessari aðferð þegar verið beitt til að hjálpa fólki með geðklofa. Nirmala Srinivasan, formaður hreyfingar sem beitir sér í þágu geð- fatlaðra á Indlandi, segir að aðeins 7-8% af þeim 40-50 milljónum Ind- verja sem þjást af geðsjúkdómum fái viðeigandi meðferð. Í Brasilíu geta þeir sem hafa efni á því fengið aðstoð sem jafnast á við það sem gengur og gerist í þróuðum iðnríkjum í þessum efnum. The Lancet segir að geðheilbrigðiskerfið í landinu hafi batnað verulega síð- ustu áratugi en á því séu enn aug- ljósar brotalamir. Geðveikt fólk sést þar oft betla á götuhornum stórborg- anna og sofa undir vegbrúm. Í fá- tækum sveitahéruðum reynir fólk að annast geðveika ættingja sína eins vel og það getur en hefur oft ekki efni á lyfjum eða sérhæfðri aðstoð. Í Afríku eru læknar og hjúkr- unarfræðingar svo önnum kafnir í baráttunni við sjúkdóma á borð við alnæmi og malaríu að þeir hafa eng- in tök á að aðstoða fólk með geðsjúk- dóma. Megnið af fénu, sem varið er til hjálparstarfs í þróunarlöndum, er notað í baráttunni gegn smitsjúk- dómum, e.t.v. vegna þess að gefend- urnir vilja sjá greinilegan árangur strax. Hægt er að koma í veg fyrir sjúkdóma á borð við mislinga og mænusótt með einni sprautu, ólíkt geðsjúkdómunum sem krefjast yfir- leitt meðferðar í langan tíma. Það er góð fjárfesting að leggja fé í meðferðir við geðsjúkdómum í þró- unarlöndum, að sögn Tims Eatons, bandarísks sérfræðings á þessu sviði. „Geðtruflanir draga yfirleitt ekki fólk til dauða en hafa á end- anum efnahagslegan kostnað í för með sér það sem eftir er ævinnar.“ Segja geðsjúk- dóma vanrækta AP Fjötruð Geðveik kona hlekkjuð í kofa við hús brasilískrar fjölskyldu. Um 90% geðveika fólksins fá enga sjúkdómsmeðferð DANSKA lögreglan kvaðst í gær hafa afstýrt hryðjuverki með því að handtaka átta menn sem taldir eru viðriðnir hryðjuverkanetið al- Qaeda og höfðu orðið sér úti um sprengiefni. Njósnadeild dönsku lögreglunnar (PET) vildi ekki veita neinar upplýsingar um hugsanleg skotmörk en sagði að hryðjuverka- áformin hefðu „engin bein tengsl“ við þátttöku Dana í hernaðinum í Írak og Afganistan. Lögreglan lét til skarar skríða eftir að í ljós kom að mennirnir höfðu safnað hættulegu sprengiefni í þéttbýlu íbúðarhverfi. Mennirnir átta eru frá Afganist- an, Pakistan, Sómalíu og Tyrk- landi, hafa allir búið lengi í Dan- mörku og gerðust róttækir íslamistar þar í landi. Sex þeirra eru með danskan ríkisborgararétt. Hryðjuverki afstýrt AKBAR Hashemi Rafsanjani, fyrr- verandi forseti Írans, var í gær kjörinn formaður ráðs sem hefur eftirlit með æðsta leiðtoga landsins og velur eftirmann hans. Ráðið hef- ur vald til að reka æðsta leiðtog- ann, sem nú er Ali Khamenei erki- klerkur, telji það störf hans ófullnægjandi. Kjör Rafsanjanis er álitið áfall fyrir Mahmoud Ahmadinejad, for- seta Írans. Rafsanjani, sem þykir hófsamari en forsetinn, beið auð- mýkjandi ósigur fyrir Ahmadinejad í forsetakosningum árið 2005. AP Valdamikill Rafsanjani flytur ræðu á fundi sérfræðingaráðs Írans. Aftur til áhrifa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.