Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ALNÆMISBÖRN eru að fara að stað með söfnun fyrir barnungar mæður og börn þeirra í norðurhér- uðum Úganda þar sem stríðsástand hefur ríkt í 20 ár og meira en 25 þúsund drengjum og stúlkum rænt til kynlífsþrælkunar og til nota í hernaði. Söfnunin er í samvinnu við ABC- barnahjálpina. ABC er að byggja upp í samvinnu við önnur hjálpar- samtök miðstöð fyrir táningsstúlkur í flóttamannabúðum í Úganda, þar sem aðstoða á og mennta stúlkur sem eru þungaðar eða með smá- börn. Þeir sem vilja taka þátt söfn- uninni skulu hafa samband við Mar- íu J. Gunnarsdóttur á netfang: mariaj@samorka.is Landssöfnun LÝÐHEILSUSTÖÐ stendur um þessar mundir að viðamikilli könn- un á heilsu, líðan og velferð Íslend- inga á aldrinum 18-79 ára. Þátttak- endur eru 10.000 manns valdir af handahófi og í þessari viku eru þeim að berast könnunargögnin. Fyllsta trúnaðar mun verða gætt og því er vonast eftir að fólk gefi sér tíma til að svara. Áhersla er lögð á að mæla atriði sem gögn heilbrigð- iskerfisins og Hagstofurnar ná ekki yfir. Niðurstöðurnar munu verða grunnur að aukinni þekkingu á út- breiðslu sjúkdóma og sjúkdóms- einkenna og þannig nýtast í stefnu- mótun, alþjóðlegum samanburði og fræðastarfi. Niðurstöðurnar verða notaðar við að styrkja starf Lýð- heilsustöðvar með því að greina líð- an, hegðun og sjúkdóma fólks eftir aldri, búsetu o.s.frv. Viðamikil heilsurannsókn ALLS hafa 312 minkar veiðst frá því minkaveiði- átakið á Snæfells- nesi og í Eyjafirði hófst í janúar sl. Alls verður varið 135 milljónum króna til átaksins sem standa á yfir til ársloka 2009. Óvenju hátt hlutfall veiddist af læðum í vorveiði, eða allt að helm- ingi fleiri en hingaðtil. Nánari nið- urstöður af veiði ársins munu liggja fyrir í lok nóvember. 312 minkar FLOKKAHÓPUR miðjumanna í Norðurlandaráði vill að norrænir neytendur njóti öflugrar neyt- endaverndar og setur fram kröfur um að erfðabreytt matvara verði betur merkt. Í norrænu ríkjunum sem eiga að- ild að Evrópusambandinu gilda lög og tilskipanir sambandsins um erfðabreytt matvæli og hvernig beri að merkja þau. Í meginatriðum fylgja Norðmenn og Íslendingar þessum lögum með aðild að evr- ópska efnahagssvæðinu og EFTA. Engin erfðabreytt ræktun fer fram á Norðurlöndum og því hafa miðjumenn viðrað þá hugmynd að gera Norðurlönd að neytendasvæði án erfðabreyttrar matvöru. Torvelt sé hins vegar að hafa eftirlit með dreifingu erfðabreyttra matvæla og verði engar hömlur á því sé hætta á að norrænum ræktendum sé ekki lengur stætt á því að stunda vistvæna framleiðslu. Erfðabreytt matvara RJÚPNAVEIÐITÍMABILIÐ hefst í dag og stendur til 30. nóvember. Veiðidagar verða 18 til loka mán- aðarins. Leyfilegt er að veiða frá fimmtudegi til sunnudags en óheimilt mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga. Mælt er með því að veiddar verði að hámarki 38 þúsund rjúpur, að meðaltali 6-7 rjúpur á hvern veiði- mann. Byggir ákvörðun umhverf- isráðherra um rjúpnaveiði á mati Náttúrufræðistofnunar Íslands á veiðiþoli rjúpnastofnsins og mati Umhverfisstofnunar á heildarveiði árið 2006. Áfram mun gilda sölu- bann á rjúpum og rjúpnaafurðum, og einnig veiðibann á um 2.600 km2 svæði á Suðvesturlandi. Kort af friðaða svæðinu er m.a. að finna á vef umhverfisráðuneytisins. Theodór Kr. Þórðarson, yfirlög- regluþjónn í Borgarnesi, sagði að eftirliti með rjúpnaveiðum yrði sinnt með hefðbundnum hætti á jörðu niðri og úr lofti. Theodór sagði að athugað yrði hvort veiði- mennirnir hefðu tilskilin leyfi og lögleg skotvopn. Hann kvaðst ekki óttast að breyttur veiðitími vefðist fyrir veiðimönnum. „Reynsla okkar er sú að meirihluti veiðimanna sé með sitt á hreinu,“ sagði Theodór. Grófustu brotin hafa verið þegar menn hafa farið á veiðar utan leyfi- legs veiðitíma. Engar tilkynningar um slíkt hafa borist lögreglunni í Borgarnesi nú. Eins eru dæmi þess að menn hafi verið að veiðum án þess að hafa leyfi landeigandans. Theodór sagði að í slíkum tilvikum hefðu landeigendur oft kært brotin og þau farið sína leið í dómskerf- inu. Hann sagði að þeir sem væru með lánsbyssu þyrftu að gæta þess að hafa lánsheimild meðferðis. Einnig að þeir sem notuðu fjölskota haglabyssur þyrftu að gæta þess að hafa tappa í skotgeyminum á með- an þeir væru á veiðislóð. Séu veiði- menn grunaðir um að vera brotleg- ir er lagt hald á afla og skotvopn. Lögreglan í Borgarnesi verður með hefðbundið eftirlit með rjúpnaveiðum Rjúpnaveiðin hefst í dag Morgunblaðið/Ingó Rjúpnaveiðar Veiðitímabilið hefst síðar í ár en fyrri ár og stendur skemur. „ÞAÐ er engu líkara en að Morgun- blaðið sé í herferð gegn íslenskum skotveiðimönnum,“ sagði Sigmar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Íslands. Hann kvaðst hafa fengið gríðarlega mikil viðbrögð frá mönn- um sem væru ósáttir við frétt Morg- unblaðsins í gær um ólöglegar skot- veiðar í Þjóðarskógum á Suðurlandi. Sigmar kvaðst mótmæla þessum skrifum fyrir hönd Skotveiðifélags Íslands og ekki síður „mjög ósmekk- legum“ leiðara Morgunblaðsins á mánudaginn var. Sigmar sagði að skotveiðar hefðu ekki verið til vand- ræða hér á landi. Skotveiðifélagið hefði fylgst náið með afbrotum. „Ég fæ ekki betur séð en að þetta séu 14-16 tilvik á ári. Algengustu brotin tengjast einstaklingum sem ekki eru með tilskilin leyfi, skot- vopnaleyfi eða veiðikort,“ sagði Sig- mar. „Mál sem fara fyrir dómstóla eru þrjú til fjögur á ári og í meiri- hluta tilvika er málum þessum vísað frá eða veiðimaðurinn hefur betur. Ég fæ ekki betur séð en að skot- veiðimenn séu al- mennt afar lög- hlýðnir og brot mjög fágæt.“ Samkvæmt skil- um á veiði- skýrslum eru virkir skotveiði- menn um sex þúsund talsins. Sigmar sagði Skotveiðifélagið leggja áherslu á að fyllsta öryggis væri gætt við meðferð skotvopna. „Þess vegna teljum þessa frétt Morgunblaðsins mjög alvarlega. Þar má lesa að fjöldi skotveiðimanna sæki ólöglega í skógana í uppsveit- um Árnessýslu og að göngufólki sé hætta búin. Athuganir okkar sýna að það sé rétt að menn hafi verið þarna við veiðar. Okkur telst til að á undanförnum tveimur árum séu það samtals 5-10 tilfelli. Samkvæmt okk- ar upplýsingum hafa tveir einstak- lingar kvartað yfir því að skotið hafi verið í nálægð við þá í skóginum – en ekki á þá. Við vitum ekki deili á þessu fólki og atvikin voru ekki til- kynnt lögreglu.“ Gæðingar fá að skjóta Sigmar lýsti undrun yfir því að Morgunblaðið skyldi ekki leita eftir upplýsingum frá lögreglunni á þessu svæði þegar svo alvarlegar ásakanir væru bornar fram. Hann sagði lög- reglumenn úti á landi hafa sagt sér að þegar kvartað væri yfir skotveið- um á lokuðum svæðum, t.d. skóg- ræktarsvæðum, væri oft um að ræða heimamenn sem teldu sig hafa rétt til veiða á svæðinu. „Þetta er land sem við öll eigum og tilheyrir þjóð- inni. Því væri mjög sjálfsögð krafa að þar sem það hentaði yrðu almenn- ingi heimilar skotveiðar. Við hjá Skotvís höfum fengið ábendingar um að á nokkrum þessara svæða hafi sérstakir gæðingar fengið leyfi þannig að sumum einstaklingum sé leyft að veiða þar en öðrum ekki,“ sagði Sigmar. Hann minnti á að Guð- mundur Bjarnason, þáverandi land- búnaðarráðherra, hefði veitt leyfi til skotveiða á nokkrum ríkisjörðum en Guðni Ágústsson dregið þau leyfi til baka. Rökin voru þau að kvartanir hefðu borist vegna þessara veiða. „Þegar við könnuðum málið kom í ljós að kvartanirnar voru oft frá ná- grönnum þessara ríkisjarða sem jafnvel stunduðu þar sjálfir veiðar.“ Sigmar sagði að óskað yrði eftir viðræðum við landbúnaðarráðherra um að almenningi verði leyft að stunda veiðar á svæðum í eigu ríkis- ins þar sem það hentar, enda sú öfugþróun orðin að skotveiðar væru að verða á færi efnamanna ein- göngu. Segir veiðimenn löghlýðna Sigmar B. Hauksson Formaður Skotvís: Veiðimenn eru mjög löghlýðinn hópur VEFVARP mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.