Morgunblaðið - 05.09.2007, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Surf’s Up m/ensku tali kl. 4 - 6 - 8 - 10
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4 - 6
The Bourne Ultimatum kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
The Bourne Ultimatum kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Knocked Up MasterCard 2fyrir1 Forsýnd kl. 8 B.i. 12 ára
Rush Hour 3 kl. 6 - 10:10 B.i. 12 ára
The Simpsons m/ensku tali kl. 4 - 8 - 11
The Simpsons m/ísl. tali kl. 4 - 6
Disturbia kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 6
The Bourne Ultimatum kl. 6 - 10:10 B.i. 14 ára
Knocked Up kl. 8 MasterCard 2fyrir1
– Sími 564 0000 –Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
MATT DAMON ER
JASON BOURNE
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeeee
- SV, MBL
MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími
551 9000
Sýnd með íslensku og ensku tali
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRT
eeee
- H.J., MBL
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
íslenskur texti
VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA SÝNDAR
ÁFRAM Í NOKKRA DAGA Í REGNBOGANUM
SICKO
FROM HER
AWAY
Evening kl. 5:30 - 8 - 10:30
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 6
Away From Her kl. 5:30 - 8 B.i. 7 ára
Die Fälscher ísl. texti kl. 5:30 B.i. 14 ára
Sicko ísl. texti kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára
Cocain Cowboys kl. 8 B.i. 14 ára
Shortbus ísl. texti kl. 10:30 B.i. 18 ára
The Bridge ísl. texti kl. 10:30 B.i. 16 ára
Dramatísk ástarsaga í anda Notebook
frá höfundi The Hours með úrvali stórleikara
Hennar mesta leyndarmál var hennar mesta náðargáfa.
Ef þér þykja mörgæsir krúttlegar og sætar... þá þekkir þú ekki Cody!
Frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna!
Sýnd með íslenskuog ensku tali.
Þrjár vikur
á toppnum
í USA
BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI?
Jackie Chan og Chris Tucker fara á
kostum í fyndnustu spennumynd ársins!
CHRIS TUCKER JACKIE CHAN
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIDI.IS
ALLAR UPPLÝSINGAR Á GRAENALJOSID.IS
52.000 GESTIR
Strandgata 50, Hafnarfjörður
Pantanasími 555 2222 og á www.midi.is
Kemur aftur
Barnasýning ársins 2007
9. sept. sun. kl. 14
16. sept. sun. kl. 14
TÓNLISTARMAÐURINN góð-
kunni Sigtryggur Baldursson hef-
ur hingað til ekki verið þekktur
fyrir að stíga á
fjalir leikhúsa.
En nú er svo
komið að land-
inn getur séð
hann á fjölum
Hafnarfjarð-
arleikhússins í
hlutverki Herra
Rokks í söng-
leiknum Abba-
babb!. Sig-
tryggur fer þar
í skó Sigurjóns Kjartanssonar sem
fór með hlutverk Hr. Rokks sein-
asta vetur. Sigtryggur treður í
fyrsta sinn upp sem Hr. Rokk hinn
23. september en þangað til mun
söngvarinn úr Greifunum, Felix
Bergsson, leika sjoppueigandann
síkáta.
Einnig hafa orðið þær breyt-
ingar í leikaraliðinu að Tinna
Hrafnsdóttir leikur Höllu í staðinn
fyrir Álfrúnu Örnólfsdóttur og Jó-
hannes Haukur Jóhannesson leik-
ur Steindór í tvo mánuði á meðan
Atli Þór er að jafna sig eftir hné-
uppskurð.
Fyrsta sýning á haustönn er
næstkomandi sunnudag.
Sigtryggur
verður
Hr. Rokk
Sigtryggur
Baldursson
ÞEGAR gamli grunnskólakenn-
arinn fellur frá hyggst Matt (Pay-
mer), sonur hans, fylla skarð hans
sem vinsælasti lærifaðir stofn-
unarinnar. Þá kemur sjarmörinn
Hr. D (Reynolds) til skjalanna og
heillar samstarfsmenn sína sem
nemendur upp úr skónum. Hvert
er leyndarmálið á bak við hyllina?
Matt kemst að því og lærir sína
lexíu.
Fer frísklega af stað, uns við
fáum að vita hvað drífur Hr. D
áfram. Upp frá því verður Skóli
lífsins sífellt væmnari klisjusúpa,
ergilega á skjön við vel skrifaðan
boðskap þess efnis að maður á að
lifa lífinu lifandi. Sannleika sem
hollt er að velta fyrir sér á tímum
lífsgæðamaraþonsins.
Leyndardóm-
ur herra D
MYNDDISKAR
Gamandrama
Bandaríkin. 2005. Sena 2007. 111 mín.
Öllum leyfð. Leikstjóri: William Dear. Að-
alleikarar: David Paymer, John Astin,
Ryan Reynolds.
School Of Life Sæbjörn Valdimarsson
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞARNA munu bæði þekktir og
óþekktir koma saman og viðra nýtt
efni í þægilegu og öruggu umhverfi,
með góða hljómsveit sér til stuðnings
ef menn vilja, en sumir kjósa að vera
bara með gítar eða slaghörpu,“ segir
Jakob Frímann Magnússon, skipu-
leggjandi söngvaskáldakvölda sem
haldin verða á Domo fyrsta miðviku-
dag hvers mánaðar í vetur. Þetta er
annað árið í röð sem slík kvöld eru
haldin, en fyrstu tónleikar þessa
vetrar eru í kvöld. „Hvert kvöld
skartar einu landskunnu söngva-
skáldi sem opnar kvöldið, en svo taka
aðrir við. Við höfum fengið til liðs við
okkur fullt af góðum söngvaskáld-
um,“ segir Jakob, en á meðal þeirra
sem koma munu fram í vetur eru
Ragnheiður Gröndal, Bubbi Mort-
hens, Magnús Þór Sigmundsson og
Dr. Gunni.
„Sá sem ríður á vaðið er hins vegar
á meðal afkastameiri söngvaskálda
okkar tíma; óðmaðurinn, júdasinn og
trúbrjóturinn Magnús Kjartansson.
Það er sjaldgæft að hann gefi kost á
svona löguðu en með sameinuðu
átaki tókst að eggja hann til dáða og
hann ætlar að viðra nýtt efni í bland
við eldra,“ segir Jakob, en þess má
geta að fyrsta lag hvers kvölds verð-
ur sýnt í beinni útsendingu í Kastljósi
Sjónvarpsins.
„Þegar söngvaskáld hafa tæmt úr
skjóðum sínum koma svo snarstefj-
unar- og spunameistarar með horn
sín og rafgíur og þá þróast þetta yfir í
„jam-session“-spuna,“ segir Jakob,
en auk Magnúsar munu þau Magga
Stína, Fabúla og Valgeir Skagfjörð
koma fram í kvöld. Klukkan 22 verð-
ur svo skipt um gír því þá mun Djass-
klúbburinn Múlinn taka við með
léttri sveiflu. „Þessi tónlistarstaður í
miðborginni er nefnilega að taka á
sig mynd sem sumir myndu lýsa sem
mjög „erlendis“,“ segir Jakob um
Domo.
Það er Félag tónskálda og texta-
höfunda í samstarfi við Félag ís-
lenskra hljómlistarmanna sem stend-
ur fyrir söngvaskáldakvöldunum.
„En svo hefur tónsprotafyrirtækið
Tónvís fallist á að vera okkur til halds
og trausts, en það er nýsköpunarfyr-
irtæki FL Group í tónlistar- og vit-
undariðnaði,“ segir Jakob að lokum.
Þeir sem vilja taka þátt í söngva-
skáldakvöldum í vetur geta sent póst
og skráð sig á ftt@ftt.is.
Maggi Kjartans
ríður á vaðið
Fyrsta söngvaskáldakvöld vetrarins haldið á Domo í kvöld
Fjölhæfur Magnús Kjartansson
hefur komið víða við á ferlinum.
Söngvaskáldakvöldið hefst kl. 20 í
kvöld og aðgangur er ókeypis á
meðan húsrúm leyfir.
RANGT var farið með staðreyndir
um væntanlega bók Arnaldar Indr-
iðasonar í Morgunblaðinu í gær og
er það harmað.
Þar kom fram að í upphafi bókar
væri lögreglan kölluð til vegna
morðs í sumarbústað en hið rétta er
að þar mun hafa verið um sjálfsvíg
að ræða.
Þá er Harðskafi vissulega fjall á
Austfjörðum en ekki Þingvöllum
eins og ranglega var fullyrt.
Leiðrétting
EFTIR að Halle Berry hlaut óskarsverðlaunin fyrir
leik í aðalhlutverki í Monster’s Ball, fyrst svartra
kvenna, hefur ferill hennar ekki náð miklum hæðum
og er skemmst að minnast þess að ekki löngu seinna
fékk hún Razzie-skammarverðlaunin alræmdu fyrir
Catwoman – en ólíkt flestum handhöfum verð-
launanna tók hún þó við þeim til þess að minna sig á
fallvaltleika lífsins. En nú hefur Berry gripið til þess
ráðs að leika aftur á móti Billy Bob Thornton í þeirri
von að það skapi gamla töfra, en Billy Bob lék ein-
mitt á móti henni í Monster’s Ball. Myndin sem um
ræðir er Tulia og er byggð á bók Nake Blakeslee,
Tulia: Race, Cocaine, and Corrup-
tion in a Small Texas Town, og ætti
undirtitill bókarinnar að vera næg
útlistun á efni myndarinnar. Það er
John Singleton sem leikstýrir en
fyrir sextán árum var hann óska-
barn Hollywood, nýbúinn að leik-
stýra Boyz N’ the Hood og yngsti
leikstjórinn sem hafði hlotið ósk-
arstilnefningu, aðeins 24 ára gam-
all. En nú stendur hann á fertugu
og Boyz N’ the Hood er ennþá eina myndin hans sem
bæði áhorfendur og gagnrýnendur hafa tekið í sátt
þannig að ferill hans þarf ekki síður á vítamín-
sprautu að halda en ferill Berry.
Annað Skrímslaball
Halle Berry
MYNDDISKAR»