Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 40
■ Í kvöld kl. 19.30
Europa Musicale
Spennandi efnisskrá byggð á verkum sem hljómsveitin
mun spila á tónleikaferð sinni til Þýskalands í nóvember.
Verk eftir Ravel, Nielsen, Atla Heimi Sveinsson, Jón
Nordal og Jón Leifs. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba
Einleikari: Bryndís Halla Gylfadóttir
■ Fös. 2. nóvember kl. 21
Heyrðu mig nú! Stuttir óhefðbundnir tónleikar fyrir alla
sem langar að kynna sér klassíska tónlist.
Vorblót Stravinskíjs kynnt og leikið – partý á eftir.
■ Fim. 15. nóvember kl. 19.30
Sígaunar og fögur fljóð. Píanókonsert eftir Haydn, fjórða
sinfónía Schumanns og nýtt verk eftir Tryggva M.
Baldvinsson.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Segjum bara að ég
heiti Martin og
leikskólakrakkar séu
skarpari en ég… 42
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÉG ER að vinna í því að gera mína fyrstu kvik-
mynd í fullri lengd eftir skáldsögu Braga Ólafs-
sonar, Hvíldardögum,“ segir Hafsteinn Gunnar
Sigurðsson kvikmyndagerðarmaður. Ef allt geng-
ur upp hefjast tökur á myndinni næsta sumar í
Reykjavík að sögn Hafsteins sem bæði skrifar
handritið að myndinni og mun leikstýra henni.
„Ég las Hvíldardaga fyrir löngu og sagan sat
mjög í mér, hún er mínimalísk en myndræn svo ég
sá strax kvikmyndamöguleikana í henni. Að-
alpersónan fer í gegnum mikið ferðalag þótt það
sé ekki mikið af ytri atburðum sem endalaust
drífa söguna áfram. Það er ögrandi verkefni að
koma þessu í kvikmyndaform og ég held að það sé
að takast,“ segir Hafsteinn sem hefur unnið að
handritinu í rúmt ár.
Hafsteinn býr nú í New York þar sem hann
stundar masternám í kvikmyndaleikstjórn og
handritagerð við Colombia University.
Tilnefndur til Eddunnar
Hvíldardagar er ekki það eina sem Hafsteinn
vinnur að þessa dagana því hann er einnig að
skrifa handrit að mynd sem Ari Alexander mun
leikstýra um líkfundarmálið í Neskaupstað. „Það
verkefni er ekki langt á veg komið, aðeins að
verða til fyrstu drög að handriti. Ég hef verið í
mikilli rannsóknarvinnu að kynna mér þetta
glæpamál og á eftir að gera meira af því.“
Spurður hvort vinnan við þessi tvö verkefni sé
ekki ólík svarar Hafsteinn: „Þetta eru ólík verk-
efni en að sama skapi er um aðlaganir að ræða.
Þótt annað handritið sé byggt á sannsögulegum
atburði eru þetta tvær sögur sem ég er að koma í
kvikmyndaform.“
Hafsteinn útskrifast úr mastersnáminu í vor og
stefnir að því að gera eina stuttmynd með vorinu
sem lokaverkefni. Að undanförnu hefur hann ver-
ið að fylgja stuttmynd sinni Skröltormum eftir um
heiminn en hún var m.a. sýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík í október og er tilnefnd til
Edduverðlauna í ár í flokki bestu stuttmynda.
„Ég fór með Skröltorma til Finnlands í sept-
ember á Nordisk Panorama, síðan til Svíþjóðar og
svo er ég að fara til Frakklands í desember þar
sem hún verður sýnd á virtri skólahátíð en inn á
hana eru valin fjörutíu verkefni kvikmynda-
skólanema alls staðar að úr heiminum til sýn-
ingar.“
Hafsteinn segir Eddutilnefninguna leggjast vel
í sig en vill lítið spá um sigurlíkur, segir aðeins
hinar myndirnar í flokknum líka vera góðar.
„Það hefur verið mjög mikið að gerast í íslensk-
um stuttmyndum að undanförnu. Fjármagnið til
þeirra hefur verið aukið og fólk hefur verið að
koma stærri verkefnum á laggirnar,“ segir Haf-
steinn og bætir við að þrátt fyrir auknar vinsældir
stuttmyndanna sé hann orðinn mjög spenntur fyr-
ir því að gera mynd í fullri lengd enda búinn að
vinna að því lengi.
Hvíldardagar Hafsteins
Nærmynd Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri og handritshöfundur, á forvitnilega daga framundan.
Tilnefnd Úr stuttmyndinni Skröltormar.
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson vinnur að gerð kvikmyndar eftir skáldsögu
Braga Ólafssonar Stundar mastersnám í kvikmyndaleikstjórn í New York
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
JET Black Joe, Páll Rósinkrans, félagar úr Gospelkór Reykjavík-
ur og strengjasveit munu halda stórtónleika í Laugardalshöllinni
föstudagskvöldið 25. apríl næstkomandi. „Þetta verður sam-
antekt af því sem ég hef verið að gera í gegnum tíðina, það mætti
kannski segja það,“ segir Páll um tónleikana, en eins og margir
eflaust vita er hann söngvari Jet Black Joe. „Ætli þetta verði ekki
bara 1⁄3 Jet Black Joe, 1⁄3 gospel og 1⁄3 ég,“ bætir hann við. „Við eig-
um þó ennþá eftir að setja saman dagskrá, þetta er enn í vinnslu
því það er bara nýbúið að bóka þetta. Þetta krefst mikils und-
irbúnings enda mjög mikil vinna í kringum þetta.“
Á tónleikunum verður flutt efni af 15 ára ferli Jet Black Joe,
auk laga sem Páll hefur sungið sóló og með Gospelkórnum.
Aðspurður segir Páll að hann hlakki mikið til tónleikanna.
„Þetta verður örugglega svakalega flott enda verður öllu tjaldað
til.“
Miðasala á tónleikana hefst 11. desember og fer hún fram á
midi.is. Það er 2B Company sem stendur fyrir tónleikunum, en
fyrirtækið stóð m.a. fyrir tónleikum Toto í Höllinni í júlí.
Jet Black Joe í Höllinni
Morgunblaðið/Ásdís
Góður Páll í ham með Jet Black Joe.
Koma fram ásamt Gospelkórnum
og Páli Rósinkrans í apríl
„Vissir þú að fullnæging svína
varir í allt að 30 mínútur? Já, mín-
útur. Það er helmingur af klukku-
tíma. Hvað var skaparinn að spá?
Og það í svínastíu. Grísapungarnir!
Hvers eigum við karlmenn að
gjalda? Skyldi Guð hafa gert úllen-
dúllen-doff, valið á milli manna,
svína og fugla? Sá hefur verið í
skrýtnu skapi þegar kom að því að
ákveða lengd fullnægingar eftir
tegundum. Ég hélt að hann væri
fyrir löngu búinn að fyrirgefa
Adam.“ Úr væntanlegri bók Þor-
gríms Þráinssonar, Hvernig ger-
irðu konuna þína hamingjusama.
Um fullnægingu svína
Þrjár af vin-
sælustu popp-
sveitum Íslands
um þessar mund-
ir blása til tón-
leika á NASA við
Austurvöll föstu-
daginn 16. nóvember nk. Um er að
ræða sveitirnar Sprengjuhöllina,
Motion Boys og Jeff Who?. Sú síð-
astnefnda mun væntanlega flytja
nokkur ný lög á tónleikunum en
sveitin situr nú við í hljóðveri og
hljóðritar plötu sem ráðgert er að
komi út snemma á næsta ári. Upp-
tökur hafa bæði farið fram í Sund-
laug Sigur Rósar í Mosfellsbæ og í
húsnæði hljómsveitarinnar á höf-
uðborgarsvæðinu en henni til halds
og traust við upptökurnar er
Hrannar Ingimarsson, upptök-
umaður og gítarleikari Ske. Miða-
sala á tónleikana þann 16. nóv-
ember hefst í dag á Miði.is, í
Skífunni og BT og er miðaverð
1.500 krónur.
Sannkölluð poppveisla
á NASA 16. nóvember