Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
„Á MEÐAN ég hef ekki tækifæri til
að gæta barna minna á daginn og er
að borga leikskólanum fyrir gæslu
þeirra, þá tel ég það mjög áleitna
spurningu hvort leikskólasvið
Reykjavíkur þurfi ekki að vera
tryggt fyrir uppákomum á gæslu-
tímanum.“ Þetta segir Ásta Jóns-
dóttir, móðir sex ára drengs sem í
óvitaskap skemmdi bíla á bílastæði
við leikskóla sinn í vor með því að
henda grjóti í þá. Eftir atvikið stóð
móðirin frammi fyrir því að borga
tjónið sjálft eða kæra starfsmenn
fyrir vanrækslu, nokkuð sem hún
vildi ekki, enda ekki við starfsfólkið
að sakast, heldur fyrirkomulag af
hálfu Reykjavíkurborgar.
Málið hefur nú farið fyrir tjóna-
nefnd og úrskurðarnefnd trygginga-
félaga og á báðum stöðum var nið-
urstaðan sú að Leikskólasvið
Reykjavíkur bæri ekki ábyrgð á
tjóni drengsins. Tjónið mun hafa
verið um 200 þúsund krónur og þarf
að fara í gegnum tryggingafélag
Ástu. Það er þó ekki fjárhæðin sem
skiptir máli að sögn hennar heldur
sú staða sem málið í heild end-
urspeglar.
„Fjölmargir hafa talað við mig um
þetta mál og fólk á vægast sagt bágt
með að trúa því að börn þeirra séu
ekki á ábyrgð leikskólans,“ segir
hún. „Foreldrar standa í þeirri trú
að börnin þeirra séu í öruggum
höndum á dagvistartíma, ekki bara
faglega, heldur líka í þeim tilvikum
þar sem eitthvað kemur upp á. Eins
og ég taldi eðlilegt og vildi láta reyna
á, fannst mér að gæsluaðilinn væri
ábyrgur, úr því að hann tekur
greiðslu fyrir gæsluna. En þetta
sjónarmið hefur sýnilega engan
hljómgrunn fengið. Hjá Reykjavík-
urborg fékk ég þau svör að foreldrar
væru endanlega ábyrgir, en á sama
tíma fékk ég ábendingu frá lögfræð-
ingi sem ég þekki um að foreldrar
væru ekki ábyrgir nema sýnt væri
fram á vanrækslu þeirra.
Að mínu mati snýst þetta mál um
þörfina fyrir að tryggja leik-
skólabörn rétt eins og flestir at-
vinnurekendur tryggja starfsmenn.“
Situr uppi með tjón barnsins
Foreldri ábyrgt
fyrir tjóni sem varð
á leikskólatíma
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tjón Ásta segir þörf á að tryggja börn fyrir tjóni á leikskólatíma, enda úti-
lokað fyrir foreldra fjarri í vinnu að vera á tveim stöðum í einu.
EITT AF haustverkunum hjá umsjónarmönnum í Ráð-
húsi Reykjavíkur er að hreinsa lauf sem safnast fyrir í
litlu tjörninni við Ráðhúsið. Þetta verður gert í dag, en
tjörnin er ekkert augnayndi eins og hún leit út í gær.
Margir húseigendur hafa undanfarna daga unnið að
því að hreinsa lauf úr þakrennum, en það er nauðsyn-
legt ef rennsli af þökum á að vera eðlilegt. Fullar þak-
rennur geta líka skapað hættuleg grýlukerti.
Morgunblaðið/Ómar
Ráðhústjörnin verður hrein og fín
EIRÍKUR Jónsson, blaðamaður á
tímaritinu Séð og heyrt, hefur með
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur ver-
ið dæmdur til að greiða Þóru Guð-
mundsdóttur, sem gjarna er kennd
við Atlanta, 500.000 krónur í miska-
bætur fyrir ærumeiðandi ummæli
um hana í blaðagrein.
Um var að ræða ummæli sem birt-
ust í Séð og heyrt fyrir rúmu ári þar
sem m.a. var haft eftir viðmælanda
blaðsins, sem seldi Þóru einbýlishús,
að hún hlyti að vera orðin blönk þar
sem hún hefði ekki greitt krónu í því.
Þá dæmdi dómurinn ýmis ummæli
í umfjöllun blaðsins dauð og ómerk,
enda væru þau tilhæfulaus, æru-
meiðandi og óviðurkvæmileg í því
samhengi sem þau voru sett fram í.
Þar sem Eiríkur nafngreindi sig sem
höfund greinarinnar var hann talinn
bera ábyrgð á efni hennar sam-
kvæmt ákvæðum laga um prentrétt.
Þóra krafðist jafnframt miskabóta
úr hendi Mikaels Torfasonar, fyrr-
um ritstjóra blaðsins og viðmælanda
Eiríks, en þeir voru sýknaðir.
Ummælin
talin æru-
meiðandi
SIGURÐUR Lín-
dal, prófessor
emeritus, hefur
verið ráðinn
prófessor við
lagadeild Há-
skólans á Bif-
röst frá 1. nóv-
ember 2007.
Sigurður mun
kenna rétt-
arsögu og þætti í stjórnskip-
unarrétti, réttarheimspeki og
lagahugsun auk almennrar lög-
fræði og sinna rannsóknum við
skólann. Í fréttatilkynningu kem-
ur m.a. fram að Sigurður hafi
verið fremsti kennari í lögfræði
hérlendis um áratuga skeið og
kennt við Háskólann á Bifröst við
frábæran orðstír.
Ráðinn
að Bifröst
Sigurður Líndal
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur úrskurðað tvær ungar stúlkur
í gæsluvarðhald vegna fíkniefna-
máls sem komst upp í Leifsstöð á
mánudagskvöld. Stúlkurnar eru
báðar yngri en 18 ára að sögn
lögreglunnar á Suðurnesjum sem
er með málið til rannsóknar. Ekki
er upplýst að svo stöddu hve mik-
ið af fíkniefnum var tekið af
þeim, eða hvaða tegund var um
að ræða. Önnur stúlkan var sett í
tveggja vikna gæslu en hin í
þriggja daga.
Teknar með
fíkniefni
í Leifsstöð
STJÓRN
Bændasamtaka
Íslands hefur
ráðið Eirík
Blöndal sem
framkvæmda-
stjóra samtak-
anna frá og með
1. janúar. Eirík-
ur tekur við af
Sigurgeiri Þor-
geirssyni, verðandi ráðuneyt-
isstjóra.
Eiríkur hefur gegnt starfi fram-
kvæmdastjóra Búnaðarsamtaka
Vesturlands frá árinu 2001. Hann
lauk verkfræðinámi frá Landbún-
aðarháskólanum í Ási árið 1996.
Eiríkur fæddist árið 1970, býr á
Jaðri í Bæjarsveit, kvæntur Sig-
urbjörgu Ósk Áskelsdóttur lands-
lagsarkitekt og eiga þau tvö börn.
Sigurbjörg rekur ráðgjafarfyr-
irtækið Landlínur í Borgarnesi
sem er í eigu þeirra hjóna.
Eiríkur tekur
við stjórn BÍ
Eiríkur Blöndal
ÍSLAND hefur tekið upp reglu-
gerð Evrópusambandsins um með-
ferð og öryggi matvæla, auk reglu-
gerða tengdra þessari. Áætlað er
að gildistaka reglugerða er varða
matvælasvið UST og heilbrigð-
iseftirlit sveitarfélaga verði næsta
vor.
Grunnmarkmið reglugerð-
arinnar er að vernda líf og heilsu
manna og tryggja jafnframt frjálst
flæði vöru á EES-svæðinu. Ein
meginbreytingin sem varð í kjölfar
útgáfu reglugerðarinnar er stofn-
un Matvælaöryggisstofnunar Evr-
ópu. Annar meginþáttur er sú
áhersla sem lögð er á rekjanleika í
matvælaframleiðslu, allt frá frum-
framleiðslu að munni neytenda.
Í reglugerð um heilbrigðiskröfur
við framleiðslu og dreifingu mat-
væla eru reglur sem rekstraraðilar
matvælafyrirtækja skulu fylgja
varðandi hollustuhætti. Í reglu-
gerð um opinbert eftirlit með mat-
vælum og fóðri er markmiðið að
auka neytendavernd.
Reglur um með-
ferð matvæla
SIGURÐUR Þorkell
Guðmundsson læknir
lést í gær, 31. október.
Hann fæddist 25.
júní árið 1930, sonur
Guðmundar Sigurðs-
sonar bókara í Út-
vegsbankanum og
Helgu Kristjánsdóttur
húsfreyju.
Sigurður lauk cand.
mag. prófi frá lækna-
deild Háskóla Íslands
árið 1957 og lauk sér-
fræðinámi í hormóna-
og efnaskiptasjúkdóm-
um árið 1965 í Banda-
ríkjunum. Sigurður starfaði við
sérgrein sína á ýmsum spítölum í
Bandaríkjunum þar til hann hóf
störf á Landspítalanum árið 1964
en þar starfaði hann til ársins
2000. Sigurður rak eigin stofu frá
árinu 1965 auk þess sem hann
kenndi við læknadeild Háskóla Ís-
lands og við hjúkrunarfræði- og
tannlæknadeild. Sigurður gegndi
fjölmörgum trúnaðarstörfum í
þágu lækna, sat m.a. í stjórn
læknaráðs Landspítalans í nokkur
ár, var formaður fé-
lags íslenskra lyf-
lækna og formaður
lyfjanefndar ríkisins
1979-84. Hann vann
ötullega að samstarfi
íslenskra lækna og
erlendra starfs-
bræðra þeirra og var
frumkvöðull í tilurð
þings lyflækna á Ís-
landi og sat öll þing
þess utan eitt.
Sigurður var söng-
maður mikill. Á yngri
árum söng hann með
Háskólakórnum en
fyrst og fremst var hann félagi í
Karlakór Reykjavíkur og söng
með þeim kór í hartnær hálfa öld.
Þá var hann ástríðufullur golfari
og spilaði á Nesvellinum hjá Golf-
klúbbi Ness í áratugi auk þess sem
hann naut sín á golfvöllum víðs
vegar um heiminn. Sigurður var
kvæntur Ragnheiði Aradóttur sem
lést árið 1982. Sigurður lætur eftir
sig eina dóttur, þrjá dóttursyni,
góða vinkonu auk fjögurra systk-
ina.
Sigurður Þorkell
Guðmundsson
Andlát
STOFNUN Vigdísar Finnbogadóttur
í erlendum tungumálum við Háskóla
Íslands heldur alþjóðlega ráðstefnu
dagana 2.-3. nóvember undir yfir-
skriftinni Margbreytileiki tungumála
og menningarheima – Alþjóðleg mið-
stöð tungumála á Íslandi. Ráðstefnan
hefst í Hátíðasal HÍ föstudaginn 2.
nóvember kl. 9 með ávörpum Geirs H.
Haarde forsætisráðherra og Vigdísar
Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta
Íslands.
Ráðstefnan er liður í að hrinda í
framkvæmd áformum Stofnunar Vig-
dísar Finnbogadóttur um að setja á
laggirnar alþjóðlega miðstöð tungu-
mála á Íslandi. Í miðstöðinni verður
m.a. komið upp gagnabanka um
tungumál og menningu fyrir alþjóð-
lega rannsóknastarfsemi og starf-
rækt sérstakt þekkingar- og upplif-
unarsetur um ólík tungumál og
menningarheima, þar sem gestir og
gangandi geta með aðstoð margmiðl-
unar- og hátæknibúnaðar fræðst um
tungumál veraldar og skyggnst inn í
framandi menningarheima.
Á ráðstefnunni verða áformin rædd
í ljósi nýjustu rannsókna og reynslu
erlendra tungumálastofnana af
rekstri slíkrar starfsemi. Rætt verður
um framtíðarsýn stofnunarinnar og
möguleika á að efna til víðtæks sam-
starfs við erlendar háskólastofnanir.
Meðal þátttakenda á ráðstefnunni
eru virtir fræðimenn á sviði bók-
mennta, menningarfræða, málvísinda
og tölvuvísinda víðs vegar að úr heim-
inum og fulltrúar tungumálastofnana,
m.a. í Ástralíu, Bandaríkjunum, Bret-
landi, Þýskalandi og Brasilíu. Meðal
fyrirlesara eru Jens Allwood, prófess-
or við Gautaborgarháskóla, Peter
Austin, prófessor við Lundúnahá-
skóla, Bernard Spolsky, prófessor við
Háskólann í Tel Aviv, James Parente,
prófessor við Háskólann í Minnesota,
Rogelio Coronel, prófessor við Ha-
vana-háskóla, og Tomohiro Tani-
kawa, prófessor við Tókýó-háskóla.
Haldnar verða tvennar pallborðs-
umræður um framtíðarsýn SVF ann-
ars vegar og tungumál og samskipti í
framtíðinni hins vegar.
Nánar um dagskrána á heimasíðu
stofnunarinnar http://www.vigd-
is.hi.is/page/svf_CCLD. Aðalstyrkt-
araðili ráðstefnunnar er Riksbankens
Jubileumsfond (Menningarsjóður
sænska seðlabankans), aðrir styrkt-
araðilar eru Icelandair, japanska
sendiráðið á Íslandi og Bláa lónið.
Tungumál og
menningarheimar