Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is KÓRINN, nýja íþrótta- og tónleika- höllin við Vallakór í Vatnsendahverfi Kópavogs, var formlega tekinn í notkun um helgina og þar með er haf- in uppbygging heilsu-, íþrótta- og fræðaseturs í bænum í samræmi við samning Kópavogsbæjar og Knatt- spyrnuakademíu Íslands ehf. Að Knattspyrnuakademíunni standa feðgarnir Arnór og Eiður Guðjohnsen, Ásgeir Sigurvinsson, Guðni Bergsson og Logi Ólafsson. Logi segir að mannvirkin breyti miklu fyrir akademíuna og framtíð- aráform hennar og svæðið verði ekki síst miðstöð fyrir íþróttafólk í Kópa- vogi. Logi segir lykilatriði að framhalds- skóli komi á svæðið sem fyrst og þar sé hugmyndin að vera með afreks- íþróttafólk í öllum greinum. Búið sé að ganga frá viljayfirlýsingu við Íþrótta- og ólympíusamband Íslands og öll stærstu sérsamböndin um sam- vinnu, í þeim tilgangi að gera betur við tilvonandi afreksfólk í íþróttum. Fjölnota hús Fyrsta skóflustungan að íþrótta- húsinu var tekin fyrir rúmu ári. Efnt var til hugmyndasamkeppni um nafn á húsið og var nafnið Kórinn hlut- skarpast. Í umsögn segir að „nafnið vísar til hverfisins en minnir einnig á að húsið er musteri líkama og sálar og margradda hljóðfæri sem hýsir margs konar starfsemi, íþróttaiðkun, tónlistarflutning, ráðstefnuhald og sýningar“. Stærð hússins er um 11.000 fer- metrar ásamt um 3.500 fermetra tengibyggingu. Knattspyrnuvöll- urinn er 105 x 68 m að stærð og loft- hæð 20 m undir bita í mæni en meira en 10 m yfir hliðarlínum. Gervigrasið er 60 mm einsþráða, fyllt með sandi og grænu gúmmíi efst. Undir grasinu eru hita- og kælilagnir en húsið er full- einangrað og með fullkomnu hita- og kælikerfi. Lýsingin uppfyllir kröfur Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA og sjónvarpsstöðva vegna út- sendinga. Þrjár 100 m hlaupabrautir eru beggja vegna vallarins og fjórar 70 m brautir til endanna. Undir stúku, þar sem gert er ráð fyrir allt að 2.000 áhorfendum í sæti, er upphit- unarrými. Höllin er auk þess sérhönn- uð til tónleikahalds með tilliti til hljóð- vistar og getur tekið allt að 19 þúsund manns. Knattspyrnuakademían rekur mannvirkin og hefur ráðið Jón Júl- íusson sem framkvæmdastjóra, en hann hefur verið íþróttafulltrúi Kópa- vogs. Fleiri mannvirki reist Á næstu mánuðum verða mannvirki Knattspyrnuakademíunnar reist. Þar er meðal annars gert ráð fyrir íþrótta- húsi með tveimur handboltavöllum í fullri stærð, búningsklefum, líkams- ræktarstöð og sundlaug auk knatt- spyrnuvalla utanhúss. Ennfremur er áætlað að á svæðinu rísi framhalds- skóli, verslunar- og skrifstofuhúsnæði, heilsugæsla, læknastofur, sjúkraþjálf- un, rannsóknastofa og fleira. Reyndar verður líkamsræktarstöðin opnuð til að byrja með í Kórnum um næstu helgi og kemur Anna Borg, sjúkra- þjálfari og eiginkona Arnórs Guðjohn- sen, til með að reka hana. Markmiðið með framkvæmdunum er að koma upp aðstöðu sem þjónar þörfum íbúa í efri byggðum Kópavogs og nærliggjandi svæðum á sviði íþróttamála. Mannvirkin eiga að þjóna akademíunni og vera miðstöð starfs- tengdrar sérfræði- og rannsókn- arstarfsemi á sviði íþrótta og lýðheilsu í samvinnu við framhaldsskóla svæð- isins. Kórinn í Kópavogi gefur tóninn Morgunblaðið/Sverrir Frábær aðstaða Knattspyrnuvöllurinn er 105 x 68 m að stærð og lofthæð 20 m undir bita í mæni en meira en 10 m yfir hliðarlínum. Gervigrasið er af bestu gerð og Gísli Kristjánsson kann vel að meta þessar aðstæður. Hlaupabrautir hringinn Þrjár 100 m hlaupabrautir eru beggja vegna vall- arins og fjórar 70 m brautir til endanna. Undir stúku er upphitunarrými. Nafnið vísar til að húsið er margradda hljóðfæri og musteri líkama og sálar Í HNOTSKURN » Ístak sá um bygginguhússins, VA arkitektar sáu um hönnun, Conis um burð- arþol og lagnir, Raftákn um raflagnir, Verkfræðistofa Snorra Ingimarssonar um brunahönnun, Línuhönnun um hljóðvist og VGK – Hönnun um loftræstingu. AKUREYRI HÓLMSTEINN Snædal húsasmíðameist- ari skoðaði húsið Hafnarstræti 98 í fyrradag og segir það í mjög góðu ástandi. „Það er gjörsamlega heilt; ekki fúna spýtu að finna,“ sagði Hólmsteinn við Morgunblaðið í gær og áréttaði að það væri fjarri öllum sannleika að húsið væri ónýtt eins og haldið hefði verið fram. Húsið hefur verið mikið til umræðu vegna þess að Akureyrarbær hyggst rífa það og hefur heimilað nýbyggingu á lóðinni. Hólmsteinn vann að endurbyggingu húsanna tveggja sunnan við Hótel Akur- eyri, París og Hamborg, síðustu árin með Sigmundi Einarssyni, eiganda þeirra húsa. „Það væri ekkert því til fyrirstöðu að gera Hótel Akureyri jafn glæsilegt. Ég er reynd- ar viss um að það yrði minna verk en með Hamborg og okkur þótti það nú ekki mikið. Það þarf að skipta um glugga, þakjárn og slíkt en ekki einu sinni um utanhússklæðn- ingu nema menn vilji,“ sagði Hólmsteinn. Sigmundi segist leiðast að því skuli haldið fram að enginn vilji gera húsið upp. Hann hafi í sjálfu sér ekki ætlað sér að ráðast í þá framkvæmd, enda hafi það ekki staðið til boða. „En ef til þess er einhver vilji, bæði hjá þeim sem nú eiga húsið og hjá Akureyr- arbæ, er ég alveg til í að skoða það – já, já,“ sagði Sigmundur aðspurður í gær. Morgunblaðið/Sverrir Hótel Akureyri Húsið Hafnarstræti 98 er í mjög góðu ástandi, að sögn sérfræðings. „Ekki fúa að finna“ Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is HERMANN Óskarsson, núver- andi deildarforseti Heilbrigð- isdeildar Háskólans á Akureyri, er sá eini sem hefur verið fastráðinn kennari við skólann frá stofnun en 20 ár eru í dag síðan HA tók til starfa. „Þetta hefur verið skemmti- legur tími og margs að minnast,“ sagði Hermann við Morgunblaðið. Ein bók Haraldur Bessason, fyrsti rekt- or Háskólans á Akureyri, sagði stundum frá því að í upphafi hefði skólinn aðeins átt eina bók – það var Bókin um manninn. En margt hefur breyst síðan þá; nemendur í byrjun voru innan við hálft hundr- að en eru nú hálft annað þúsund, en eitt segir Hermann þó lítið hafa breyst í gegnum tíðina: „Nem- endur hafa að minnsta kosti oft nefnt það, þegar þeir eru spurðir um reynslu sína í Háskólanum á Akureyri; hve nálægðin er mikil við kennarana.“ Það segir hann dýrmætt. Það sem Hermann telur hins vegar mestu breytinguna, fyrir ut- an hve skólinn hefur stækkað gríð- arlega, er fjarkennslan sem tekin var upp fyrir um það bil áratug. „Þá fórum við að kenna nemendum víða um land, fjarkennslan breytti háskólanum mikið og hefur ein- kennt hann síðan. Nú eru um 40% nemenda skólans í fjarnámi.“ Boðið var upp á tvær greinar í upphafi, hjúkrunarfræði og iðn- rekstrarfræði og kennt í húsnæði við Þingvallastræti þar sem Iðn- skólinn og síðan Verkmenntaskól- inn voru. Þar er raunar hluti starf- semi Háskólans enn. Breytingar Töluverðar skipulagsbreytingar hafa orðið í skólanum hin síðari ár. „Það kom til af því að við áttum erfitt með að reka skólann eins og hann var og leituðum leiða til hag- ræðingar; sameinuðum t.d. deildir en höfum samt séð til þess að námsframboðið hefur ekki minnk- að og þjónusta við nemendur í raun aukist,“ segir Hermann. Skólinn hefur glímt við skulda- hala frá því upp úr aldamótum, vegna þess hve nemendum fjölgaði gríðarlega. „Við höfðum samið við menntamálaráðuneytið um að fjölga nemendum en engan óraði fyrir því að slík sprenging yrði í að- sókn.“ Svo fór að takmarka varð aðgang að deildum. „Breytingarnar hafa tekið á; það er ekki skemmtilegt að þurfa að segja upp fólki og það hefur reynt á ýmsa starfsmenn að þurfa að hagræða til þess að reksturinn gangi upp miðað við þær forsendur sem stjórnvöld setja okkur. En ég er bjartsýnn á framtíð skólans, hann stendur mjög sterkur í dag.“ Einn fastráðinn öll 20 árin „Skemmtilegur tími,“ segir Hermann Óskarsson á tvítugsafmæli HA Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fyrsta eignin Háskólinn á Akureyri átti í upphafi aðeins eina bók, Bókina um manninn. Hermann Óskarsson og Þorsteinn Gunnarsson glugguðu í gær í bókina, sem að sjálfsögðu er varðveitt í bókasafni skólans. Í HNOTSKURN »Háskólinn á Akureyri tóktil starfa 5. september 1987 og er því tvítugur í dag. »Fyrsti rektor skólans varHaraldur Bessason en núverandi rektor er Þor- steinn Gunnarsson. » Í dag verður tilkynnt umúrslit í teiknimynda- samkeppni grunnskólanem- enda sem haldin var í tilefni af 20 ára afmæli skólans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.