Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Steinunn JanaSigurey Guð- jónsdóttir fæddist á Gíslabala í Ár- neshreppi í Strandasýslu 17. nóvember 1916. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sól- vangi fimmtudag- inn 23. ágúst síðastliðinn. For- eldrar Jönu voru Guðjón Steindór Guðmundsson, bóndi í Litlu-Ávík í Árneshreppi frá 1922 til ævi- loka, f. 9. febrúar 1883, d. 2. janúar 1947, og Guðrún Sigur- borg Jónsdóttir, f. 13. des. 1881, látin. Jana átti tvær systur, Þórdísi Jónu, bjó í Litlu-Ávík, fyrri maður Magnús Sveinbjörn Guðbrandsson frá Veiðileysu, seinni maður Guðjón Jónsson, og Guðmundu Kristveigu, gift- ist Jóhanni Andréssyni, bjuggu þau lengst af á Bassastöðum við Hólmavík. Þær eru báðar látn- ar. Árið 1949 giftist Jana Jóhanni Fr. Vigfússyni, vél- stjóra, d. 10. nóvember 1981. Foreldrar hans voru Vigfús Benja- mínsson, látinn, og Sigurborg Krist- jánsdóttir, f. 6. apríl 1888, d. 19. nóvember 1964. Jana og Jóhann eignuðust tvö börn, þau eru: a) Jóna Sigurborg f. 25. desember 1948, gift Kristni Erlendi Guðnasyni raf- virkja, þau eiga tvo syni, Jóhann Arnar vélfræðing, f. 25. október 1975, og Vigfús Þór prentara, f. 13. nóvember 1977. b) Frímann, vél- stjóri, f. 21. nóvember 1950, d. 31. mars 1993. Sonur Frímanns og Stefaníu Þórnýjar Þórðar- dóttur er Davíð Már, f. 16. októ- ber 1978. Jana og Jóhann hófu sinn bú- skap í Skerjafirði. Fluttu síðar til Keflavíkur og að lokum til Hafnarfjarðar og þar bjuggu þau til æviloka, lengst af á Krosseyrarvegi 1. Útför Jönu verður gerð frá Hafnarfjarðarkapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Í dag kveðjum við hana Jönu. Síðustu árin dvaldi hún á Hjúkr- unarheimilinu Sólvangi og leið henni ákaflega vel þar og viljum við fjölskylda Jönu þakka öllu starfsfólki á Sólvangi fyrir frábært starf, einkum viljum við færa þakkir til 3. hæðar, því þar dvaldi Jana. Á hverjum degi fór hún í föndur- stofuna og starfsfólk þar fær sér- stakar þakkir. Hún hafði gaman af handavinnu og hlakkaði alltaf til að fara í föndrið. Hún kom um hverja helgi heim til okkar, hún var klædd og á róli til hinstu stundar. Hún bjó hjá okkur alla tíð eftir eftir að maður hennar lést 1981 og fyrr, því hann var sjómaður og oftast langdvölum að heiman, því er skrítið að engin Jana sé lengur hjá okkur en við vitum hana nú á góðum stað og þökkum henni samfylgdina. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Jóna, Kristinn, Jóhann og Vigfús. Steinunn Jana Sigurey Guðjónsdóttir Ný stígvél, nýjar gallabuxur, ný skyrta og blár vinnujakki. Í brjóstvas- anum óátekinn pakki af Viceroy- sígarettum og kveikjari. Tvíblaða hakinn klauf loftið og það boga- dregna risti mosa og lyng ofan af þúfu. Aftur á loft og í þriðja sinn sökk það í mjúka moldina, rótaði henni upp, hófst enn á loft og nú sneri hitt blaðið niður, örlítið frambogið og skar lóðréttan vegg í Eiríkur Björgvin Eiríksson ✝ Eiríkur Björg-vin Eiríksson fæddist í Dagverð- argerði í Tungu- hreppi í N-Múla- sýslu 16. desember 1928. Hann lést á elliheimilinu Grund 25. ágúst síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Foss- vogskapellu 3. sept- ember. holuna sem komin var. Ég lagði rætur stafafurunnar við hann og huslaði að, sparkaði í með hæln- um og hjó í svörðinn á ný, hálfu öðru skrefi framar. En þar með kláruðust plönt- urnar úr körfunni og orðið tímabært að taka pásu. Settist á þúfu og tók af mér stígvélin því það var heitt í veðri þennan dag í júní sumarið 1966 í skóginum fyrir innan Atla- víkurlæk. Eiríkur settist niður líka á aðra þúfu í seilingarfjarlægð, móður af erfiðinu og sveittur um þunnhærð- an kollinn. Fór í vasann á upplit- aðri, ófóðraðri úlpu með ásaumaðri framlengingu á ermum og fiskaði upp lúið Half & Half tóbaksbréf. Dró upp úr því pípuhaus, slitinn af áralangri barsmíð utan í fjárhús- stoðir og grjótveggi og nærri sléttfullan af hörðu seti, stuttan hólk úr óskilgreindu efni og gat- slitið munnstykki við einhvern annan pípuhaus og byrjaði að raða þessu saman. Sótti að því búnu sígarettustubb í tóbaksbréfið og muldi niður í hausinn þau fáu korn sem hann rúmaði og gerði sig lík- legan til að kveikja í með eldspýtu sem hann þó fann enga nema brunnar í eldspýtustokk sem var í stíl við tóbaksbréfið. Horfði stórum, útstæðum, vatnsbláum augum fram fyrir sig, hóstaði nokkrum sinnum, stakk öllu í úlpuvasann aftur, greip saman höndum um hnén og sat hreyfing- arlaus. Ég horfði í þunglyndislegri angist á þennan nýfengna vinnu- félaga minn. Fermingarúrið frá í hittifyrra silaðist varla áfram þennan morgun og boðaði að kom- andi 3 vikur sem þessi gróðursetn- ing tæki yrðu eilífð. Ég tók Vi- ceroy-pakkann úr vasanum, spretti honum upp, sló fram 3 eða 4 sígarettum til hálfs og meira í rælni en af ásetningi bauð ég Ei- ríki. Með eldsnöggu viðbragði hófst beinaber höndin á loft og löngum fingrum greip hann sígar- ettuna, braut af henni filterinn og stakk öfugri milli vara sér. Ég gerði minni sömu skil og kveikti í hjá okkur báðum. Við höfðum ekk- ert sagt þennan morgun er við hittumst fyrsta sinni og sögðum ekkert enn, bara reyktum filter- lausar Viceroy-sígarettur og gónd- um, Eiríkur út í fjarskann, ég á nýju stígvélin mín sem þarna lágu. Þannig algerlega upp úr eins manns hljóði hefur Eiríkur upp raust sína, í fyrstu djúpa en svo skærari og loks skræka á síðustu atkvæðunum: „Þakka þér fyrir, fé- lagi!“ Sannarlega urðum við félagar. Eiríkur var mikill andi, skarp- greindur, stálminnugur, óháður og ótrúlega frjáls miðað við veraldleg kjör sín. Kímnigáfan óbrigðul og kætin ólgandi. Á augabragði var hugur hans kominn víðsfjarri í stað og tíma og sögur og fróð- leikur streymdu af vörum hans af fádæma nákvæmni og andagift. Í fimm sumur gróðursettum við tug- þúsundir trjáplantna saman, sveittir og kátir, við þúsundir sagna og þúsundir hlátra. Það var gott líf, félagi. Gunnlaugur Sigurðsson frá Hallormsstað. Þriðja september sl. hefði Þorbergur Gíslason átt að halda upp á sinn 22. afmælisdag ef hann hafði ekki þurft að yfirgefa þennan heim svona fljótt. Hann var í blóma lífsins og átti svo margt eft- ir, en það sem hann hafði gefið þessum heimi var svo mikið og held ég að allir sem þekktu hann geti tekið sér svo margt til fyr- irmyndar frá honum til að lifa eft- ir. Heiðarleiki, hreinskilni og traust eru orð sem lýsa honum mjög vel, hann var vinur í raun sem hægt var að treysta á hvenær sem var. Ég minnist hans frá því skipti sem ég hitti hann síðast, sem var í útskriftinni hans. Hann var svo stoltur og glaður að það hefði ekki getað farið fram hjá nokkrum manni sem þar var að hann var að- almaðurinn þetta kvöld, það geisl- aði svo af honum. Við áttum gott kvöld saman þarna eins og svo oft áður. Þegar við unnum saman á Grand þá var sú stund sem ég hlakkaði alltaf mest til þegar ég skutlaði honum heim eftir vinnu. Þá gátum við rætt um allt milli Þorbergur Gíslason Roth ✝ ÞorbergurGíslason Roth fæddist 3. septem- ber 1985. Hann fórst í bílslysi í Norðurárdal að- faranótt 8. júlí síð- astliðins og var út- för hans gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík 17. júlí sl. himins og jarðar og það sem hann gat tal- að um var ótrúlegt. Hann var alltaf að segja manni frá ein- hverju sem maður hafði aldrei spáð í, sem var samt svo fróðlegt og skemmti- legt. Það sem var líka svo gott við Þor- berg var að ef eitt- hvað var að angra mann þá var hann alltaf í því að hressa mann við. Það var ósjaldan sem ég hringdi í hann bara svona til að heyra í honum hljóðið og mér leið alltaf betur eft- ir það. Þær eru svo margar góðar minningar sem ég á um þennan dreng sem fá mann til að brosa í gegnum tárin. Það sem hægt var að fá hann til að gera og það sem hann tók upp á var svo margt ógleymanlegt og eitthvað sem eng- inn annar en hann hefði gert. Ég sendi fjölskyldu Þorbergs allan minn stuðning og bið góðan guð að styðja þau. Elsku Bergur minn takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér, þú varst einn af mínum bestu vinum og mun ég ávallt geyma minningu þína í hjarta mér … Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Magnús Már Byron Haraldsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar- greina vita. Minningargreinar FRÉTTIR ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, DANÍELS G. EINARSSONAR, Sundlaugavegi 18, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki L1 á Landa- koti fyrir alúð og umhyggju þann tíma sem hann dvaldi þar. Eva Þórsdóttir, Sigurberg Hraunar Daníelsson, Kristinn V. Daníelsson, Unnur Garðarsdóttir, Sigríður I. Daníelsdóttir, Þórður R. Guðmundsson, Þór Ingi Daníelsson, Anneli Planman, Einar Daníelsson, Kristjana Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. SJÓKLÆÐAGERÐIN 66° norður hefur aukið umsvifin með opnun tveggja nýrra verslana, í Kaup- mannahöfn og Vilnius, höfuðborg Litháens. Fyrirtækið er stærsti framleiðandi útivistarfatnaðar á Ís- landi og vörur frá fyrirtækinu eru seldar í verslunum í 15 löndum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Verslunin sem nú hefur verið opnuð í Kaupmannahöfn er sú fyrsta sem opnuð er undir merkinu 66°North í Danmörku og með opn- uninni er farið að óskum viðskipta- vina 66° norður sem lengi hafa beð- ið eftir verslun í Danmörku. Verslunin er í gömlu sláturhúsi í miðbænum og er stíllinn á henni hrár með tilvísun í gamla tímann með innréttingum. Við opnunina voru framleiddir sérstakir númer- aðir 66°North-bolir sem seldir verða í skamman tíma. Ný verslun 66° norður í Vilnius Í JANÚAR síðastliðnum tók til starfa forvarnaskóli þar sem boðið er upp á nám fyrir þá sem vinna að forvörnum og útskrifuðust fyrstu nemendur skólans sl. vor. Nemendur Forvarnaskólans læra að gera forvarnaáætlanir og verk- efnisstjórnun, grundvallaðar á nýj- ustu rannsóknum um árangur. Áhersla er lögð á að nemendur geti að loknu náminu sett upp og verk- stýrt forvarnaáætlunum. Námið við skólann er viðurkennt af hálfu alþjóðasamtakanna IC&RC. Síðustu forvöð eru að skrá sig í nám á haustönn. Námsgjald fyrir önnina er 175.000 krónur. Umsókn- areyðublöð fást hjá Ráðgjafarskóla Íslands, netfang: stefanjo@xnet.is. Nám í forvörnum MARYAM Namazie flytur fyrirlest- ur á vegum Alþjóðamálastofnunar, Siðmenntar – félags siðrænna húm- anista og Skeptíkusar. Erindið kall- ar hún „Afneitun trúarinnar, fyrrum múslimar og áskoranir pólitísks ísl- ams“. Í erindinu ræðir Maryam þró- un pólitísks íslams í Evrópu og leiðir til að vinna gegn áhrifum þess. Hún fjallar einnig um það hvernig verja þarf algild mannréttindi. Maryam Namazie fæddist í Teher- an en flúði ásamt fjölskyldu sinni ár- ið 1980 í kjölfar klerkabyltingar- innar. Hún er aðgerðarsinni sem berst fyrir mannréttindum, álits- gjafi um Íran, Mið-Austurlönd, rétt- indi kvenna, menningarlega afstæð- ishyggju, veraldarhyggju, siðrænan húmanisma, trúarbrögð, íslam og hina pólitísku hlið íslam. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Hann verður á ensku og fer fram í Odda, stofu 101, kl. 12.15 fimmtudaginn 6. septem- ber. Fyrirlestur um pólitískt íslam HÁSKÓLAHÁTÍÐ að hausti verður haldin í Háskólanum á Bifröst laug- ardaginn 8. september næstkom- andi. Athöfnin hefst klukkan 14. Í fréttatilkynningu frá skólanum segir að útskrifaðir verði 60 nem- endur með BA og BS gráður; 16 úr félagsvísindadeild, 32 úr lagadeild og 12 úr viðskiptadeild. Þá munu 4 nemendur útskrifast úr meistara- námi. Við athöfnina verður flutt tónlist og verðlaun veitt fyrir góðan námsárangur. Dr. Ágúst Einarsson rektor flytur hátíðarræðu. Nemendur Háskólans á Bifröst hafa aldrei verið fleiri en þeir eru nú á haustdögum eða um 1100 tals- ins. Umsóknir um skólavist fyrir skólaárið 2007 – 2008 voru um 900 talsins og þar af fengu 600 skólavist. Háskólahátíð og útskrift

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.