Morgunblaðið - 11.09.2007, Page 33

Morgunblaðið - 11.09.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 33 hlutavelta dagbok@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9- 16.30. Jóga kl. 9 og kl. 19. Postulínsmálun kl. 13. Leshópur kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, vefnaður, almenn handavinna, fótaað- gerð, morgunkaffi, dagblöð, hádeg- isverður, vefnaður, línudans, boccia, kaffi. Vefnaðarnámskeið byrjar í dag, uppl. í s. 535-2760. Dalbraut 18-20 | Opin vinnustofa kl. 9- 12. Félagsvist í dag kl. 14. Allir velkomnir. Ferðaklúbbur eldri borgara | Haustlita- ferð 21. sept., Þingvöllur-Lundarreykjadal- ur-Húsafellsskógur-Hraunfossar- Hvítársíða, kvöldverður, dans og skemmtiatriði. Allir eldri borgarar vel- komnir. Uppl. og skráning í s. 892-3011. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Farið verður í Þverárrétt í Borg- arfirði mánudag 17. september. Brottför frá Gjábakka kl. 8 og Gullsmára kl. 8.15. Deildartunguhver skoðaður. Kjöt og kjöt- súpa á Mótel Venus. Skráning og uppl. í félagsmiðstöðvunum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13. Opið hús laugard. 15. sept. kl. 14 þar sem félagsstarfið í vetur verður kynnt. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl. 9.55. Gler- og postulínsmálun kl. 9.30. Handavinna kl. 10, leiðbeinandi við til kl. 17. Jóga kl. 10.40. Róleg leikfimi kl. 13. Ganga kl. 14. Bossía kl. 14. Jóga á dýnum kl. 17. Stólajóga kl. 17.50. Fræðslu- erindi Glóðar frestað til 18. sept. kl. 20. Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 9 vefnaður. Kl. 9.15 jóga. Kl. 9.30 mynd- l.hópur. Kl. 10 ganga. Kl. 11 leikfimi. Kl. 11.40 hádegisverður. Kl. 13 bútasaumur. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Leshringur hefst í dag í bókasafninu kl. 10.30. Karlaleikfimi í Ásgarði kl. 13. Boccia í Ásgarði kl. 14, spilað í kirkjunni kl. 13. Vatnsleikfimi í Mýri kl. 14. Lokað í Garða- bergi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur opnar, m.a. kl. 9 glerskurður og perlusaumur. Kl. 10.30 létt ganga um nágrennið. Kl. 13 hefst postulínsnámskeið. Miðvikudaginn 3. okt. kl. 10 byrja dans- æfingar í samvinnu við FÁÍA, allir vel- komnir. Uppl. á staðnum og s. 575-7720. Hraunbær 105 | Kl. 9-16.30 handavinna. Kl. 9-12 glerskurður. Kl. 9-11 hjúkr- unarfræðingur. Kl. 10-11 Boccia. Kl. 11-12 leikfimi. Kl. 12-12.30 hádegismatur. Kl. 13- 16 glerbræðsla. Kl. 12.15 Bónusbíllinn. Kl. 15-15.30 kaffi. Hraunsel | Félagsmiðst. opnuð kl. 9. Leik- fimi í Bjarkarhúsinu kl. 11.30. Brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur hjá Sigrúnu kl. 9-13. Jóga kl. 9-11, Björg F. Helgistund kl. 13.30 hjá séra Ólafi Jó- hannssyni. Myndlist hjá Ágústu kl. 13.30- 16.30. Böðun fyrir hádegi. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Allir velkomnir. Skraut- skrift, ókeypis tölvuleiðbeiningar fram að áramótum, blómaskreytingar, postulín, framsögn, bókmenntir, magadans, klaust- ursaumur, skapandi skrif, leikfimi, ætt- fræði o.s.frv. Líttu inn. S. 568-3132. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg- unstund með Þórdísi og Kristínu frá Há- teigskirkju kl. 10.30. Handverks- og bóka- stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Myndlist kl. 9-12, postulín kl. 13-16, opin handavinnustofa kl. 13-16. Opin smíðastofa kl. 9-16. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9-16 myndmennt. Kl. 10.15-11.45 enska. Kl. 11.45-12.45 hádeg- isverður. Kl. 13.30-14.30 leshópur. Kl. 13- 14 spurt og spjallað/myndbandasýning. Kl. 13-16 bútasaumur. Kl. 13-16 frjáls spil. Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinna kl. 9, hárgreiðslu- og fótaaðg.stofur opnaðar kl. 9, morg- unstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, upplestur kl. 12.30, félagsvist kl. 14. Allir velkomnir. Erum að skrá í námskeið uppl. í síma 411- 9450. Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bænastund og samvera, kl. 12 Bónusbíllinn, Kl. 16.45 bókabíllinn. Kirkjustarf Árbæjarkirkja | Foreldramorgunn kl. 10- 12. Samvera foreldra með ung börn. Spjall, fræðsla og samvera. STN (starf með 6-9 ára börnum) kl. 15-16. TTT (starf með 10-12 ára börnum) kl. 16-17. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Digraneskirkja | Æskulýðsstarf Meme fyrir 9.-10. bekk kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is. Fríkirkjan Kefas | Almenn bænastund kl. 20.30. Beðið verður m.a. fyrir innsendum bænarefnum sem hægt er að senda á ke- fas@kefas.is eða með því að hringja í síma kirkjunnar. Allir velkomnir. Grafarvogskirkja | Farið verður í hina ár- legu haustferð í dag. Lagt verður af stað frá Grafarvogskirkju kl. 10, komið verður til baka um kl. 17.30. Farið verður um Borgarfjörð að Fossatúni og þar verður snæddur hádegisverður. Helgistund verð- ur svo á Borg á Mýrum. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12- 12.30. Léttar veitingar gegn vægu gjaldi kl. 12.30 í safnaðarheimili. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Starf fyrir eldri borgara þriðjudaga og föstu- daga kl. 11-14. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Laugarneskirkja | Kl. 20 kvöldsöngur í kirkjunni. Þorvaldur Halldórsson syngur, Gunnar Gunnarsson leikur á píanó og sóknarprestur fer með guðsorð og bæn. Kl. 20.30 trúfræðsla sr. Bjarna: Gæði ná- inna tengsla, Tólf spora hópar koma sam- an. Óháði söfnuðurinn | Kynningarkvöld á alfa 1 verður í safnaðarheimili Óháða safnaðarins við Háteigsveg í kvöld og hefst með sameiginlegri máltíð kl. 19. Allir eru velkomnir á þessi frumfræðslu- námskeið í kristindóminum. Vídalínskirkja Garðasókn | Ath.: Vetr- ardagskráin er hafin. Kyrrðarstund í kirkj- unni kl. 12. Súpa og brauð á vægu verði kl. 12.30. Opið fyrir alla. Spilað frá kl. 13 til 16, vist, brids og lomber, púttgræjur á staðn- um. Kaffi kl. 14.45. Akstur fyrir þá sem vilja, uppl. í s. 895-0169. Allir velkomnir. Hlutavelta | Þessar duglegu vinkonur, Vala, Alexandra, Eva Rut og Arnheiður Björg, söfnuðu alls kr. 4.200 krónum sem þær afhentu Rauða krossi Íslands fyrir nokkru. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir dugnaðinn og munu peningarnir koma að góðum notum í starfinu með börnum í sunnanverðri Afríku. dagbók Í dag er þriðjudagur 11. september, 254. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína, og í húsi Drottins bý ég langa ævi. (Sálm. 23, 6.) Réttað verður í Þórkötlustað-arrétt í Grindavík næstkom-andi laugardag, og verður lífog fjör í bænum. Björn Haraldsson er bóndi í Auðs- holti, og hlakkar mikið til helgarinnar: „Réttirnar eru mikill hátíðisdagur Grindvíkinga og nærsveitarmanna, en Þórkötlustaðarétt er eina réttin á Reykjanesi sem enn er í notkun,“ segir Björn og bætir við að réttað hefur verið á Þórkötlustöðum í meira en 400 ár. „Safnið kemur til réttarinnar milli kl. 10 og 11 á laugardeginum, en gamanið hefst fyrir alvöru kl. 13 þegar byrjað er að draga í dilka, sem tekur um tvo tíma,“ útskýrir Björn. Mikil upplifun Að sögn Björns er mikil upplifun að fylgjast með réttunum. „Lykt af fé og gróðri fyllir vitin, og skapar hálf- ævintýralegan ljóma. Það er von á að nikkan verði þanin, tekið í nefið, og bæði ungir og aldnir hafa gaman af öllu fjörinu,“ segir hann. „Við tökum vel á móti gestum í Auðsholti, og verður m.a. boðið upp á súpu í tilefni dagsins, og haldin sýning á listaverkum Ingibjarg- ar Styrgerðar Haraldsdóttur í tjaldi sem reist verður við bæinn, en hún hef- ur hér vinnuaðstöðu.“ Margt að sjá í Grindavík Björn segir margt fleira að sjá og gera í Grindavík, og getur heimsókn í Þórkötlustaðarétt verið byrjunin á skemmtilegum og fræðandi degi: „Fyrst má nefna Saltfisksetrið, sem við erum ákaflega stolt af, en safnið er opið frá 13 til 18 á laugardag. Í Grindavík eru líka afbragðsgóðir veitingastaðir, ágætis sundlaug og rómaður golf- völlur,“ segir Björn. „Þá er ekki langt að fara í Bláa lónið, eða jafnvel til Krísuvíkur eða Reykjanesvita sem gaman er að skoða.“ Fræðast má nánar um þjónustu í Grindavík á síðunni www.grindavik.is. Þórkötlustaðarétt má finna með því að aka inn í Grindavík og beygja við verslunarmiðstöðina í átt til Krísuvík- ur. Er réttin um tvo km utan við bæinn. Hátíð | Húllumhæ á laugardag þegar réttað verður í Grindavík Fjör í Þórkötlustaðarétt  Björn Haralds- son fæddist í Reykjavík 1943. Hann lærði hús- gagnasmíði og nam við Harry Luneberg School of Seamanship í Bandaríkjunum. Björn starfaði sem smiður, og á árunum 1965-1970 sem sjómaður og sigldi mest á Kyrrahafs- svæðinu. Frá árinu 1970 hefur Björn rekið verslunina Báruna í Grindavík en hann var einnig meðhjálpari við Grindavíkurkirkju í áratug. Í vor var Björn kosinn í bæjarstjórn Grindavík- ur sem fulltrúi Frjálslyndra. Björn er kvæntur Guðnýju Hallgrímsdóttur verslunarmanni og eiga þau fjögur börn og átta barnabörn. Tónlist Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Eyjaskeggjar. Hlíf Sigurjónsdóttir fiðla og Julia MacLaine selló. Sónata fyrir fiðlu og selló eftir Maurice Ravel, Boat People – nýtt verk eftir bandaríska tón- skáldið James Blachly. Frumflutt verður „GRÍMA“, dúó fyrir fiðlu og selló eftir Jónas Tómasson. Skálholtskirkja | Kl. 20. Kamm- erkór Háskólans í Varsjá, Collegi- um Musicum, mun flytja allt frá kantötum barokktímans yfir í nú- tímaleg örverk. Andrzej Borzym stjórnar kórnum sem er bland- aður og skipaður 27 reyndum söngvurum. Frístundir og námskeið Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Uno-spil í kvöld í Hátúni 12. Allir velkomnir. Fellibylurinn Felix gerði mik- inn usla í Hond- úras. Á myndinni má sjá stúlku stíga upp á pall- bíl sem flytur íbúa frá miklu flóðasvæði í út- jaðri San Pedro Sula, bæjar í norðausturhluta landsins. Flóð í Hond- úras AP FRÉTTIR EURES, evrópsk vinnumiðlun sem rekin er á vegum Vinnumála- stofnunar stendur fyrir kynningu á náms- og starfstækifærum er- lendis í Ráðhúsi Reykjavíkur á morgun, 12. september, kl. 12-18. Kynningin er hluti af samevrópsku verkefni; European Job Days 2007, með yfir 500 viðburðum víðsvegar í Evrópu. Tilgangurinn er að vekja athygli á þeim fjölbreyttu möguleikum sem í boði eru á sameig- inlegum vinnumarkaði Evrópska efnahagssvæðisins og skapa vett- vang þar sem hægt er að fræðast um og fá ráðgjöf um flest það sem viðkemur námi og störfum erlendis. EURES ráðgjafar frá Spáni, Danmörku, Noregi, Frakklandi, Bretlandi, Þýskalandi og Svíþjóð munu kynna atvinnutækifæri í sín- um löndum og vera til ráðgjafar. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins kynnir nám erlendis, tækifæri til starfsþjálfunar á vegum Leonardo verða kynnt, Norræna félagið leiðbeinir um flutninga milli Norðurlandanna, Nordjobb, skiptinema- samtökin AFS og fleiri aðilar kynna starfsemi sína. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Störf og nám erlendis FÉLAG íslenskra flugmanna (FÍA) sendi frá sér eftirfarandi yfirlýsingu á sunnudag vegna ágreinings um forgang flug- manna að störfum á flugvélar sem eru í eigu Icelandair Group. „Stjórnendur Icelandair Group bera fulla ábyrgð á þeim töfum sem geta orðið á flugi félagsins næstu daga. Félag íslenskra at- vinnuflugmanna hefur ítrekað reynt að ná samkomulagi við Ice- landair, án árangurs. Í ljósi þeirrar deilu sem nú stendur yfir á milli Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna og stjórnenda Icelandair Group, þykir forsvarsmönnum FÍA rétt að undirstrika eftirfarandi atriði: Undanfarna mánuði hafa for- svarsmenn FÍA reynt að ná sam- komulagi við stjórnendur Ice- landair Group í tengslum við forgangsréttarákvæði í kjara- samningum flugmanna við félag- ið. Deilan snýst fyrst og fremst um að á sama tíma og 49 íslensk- um flugmönnum hefur verið sagt upp störfum hjá Icelandair, not- færir móðurfyrirtækið sér leigu- flugmenn til þess að manna flug- vélar í rekstri á vegum fyrirtækisins. Með þessu fyrir- komulagi er gerð gróf aðför að réttindum íslensks launafólks og félagsmönnum FÍA, sem hafa lagt allt kapp á að styðja við bakið á Icelandair Group í sinni útrás undanfarin ár. Flugmenn gera engar óeðlileg- ar kröfur sem hindra útrás fé- lagsins. Deilan snýst um að Loft- leiðir náðu í leiguverkefni fyrir flugvélategund sem okkar menn hafa réttindi á. Í stað þess að flug- menn Icelandair manni það verk- efni, eins og önnur álíka, var tekin sú stefna að færa það lettnesku dótturfyrirtæki. Fordæmi eru fyrir að fé- lagsmenn FÍA gangi fyrir í stöð- ur hjá dótturfélögum Icelandair Group, áður Flugleiðum hf. Allt tal um að vísa málinu í félagsdóm er til þess eins að drepa því á dreif. Á sama tíma og Icelandair Gro- up kýs að hunsa gerða samninga vilja flugmenn félagsins eingöngu uppfylla gerða samninga í einu og öllu. FÍA harmar að þetta hafi valdið farþegum óþægindum en ítrekar að ábyrgðin hvílir öll á herðum stjórnenda Icelandair Group sem virðast stóla á að flug- menn mæti til vinnu í fríum og/ eða sumarleyfum. FÍA hefur ítrekað reynt að mæta árstíðasveiflum og rekstr- arbreytingum félagsins með miklum skilningi, en tilraunir til þess að fara á svig við gerða samninga verða ekki undir nein- um kringumstæðum liðnar. Þess- um skilaboðum hefur verið komið á framfæri við forsvarsmenn Ice- landair Group. Boltinn er hjá þeim.“ Yfirlýsing frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna Boltinn er hjá Icelandair Group NÁMSKEIÐ um MS-sjúkdóm- inn fyrir nýgreint fólk með MS (grein. frá 3 m. til 3 ár) verður haldið í húsi MS-félags Íslands á Sléttuvegi 5 í Reykjavík og hefst hinn 19. sept. kl. 17 næst- komandi. Fræðsluerindi flytja: tauga- sérfræðingur, félagsráðgjafi, iðjuþjálfi, hjúkrunarfræðingur og sjúkraþjálfari. Upplýsingar gefur Margrét félagsráðgjafi í s. 897-0923 eða Ingdís í s. 568- 8620. Námskeið fyrir ný- greint fólk með MS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.