Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 28

Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Andrés ReynirKristjánsson fæddist í Reykjavík hinn 24. febrúar 1931. Hann lést á Landsspítalanum 3l. ágúst síðastliðinn. Andrés var sonur hjónanna Guðrúnar Andrésdóttur hús- freyju, f. í Reykjavík 11.10. 1901, d. 20.2. 1980 og Christians August Otto Korn- erup-Hansen fram- kvæmdastjóra, f. í Hróarskeldu í Danmörku 9.4. 1902, d. í Reykjavík 3.2. 1965. Systkini Andésar eru Kristín Edda Kornerup-Hansen, f. 5.12. 1932 og Viðar Kornerup-Hansen f. 21.6. 1934. Andrés Reynir kvæntist Dóru Gígju Þórhallsdóttur, f. í Reykja- vík 26.7. 1933. Hjónavígsludag- urinn var 28.2. 1956, en daginn eft- ir héldu brúðhjónin til Kaupmannahafnar til nokkurra mánaða dvalar, þar sem Andrés Reynir kynnti sér raftækjasölu o.fl. Foreldrar Dóru Gígju voru Bergþóra Einarsdóttir húsfreyja, f. í Garðhúsum í Grindavík 27.4. 1908, d. í Reykjavík 1.10. 1989 og Þórhallur Þorgilsson magister í rómönskum tungu- málum og bókavörð- ur, f. í Knarrarhöfn, Hvammssveit í Döl- um 4.4. 1903, d. í Reykjavík 23.7. 1958. Börn þeirra Dóru og Andrésar Reynis eru: 1) Guð- rún bankafulltrúi f. 26.9. 1956. 2) Þór- hallur framkvæmda- stjóri, f. 2.10. 1958, kvæntur Sigríði Thorsteinsson kenn- ara og húsfreyju. Börn þeirra eru Dóra Gígja nemi, f. 10.2. 1984, sambýlismaður Atli Sævar Guðmundsson f. 3.1. 1980, og Ragnar, f. 6.3. 1987. 3) Kristján Ottó húsasmíðameistari og fram- kvæmdastjóri, f. 27.12. 1959. Eftir stúdentspróf í Verslunar- skóla Íslands 1951 settist Andrés Reynir í Háskóla Íslands og lauk prófum í forspjallsvísindum, bók- færslu, þjóðhagfræði og almennri lögfræði. Hann hætti námi 1954 og hóf störf við verksmiðju og heild- verslun föður síns, Fönix, þar sem hann gegndi síðar forstjórastarfi á árunum 1963-1986. Útför Andrésar Reynis verður gerð frá Dómkirkjunni í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Andrés Reynir Kristjánsson er látinn. Góður vinur og traustur fjöl- skyldumaður hefur hafið ferðina sem okkur hinum kemur alltaf jafn mikið á óvart og einkum er velt fyr- ir sér á stundum sem þessum og bollalagt hvað muni eiginlega taka við – ef eitthvað. Sjálfur vil ég helst trúa því að eitthvað meira hangi á spýtunni og ætla að halda fast í þá trú þar til hún verður sönnuð eða afsönnuð op- inberlega í eitt skipti fyrir öll. Ég er nefnilega heilmikið fyrir það sem sannara reynist í þessu sem öðru. Andrés Reynir var sómamaður og þó að ég viti ekki gjörla hver af- staða hans til eilífðarmálanna var hef ég lúmskan grun um að við höf- um verið nokkuð sammála hvað það varðar. Við kynntumst fyrir margt löngu þegar leiðir þeirra Dóru syst- ur minnar lágu saman, en þau hafa púslað saman ævispilið allt frá því þau gengu í hjónaband í febrúar 1956. Það er því góð hálf öld síðan ungu brúðhjónin Dóra og Andrés Reynir stigu á skipsfjöl í Reykjavíkurhöfn daginn eftir brúðkaupið og héldu til Kaupmannahafnar til nokkurra mánaða dvalar. Andrés nýtti tím- ann til að kynna sér nokkur þeirra fyrirtækja sem í framhaldi urðu helstu viðskiptavinir fyrirtækisins Fönix, þar sem Andrés Reynir varð síðan forstjóri um árabil. „Hann hafði glampa í augum, svona hálfgerðan kátínu- og stríðn- isglampa,“ sagði nákominn ættingi við mig á dögunum. Þetta var alveg rétt, ég mundi eftir glampanum, sérlega á góðum stundum þegar fjölskyldan og vinir komu saman. Andrés Reynir var þá gjarnan hrókur alls fagnaðar og tók lagið með öðrum ef svo bar undir. Ég minntist á vini. Það er ekki hægt að segja nokkur orð um Andr- és Reyni nema geta vinahópsins úr Verslunarskólanum. Þetta voru nokkrir gamlir skólafélagar úr Versló sem hittust reglulega áratug eftir áratug og héldu miklu sam- bandi, enda þótt hópurinn hefði að sjálfsögðu dreifst í ýmsar stöður þjóðfélagsins með árunum eins og gengur. Það var einstakt að fylgjast með þeirri tryggð. En einn góðan veðurdag kom áfallið. Hjartað bilaði. Fyrst var hægt að laga – svo var það ekki mögulegt lengur. „Glampinn í aug- unum minnkaði – og hvarf,“ heyrði ég sagt. Það var komið að kveðju- stund. Fallegri kveðjustund þar sem nánasta fjölskylda var saman komin. Aðrir munu vafalaust rita nánar um ævi Andrésar Reynis og störf en við Svanhildur kveðjum hér góð- an og traustan vin með þessum fáu orðum. Við vottum börnunum, sem nú eru auðvitað fullorðið fólk, Guð- rúnu, Þórhalli og fjölskyldu hans og Kristjáni Ottó – og að sjálfsögðu Dóru systur minni innilegustu hlut- tekningu. Ólafur Gaukur. Aðeins fáum einstaklingum er það gefið að geta átt sér drauma og látið þá rætast – eða sett sér ákveð- in takmörk og náð þeim með elju sinni, hæfni og dugnaði. Slíkir ein- staklingar vinna oft að sínum hug- aðarefnum án brambolts og margra orða, en allt í einu hefur draumur þeirra ræst eða takmarkinu verið náð. Einn í þessum fámenna hópi var Andrés Reynir Kristjánsson, hálf- danskur að ætt en þó ósvikinn Ís- lendingur með ást á sviðum, blóð- mör, lifrarpylsu og jafnvel hákarli, en naut þess einnig að fá síld og kaldan bjór með ensku knattspyrn- unni á laugardögum og svínasteik á danskan máta á stórhátíðum Á skólaárum sínum sýndi Andrés Reynir fyrst frumkvöðulshæfileika sína er hann setti fram hugmynd um blaðakiosk útifyrir bókabúð Sig- fúsar Eymundsson í Austurstræti. Sú hugmynd sló í gegn og malaði gull. Síðan tók hann að huga að uppbyggingu fjölskyldufyrirtækis- ins Fönix og þar rættust allir hans draumar og takmörk náðust. Næst byggði hann einskonar ættaróðal á Tómasarhaga. Loks komu bygging- arnar í Hátúni, sem rúma vöxt fjöl- skyldufyrirtækisins um langa fram- tíð, ásamt glæsilegu húsnæði fyrir fjölskylduna auk annarra bygginga. Hátún 6 verður minnisvarði um Andrés Reyni um ókomin ár. Alls- staðar þar sem Andrés Reynir kom að verki skipulagði hann nánast allt í smáatriðum fyrir arkitektana eða þá sem fullgera áttu verkið. Skipu- lagið allt og nákvæmnin var aðdá- unarverð og snyrtimennskan ofar öllu. Andrés Reynir valdi sér eigin- konu af sömu nákvæmni og ein- kenndi hann í öðru og það val hans varð upphafið að okkar kynnum. Dóra Gígja Þórhallsdóttir og Anna heitin Bjarnason, kona mín, voru óaðskiljanlegar vinkonur allt frá því að þær sátu saman í barnaskóla til dánardags Önnu 1998. Samband var á tímabili haft daglega og allt fram talið á báða bóga um framgang bús og barna. Þó við flyttum til Banda- ríkjanna í áratug dofnaði vináttan ekki því Dóra heimsótti okkur ár- lega og Reynir stundum með, Þá, eins og fyrr og forðum, gerðist margt skemmtilegt. Í mínum huga verður Andrés Reynir ávallt einstakur maður. Hann var listrænn mjög, eins og t.d. kom fram í kortaútgáfu hans. Hann var fagurkeri og naut lista í ríkum skilningi. Hann unni Reykjavík, enda alinn upp í Suðurgötunni. Hann var maður lífsins og gleðinnar og sérstakur glampi í augum hans sýndi að stutt var í spaugið og gam- anmál. Þau hjón kunnu einkar vel að efna til mannfagnaðar. Skemmti- legast var þá þegar húsbóndinn tók fram gítarinn og brá sér í hlutverk trúbadorsins. Ég kveð þennan vin minn með söknuði eftir rúmlega 50 ára ánægjulega samleið. Hann var „þéttur á velli, þéttur í lund og þra- utgóður á raunastund“. Fjölskylda mín á Íslandi, í Bandaríkjunum og Svíþjóð vottar Dóru Gígju og stórfjölskyldunni dýpstu samúð á þessum tímamót- um, en minnir á að minningin um mætan mann mun seint gleymast. Atli Steinarsson. Andrés Reynir Kristjánsson er látinn eftir stutta en harða baráttu við dauðann. Andrés var frábær persónuleiki, trygglyndur, traustur og vinfastur og reyndist mér hið besta í hvívetna í næstum sjötíu ára náinni samfylgd. Vinátta okkar hófst þannig að við bjuggum báðir í Miðbæ Reykjavíkur. Við tilheyrð- um sama árgangi og lentum snemma í sama bekk í Miðbæjar- skólanum og urðum fljótlega nær óaðskiljanlegir, urðum heimagang- ar hvor hjá öðrum og kynntumst náið fjölskyldum hvor annars. Við héldum áfram náinni vináttunni þótt Andrés færi í Verslunarskól- ann og ég í Menntaskólann. Með okkur voru löngum tveir aðrir bekkjarbræður okkar úr barnaskól- anum. Starfsvettvangur okkar varð ólík- ur. En um tíma lágu samt náms- leiðir okkar þó saman í lagadeild Háskóla Íslands, sem ekki varði nema stutt þar til ég hóf í staðinn læknanám og Andrés gekk til liðs við Fönix, fyrirtæki föður hans, sem hann leiddi um marga áratugi þar til synir hans tóku við rekstrinum. Í Andrési mættust tveir ólíkir heimar foreldranna, Ísland og Dan- mörk. Það olli áreiðanlega á köflum nokkurri baráttu, en með tímanum sameinuðust þessir tveir heimar og urðu báðir Andrési jafn kærir. Danski heimurinn tengdist ekki síst viðskiptasamböndum í Danmörku þar sem menn lærðu fljótlega að meta mikils mannkosti Andrésar. Verslunin óx og dafnaði ríkulega í höndum hans. En Ísland átti samt forgang í huga hans, ekki síst ríku- leg tengsl, sem Andrés myndaði við Borgarfjörð, þaðan sem Guðrún Andrésdóttir móðir hans átti ættir að rekja. Eftir sumarlanga dvöl okkar, nokkurra félaga í Hvítársíðu myndaði Andrés þar náin bönd og í Þverárhlíð, bæði við skylda og óskylda, trygg bönd sem hafa hald- ist fram á þennan dag. Andrés tengdist líka mikið bekkjarsystkin- um sínum í Verslunarskólanum og hafði hann löngum félagslega for- ystu þar. Með tímanum mynduðum við bekkjarbræðurnir fjórir úr B- bekknum í Miðbæjarskólanum traustan hóp og með tímanum bætt- ust við makar og börn, sem löngum hafa átt góða samleið með okkur fé- lögunum. Samkomur hafa um ára- tuga skeið verið mikilvægur þáttur í lífi okkar allra og hafa haldist fram á þennan dag og við veislurnar góðu bættust stundum brúðkaup, skírnir, fermingar og hverskonar tyllidagar. Með tímanum myndaðist jafnmikið traust milli kynslóðanna og hefur þar verið hægt að ganga hvarvetna að stuðningi vísum, ef þurft hefur. En líklega er enginn vafi á að gest- risni Andrésar og Dóru okkar Þór- hallsdóttur hefur löngum haft vinn- inginn, en þau hafa fengið góða samkeppni. Gítarar, píanó, söngur og ljóð frá löndunum í kring, ekki síst Danmörku, tóku gjarnan yfir- Andrés Reynir Kristjánsson ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru, ÞORBJARGAR RÖGNU BJÖRNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Eir, 3. hæð, fyrir umönnun, hlýju og yndislegt viðmót. Pétur J. Magnússon, Björn Pétursson, Magnús Pétursson, Pétur R. Pétursson, Ólöf A. Þórðardóttir, Björn Hlynur Pétursson og Alexander Glói Pétursson. ✝ Okkar ástkæri ARI G. GUÐMUNDSSON, Krókahrauni 10, Hafnarfirði, áður til heimilis að Húnabraut 28, Blönduósi, lést á Sólvangi í Hafnarfirði sunnudaginn 2. september. Hann verður jarðsunginn frá Garðakirkju, Álftanesi, fimmtudaginn 13. september klukkan 13.00. Guðmunda Guðmundsdóttir, Guðmundur Arason, Inga Birna Tryggvadóttir, Óskar Eyvindur Arason, Margrét Rósa Grímsdóttir, Ása L. Aradóttir, Ólafur Arnalds og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vinsemd og hlýhug við andlát og útför okkar elskulegu mömmu, ömmu og tengda- mömmu, S. ÞÓRU MAGNÚSDÓTTUR, Suðurhlíð 38B. Hugrún Ríkarðsdóttir, Aðalheiður Ríkarðsdóttir, Höskuldur Höskuldsson, Surya Mjöll Agha Khan, Jakob Höskuldsson, Rakel Sara Höskuldsdóttir, Lea Ösp Höskuldsdóttir. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, dóttur og sys- tur, SÓLRÚN SVERRISDÓTTIR, Lækjargarði. Ari G. Öfjörð, Jóhanna Ósk Öfjörð, Guðmundur Lárus Öfjörð, Salome Huld Gunnarsdóttir, Sigurður Hans Arason Öfjörð, Hafsteinn Birgir Arason Öfjörð, Ásgeir Arason Öfjörð, Hugi Rafn Öfjörð, Emilía Sól Guðmundsdóttir og Patrekur Þór Guðmundsson, aðrir aðstandendur og ástvinir. ✝ Innilegt þakklæti til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föðurs, tengdaföðurs, afa og langafa, GEORGS ST. SCHEVING skipstjóra, Grandavegi 47, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugastaða fyrir alúð og umönnun. Einnig til Oddfellowstúkunnar Þorgeirs fyrir þeirra vináttu og heiður sem honum var sýndur. Anna Hannesdóttir Scheving, Jóhanna Scheving, Vilberg Margeirsson, Stefán Georgsson, Berglind Scheving, Sigurbjörn Vilhjálmsson, barnabörn og langafadrengir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.