Morgunblaðið - 11.09.2007, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 11
FRÉTTIR
UM 48% Íslendinga segjast hlynnt
aðild Íslands að Evrópusambandinu
en 33% eru andvíg. Þetta kemur
fram í könnun Capacent fyrir Sam-
tök iðnaðarins. Í samskonar könn-
un sem gerð var í febrúar voru 43%
aðspurðra hlynnt aðild en 34% and-
víg. Óákveðnum hefur fækkað milli
kannana.
Capacent Gallup gerir reglulega
kannanir fyrir Samtök iðnaðarins
um viðhorf landsmanna til Evrópu-
mála. Sú síðasta í röðinni var gerð
dagana 15. til 27. ágúst.
Í könnuninni var einnig spurt
hvort viðkomandi væru andvígir
eða hlynntir því að taka upp aðild-
arviðræður við Evrópusambandið.
Sögðust 58,6% vera hlynntir því en
26,4% voru andvígir.
Fram kemur á vefsvæði Samtaka
iðnaðarins, að meirihluti sé fyrir
því meðal stuðningsmanna fjögurra
stærstu stjórnmálaflokkanna, að
taka upp aðildarviðræður við ESB.
Þannig séu 63% stuðningsmanna
Framsóknarflokksins hlynnt við-
ræðum en 28% andvíg. 50% stuðn-
ingsmanna Sjálfstæðisflokksins séu
hlynnt viðræðum en 33% andvíg.
80% stuðningsmanna Samfylking-
arinnar séu hlynnt ESB-viðræðum
en 11% andvíg og 52% stuðnings-
manna Vinstri grænna vilji við-
ræður en 36% séu andvíg.
Könnunin var gerð 15. til 27.
ágúst. Úrtakið var 1.350 manns á
öllu landinu á aldrinum 16-75 ára
en svarhlutfall var 62%.
Fleiri hlynntir
aðild að ESB
SAMKVÆMT bráðabirgðatölum
frá SAM var mjólkurinnlegg í sam-
lög innan þeirra raða rúmlega
123,6 milljónir lítra á nýliðnu verð-
lagsári, sem lauk 31. ágúst sl. Sé
innvigtun til Mjólku ehf. bætt við,
má gera ráð fyrir að heildarmjólk-
urframleiðslan hafi verið um 125
milljónir lítra, sem er met. Fara
þarf nærri 30 ár aftur í tímann til
að finna viðlíka framleiðslu, en á
almanaksárinu 1978 losaði fram-
leiðslan 120 milljónir lítra. Þetta
kemur fram á vef Landsambands
kúabænda.
Met í fram-
leiðslu á mjólk
BÍLL brann til kaldra kola eftir að
eldur kom upp í honum við Þórð-
arsveig í Grafarholti. Tilkynnt var
um brunann á fimmta tímanum í
gærmorgun og fór slökkvilið á stað-
inn.
Auk bílsins sem brann skemmdist
bíll sem stóð skammt frá mikið í eld-
inum, samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu.
Ekki skapaðist þó frekari hætta
vegna eldsvoðans, að sögn lögreglu.
Talið er að eldsupptök megi rekja
til bilunar í rafkerfi bílsins.
Brann til
kaldra kola
í Grafarvogi
Ljósmynd/Gunnar Jónsson
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu þurfti að hafa afskipti af ellefu
ökumönnum vegna ölvunar um ný-
liðna helgi. Það er ívið minna en
venjulega þar sem á milli 6 og 9
ökumenn eru teknir hverja nótt um
helgi.
Að þessu voru sex ökumenn
stöðvaðir á laugardag, fjórir á
sunnudag og einn aðfaranótt mánu-
dags. Níu voru teknir í Reykjavík
og tveir í Hafnarfirði. Af þeim voru
níu karlmenn á aldrinum 20-48 ára
og tvær konur; á þrítugs- og fimm-
tugsaldri. Um helgina voru einnig
þrír teknir fyrir að aka undir áhrif-
um fíkniefna, þ.e. tveir karlmenn
og ein kona.
Ellefu ölvaðir
undir stýri