Morgunblaðið - 30.09.2007, Síða 18
18 B SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Styrkur til listamanna
Með fyrirvara um að bæjarstjórn samþykki
framlag fyrir árið 2008, er Ryvarden-styrkurinn
auglýstur, að upphæð 20.000 norskar kr., sem
veittur er einum styrkþega. Styrkurinn er veit-
tur í tengslum við Galleri Ryvarden, Ryvarden-
vitann og styrkþeginn þarf að dvelja og vinna
í vitanum 4—6 vikur úthlutunarárið.
Í vitavarðarbústaðnum, sem er á landi, er
vinnustofa. Æskilegt er að styrkþeginn haldi
sýningu árið 2009 (í apríl). Nefndin áskilur sér
rétt að nota styrkinn á annan hátt til að stuðla
að framgangi listar í Ryvarden.
Nánari upplýsingar um Ryvarden og úthlut-
unarreglur er hægt að fá hjá Sveio-bæjar-
félaginu í síma 00 53 74 80 00.
www.ryvarden.no.
Um styrkinn geta sótt listmálarar, grafíklista-
menn og/eða teiknarar, sem eru meðlimir í
listamannasamtökum sem tengjast Norske
Billedkunstnere eða sambærilegum íslenskum
samtökum. Umsókn, ásamt verkaskrá og
ljósmyndum af 5 verkum á CD, skal senda
Sveio kommune, Postboks 40, 5559 Sveio,
Noregi, fyrir 1. nóvember 2007.
Umsóknir skal merkja: „Ryvarden-stipendet“.
Styrkir úr Þróunarsjóði
innflytjendamála 2007
Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um
styrki úr Þróunarsjóði innflytjendamála.
Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og
þróunarverkefni á sviði málefna innflytjenda
með það að markmiði að auðvelda innflytjend-
um aðlögun að íslensku samfélagi og gera
samfélaginu betur kleift að koma til móts við
þá. Lögð er áhersla á að verkefni séu í
samræmi við og í anda stefnu ríkisstjórnarinnar
um aðlögun innflytjenda.
Styrkir munu almennt veittir félögum, sam-
tökum og opinberum aðilum. Einstaklingum
verða að jafnaði einungis veittir styrkir til
rannsókna. Til ráðstöfnunar eru 10 m. kr.
Styrkir geta numið allt að helmingi heildar-
kostnaðar við verkefni.
Umsóknarfrestur er til 22. október 2007. Sótt
skal um styrk á sérstök umsóknareyðublöð sem
eru á heimasíðu félagsmálaráðuneytis
http://www.felagsmalaraduneyti.is/
Þar er einnig að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í
málefnum innflytjenda og reglur Þróunarsjóðs
innflytjendamála með nánari upplýsingum um
skilyrði styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við
meðferð umsókna.
Nánari upplýsingar fást í félagsmálaráðuneyti í
síma 545 8100 og hjá
ingibjorg.broddadottir@fel.stjr.is
Sjóðurinn Blind börn á Íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna á Íslandi allt að 18 ára aldri.
Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á fyrsta vetrardag sem er 27.október næstkomandi. Umsóknir um styrki
þurfa að hafa borist eigi síðar en 15.október 2007
Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17. Þær skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaðaráætlun
vegna þess sem sótt er um.
Náms- og rannsóknarstyrkur
Vísinda- og rannsóknarsjóður Fræðslunets
Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um náms- og
rannsóknarstyrk úr sjóðnum árið 2007.
Styrkurinn nemur 750.000 krónum.
Styrkurinn er ætlaður námsfólki sem vinnur að
rannsóknarverkefni til lokaprófs, bakkalárgráðu
(BA/BS), sambærilegrar eða hærri gráðu. Verkefni,
sem er lokið þegar umsóknarfrestur rennur út,
telst ekki styrkhæft. Stjórn Fræðslunets Suðurlands
áskilur sér rétt til að leita eftir vott-orði umsjónar-
manns um að verkefni sé ólokið.
Skilyrði fyrir styrkveitingu er að finna í starfs-
reglum sjóðsins sem birtar eru í heild á heimasíðu
Fræðslunets Suðurlands,
http://fraedslunet.googlepages.com, en þar kemur
m.a. fram að rannsóknarverkefnið skuli tengjast
Suðurlandi og þjóni ótvíræðum atvinnu- og/eða
fræðilegum tilgangi fyrir Suðurland eða hluta
Suðurlands.
Umsóknir um styrk ásamt ítarlegri verklýsingu
og verkáætlun (sjá 5. gr. starfsreglna) póst-
leggist til Fræðslunets Suðurlands,
Tryggvagötu 25, pósthólf 130, 802 Selfoss,
í síðasta lagi 3. nóv. 2006.
Nánari upplýsingar veitir Ásmundur Sverrir Pálsson,
framkvæmdastjóri Fræðslunets Suðurlands, í síma
480 8155.
KÓPAVOGSBÆR
www.kopavogur.is
Menningarstarf
í Kópavogi
• Lista- og menningarráð Kópavogs aug-
lýsir eftir umsóknum um styrki til verk-
efna /viðburða á sviði menningar og lista
í Kópavogi.
Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir
geta sótt um styrki úr sjóðnum.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum fyrir 15. október nk.,
ásamt fylgiskjölum.
Eyðublöðin fást á skrifstofu Tómstunda- og
menningarsviðs Fannborg 2, 2. hæð og á
heimasíðu Kópavogs, www.kopavogur.is
Lista- og menningaráð Kópavogs veitir
styrki til menningarstarfs
í Kópavogi
tvisvar á ári,
í október og apríl.
Styrkir
LAUNAKOSTNAÐUR á Íslandi er hærri en í öllum evru-
ríkjunum þegar horft er til almenna vinnumarkaðarins.
Munurinn mælist 30% á 2. ársfjórðungi 2007 en árið 2004
var munurinn 13%. Launakostnaður á Íslandi hefur hækkað
um 26,1% í evrum reiknað á þessu tímabili samanborið við
9,9% hækkun í evruríkjunum. Launakostnaður hefur því
hækkað tæplega 15% meira á Íslandi en í evruríkjunum.
Mestu munar í byggingarstarfsemi þar sem launakostnaður
er 66% hærri á Íslandi en þar á eftir koma samgöngur með
29% hærri kostnað. Þetta kemur fram í nýrri greinargerð
SA um launakostnað, sem birt var á vefsíðu samtakanna fyr-
ir helgi.
Íslenska leiðin
Frá árinu 2004 hafa laun hækkað mikið á Íslandi og mun
meira en í löndum innan Evrópusambandsins, hvort sem
hækkanir eru bornar saman við Evrópusambandið í heild
eða evruríkin. Fyrr á þessu ári birti Hagstofa Íslands al-
þjóðlegan samanburð á heildarlaunakostnaði árið 2004 (e.
Labour Cost Survey) á almennum markaði. Samanburður
þessi er gerður á fjögurra ára fresti af Hagstofu Evrópu-
sambandsins (Eurostat). Helstu niðurstöður hvað Ísland
varðar voru þær að í þeim atvinnugreinum sem könnunin
náði til var launakostnaður á Íslandi í öllum tilvikum hærri
en að meðaltali í ESB ríkjunum 27 og einnig hærri en að
meðaltali í ríkjunum sem nota evru í þremur atvinnugrein-
um af fjórum. Hvað Ísland varðar nær könnunin til fjögurra
atvinnugreina, þ.e. iðnaðar, byggingarstarfsemi, verslunar
og samgangna.
Framreikningur launakostnaðar
Frá árinu 2004 til 2. ársfjórðungs 2007 hefur vísitala
launakostnaðar hækkað um 24,3% á Íslandi. Á 2. ársfjórð-
ungi 2007 var gengi krónunnar 1,4% hærra gagnvart evru
en að meðaltali árið 2004 þannig að í evrum reiknað hækkaði
heildarlaunakostnaður á Íslandi um 26,1% að jafnaði á þessu
tímabili. Til samanburðar hækkaði heildarlaunakostnaður
um 9,9% að meðaltali í evruríkjunum á sama tímabili.
Launakostnaður hækkaði þar af leiðandi um tæplega 15%
meira á Íslandi en í evruríkjunum.
Heildarlaunakostnaður 30% hærri á Íslandi
Framreikningur niðurstaðna ársins 2004 fram til 2. árs-
fjórðungs 2007 leiðir í ljós að heildarlaunakostnaður á Ís-
landi í atvinnugreinunum fjórum er orðinn mun hærri en að
meðaltali í evruríkjunum. Mestu munar í byggingarstarfsemi
þar sem launakostnaður er 66% hærri, þar á eftir koma
samgöngur með 29% hærri kostnað, þá verslun með 26%
hærri kostnað og loks kemur iðnaður með 13% hærri kostn-
að en í evruríkjunum.
Ísland í efstu sætum í öllum atvinnugreinum
Framreikningur könnunar Hagstofunnar og Eurostat til 2.
ársfjórðungs 2007 á vegnu meðaltali heildarlaunakostnaðar á
klukkustund í atvinnugreinunum fjórum í evruríkjunum 13
auk Bretlands, Danmerkur, Svíþjóðar og Íslands leiðir í ljós
að launakostnaður er hærri á Íslandi en í öllum evruríkj-
unum, en hann er einungis hærri í Danmörku þegar litið er
til allra landanna í samanburðinum. Launakostnaður er 32,6
evrur á klukkustund á Íslandi en 33,6 evrur í Danmörku.
Hæstur launakostnaður í evruríkjunum er í Hollandi en
launakostnaður í flestum evruríkjum er á bilinu 25-30 evrur.
Lægstur launakostnaður er í Portúgal og Slóveníu, 10 og 11
evrur.
Morgunblaðið/Golli
Greinargerð SA hafa gert greinargerð um launakostnað.
Launakostnaður
30% hærri á Íslandi
en á evrusvæðinu
Morgunblaðið/Þorkell
Launahækkun Frá árinu 2004 hafa laun hækkað mun meira á
Íslandi en í löndum innan Evrópusambandsins.