Morgunblaðið - 13.10.2007, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2007 57
Til hvers að fara í bíó? Þessispurning hefur gerst æ há-værari undanfarin ár í kjöl-
far heimabíóa, niðurhals og dvd-
diska og þeir svartsýnustu telja að
bíóferðir verði fljótlega aðeins
áhugamál fáeinna sérvitringa með
fortíðarþrá. En myndgæðin, hljóm-
burðurinn og stærð tjaldsins hefur
aldrei verið hin raunverulega
ástæða þess að við förum í bíó.
Ástæðan er fyrst og fremst myrkra-
salurinn, þessi einkennilega athöfn
að sitja í myrkrasal þar sem við get-
um notið listar með tugum, hundr-
uðum og jafnvel þúsundum annarra
gesta, flestra ókunnugra. Stundum
finnum við vissulega einhverja ein-
kennilega samkennd í salnum og
það kemur fyrir að líflegar umræð-
ur kvikni eftir myndina. En oftast
göngum við þó út úr bíóinu með
okkar eigin upplifun og í mesta lagi
óljósan grun um upplifun ókunnuga
fólksins sem deildi stundinni með
okkur. En það kemur þó fyrir að
okkar eigin upplifun af bíómynd
hverfur algjörlega í skuggann af
upplifun fólksins í kringum okkur.
Þetta hefur tvisvar komið fyrirmig. Seinna skiptið var undir
lok nýliðinnar kvikmyndahátíðar.
Myndin sem við vorum komin til að
sjá var danska fjölskyldudramað
Listin að gráta í kór (Kunsten at
græde i kor). Strax á fyrstu mín-
útum myndarinnar sakar Asger,
elsti sonurinn sem fluttur er að
heiman, heimilisföðurinn um að
sofa með sinni eigin dóttur. Fað-
irinn hefur þann sið að gráta mikið
og nær með því að sannfæra aðra
fjölskyldumeðlimi að hann sé á
barmi sjálfsmorðs – og fær þannig
dótturina til þess að „hugga“ sig.
Allan, yngsti sonurinn, reynir allt
til þess að verja föðurinn og á tíma-
bili virðist pabbinn ætla að arfleiða
soninn að skrímslinu sem býr í hon-
um. En framan af myndinni hló stór
hluti salarins reglulega hástöfum,
einn sessunautur minn sýnu mest,
það virtist þurfa afskaplega lítið af
föðurnum vafasama og syninum
trygga til þess að kæta hann. Sifja-
spellið var alltumlykjandi í mínum
huga en það virtust allir aðrir vera
búnir að gleyma því – og miðað við
stikkprufu af dómum og bloggi um
myndina að dæma virtist raunin
einmitt sú að margir töldu að sifja-
spellið kæmi ekki í ljós fyrr en um
miðja mynd. Einhvern veginn virt-
ist myndin ná að skapa sömu blekk-
ingu og raunverulegir barnaníð-
ingar ná iðulega að skapa; hann er
jú alltof góður kall innst inni við
beinið til þess að gera svona nokk-
uð, hvernig gæti nokkrum dottið
önnur eins vitleysa í hug?
En síðan fór sannleikurinn að
koma í ljós á nýjan leik um miðja
mynd og nú með mjög afgerandi
hætti. Og nú var áðurnefndur
sessunautur minn að mestu hættur
að horfa. Hann ríghélt báðum
höndum fast fyrir vit sér og gott ef
hann skalf ekki lítillega. Þegar
myndinni lauk var hann svo ösku-
grár í framan og sjaldan hefur
þögn nokkurrar manneskju verið
jafn æpandi.
Fyrra dæmið var á hinumástríðufulla vestra Brokeback
Mountain. Tveir unglingspiltar á
bak við mig virtust hafa mætt til
þess að horfa á byssuleiki og voru
ekki alveg tilbúnir að takast á við
ástríðufullt samband tveggja karl-
manna. Þessu brugðust þeir við
með því að hlæja á öllum viðkvæm-
ustu augnablikunum, öllum þessum
dramatísku hápunktum þar sem
þeir þurftu að horfast í augu við að
þeir, töffararnir, hefðu rambað inn
á hommamynd. Hláturinn átti að
vera mannalegur en var auðvitað
fyrst og fremst óöryggishlátur
þeirra sem vissu ekki hvernig ætti
að haga sér. En þetta hugsaði ég
eftir á, meðan á þessu stóð var ég
fyrst og fremst pirraður á því að
þeir væru að eyðileggja myndina
fyrir mér. Síðan taka þeir enn eina
rokuna alveg undir lok mynd-
arinnar í aldramatískasta atriðinu
og þá var ég búinn að fá nóg og er
um það bil að fara að snúa mér við
til þess að biðja þá að gjöra svo vel
að steinhalda kjafti. En áður en ég
næ að snúa mér við tek ég eftir því
að hljóðið hefur breyst. Þar sem áð-
ur hafði verið hlátur eru núna há-
vær ekkasog og samkennd þeirra
með kúrekunum ástföngnu miklu
fölskvalausari en mín.
Ég veit vitaskuld ekkert umþessa þrjá pilta. Ég veit ekk-
ert hvaðan þeir eru eða hvaðan
hlátur þeirra og grátur spratt. Ég
veit ekki hvort hlátur sessunautar
míns á dönsku myndinni spratt af
afneitun eða sjálfsvörn, ég veit ekki
hvernig sambandi piltanna bak við
mig var háttað eða hvað þeir vissu
um ástina. En þrátt fyrir það gáfu
bíóferðirnar mér þó örlitla innsýn í
líf fólks sem ég á sjálfsagt aldrei
eftir að tala við – og er það ekki það
sem list snýst venjulega um þegar
öllu er á botninn hvolft?
Listin að hlæja í kór
AF LISTUM
Ásgeir H. Ingólfsson
» Þeir þurftu að horf-ast í augu við að þeir,
töffararnir, hefðu ramb-
að inn á hommamynd.
Reuters
Hryggbrotsfjall Ætli þessir ástföngnu kúrekar hafi verið duglegir að mæta á kvikmyndahátíð?
asgeirhi@mbl.is
LEIKKONAN Kim Cattrall er öfundsjúk út í
persónu sína í Sex and the City.
Cattrall, sem fer með hlutverk Samönthu
Jones, óskar þess stundum að hún væri elskuð
jafnmikið af aðdáendum þáttanna og Sam-
antha.
Cattrall sagði í viðtali við Glamour-tímaritið:
„Fólk er alltaf að reyna að bóka mig sem Sam-
önthu – trúir þú því? Ég vil segja við það: Ég
er ekki Samantha og ég vil ekki vera hún þótt
mér finnist hún frábær. Hefur enginn áhuga á
því að kynnast mér í eigin persónu? Ég er
stundum öfundsjúk út í Samönthu því mér
finnst ég vera jafnáhugaverð og hún og ef ég
fengi tækifæri þá kæmist fólk að því.“
Hin fimmtuga leikkona óskar þess líka að
hún hefði orðaforða Samönthu sem þótti oft á
tíðum ansi skrautlegur í sjónvarpsþáttunum.
„Ég er ekki
Samantha“
LAUGARDAGINN 13. OKT
HERÐUBREIÐ
SEYÐISFIRÐI
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00
Miðaverð 2000 kr.