Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 37

Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 37 Þær fregnir bárust um mán-aðamótin að látinn væri íDanmörku trompetleikarinn og djassfrömuðurinn Arnvid Meyer. Hann var enginn venjulegur djassgaur og þó var það hvorki trompetleikur hans né hljómsveit- arstjórn sem gerði hann svo ein- stakan í djassheiminum; heldur barátta hans fyrir framgangi þeirr- ar tónlistar sem var líf hans og yndi. Við Íslendingar höfum eign- ast okkar menningarvita sem hafa lyft grettistaki og fært listmenn- ingu landsins í hæðir: Ragnar í Smára og Kristinn E. Andrésson eru þekktastir, en meira átti djass- inn Jóni Múla að þakka. Þeir Arn- vid Meyer voru miklir mátar og störfuðu m.a. saman í NordJazz. Þar var Arnvid Meyer potturinn og pannan, eins og í þeim mörgu djass- verkefnum sem hann hafði jafnan á prjónunum, allt frá því að hann lagði trompetinn að mestu á hilluna eftir að hafa stjórnað hljómsveit sem státaði af einleikurum á borð við Roy Eldridge, Coleman Hawk- ins og Ben Webster.    Fyrir okkur Íslendinga var Arn-vid gullsjór reynslunnar. Hann kom aðeins einu sinni hingað mér vitandi. Það var árið 1995 er hann var gestur NordJazz á ráðstefnu þeirra hér og svo fyrstu djasshátíð- ar landsins: The Jazzvakning Ice- landair Festival, eins og sú hét af fjárhagsástæðum. Þá hitti hann, eins og oftar, sinn gamla vin Gunn- ar Ormslev. Það er ótrúlegt en satt, að varðveist hefur upptaka frá 1946, er hljóðrituð var í einhverri ,,radioforretning“ í Hellerup rétt áður en Ormslev fluttist til Íslands. Þar leika Meyer og Ormslev með félögum sínum í síðasta sinn. Hvort þeir léku saman aftur veit ég ekki, en mikið þótti Margréti, ekkju Gunnars, til Arnvids koma, en hann var jafnan kallaður Bamse í fjöl- skyldunni. Arnvid Meyer stofnaði Danskadjasssetrið 1991 og var það til húsa á heimili hans og konu hans Karenar í Rønnede á Sjálandi, þar til fúlir pólitískir vindar gerðu hon- um ókleift að halda menningarbar- áttu sinni áfram. Aldrei hef ég hitt magnaðri djasssafnara en Arnvid og vin hans Karl Emil Knudsen, en sjórvöld hafa aldrei sýnt áhuga á verðmæti aldanna fyrr en of seint. Þó er gæfunni svo fyrir að þakka að safn Meyers lendir hjá hinu „kon- unglega“ í Höfn.    Endalaust gæti ég hlaðið ArnvidMayer lofi, þótt ólíkt hafi ver- ið í glösum okkar, en eitt er eftir: Jazzpair-verðlaunin. Þau stofnaði Arnvid 1989. Þau voru veitt til árs- ina 2004 og voru þau verðlaun í djassheiminum sem voru mests virði fyrir verðlaunahafana: Vel á þriðja milljón í krónum, plötuút- gáfa og tónleikaferð. Þau voru hins vegar aðeins veitt þeim djassleik- urum sem ekki höfðu notið efna- hagslegrar velgengni og var það vel. Ég nefni aðeins nokkra: Muhal Richard Abrhams, Tommy Flanag- an og Roy Haynes – og svo hina norrænu Marlyn Mazur. Megi veröldin eignast sem flesta Arnvid Mayer. Kraftaverkamaður djassins »Hvort þeir léku sam-an aftur veit ég ekki, en mikið þótti Margréti, ekkju Gunnars, til Arn- vids koma, en hann var jafnan kallaður Bamse í fjölskyldunni. Viðtal Greinarhöfundur á spjalli við Arnvid Meyer. linnet@simnet.is AF LISTUM Vernharður Linnet LÍK Í ÓSKILUM Fös 14/9 kl. 20 Lau 15/9 kl. 20 Lau 22/9 kl. 20 Sun 23/9 kl. 20 LADDI 6-TUGUR Sun 16/9 kl. 20 upps. Fim 20/9 kl. 20 Fös 21/9 kl. 20 upps. Lau 29/9 kl. 20 SÖNGLEIKURINN ÁST Lau 15/9 kl. 20 Þri 18/9 kl. 14 Mið 19/9 kl. 14 Fim 20/9 kl. 14 BELGÍSKA KONGÓ Mið 12/9 kl. 20 Mið 19/9 kl. 20 Mið 26/9 kl. 20 SÖNGLEIKURINN GRETTIR Lau 15/9 kl. 20 Lau 22/9 kl. 20 KILLER JOE Fim 13/9 kl. 20 Fim 20/9 kl. 20 DAGUR VONAR Fim 13/9 kl. 20 Fös 14/9 kl. 20 HAUSTSÝNING Íd Sun 16/9 kl. 20 Lau 22/9 kl. 20 POUL KREBS Tónleikar fim 13/9 kl. 21 Miðaverð 3.200 HÖRÐUR TORFA Tónleikar fös 14/9 kl. 19:30 og 22:00 Miðasala 568 8000 - borgarleikhus.is Norrænarsagnir FIMMTUDAGINN 13. SEPTEMBER KL. 19.30 gul tónleikaröð í háskólabíói Hljómsveitarstjóri ::: Esa Heikkilä Einsöngvari ::: Ágúst Ólafsson Kór ::: Selkórinn Kórstjóri ::: Jón Karl Einarsson Rued Langgaard ::: Sinfónía nr. 5 Carl Nielsen ::: Sögudraumur Jón Þórarinsson ::: Völuspá Jean Sibelius ::: Tapiola 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.ISFyrsti konsert er frír Skráning og upplýsingar á www.sinfonia.is Bónus-vinningur 23 milljónir Alltaf á mi›vikudögum! 40 170 210 1. vinningur MILLJÓNIR Fá›u flér mi›a fyrir kl. 16 í morgun e›a taktu séns á a› missa af flessu ! firefaldur pottur milljónfaldur vinningur! E N N E M M / S ÍA / N M 2 9 6 2 6 Nú er komin upp sú sjaldgæfa staða að þú getur hugsanlega unnið þrefaldan pott í Víkingalottóinu og þar að auki allt að 23 milljónir í bónusvinning. Mundu að allt er þá þrennt er! firefaldur pottur 3 Strandgata 50, Hafnarfjörður Pantanasími 555 2222 og á www.midi.is Barnasýning ársins 2007 16. sept. sun. kl. 14 23. sept. sun. kl. 14 Aðeins örfáar sýningar! Skólavörðustíg 21, Reykjavík sími 551 4050 Glæsileg brúðarrúmföt í úrvali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.