Morgunblaðið - 05.09.2007, Side 20
|miðvikudagur|5. 9. 2007| mbl.is
Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur
join@mbl.is
Uppskeran er í hámarki í árog óhætt er að fara aðsulta eða gera hlaup. Þaðkæmi mér ekki á óvart að
hér í loftinu væru ein fjörutíu kíló af
vínberjum. Það er þó búið að saxa ei-
lítið á uppskeruna því ég er dugleg að
fara með vínber í körfum í vinnuna á
þessum árstíma auk þess sem systur
mínar og foreldrar fá vínberjaheim-
sendingar svona af og til, “ segir Arna
Guðmundsdóttir, læknir og húsfreyja
á Seltjarnarnesi.
Arna býr í raðhúsi við Barðaströnd
sem í er um tuttugu fermetra sólskáli
með plexígleri í þaki. Sólskálinn, sem
tengist skemmtilega við garðinn, hef-
ur að geyma tvær risastórar vín-
berjaplöntur, sem plantað var á sín-
um tíma hvorri í sitt horn stofunnar.
Þær hringa sig upp eftir veggjunum
og þekja nú orðið allt loftið með
myndarlegum vínberjaklösum út um
allt sem hver vegur hálft til eitt kíló.
Synirnir liðtækir við vínberin
„Mér er sagt að plönturnar séu að
minnsta kosti orðnar tuttugu ára
gamlar. Húsið var byggt árið 1972, en
ég hef búið hér undanfarin fjögur ár.
Næsta vor hyggst fjölskyldan flytja
sig um set og kem ég örugglega til
með að sakna mest þessarar fínu
berjastemningar í sólskálanum þar
sem flestöll matarboð og barna-
afmæli í fjölskyldunni fara gjarnan
fram,“ segir Arna. Synirnir þrír, þeir
Erling, Guðmundur Viggó og Ari
Karl, eru liðtækir við vínberjaátið
auk þess sem Arna segir þau hjónin
gjarnan nota vínberin í salöt og með
ostum.
„Það var lítil sem engin uppskera í
fyrra, en í hitteðfyrra var ég að kafna
í vínberjum eins og núna og brá þá á
það ráð að hringja til móðursystur
minnar, hennar Matthildar Gunn-
arsdóttur í Presthvammi í Aðaldal,
sem gaf mér uppskrift að þessu fína
vínberjahlaupi. Ég bjó það til með
ágætum árangri og nú er sem sagt
kominn tími til að leggja í hlaupið á
ný.“
Aðgangshörð með klippurnar
Þegar vínberjaræktandinn er
spurður hvernig best sé að hirða vín-
berjaplöntur segist Arna hafa ótrú-
lega lítið fyrir plöntunum sínum. „Ég
klippi þær vel niður á haustin og var
sérstaklega aðgangshörð í fyrra þar
sem uppskeran var léleg í fyrrasum-
ar. Það þarf svo að vera kalt á plönt-
unum svo þær felli laufin á haustin og
passa þarf að ekki sé of heitt á þeim
yfir vetrartímann. Beðin tvö eru opin
niður í jarðveginn sem gerir rótunum
kleift að vaxa út um allan garð og
þegar ég vökva set ég garðslönguna
bara í beðið og skrúfa frá í korter.
Svo er hiti í gólfi auk þess sem ég er
með sterkt blómaljós til að ná birtu
yfir dimmasta tímann og viftu á
sumrin þegar hér inni ríkir hálfgert
Miðjarðarhafs-loftslag. Vorið er kom-
ið hjá okkur í mars þegar grænu
sprotarnir fara að láta á ser bera.
Framan af sumri eru berin súr og
verða svo sætari þegar líður fram á
mitt sumar,“ segir Arna og bætir við
að hún sé harðákveðin í því að fá sér
vínberjaplöntur í ný híbýli, annars
staðar á höfuðborgarsvæðinu. En nú
sé vínberjaplantan góða á Nesinu til
sölu ásamt heilu húsi og garðstofu.
Vínberjahlaup
750 g vínber
400 g sykur
3 msk. sítrónusafi
2 msk. sultuhleypir
Leggið vínberin í lögum með sykr-
inum í pott. Hellið sítrónusafa yfir.
Komið upp hægri suðu og hrærið var-
lega í. Bætið sultuhleypinum út í.
Látið malla í um það bil tíu mínútur,
en suðutíminn fer þó eftir þroska
berjanna. Síið steina og hrat frá með
sigti og setjið hlaupið á hreinar
krukkur. Eftir því sem berin eru
þroskaðri, þeim mun sætari eru þau,
og þá má draga úr sykurmagni í upp-
skriftinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Garðstofan Flestöll matar- og barnaafmælisboð fjölskyldunnar eru haldin í þessum gróðursæla sólskála þar sem að vínberjaplönturnar lifa góðu lífi.
Snakkið Elsti sonurinn Erling Aspelund nær sér í vínber að smakka.
Vínviðurinn
gefur af sér
í kílóavís
Framan af sumri eru
berin súr og verða svo
sætari þegar líður fram
á mitt sumar.
Vigtin Hver klasi vegur hálft til eitt
kíló sem þýðir yfir 40 kíló í ár.
daglegtlíf
Hákon Sigurgrímsson er dug-
legur að stunda líkamsrækt og
ætlar að gera enn meira af því
nú er hann fer á eftirlaun. » 24
hreyfing
Ólíkt mörgum barnasjúkdómum
gengur skarlatssótt ekki í far-
öldrum heldur er hún stöðugt í
gangi hjá fáum í einu. » 24
heilsa