Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ASTRÓPÍA kl. 8:30 - 10:30 LEYFÐ LICENSE TO WED kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára DIGITAL THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára / KRINGLUNNI KNOCKED UP MasterCard 2 fyrir 1 FORSÝND kl. 8 B.i.14.ára KNOCKED UP FORSÝND kl. 8 LÚXUS VIP DISTURBIA kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i.14.ára DISTURBIA kl. 5:30 - 10:40 LÚXUS VIP LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 B.i.7.ára ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ RATATOUILLE m/ensku tali kl. 8:10 - 10:20 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ DIGITAL THE TRANSFORMERS kl. 5:30 - 10:30 B.i.10.ára WWW.SAMBIO.IS SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDIVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á eeeee - LIB, TOPP5.IS eeee - S.V, MBL SÝND M EÐ ÍSLE NSKU OG ENS KU TAL I Ertu að fara að gifta þig? Þá viltu alls ekki lenda í honum!!! Drepfyndin gamanmynd með hinumeina sanna Robin Williams og ung- stirninu Mandy Moore. VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA Þrjár vikur á toppnum í USA BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI? / ÁLFABAKKA HLJÓÐ OG MYND FÁTT er í heimi hér ógeðfelldara en rotta, eða svo líður vísast flestum sem lesa þetta. Þrátt fyrir það eru rottur um margt stórmerkileg dýr, nánast ódrepandi og út- sjónarsamar, gáfaðar og einbeittar. Margir sem halda rottur sem gæludýr lofa þær einmitt fyrir það hve þær eru gáfaðar og skemmtilegar og eftir að hafa átt rottu sem gæludýr get ég svosem tekið undir það. Aftur á móti eru þær líka ógeðfelldir skaðvaldar, smitberar sem éta og eyðileggja milljónir tonna af matvælum um allan heim og valda milljarðaskemmdum. Í þessari bók, sem er reyndar líkari langri blaðagrein en bók, rekur kanadíski blaðamaðurinn Jerry Langton uppruna rottunnar frá frumskógum Suðaustur-Asíu og til þess að hún hefur breiðst út um all- an heim. Hann segir sögur af samskiptum fólks um allan heim við rottur, frá mann- skæðum plágum sem þær (eða réttara sagt rottuflær) hafa borið um heiminn, frá notkun þeirra sem gæludýra og rottuati, skemmdum sem þær valda og hvaða áhrif þær hafa haft á lífríki víða um heim og hvernig glíman milli rottu og manns hefur gengið í gegnum tíðina. Fróðlegt er og að lesa lýsingu hans á því hvernig brúnrottan hefur smám saman lagt undir sig heiminn og svartrottan þurft undan að hörfa (Selma Lagerlöf lýsir þessum átökum ein- mitt á mjög dramatískan hátt í sögunni um Nilla Hólmgeirsson og ævintýraför hans um Svíþjóð). Eins og Langton rekur söguna munu menn ekki ná að vinna fullnaðarsigur í þeirri orrustu, og í raun líklegra að rottan eigi eftir að hafa betur þegar allt er skoð- að. Málið er nefnilega það að rottan er mun hæfari en maðurinn í flestu, getur skriðið um örmjó göt (rifin falla saman), synt dögum saman, étið nánast hvað sem er, fjölgað sér með ógnarhraða og vegna þess hve hún þróar hratt með sér ein- kenni er hún fljót að byggja upp mótstöðu við eitri. Rotturnar rokka Rat eftir Jerry Langton. St. Martins Press gefur út. 207 síður innb. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Kalteis – Andrea Maria Schenkel 2. Tannöd – Andrea Maria Schenkel 3. Millionär – Tommy Jaud 4. Harry Potter and the Deathly Hollows – J.K. Rowling 5. Der Schrecksenmeister – Walter Moers 6. Das Spiel der Könige – Rebecca Gablé 7. Die italienischen Schuhe – Henning Mankell 8. Kalte Asche – Simon Beckett 9. Am Strand – Ian McEwan 10. Knochen zu Asche – Kathy Reichs Der Spiegel 1. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 2. Play Dirty – Sandra Brown 3. Away – Amy Bloom 4. The Quickie – James Patterson og Michael Ledwidge 5. The Sanctuary – Raymond Khoury 6. Sweet Revenge – Diane Mott Davidson 7. Power Play – Joseph Finder 8. Loving Frank – Nancy Horan 9. The Secret Servant – Daniel Silva 10. Sandworms Of Dune – Brian Herbert og Kevin J. Anderson The New York Times 1. Atonement – Ian McEwan 2. Sword Song – Bernard Cornwell 3. The Mission Song – John Le Carre 4. A Spot of Bother – Mark Haddon 5. The Afghan – Frederick Forsyth 6. The Other Side of the Bridge – Mary Lawson 7. Wolf of the Plains – Conn Iggulden 8. The House at Riverton – Kate Morton 9. Relentless – Simon Kernick 10. The Kite Runner – Khaled Hosseini Waterstones Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is EITTHVAÐ er það við Sherlock Holmes, sögupersónu Arthurs Conans Doyles, sem gerir að verkum að hann hefur haldið velli í 120 ár. Vissulega nýtur hann ekki sömu vinsælda og þegar best lét í lok þarsíðustu aldar og byrjun síð- ustu aldar, en enn eru menn að fjalla um hann, skrifa stælingar og útúrsnúninga og líka ævisögur hans. Þannig er bók Nick Renn- ison sem hér er nefnd til sögunnar ekki fyrsta „ævisaga“ Sherlock Holmes og eflaust ekki sú síðasta. Vitnisburður um liðin tíma Þó Holmes sé um margt skrípa- fígúra er hann mannlegur og ofur- mannlegur í senn, gallaður snill- ingur, og raunverulegri fyrir vikið. Hann er líka vitnisburður um liðinn tíma, þegar lífið var ein- faldara, tilfinningar hreinni og heimurinn rökréttari, eða svo finnst manni í það minnsta þegar maður les sögurnar af afrekum hans. Galdur Nicks Rennisons er aft- ur á móti sá að draga upp fyllri mynd en við höfum áður haft af Holmes, þó að sú mynd sé upp- diktuð líkt og persónan. Rennison byggir ævisöguna að mestu á verkum Conans Doyles, þeim fjórum skáldsögum og 56 smásögum sem hann skrifaði um Holmes, en skáldar einnig í eyð- urnar, býr til ættinga og atburða- rás sem honum sýnist. Víða þarf hann að grípa til ímyndunaraflsins til að greiða úr flækjunum sem Conan Doyle skildi eftir sig, enda var hann ekki ýkja vandvirkur þegar sögulegt samhengi var annars vegar; særð- ist Watson til að mynda í öxlinni eða fætinum, hvernig var með hjónbandsmál hans og hét hann James eða John? Öðrum þræði er bókin svo saga hneykslismála frá seinni hluta nítjándu aldar og stórskemmtileg sem slík þó að stundum sé farið fullhratt yfir sögu. Ekki merkilegur litteratúr Skýringin á þessu er vitanlega sú að Conan Doyle fannst hann ekki vera að skrifa merkilegan literatúr, honum þótti lítið til Hol- mes koma og vandaði sig lítið við skrifin, nennti ekki að fletta upp ártölum eða nöfnum eða atburð- um sem vitnað var til – hann var að skrifa fyrir ódýr tímarit og gerði sjálfsagt ráð fyrir að menn fleygðu ritinu að lestrinum lokn- um. Annað kom á daginn – sögurnar um Sherlock Holmes gerðu Con- an Doyle að auðugum manni, þó að hann hafi jafnan skammast sín fyrir verkið, og Holmes er orðinn ein þekktasta bókmenntapersóna allra tíma, þó að húfan sem við tengjum við hann sé seinni tíma tilbúningur. Sherlock Holmes: The Unaut- horized Biography eftir Nick Rennison. Atlantic Books gefur út. 280 síður innb. með registri. Forvitnilega bækur | Ævisaga Sherlock Holmes Gallaður snillingur Spæjari Sherlock Holmes og John Watson. Eða var það James Watson?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.