Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.09.2007, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EIGANDI þess- arar sætu kart- öflu vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar hún tók skyndilega upp á því að spíra þar sem hún lá í körfu á eldhús- borðinu. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er ekki algengt að sætar kartöflur spíri hérlendis, líkt og innlendar kartöflur. Raunar eru sætar kartöflur óskyldar venju- legum kartöflum grasafræðilega séð, þótt báðar séu plönturnar stöngulhnýði, sem mynda brum út um augu á plöntunni. Þetta segir Sigurgeir Ólafsson, plöntu- sjúkdómafræðingur hjá Landbúnaðarstofnun. Bendir hann á að sætar kartöflur eða sætuhnúðar, eins og þær eru líka nefndar, séu rótarhnýði sætuhnúðjurtarinnar [Ipomoea batatas] sem er klifurjurt af vafnings- klukkuætt, upprunnin í Mið-Ameríku. Jurtin sé mikið ræktuð við miðbaug og vaxi því við mun heitari skilyrði en þekkist hér. Bendir hann á að þegar kartaflan kom til Evrópu hafi menn fyrir þekkt sætu kartöfluna. „Spænska orðið patatas og enska orðið potato draga þannig nafn sitt annars vegar af inkanafninu á kartöflum sem er papa og spænska nafninu á þessum sæt- hnúðum sem er batatas.“ Að vera eða ekki vera kartafla ANNA Pála Sverrisdóttir, 24 ára laganemi, ætlar að gefa kost á sér sem formaður Ungra jafnaðarmanna á landsþingi sam- takanna sem haldið verður í Reykjavík 6.-7. október nk. Anna Pála stundar meistaranám í lögum við Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem blaðamað- ur á Morgunblaðinu undanfarin ár en vinnur nú lögfræðistörf hjá Per- sónuvernd meðfram námi. Hún hefur víðtæka reynslu af fé- lagsstörfum. Meðal annars sat hún tvö ár í Háskólaráði HÍ, var oddviti Röskvu í Stúdentaráði og fulltrúi SHÍ í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Þá stýrði hún ráðstefn- unni Iceland Model United Nations og var stofnandi samnefnds félags auk þess að sitja í stjórn Félags Sam- einuðu þjóðanna á Íslandi. Hún hef- ur mikla reynslu af ritstörfum, er í ritstjórn Vefritsins og vann til ým- issa verðlauna fyrir skriftir á yngri árum. Anna Pála starfaði með Vinstri grænum um tíma en valdi að ganga til liðs við Samfylkinguna eft- ir að hafa verið óflokksbundin. Hún býr nú í Reykjavík en hefur áður búið m.a. á Blönduósi, Þela- mörk við Akureyri og Skógum undir Eyjafjöllum. Landsþing Ungra jafnaðarmanna verður haldið á Hallveigarstíg 1 í Reykjavík. Magnús Már Guðmunds- son, núverandi formaður hreyfing- arinnar, hyggst ekki gefa kost á sér til endurkjörs en hann hefur setið í stjórn Ungra jafnaðarmanna síðan 2003, þar af sem formaður síðan í september 2006. Anna Pála í framboði fyrir unga jafnaðarmenn Anna Pála Sverrisdóttir Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÞRJÚ íslenzk fyrirtæki eru á lista yfir þau 30 sjávarútvegsfyrirtæki í heiminum, sem skila mestri fram- legð. Af þessum þremur fyrirtækj- um er útkoma HB Granda langbezt, en fyrirtækið er í öðru sæti á listan- um, sem tekinn er saman af netmiðl- inum Intrafish. Miðað er við afkom- una á fyrri helmingi ársins. Í fyrsta sæti listans er Pequera Iquique-Guabaye í Chile með 41,6% framlegð. HB Grandi er með 35,8% í öðru sætinu. Alfesca er í 23. sæti með 1,2% framlegð og Icelandic Group í 27. sæti með 0,3%. Afkoma fyrirtækja í sjávarútvegi hefur verið mjög mismunandi og fer það eftir því hvar í kveðjunni þau eru. Verð á hráefni hefur hækkað mikið og komið til góða þeim fyr- irtækjum sem yfir því ráða. Þá hef- ur afkoma fyrirtækja í fiskimjöli og lýsi verið mjög góð. Lítill hagnaður Sala sjávarafurða gengur mjög vel þessi misserin. Á fyrri helmingi þessa árs seldu 30 stærstu fyrirtæk- in, sem eru skráð á hlutabréfamark- aði fyrir langleiðina í þúsund millj- arða króna. Hagnaðurinn varð hins vegar aðeins 31 milljarður króna eða aðeins 3%. Aðeins sjö félaganna skil- uðu tveggja stafa framlegðarpró- sentu og 20 þeirra voru undir 5%. Þá voru 11 fyrirtækjanna undir 2%. Eftirspurn eftir sjávarafurðum hefur aukizt verulega á árinu að það kemur fiskveiðifyrirtækjunum helzt til góða. Aukninguna má helzt rekja til þess að hollusta ræður nú meiru en áður í innkaupum fólks. Það er tilbúið að greiða meira fyrir hollan mat eins og fiskinn. Fyrirtæki í útgerð hafa við þessar aðstæður skilað meiri hagnaði en aðrir hlekkir í keðjunni sem tengir auðlindir hafsins við neytendur. Niðurskurður á aflaheimildum eins og í þorski og herferð gegn ólögleg- um veiðum, hefur dregið úr fram- boði á sama tíma og eftirspurn eftir hágæða fiski heldur áfram að aukast. Meira er nú greitt fyrir hrá- efnið og það hefur komið útgerð- arfyrirtækjum eins HB Granda og norska fyrirtækinu Aker Seafoods til góða. Hátt verð á mjöli og lýsi Gífurleg spurn eftir fiskimjöli og lýsi hefur leitt til sögulegs hámarks í verði á þessum afurðum. Það hefur komið fyrirtækjum í Perú og Chile til góða. Mikil spurn hefur verið eft- ir fiskimjöli í Kína og nú vilja allir taka inn lýsi til að bæta heilsuna. Verð á fiskimjöli hefur reyndar lækkað lítillega síðustu vikurnar en er enn mjög hátt og fátt bendir til lækkunar. Það eru fyrirtækin sem eru í full- vinnslunni, sem eiga erfiðara upp- dráttar. Þeim hefur reynzt erfitt að koma hækkandi hráefnisverði út í verð til neytenda. Þetta hefur til dæmis bitnað á Alfesca, sem hefur dregið úr vægi reykts lax í fram- leiðslu sinni. Átta efstu fyrirtækin á listanum byggja afkomu sína á fisk- veiðum. Fiskeldisfyrirtækin standa einnig nokkuð vel, en almennt er af- koma fullvinnslufyrirtækjanna slök. Fiskvinnslufyrirtæk- in standa bezt að vígi Morgunblaðið/Þorkell Útvegur Útgerð og frumvinnsla skila mestum hagnaði sjávarútvegsfyrirtækja. Þar er HB Grandi einna fremstur. HB Grandi í öðru sæti yfir fiskvinnslufyrirtæki í heiminum sem skráð eru á hlutabréfamarkaði og skila mestri framlegð Í HNOTSKURN »Fyrirtæki í útgerð hafa viðþessar aðstæður skilað meiri hagnaði en aðrir hlekkir í keðjunni sem tengir auðlind- ir hafsins við neytendur. »Gífurleg spurn eftir fiski-mjöli og lýsi hefur leitt til sögulegs hámarks í verði á þessum afurðum. »Það eru fyrirtækin semeru í fullvinnslunni, sem eiga erfiðara uppdráttar. Þeim hefur reynzt erfitt að koma hækkandi hráefnisverði út í verð til neytenda. HANDÞVOTTUR kom almennt mjög illa út. Sérstaklega í ljósi þess að krafan er að starfsfólk þvoi sér alltaf um hendur eftir vinnustopp. Þetta þýðir í raun að í frystingu er þetta atriði einungis uppfyllt í 13% tilvika, í 87% tilfella er handþvottur ekki fullnægjandi. Þetta kemur fram í könnun Fiski- stofu á umgengni og hreinlæti í ís- lenzkum fiskvinnsluhúsum. Fyrir söltun er krafan um handþvott upp- fyllt í 3% tilvika og fyrir ferskan fisk í 7% tilvika. Ekki í góðu horfi Samkvæmt reglum eru reykingar, neyzla matar og drykkja á tilreiðslu-, vinnslu-, geymslu- og stoðsvæði í fiskvinnslu bönnuð. Stór hluti starfs- fólks hlýðir ekki þessum reglum og bárust fjölmargar athugasemdir um að starfsfólk neytti matar og drykkjar í vinnufatnaði og færi út á plan í vinnufatnaði til þess að reykja. Þrif og umgengni í búningsher- bergjum reyndist ekki nógu góð og það sama má segja um geymslur. Töluvert er um, að í frystigeymslum séu óvarðar afurðir innan um varðar. Hreinlætismál í umbúðageymslum voru almennt í ekki nógu góðu horfi og umgengnismálin sérstaklega. Handþvotti ábótavant $   # 0  % ! 0 1! ! -  % %  # 0  % ! 0 1! ! -  % & ' # 0  % ! 0 1! ! -  % (') # 0  % ! 0 1! ! -  % 234 5436 4532 235 3 5237 35 73 583 3 36 283             9 9 6 4 7   56 54 : #   56 54 57 5 5 6 4 56 54 57 5 5 6 4 7  54 57 5 5 6 4 7               !   " !   2 72 7 92 9 2  52 5 2  #$# #$##$# #$##$# #$# ;  <! =& ! >! #$# #$##$# #$##$# #$# $     ?%    %   ?%   ('   ?%    #* 762 962 92 92 998 78 64 92 4 +  ,-' -!)& !55839&  !  ! $ % @   # 5 !A" ?% ) %) 98 : #0 '3 95 : #1 3 65 : # 0! ) %) !,B !#    #$# #$##$# #$##$# #$# $1  ,+  2 / -!)& !5838& !  %@   # 5 !A =  )& 53&  577 : # %%   C #   ')  %@  #   %   %     %   &  % ÚR VERINU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.