Morgunblaðið - 11.09.2007, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 11. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Veðramót kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Knocked Up kl. 5 - 8 - 10:40 B.i. 14 ára
Knocked Up kl. 5 - 8 - 10:40 LÚXUS
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4 - 6
The Bourne Ultimatum kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
Rush Hour 3 kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
The Simpsons m/ensku tali kl. 4 - 6
The Simpsons m/ísl. tali kl. 4 - 6
Knocked Up kl. 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Disturbia kl. 8 B.i. 14 ára
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 5:45
The Bourne Ultimatum kl. 10:10 B.i. 14 ára
– Sími 564 0000 –Sími 462 3500
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
* Gildir á allar
sýningar í Regn-
boganum merktar
með rauðu
450
KRÓNUR
Í BÍÓ
*
Sími 551 9000
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20
Evening kl. 5:30 - 8
Brettin Upp m/ísl. tali kl. 6
The Simpsons m/ensku tali kl. 8 - 10
Dramatísk ástarsaga í anda Notebook
frá höfundi The Hours með úrvali stórleikara
Hennar mesta leyndarmál var hennar mesta náðargáfa.
Ef þér þykja mörgæsir krúttlegar og sætar...
þá þekkir þú ekki Cody!
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
CHRIS
TUCKER
JACKIE
CHAN
MATT DAMON ER
JASON BOURNE
eeeee
- LIB, TOPP5.IS
eeeee
- SV, MBL
MATT DAMON SNÝR AFTUR SEM LAUNMORÐINGINN ÓDREPANDI JASON BOURNE
Sýnd með íslensku og ensku tali
eeee
- A.M.G., SÉÐ OG HEYRT
eeee
- H.J., MBL
eeee
- Ó.H.T., RÁS 2
54.000
G
ESTIR
Away From Her kl. 5:30 B.i. 7 ára
Sicko ísl. texti kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára
Shortbus ísl. texti kl. 10:30 B.i. 18 ára
íslenskur te
xti
íslenskur te
xti
VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA SÝNDAR
ÁFRAM Í NOKKRA DAGA Í REGNBOGANUM
SICKO
FROM HER
AWAY
DAGSKRÁ OG MIÐASALA Á MIDI.IS
ALLAR UPPLÝSINGAR Á GRAENALJOSID.IS
SHORTBUS
BÝR RAÐMORÐINGI Í ÞÍNU HVERFI?
eeee
JIS, FILM.IS
Sagan sem
mátti ekki
segja.
eeee
„VÖNDUÐ OG GÓÐ ÍSLENSK
KVIKMYNDAGERГ
- VJV, TOPP5.IS
eeee
„VEÐRAMÓT RAÐAR SÉR UM-
SVIFALAUST Í ÞRÖNGAN HÓP
BESTU MYNDA OKKAR STUTTU
KVIKMYNDASÖGU.“
S.V. MBL
eeee
„ÞETTA ER MYND SEM
ALLIR VERÐA AÐ SJÁ!
BESTA ÍSLENSKA
MYNDIN SÍÐAN MEÐ
ALLT Á HREINU“
- S.G., RÁS 2
eeee
“VEÐRAMÓT ER HUG-
RÖKK ÁDEILA SÖGÐ MEÐ
HLÝJU OG HÚMOR SEM
HREYFIR VIÐ ÁHORFENDUM
FRÁ FYRSTU STUNDU.”
R.H.- FBL
eeee
- B.B., PANAMA.IS
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
Níunda Iceland Airwaves-tónlistarhá-tíðin verður haldin í Reykjavík dagana17. til 21. október næstkomandi, enmiðasala á hátíðina hefst á morgun.
Hátíðin í ár verður stærri en nokkru sinni fyrr,
en rúmlega 150 íslenskir og erlendir flytjendur
hafa staðfest komu sína, þótt enn eigi um 50 nöfn
eftir að bætast við þá tölu. Að
sögn Eldars Ástþórssonar,
skipuleggjanda hátíðarinnar,
eru þó öll stærstu nöfnin kom-
in í hús. „Við erum alltaf að
toppa okkur, og alltaf hefur
maður jafn miklar áhyggjur af
því hvernig maður eigi að fara
að því að toppa þetta á næsta
ári,“ segir Eldar í léttum dúr.
Hátíðin í ár fer fram á átta
stöðum í miðborginni; í Hafn-
arhúsinu, Iðnó, á NASA, Gauknum, Lídó við
Hallveigarstíg, Organ, Grand Rokk og Barnum.
Stór nöfn
Rúmlega 20 erlendar hljómsveitir munu koma
fram á Iceland Airwaves í ár og að sögn Eldars
eru margar forvitnilegar sveitir þar á meðal. „En
ef ég ætti að nefna þrjár sveitir myndi ég hik-
laust nefna Bloc Party, síðasta plata þeirra vakti
gríðarlega athygli og platan þar á undan ekki síð-
ur. Það er ein stærsta, ef ekki stærsta, sveitin á
hátíðinni. Svo er það önnur sveit sem er á gíf-
urlegri siglingu núna og heitir of Montreal. Það
er sveit sem gagnrýnendur byrjuðu að kveikja á
fyrir nokkrum árum og hefur verið virt hjá tón-
listarsérfræðingum, en í kjölfar síðustu plötu
þeirra hefur hún verið að springa út á tónleikum
auk þess sem margir hafa verið að uppgötva
sveitina. Loks má nefna sveit sem er kannski
ekki öllum kunnug. Hún heitir Chromeo og er
poppuð „80’s“ sveit sem hefur vakið þónokkra at-
hygli. Þetta eru þrjú bönd af fjölmörgum sem ég
held að séu á hvað stærstum kvarða alþjóðlega,“
segir Eldar.
Af íslensku sveitunum ber hvað hæst að múm
spilar á Airwaves í fyrsta skipti, þótt meðlimir
sveitarinnar hafi komið fram á hátíðinni í hinum
ina í tónlistarbransanum. En svo finnum við fyrir
síauknum áhuga erlendra fjölmiðla og starfs-
manna tónlistarbransans. Hátíðin virðist al-
gjörlega hafa fest sig í sessi sem fastur punktur
hjá þeim sem eru að vinna í bransanum.“
Þá segir Eldar að fyrir nokkrum árum hafi
þurft að kynna hátíðina fyrir þeim flytjendum
sem verið var að bóka, en það hafi aldeilis breyst.
„Í ár er þessu öfugt farið, núna þarf maður að
eyða fjölmörgum tímum á viku í að tala við sveitir
og útskýra fyrir þeim að það sé ekki pláss á há-
tíðinni. Við fengum rúmlega þúsund umsóknir frá
listamönnum erlendis frá, og þurftum að velja 30
til 40 af þeim,“ segir Eldar, og bætir við að um-
sóknir frá íslenskum flytjendum hafi einnig verið
fjölmargar, eða hátt í 300.
ýmsu myndum. „Það verður gríðarlega spenn-
andi að sjá þá með nýja plötu í farteskinu,“ segir
Eldar. „Svo er þónokkur spenna fyrir Jakobín-
arínu. Þeir eru að spila þriðja árið í röð, fyrst
spiluðu þeir á minnsta sviðinu á Grand Rokk, en í
fyrra á stærsta sviðinu í Hafnarhúsinu. Platan
þeirra var í bígerð í fyrra en hún verður ann-
aðhvort komin út eða alveg að koma út þegar þeir
spila á hátíðinni í ár. Svo tala margir um að Retro
Stefson geti orðið „spútnik“ bandið í ár, en það
gæti reyndar orðið erfitt að spá fyrir um „spútn-
ik“ sveitirnar í ár því rúmlega 30 íslenskir flytj-
endur munu koma fram á hátíðinni í fyrsta sinn.“
Yfir þúsund umsóknir
Að sögn Eldars eykst áhugi á hátíðinni erlend-
is frá með hverju árinu, en fjölmargir blaðamenn
hafa boðað komu sína til Reykjavíkur um miðjan
október. „Bæði verðum við varir við aukinn
áhuga þegar við förum sjálfir á hátíðir erlendis
og kynnum okkur hljómsveitir og fyrirkomulag
þar. Það er greinilega almenn vitneskja um hátíð-
Stærsta hátíðin hingað til
Miðasala á tónlistarhátíðina Iceland Airwaves 2007 hefst á morgun
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Fjöllyndi Patrick Watson spilaði þrisvar á Iceland Airwaves árið 2006.
Miðasala á Iceland Airwaves hefst á morgun og
fer fram á midi.is og í verslunum Skífunnar.
Miðaverð á hátíðina er 7.900 krónur.
www.icelandairwaves.com
Eldar Ástþórsson
Eftirtaldir aðilar hafa staðfest
komu sína á Airwaves:
Hljómsveitir:
!!! (chk chk chk) (Bandaríkin)
Annuals (Bandaríkin)
Best Fwends (Bandaríkin)
Bloc Party (Bretland)
Bonde do Role (Brasilía)
Boys in a Band (Færeyjar)
Chromeo (Kanada)
Computerclub (Bretland)
Cut Off Your Hands (Nýja-Sjáland)
Deerhoof (Bandaríkin)
Grizzly Bear (Bandaríkin)
Lali Puna (Þýskaland)
Late Of The Pier (Bretland)
Ms John Soda (Bandaríkin)
of Montreal (Bandaríkin)
Plants and Animals (Kanada)
Ra Ra Riot (Bandaríkin)
Slow Club (Bretland)
The Bronx (Bandaríkin)
The Duke Spirit (Bretland)
The Teenagers
(Frakkland/Bretland)
Tied & Tickled Trio (Þýskaland)
Einstaklingar:
Buck 65 (Kanada)
Jenny Wilson (Svíþjóð)
Khonnor (Bandaríkin)
Loney, Dear (Svíþjóð)
Mala & MC Sgt Pokes (Bretland)
Patrick Chardronnet (Þýskaland)
Trentemøller In Concert
(Danmörk)
Erlendir
flytjendur