Morgunblaðið - 05.09.2007, Síða 21
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 21
viðunandi aðsókn. Það á
bæði við um Poseidon-
slysið og Pearl Harbor.
x x x
Mun meiri óvissafylgir því að gera
myndir, sem teljast mitt
á milli þess að vera dýr-
ar og ódýrar. Í greininni
er myndin Góði Þjóð-
verjinn eða The Good
German tekin sem
dæmi. Það kostaði 32
milljónir dollara að gera
myndina og telst það lít-
ið fé. Leikstjórinn, Ste-
ven Soderbergh, telst
fyrsta flokks og aðal-
leikararnir, George Clooney og Cate
Blanchett, ekki af lakara taginu. En
áhorfendur létu á sér standa. Tekjur
af myndinni voru sex milljónir doll-
ara.
x x x
Niðurstaða greinarinnar er aðódýrum og meðaldýrum mynd-
um fylgi mest áhætta. Ástæðan sé sú
að það kosti peninga að búa til pen-
inga og því eigi ekki að spara heldur
skrúfa frá krananum og láta milljón-
irnar flæða.
Stundum vekur furðuað menn skuli vera
tilbúnir að leggja nokk-
ur hundruð milljónir
dollara í að gera eina
kvikmynd og vaknar þá
spurningin hvað myndi
gerast ef enginn keypti
sig inn á myndina. Í
blaðinu Kultur Spiegel,
sem fylgir Der Spiegel,
í þessum mánuði kemur
fram að reyndin er sú
að þegar stórmynd-
irnar eru annars vegar
er áhættan engin.
x x x
Hvort sem um er aðræða myndina Transformers,
sem fjallar um vélmenni úr geimnum,
sem breytast í bíla, og kostaði jafn-
mikið og Boeing 787 (150 milljónir
dollara), eða Spider-Man 3, sem
fjallar um teiknimyndapersónu með
krafta og spunahæfileika kóngulóar
og kostaði svipað og Airbus 380 (260
milljónir dollara), má bóka gróða.
x x x
Meira að segja myndir, sem á sín-um tíma var sagt að hefðu
fengið skell, enduðu með því að fá
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Ingvar Gíslason yrkir í sumarlok: Þó blómi jarðar bregði lit ei bila rætur
Sumarlokum gef ég gætur,
Gerast langar ágústnætur.
Hugann fanga fagurhreinar
fannabungur.
Maður fetar mel og klungur,
Myrkar bíða jökulsprungur.
Og Rúnar Kristjánsson á Skaga-
strönd:
Senn hér góðu sumri frá
sveiflar tímans alda.
Haustið síðan opnar á
andann dimma og kalda.
Þá Ingólfur Ómar Ármannsson:
Sölnað gras og sorfið barð
snævi þaktir tindar
haustið er að ganga í garð
gnauða svalir vindar.
Rósberg G. Snædal orti á sínum
tíma hringhendu að hausti:
Einn ég sveima undir haust
öllum gleymi kvíða.
Læt ég heiminn hömlulaust
huga dreyminn líða.
Og vert er að rifja upp haustvísu
Maríu Bjarnadóttur Sýruparti:
Eins og kvakar einstök lóa
angurværum haustsins róm.
Sendi ég út um auða móa
angurljóð í húmsins tóm.
VÍSNAHORNIÐ
Hagmælska
að hausti
pebl@mbl.is
GÆTIR þú hugsað þér að skríða
upp eftir lóðréttum vegg líkt og
kónguló eða eðla? Slíkt verður
mögulegt í framtíðinni ef marka
má frétt sem birtist á heimasíðu
Berlingske Tidende.
Lítil hár valda því að kóngulær
og eðlur geta límt sig við fleti.
Rannsóknir hafa sýnt að gekko-
eðlan ræður við mörghundruðfalda
líkamsþyngd sína. Eðlan getur líka
skriðið upp eftir veggjum og hang-
ið með hausinn niður undan púss-
uðu gleri.
Vísindamenn reyna nú að líkja
eftir slíkri hegðun með því að skapa
eins konar kóngulóarbúning fyrir
menn. Niðurstöður þeirra hingað
til benda til að slíkt eigi að vera
hægt.
Prófessor Nicola Pugno frá fjöl-
tæknideild háskólans í Torinu á
Ítalíu er í öllu falli búin að reikna út
hvernig búa megi til slíkan klif-
urgalla úr efni sem er nægjanlega
límkennt til þess arna.
Galdurinn liggur í örlitlum rör-
um úr kolefni, einskonar sívaln-
ingum í örstærð. Þessir þræðir eru
ofursterkir og hægt að raða þeim
upp í fleiri lög svo þeir verði eins og
hár, sem eiga að virka á svipaðan
hátt og hár kóngulóarinnar og eðl-
unnar.
Könguló Ekki svo vitlaust hönnuð
með tilliti til veggjaklifurs.
Kónguló-
armaðurinn
á næsta leiti
Morgunblaðið/Jim Smart
Orlando Vacation
Home Seminar
When: September 8. and 9. from 12.00-18.00.
Where: Hotel Loftleiðir.
Please join Meredith Mahn and Garðatorg
this weekend to learn more about buying a
home in Florida.
For more information, call Þórhallur, 896-8232.
www.LIVINFL.com
Domus Pro Real Estate Maitland Florida 32751 (321) 438-5566
www.sagamedica.is
Njóttu lífsins me› Angelicu
Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl!
Angelica er íslensk náttúruafur› úr ætihvönn sem færir flér tvenns konar virkni í
sömu vöru. fiú fær› aukna orku og sjaldnar kvef. Í ætihvönn er fjöldi hollustuefna
sem styrkja forvarnir og bæta heilsuna. Angelica jurtaveig hefur sta›i› Íslendingum
til bo›a frá 2002 og nú bætist vi› n‡r valkostur, Anglica töflur. fiú tekur a›eins
eina töflu á dag og pakkinn endist flér í 2 mánu›i.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
3
9
9
Fæst í lyfja- og heilsuvöruverslunum
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkiaska