Morgunblaðið - 01.11.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007 19
AUSTURLAND
- kemur þér við
Vilja afnema bann
við útsvarslækkun
Tannhvíttunaræði
meðal Íslendinga
Hilmir Snær striplast
í vinsælu myndunum
Ég ferðast fyrir fólkið,
segir Ólafur Ragnar
Ráðherrar fá ekki borg-
að fyrir afleysingar
Negrastrákarnir með
augum Halldórs
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
LANDIÐ
Eftir Jón Sigurðsson
Blönduós | Gamla kirkjan á Blöndu-
ósi var afhelguð og afhent nýjum
eigendum við hátíðlega athöfn í
kirkjunni síðastliðinn sunnudag. Það
voru vígslubiskupinn í Hólastifti,
Jón Aðalsteinn Baldvinsson, pró-
fasturinn í Húnaþingi, Guðni Þór
Ólafsson, og sóknarpresturinn,
Sveinbjörn R. Einarsson, sem önn-
uðust athöfnina.
Stefán Ólafsson, fulltrúi sóknar-
nefndar, afhenti nýjum eigendum
kirkjuna þegar formlegri afhelgun
var lokið, þeim Sveini M. Sveinssyni
og Dagmar en hún er dóttir Atla
Arasonar sem er eigandi kirkjunnar
ásamt Sveini.
Kvaðir fylgja eigninni
Þessari kirkjugjöf fylgja nokkrar
kvaðir og eru þar á meðal, að rekin
verði sú starfsemi í kirkjunni sem
hæfir fyrrverandi guðshúsi. Jafn-
framt er kveðið á um það að ekki
verði hægt að ráðstafa kirkjunni til
annarra nema að höfðu samráði við
sóknarnefnd.
Sveinn M. Sveinsson, kvikmynda-
forstjóri hjá +Film, og Atli Arason
hönnuður eiga samkvæmt samningi
að vera búnir að koma kirkjunni í
viðunandi ástand að utan um ára-
mótin 2009-2010.
Fyrsta verkið í hugmyndavinnu
um kirkjuna var að virkja krakkana í
Grunnskólanum á Blönduósi og
þeim boðið að teikna gömlu kirkjuna
og gefa henni þann lit og form sem
hugurinn einn stjórnaði. Í framhaldi
af þessu var haldin sýning á verkum
krakkanna í kirkjunni fyrr í haust og
bárust um 50 myndir. Þeir Sveinn og
Atli hafa í huga að koma upp innan
kirkjuveggja alhliða aðstöðu fyrir
listamenn af öllum toga til að vinna
að listsköpun sinni.
Margir Blönduósingar komu til
afhelgunarathafnar til að þakka fyr-
ir guðsþjónustuhlutverk hennar síð-
astliðin 112 ár en kirkjan var vígð í
janúar árið 1895.
Afhelguð og gefin
eftir 112 ára þjónustu
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Afhelgun Gamla kirkjan á Blönduósi var afhelguð og gripir hennar fjar-
lægðir af geistlegum mönnum og fulltrúa sóknarnefndar.
Verður aðstaða
fyrir listamenn
Seyðisfjörður | Í nýjustu útgáfu
ferðahandbókarinnar Lonely Plan-
et um Ísland fær Seyðisfjörður
afar jákvæða umfjöllun, sem og
fleiri staðir á Austurlandi. Sagt er
að Austurland skorti hugsanlega
augljóst aðdráttarafl, en Austfirðir
séu þó einstakir. Landslagið sé
sérlega dramatískt umhverfis
þorpin við norðanverða firðina og
þau umvafin snarbröttum, snjó-
flekkóttum fjöllum sem þakin séu
lækjum og vatnsföllum. Sé veður
gott segir að göngu- eða kajakferð
gæti orðið ein eftirminnilegasta
upplifun sem unnt sé að fá í heim-
sókn á Íslandi.
Í inngangi að kafla um Seyðis-
fjörð segir t.d. að eigi að heim-
sækja einn bæ á Austurlandi skuli
það vera Seyðisfjörður, þar sem
litskrúðug timburhúsin séu umvaf-
in háum fjöllum með snjótoppa og
flæðandi fossa. Hann sé áhuga-
verðastur bæja út frá arkitektúr
og sögulegu sjónarhorni, og þar sé
vinalegt og frjálslegt samfélag
lista- og tónlistarmanna og hand-
verksfólks. Vilji menn ójarðneska
upplifun skuli þeir prófa nætur-
kajakferð á friðsælu Lóninu undir
leiðsögn Hlyns Oddssonar. Kajak-
ferðir út í Austdal og Skálanes eru
einnig taldar einstakar. Fimm
bestu ferðastaðir og ferðaleiðir
Austurlands eru sagðar sigling
með Norrænu inn Seyðisfjörð og
þorpið þar, kajaksiglingar um firð-
ina, bátsferð í Papey, Steinasafn
Petru á Stöðvarfirði og heimsókn í
Húsey, Neskaupstað og Skálanes.
Aðalheiður Borgþórsdóttir hjá
skrifstofu ferða- og menningar-
mála á Seyðisfirði segir þessa um-
fjöllun milljóna virði og að fjöl-
margir ferðamenn hafi sést á
götum Seyðisfjarðar með Lonely
Planet-bók í hönd.
Lonely Planet hefur getið sér
gott orð fyrir ferðahandbækur sín-
ar, enda fara þeir 300 rithöfundar
sem starfa fyrir LP á staðina sem
fjallað er um og upplýsingar eru
uppfærðar á milli ára eftir per-
sónulegar heimsóknir þeirra, og
aldrei er tekið fé fyrir umfjöllun.
Ójarðnesk upplifun
Lonely Planet-
ferðahandbókin
gefur Seyðisfirði
toppeinkunn
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Pjakkar Þessir ungu Seyðfirðingar, Jón Arnar Jóhannsson, Ísak Ármann
Grétarsson og Sveinn Gunnþór Gunnarsson, eru vísast sammála Lonely
Planet um að bærinn þeirra sé bæði fallegur og skemmtilegur.
Akranes | Menningarhátíðin Vöku-
dagar hefst á Akranesi í dag og
stendur til 10. nóvember. Er þetta í
fimmta sinn sem hátíðin er haldin
og hefur dagskráin aldrei verið um-
fangsmeiri en nú.
Á Vökudögum í ár koma saman
landsþekktir listamenn í bland við
hæfileikafólk frá Akranesi. Öllum
listgreinum eru gerð skil, tónlist,
myndlist, bókmenntum, ljósmynd-
un og leiklist. Dagskrána er að
finna á vef Akraneskaupstaðar,
akranes.is. Á Akranesi er menning-
arlíf í blóma. Þar er sterk tónlistar-
hefð sem nýtur nýbyggingar tón-
listarskólans. Þar eru ráðgerðir
fjölmargir tónleikar á Vökudögum.
Menning á Vökudögum