Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 27
✝ Steinunn Jóns-dóttir fæddist í
Neskaupstað 31.
október 1927. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Víðihlíð í
Grindavík mánu-
daginn 3. september
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Jón Kristinn Bald-
vinsson, f. á Stóru-
Hámundarstöðum í
Árskógshreppi í
Eyjafirði 17.12.
1896, d. 23.9. 1938,
og Kristjana Sigríður Þorsteins-
dóttir, f. í Sænautaseli á Jökuldal í
N-Múlasýslu 1.6. 1900, d. 5.8. 1960.
Systkini Steinunnar eru: 1) Þor-
steinn Jóhannes, f. 15.2. 1924,
kvæntist Ingu Guðmundsdóttur,
þau skildu. Börn þeirra eru Guð-
mundur Kristinn, f. 13.4. 1949,
Geir, f. 22.6. 1951, Kristjana, f.
30.7. 1952, Þorsteinn Haukur, f.
16.4. 1956 og Guðjón Már, f. 17.4.
1961. Þorsteinn kvæntist Áshildi
Emilsdóttur, þau skildu. Synir
þeirra eru Jón Emil, f. 11.9. 1971,
og Ívar, f. 16.6. 1977. 2) Ólafur
Helgi, f. 24.8. 1925, kvæntur Ólöfu
Ólafsdóttur 31.12. 1946. Börn
dóttur er Thelma Eyfjörð, f. 26.2.
1987. 2) Egill Eyfjörð, f. 26.4. 1952.
Dóttir Egils og Kolbrúnar Agnars-
dóttur er Anna Kristjana Eyfjörð,
f. 22.2. 1973. Þau slitu samvistum.
3) Elínrós Eyfjörð, f. 16.3. 1957,
gift Ásgeiri Svan Vagnssyni. Börn
þeirra eru Eiríkur Guðni, f. 29.11.
1976, Halldór Ingi, f. 6.2. 1983 og
Birgitta Bjargey, f. 13.6. 1985. 4)
Þórarinn Eyfjörð, f. 6.1. 1960,
kvæntur Kristínu Jónsdóttur. Börn
þeirra eru Sigrún Eyfjörð, f. 25.4.
1989 og Þorsteinn Eyfjörð, f. 30.5.
1995. 5) Jóhannes Eyfjörð, f. 30.1.
1963, kvæntur Kristínu Maríu
Ingimarsdóttur. Börn þeirra eru
Guðrún Ýr Eyfjörð, f. 8.1. 1996,
Matthías Eyfjörð, f. 2.7. 2002, og
Andri Eyfjörð, f. 17.7. 2004.
Steinunn fæddist í Neskaupstað
og bjó þar í foreldrahúsum til 9 ára
aldurs. Vegna veikinda föður var
hún send í fóstur til skyldmenna á
Dalvík. Þar dvaldi hún hjá Agli
Júlíussyni útgerðarmanni og Guð-
finnu Þorvaldsdóttur konu hans.
Nítján ára gömul kynntist hún eft-
irlifandi eiginmanni og fluttu þau
til Akureyrar þar sem þau bjuggu
um hríð. Þau fluttu síðan til Kefla-
víkur þar sem Steinunn sinnti hús-
móðurstörfum og uppeldi barna
sinna.
Útför Steinunnar verður gerð
frá Keflavíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
þeirra eru Veigar
Ísak, f. 24.8. 1947,
Jón Kristinn, f. 2.12.
1948, Ólöf Steinunn,
f. 31.10. 1949, Hug-
rún Helga, f. 26.1.
1951, Kristjana Sig-
ríður, f. 26.1. 1951 og
Sólveig, f. 30.5. 1954.
Sonur Ólafs og Svan-
hvítar Hávarðsdóttur
er Hávarður, f. 25.5.
1946. 3) Baldvin Stef-
án, f. 29.7. 1932, d.
23.3. 1993. Ekkja
hans er Álfhildur
Ingimarsdóttir. Börn þeirra eru
Jón Ingi, f. 11.2. 1952, Ásta Fríða,
f. 10.4. 1957, Baldvin Ragnar, f.
21.1. 1959, og Ásdís Fanney, f. 6.3.
1967.
Steinunn giftist Eiríki Eyfjörð
Þórarinssyni, f. 30.3. 1929. Börn
þeirra eru: 1) Jón Eyfjörð, f. 4.5.
1948, kvæntur Rakel Ernu Skarp-
héðinsdóttur. Dóttir Jóns og Álf-
dísar Kötlu Sigurbjarnardóttur er
Steinunn, f. 5.10. 1965. Þau Jón
slitu samvistum. Synir Jóns og
Auðar Ingvarsdóttur eru Ingvar
Eyfjörð, f. 19.7. 1973, og Örn Ey-
fjörð, f. 18.11. 1977. Þau skildu.
Dóttir Jóns og Karitasar Jóhanns-
Elsku amma.
Nú er komið að kveðjulokum. Sárt
er að horfa á eftir þér, þó svo að ég
viti að þér líður vel núna. Alveg er ég
viss um að margir hafa tekið á móti
þér með brosi.
Minningarnar hafa streymt fram
síðustu daga og það sem stendur upp
úr er þolinmæði þín gagnvart mér,
hvernig þú leiðréttir mig alltaf ef ég
sagði eitthvað vitlaust, hvernig þú
varst ávallt tilbúin að taka á móti
mér og hugsa um mig þegar ég fékk
allar umgangspestirnar. Hvernig við
lágum saman upp í rúmi, ég í afakoti
við hliðina á þér og við hlustuðum á
hádegisleikritið eða messur. Mikið
var þetta notalegt. Þá man ég bæn-
irnar sem þú kenndir mér og ég ætla
að kveðja þig, elsku amma, með
þessari sem var ein af okkar uppá-
halds:
Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól,
í guðsóttanum gefðu mér,
að ganga í dag, svo líki þér.
(Höf. ók.)
Elsku amma mín, minning þín lifir
í hjarta mínu. Ég elska þig. Takk
fyrir allt og allt.
Anna Kristjana.
Elsku amma.
Við vitum að nú vakir þú yfir okk-
ur á þeim stað þar sem svo vel var
tekið á móti þér. Þú varst einstök
kona. Einn af englunum í lífi okkar
sem fengum að njóta návista þinna.
Örlæti þitt á kærleikann og hlýjuna í
okkar garð lifir í okkur og nærir. Ég
veit að margir voru þessa aðnjótandi
og sennilega fleiri nú. Minninguna
um stundirnar okkar saman geym-
um við með okkur og nærum þegar
við komum öll saman og syngjum og
spilum en ég veit að þar verður þú.
Elsku Amma, takk fyrir gjafirnar
þínar, þær lifa með okkur.
Ingvar, Margrét,
Knútur og Jökull.
Elsku amma.
Ótal minningar og sælustundir
rifjast upp fyrir mér þessa dagana.
Þær standa mér þó skýrast fyrir
hugskotssjónum stundirnar sem við
höfum átt saman síðustu ár. Heim-
sóknirnar til þín voru helgistundir.
Einkenndust þær af hljóðfæraleik,
söng, hlátrasköllum og pönnukök-
um. Oftar en ekki komum við mörg
saman hjá þér og nutum þess að vera
hvert með öðru. Hvað sem á dundi
þá mættirðu öllum hindrunum og
erfiðleikum með ljós í hjarta og bros
á vör. Þannig mun ég muna þig,
glæsilega og brosandi.
Þar vex eitt blóm, sem hvorki gróður grær
né gefast stormahlé, þó viðri hart.
En glaðast alls það móti himni hlær,
hreinna en hreint og bjartara en bjart.
Þeim hjarta berst í brjósti fast og hratt,
sem bernskudraum sinn rætast hefur eygt.
Og meir en blóm það getur ekkert glatt,
grennra en grannt og veikara en veikt.
Ó, Drottinn heyr þá bæn, sem bljúgum róm
er beðin lágt en innilega hlýtt.
Lát ekki storminn brjóta þetta blóm,
blárra en blátt og hvítara en hvítt.
(Kristján frá Djúpalæk.)
Lýstu yfir okkur börnin þín frá
himnum, amma mín,
Sigrún Eyfjörð Þórarinsdóttir.
Amma mín.
Nú ert þú horfin en alltaf munt þú
lifa í minningu okkar sem hinn bros-
andi karakter sem alltaf sá bjartari
hliðina á öllum málum. Mínar minn-
ingar eru ekki frá langri tíð en þær
eru góðar og munu ríkja í huga mér
lengi sem mínar bestu. Alltaf varstu
til í að hlusta á söng og gítarspil á
góðum tímum sem nú eru í hávegum
hafðir hér í mínu hjarta.
Takk fyrir allt amma mín og megi
minning þín lifa.
Þinn sonarsonur,
Þorsteinn Eyfjörð Þórarinsson.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast Steinunnar Jónsdóttur
sem lést á hjúkrunardeild Víðihlíðar
hinn 3. september síðastliðinn.
Ég kynntist Steinunni árið 1964 er
ég kom til hennar í vist 13 ára gömul.
Hún var yndisleg kona og það var
mjög gaman og gagnlegt að vinna
fyrir hana. Eitt af verkum mínum í
vistinni var að gæta Þórarins sonar
hennar og ég mun aldrei gleyma því
er hún bað mig um að búa um rúmin
og þurrka af náttborðunum. Ég var
svo stolt af því að gera þetta fyrir
hana. Einnig bað hún mig strauja
þvottinn á heimilinu, gallabuxurnar
þurfti að strauja í brot og það fannst
mér ekki leiðinlegt. Ég get ekki
gleymt því þegar hún fól mér það
verkefni að bursta skó heimilisins og
það sem þeir glönsuðu nú vel.
Það var mjög ljúft að vinna fyrir
og vera í návist Steinunnar og ég
man svo vel þegar hún bauð mér inn í
stofuna sína. Við sátum saman í sóf-
anum og hún sýndi mér alla fínu
munina sína.
Árin liðu og ég missti sambandið
við Steinunni en svo var það í febr-
úar árið 2003 að við hittumst á ný er
hún kom til dvalar á hjúkrunardeild-
inni í Víðihlíð þar sem ég starfa. Ég
var svo ánægð að sjá hana aftur og
getað rifjað upp gömlu góðu dagana
sem við áttum saman. En elsku
Steinunn mín var þá orðin heilsutæp
og þrotin kröftum. Ég fékk þó að
þurrka af náttborðinu hennar og
gera hreint í kringum hana síðustu
árin.
Ég vil þakka Steinunni fyrir allt
það góða sem hún kenndi mér – hún
var yndisleg kona sem ekki er hægt
að gleyma.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Ég votta eiginmanni Steinunnar,
börnum hennar og fjölskyldum mína
dýpstu samúð og megi Guð styrkja
þau í sorginni.
Guðný Elíasdóttir.
Steinunn Jónsdóttir
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝
AÐALBJÖRG ESTER ÞORSTEINSDÓTTIR,
Skálanesgötu 5,
Vopnafirði,
áður Víðidal á Fjöllum,
andaðist á Sundabúð fimmtudaginn 6. september.
Jarðsett verður frá Hofi laugardaginn 15. septem-
ber kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðmundur Þorsteinsson.
✝
Okkar ástkæra eiginkona, móðir og dóttir,
INGER TARA LÖVE ÓMARSDÓTTIR,
Hjallahlíð 29,
varð bráðkvödd á heimili sínu föstudaginn
7. september.
Útförin verður auglýst síðar.
Vignir Steindórsson,
Vignir Ómar Vignisson,
Gréta Guðný Snorradóttir,
Þóra Löve, Ómar Másson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐBJÖRG ERLA JÓNSDÓTTIR,
Hrafnistu í Hafnarfirði,
lést aðfaranótt mánudagsins 10. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Árni Arnarson, Borghildur Vigfúsdóttir,
Gunnar Arnarson, Kristbjörg Eyvindsdóttir,
Aldís Arnardóttir, Ólafur Þór Jóhannesson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ANDRÉS REYNIR KRISTJÁNSSON
Hátúni 6a,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 31. ágúst, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í dag, þriðjudaginn 11. september
kl. 15.00.
Dóra Gígja Þórhallsdóttir
Guðrún Andrésdóttir
Þórhallur Andrésson Sigríður Thorsteinsson
Kristján Ottó Andrésson
Dóra Gígja Þórhallsdóttir Atli Sævar Guðmundsson
Ragnar Þórhallson
✝
Elskulegur faðir okkar,
SÆMUNDUR ÓSKARSSON,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn
10. september, jarðaför auglýst síðar.
Guðrún Sæmundsdóttir,
Helga Sæmundóttir,
Óskar Sæmundsson.
✝
Ástkær sonarsonur, bróðir, frændi og mágur,
SAMÚEL JÓNSSON,
lést að slysförum sunnudaginn 9. september í Danmörku.
Oddfríður B. Magnúsdóttir,
Fríða B. Jónsdóttir, Þórir Jónsson Hraundal,
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
ÁSLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hjallasel 55,
Seljahlíð,
verður jarðsungin í Fossvogskirkju fimmtudaginn
13. september kl. 13.00.
Ragnhildur Nordgulen, Árni Einarsson,
Áslaug Kristjánsdóttir, Árni Geir Snæþórsson,
Fanney Kristjánsdóttir,
barnabarnabörn.