Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 57

Morgunblaðið - 13.10.2007, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 57 Til hvers að fara í bíó? Þessispurning hefur gerst æ há-værari undanfarin ár í kjöl- far heimabíóa, niðurhals og dvd- diska og þeir svartsýnustu telja að bíóferðir verði fljótlega aðeins áhugamál fáeinna sérvitringa með fortíðarþrá. En myndgæðin, hljóm- burðurinn og stærð tjaldsins hefur aldrei verið hin raunverulega ástæða þess að við förum í bíó. Ástæðan er fyrst og fremst myrkra- salurinn, þessi einkennilega athöfn að sitja í myrkrasal þar sem við get- um notið listar með tugum, hundr- uðum og jafnvel þúsundum annarra gesta, flestra ókunnugra. Stundum finnum við vissulega einhverja ein- kennilega samkennd í salnum og það kemur fyrir að líflegar umræð- ur kvikni eftir myndina. En oftast göngum við þó út úr bíóinu með okkar eigin upplifun og í mesta lagi óljósan grun um upplifun ókunnuga fólksins sem deildi stundinni með okkur. En það kemur þó fyrir að okkar eigin upplifun af bíómynd hverfur algjörlega í skuggann af upplifun fólksins í kringum okkur.    Þetta hefur tvisvar komið fyrirmig. Seinna skiptið var undir lok nýliðinnar kvikmyndahátíðar. Myndin sem við vorum komin til að sjá var danska fjölskyldudramað Listin að gráta í kór (Kunsten at græde i kor). Strax á fyrstu mín- útum myndarinnar sakar Asger, elsti sonurinn sem fluttur er að heiman, heimilisföðurinn um að sofa með sinni eigin dóttur. Fað- irinn hefur þann sið að gráta mikið og nær með því að sannfæra aðra fjölskyldumeðlimi að hann sé á barmi sjálfsmorðs – og fær þannig dótturina til þess að „hugga“ sig. Allan, yngsti sonurinn, reynir allt til þess að verja föðurinn og á tíma- bili virðist pabbinn ætla að arfleiða soninn að skrímslinu sem býr í hon- um. En framan af myndinni hló stór hluti salarins reglulega hástöfum, einn sessunautur minn sýnu mest, það virtist þurfa afskaplega lítið af föðurnum vafasama og syninum trygga til þess að kæta hann. Sifja- spellið var alltumlykjandi í mínum huga en það virtust allir aðrir vera búnir að gleyma því – og miðað við stikkprufu af dómum og bloggi um myndina að dæma virtist raunin einmitt sú að margir töldu að sifja- spellið kæmi ekki í ljós fyrr en um miðja mynd. Einhvern veginn virt- ist myndin ná að skapa sömu blekk- ingu og raunverulegir barnaníð- ingar ná iðulega að skapa; hann er jú alltof góður kall innst inni við beinið til þess að gera svona nokk- uð, hvernig gæti nokkrum dottið önnur eins vitleysa í hug? En síðan fór sannleikurinn að koma í ljós á nýjan leik um miðja mynd og nú með mjög afgerandi hætti. Og nú var áðurnefndur sessunautur minn að mestu hættur að horfa. Hann ríghélt báðum höndum fast fyrir vit sér og gott ef hann skalf ekki lítillega. Þegar myndinni lauk var hann svo ösku- grár í framan og sjaldan hefur þögn nokkurrar manneskju verið jafn æpandi.    Fyrra dæmið var á hinumástríðufulla vestra Brokeback Mountain. Tveir unglingspiltar á bak við mig virtust hafa mætt til þess að horfa á byssuleiki og voru ekki alveg tilbúnir að takast á við ástríðufullt samband tveggja karl- manna. Þessu brugðust þeir við með því að hlæja á öllum viðkvæm- ustu augnablikunum, öllum þessum dramatísku hápunktum þar sem þeir þurftu að horfast í augu við að þeir, töffararnir, hefðu rambað inn á hommamynd. Hláturinn átti að vera mannalegur en var auðvitað fyrst og fremst óöryggishlátur þeirra sem vissu ekki hvernig ætti að haga sér. En þetta hugsaði ég eftir á, meðan á þessu stóð var ég fyrst og fremst pirraður á því að þeir væru að eyðileggja myndina fyrir mér. Síðan taka þeir enn eina rokuna alveg undir lok mynd- arinnar í aldramatískasta atriðinu og þá var ég búinn að fá nóg og er um það bil að fara að snúa mér við til þess að biðja þá að gjöra svo vel að steinhalda kjafti. En áður en ég næ að snúa mér við tek ég eftir því að hljóðið hefur breyst. Þar sem áð- ur hafði verið hlátur eru núna há- vær ekkasog og samkennd þeirra með kúrekunum ástföngnu miklu fölskvalausari en mín.    Ég veit vitaskuld ekkert umþessa þrjá pilta. Ég veit ekk- ert hvaðan þeir eru eða hvaðan hlátur þeirra og grátur spratt. Ég veit ekki hvort hlátur sessunautar míns á dönsku myndinni spratt af afneitun eða sjálfsvörn, ég veit ekki hvernig sambandi piltanna bak við mig var háttað eða hvað þeir vissu um ástina. En þrátt fyrir það gáfu bíóferðirnar mér þó örlitla innsýn í líf fólks sem ég á sjálfsagt aldrei eftir að tala við – og er það ekki það sem list snýst venjulega um þegar öllu er á botninn hvolft? Listin að hlæja í kór AF LISTUM Ásgeir H. Ingólfsson » Þeir þurftu að horf-ast í augu við að þeir, töffararnir, hefðu ramb- að inn á hommamynd. Reuters Hryggbrotsfjall Ætli þessir ástföngnu kúrekar hafi verið duglegir að mæta á kvikmyndahátíð? asgeirhi@mbl.is LEIKKONAN Kim Cattrall er öfundsjúk út í persónu sína í Sex and the City. Cattrall, sem fer með hlutverk Samönthu Jones, óskar þess stundum að hún væri elskuð jafnmikið af aðdáendum þáttanna og Sam- antha. Cattrall sagði í viðtali við Glamour-tímaritið: „Fólk er alltaf að reyna að bóka mig sem Sam- önthu – trúir þú því? Ég vil segja við það: Ég er ekki Samantha og ég vil ekki vera hún þótt mér finnist hún frábær. Hefur enginn áhuga á því að kynnast mér í eigin persónu? Ég er stundum öfundsjúk út í Samönthu því mér finnst ég vera jafnáhugaverð og hún og ef ég fengi tækifæri þá kæmist fólk að því.“ Hin fimmtuga leikkona óskar þess líka að hún hefði orðaforða Samönthu sem þótti oft á tíðum ansi skrautlegur í sjónvarpsþáttunum. „Ég er ekki Samantha“ LAUGARDAGINN 13. OKT HERÐUBREIÐ SEYÐISFIRÐI Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 Miðaverð 2000 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.