Morgunblaðið - 01.11.2007, Side 21
|fimmtudagur|1. 11. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Það þykir vel biðraðarinnar
virði að fá sér fisk og franskar
hjá sjónvarpskokkinum Rick
Stein í Padstow. »22
matur
Lögfræðingurinn og neytenda-
réttarsérfræðingurinn Lise-
lotte Widing segir að það þyki
ófínt að kvarta á Íslandi. »26
neytendur
Akureyrsk ungmenni sýndu um síðustu helgi
að þau eru góð í fótbolta. Þá fór fram árlegt
framhaldsskólamót og sigraði MA í karlaflokki
(þar sem MA-ingur lögðu nágrannana í VMA í
úrslitaleik) og VMA sigraði svo í kvennaflokki.
Óhætt er að segja að bræðurnir Samúel og
Bjarki Rafn Kristjánssynir hafi fengið góð við-
brögð þegar þeir kynntu verkefnið Frostroses
í vikunni, en þeir vilja gera höfuðstað Norður-
lands að heimabæ þess. Menn og æðri mátt-
arvöld tóku bræðrunum vel; Guðmundur Karl
Jónsson setti snjóbyssurnar í gang um svipað
leyti og bræðurnir kynntu stjórnmálamönnum
og fólki úr ferðaþjónustu verkefnið á Hótel
KEA, og síðdegis hófst náttúruleg snjókoma.
Snjó kyngdi niður í fyrradag og áfram aðfara-
nótt miðvikudags. Pater Jón Sveinsson –
Nonni – sem fer að verða góðkunningi dyggra
lesenda þessara pistla, skrýddist þá vetrar-
búningi sínum eins og sjá má á meðfylgandi
mynd.
Eftir fáeina daga verða 90 ár liðin frá rúss-
nesku byltingunni og hyggst Stefna, félag
vinstri manna á Akureyri, halda upp á afmælið
á morgun kl. 20.15 á veitingastaðnum Mongó í
Kaupangi. Tveir sagnfræðingar flytja fyrir-
lestra; Árni Daníel Júlíusson fjallar um áhrif
og afleiðingar byltingarinnar og Björn Teits-
son fjallar um orrustuna um Stalíngrad. Sam-
koman er öllum opin.
Leit stendur nú yfir að ungu fólki á Akureyri,
13-23 ára, sem kann að dansa, syngja og leika,
til að taka þátt í söngleiknum „Wake me up“
sem ráðgert er að frumsýna í lok mars á næsta
ári. Það eru þeir Guðjón Davíð Karlsson leik-
ari og Arnór Vilbergsson tónlistakennari sem
standa að uppfærslunni ásamt Sigyn Blöndal
danskennara. Upplýsingar er að finna á
heimasíðunni http://wakemeup.blog.is.
Magnús Þór Sigmundsson verður með útgáfu-
tónleika á Græna hattinum annað kvöld en í
kvöld kemur þar fram hljómsveitin Ljótu hálf-
vitarnir.
Tveir rithöfundar koma fram á Skáld-
spírukvöldi á Amtsbókasafninu í dag kl. 17.15.
Björn Þorláksson og Þórarinn Torfason lesa
úr verkum sínum í dag; Þórarinn m.a. úr
óbirtu ljóðahandriti og Björn úr óútgefnu
handriti að nýrri skáldsögu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Snjór Nonni hefur skrýðst vetrarbúningnum.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
úr bæjarlífinu
Kjötið hakkað Sigurður Ágúst með einn bala af mörgum af bjúgnaefni.
en það er kjöt sem mjög lítið fæst fyrir á slát-
urhúsinu og því tilvalið að gera úr því bjúgu og
þess háttar. Sumir nota einkum slög og annað
sem til fellur, en þau segja mjög góða reynslu af
því að nota frampartana þó svo að það sé nokk-
uð mikil vinna að útbúa hráefnið, hakka það og
blanda saman.
Skarðabjúgu
Uppskriftin er heimafengin og er þessi:
12 kg hakkað kjöt
180 g salt (millifínt)
120 g nítrítsalt
1 kg kartöflumjöl
4 lítrar vatn
Þegar búið er að troða í og binda fyrir fara
þau með bjúgun í reykhúsið hjá sér þar sem
þau eru reykt í einn og hálfan dag allt eftir
styrkleika reyksins. Þau nota tað til helminga
við ýmsan trjávið þ.e. alaskavíði, ösp o.fl. sem til
fellur. Sigurður segir að það gefi mjög góðan
keim, enda eru Skarðabjúgun mjög vinsæl á
borðum þeirra sem til þekkja.
Eftir Atla Vigfússon
Haustið er tími matargerðar og ásveitabæjum fellur margt til ísláturtíðinni sem hægt er að gerasér góðan mat úr. Á bænum
Skarðaborg í Reykjahverfi búa Helga Helga-
dóttir og Sigurður Ágúst Þórarinsson með
stórt sauðfjárbú, en eitt af því sem þau gera
heima eru bjúgu sem njóta mikilla vinsælda á
matborði heimilisins, auk þess sem ættingjar
og vinir kunna vel að meta að fá að smakka
þetta góðgæti sem þau eru svo flink að búa til.
Það er alltaf mikið um að vera í eldhúsinu hjá
Helgu þegar verið er að gera bjúgun því allir
hjálpast að og synirnir létta undir með foreldr-
unum. Þetta er mikið verk því stundum er gerð
margföld uppskrift og þá verða bjúgun nokkur
hundruð og því tekur tíma að setja í sperðla-
plastið, en sú tíð er liðin að menn hreinsi garnir
eins og áður var.
Það tekur tíma að binda öll bjúgun þannig að
þau verði álíka löng og var Helga einkum í því
verki ásamt Helga Maríusi syni sínum nú á
dögunum þegar bjúgnagerðin stóð sem hæst.
Sigurður stóð og sneri vélinni sem treður kjöt-
inu í plastið og er það mikið þarfaþing og Bjarki
sonur þeirra hjóna sá um að hafa sperðlaplastið
alltaf tilbúið og aðgætti að hafa hæfilegt magn í
hvert bjúga til þess að þau spryngju ekki.
Frampartar mikið notaðir
Hráefnið sem þau hjón nota er einkum fram-
partar af fullorðnum kindum sem þau úrbeina,
Skarðabjúgu eru
herramannsmatur
Binding Mikið verk að binda bjúgun og var Helgi Maríus mjög hjálplegur.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Passlega mikið Bjarki sér um sperðlaplastið.
Samtímalistasafnið Hamburger
Bahnhof í Berlín var uppruna-
lega byggt sem járnbrautar-
stöð. »22
ferðalög