Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 4
4|Morgunblaðið Það er fyrirtækið Rinconadaí höfuðborginni Montevi-deo sem hefur sérhæftsig í hönnun og fram- leiðslu skrautlegra og skemmti- legra dýra, sum þeirra eru dýr sem við þekkjum úr náttúrunni önnur eru furðudýr eins og ein- hyrningar. „Dýrin eru búin til úr leir, sem síðan er málaður og brenndur og skreyttur 18 karata gulli. Allar vörurnar eru handunnar og mikil vinna lögð í þær,“ segir eigandi Eldberu ehf., María Sigmunds- dóttir. Hún stofnaði fyrirtækið árið 2004, en þá sá hún myndir af dýr- unum frá Úrúgvæ á netinu og sendi fyrirtækinu tölvupóst með fyrirspurn um hvort hún mætti gerast umboðssali þess hérlendis. Allt á netinu María rekur ekki verslun í venjulegum skilningi, allar vörurn- ar eru til sölu á vefsíðu sem hún kom sér upp. „Raunar eru þrjár verslanir með vörur frá mér til sölu, en það eru verslunin Valrós á Akureyri, Tékk kristall í Reykjavík og Ramma- gerðin í Keflavík. Mér gengur vel að selja á netinu og hef engar sér- stakar fyrirætlanir um að setja upp venjulega verslun,“ segir María. Nafnið Eldbera á sér skemmti- lega sögu, en María skírði fyr- irtækið sitt eftir frægri vörðu í Reykjahverfi í Suður-Þingeyj- arsýslu. „Maðurinn minn er ættaður það- an og fjölskyldan á þar sum- arbústað og okkur fannst tilvalið að láta fyrirtækið heita í höfuðið á vörðunni. Þetta er svolítið sér- kennilegt nafn og margir hafa spurt mig út í það hvernig ég hafi dottið niður á það,“ segir María. Heimsþekktar vörur Artesania Rinaconda-munirnir eru þekktir úti um allan heim fyrir að vera einstakir að gerð og frum- leika og eru sennilega eitt besta dæmið um hönnun á leirmunum í dag. „Þeir eru handgerðir og út- skornir í hreinan, mjúkan leir. Eft- ir að munirnir eru brenndir, heldur skreytingin áfram með handverki og svo eru stytturnar málaðar, slípaðar og glerungur settur á þær, en hann er notaður til að leggja áherslu á einstaka hönnun og ein- kenni munanna. Brenna þarf sér- staklega hverja umferð af lit og gljá til að varðveita hina sérstöku liti,“ segir María Fyrsta hönnun Rinaconada var „Classic“-línan sem var handunnir leirmunir tvíburabræðranna Jesus og Javier Carbajeles, sem gerðu hana árið 1972 í Montevideo. Þeir fæddust á Spáni árið 1930 en fluttu til Úrúgvæ þegar spænska borg- arastyrjöldin braust út 1936. Þeir hafa sótt mikið til frægra spænskra listamanna í hönnun sinni, meistara á borð við Salvador Dali, Pablo Picasso og Joan Miro. Nýjar og spennandi línur Stærstu dýrin eru merkt frá ein- um til þúsund og ekki framleidd fleiri dýr af sömu gerð þegar þús- und eru seld. „Fyrirtækið hefur þróast mikið frá því að það var stofnað og sér- staklega hefur verksmiðjustjórinn, Jorge De Rosa, komið þar við sögu. Undir hans forystu hefur fyrirtækið þróað seríu með dýr- astyttum skreyttum með gulli og hvítagulli til minningar um 25 ára afmæli upphaflegu „Classic“- línunnar. Þessi nýja hönnun hlaut nafnið „Silver Anniversary“-línan. En fyrirtækið hefur líka þróað fleiri línur, bæði litlar styttur og bjöllur og út úr samvinnu De Rosa og hönnuðarins Olgu Pareja kom svo hin þekkta kattalína,“ segir María. Fyrir tveimur árum kynnti fyr- irtækið svo tvær nýjar línur, en önnur þeirra er safn af með- alstórum dýrastyttum með 18 ka- rata gulli og hvítagulli, en það var gert í tilefni 35 ára afmælis leirlist- arhönnunarinnar hjá Rinaconada. Marglit furðudýr frá Úrúgvæ Eldbera ehf. er sennilega einhver sérstæðasta gjafavöruverslun landsins. Allar vörurnar eru frá Úrúgvæ og eru listavel hannaðar. Kristján Guðlaugsson leit inn hjá Maríu Sigmundsdóttur og ræddi við hana. Morgunblaðið/RAX Dýragarður María Sigmundsdóttir selur einvörðungu hönnunarvörur úr brenndum og máluðum leir frá fyrirtæk- inu Rinaconada í Úrúgvæ. Morgunblaðið/RAX Lundi Páfagaukur Norðursins er vinsæll meðal margra. Morgunblaðið/RAX Fjölskylda Þessir skemmtilegu ísbirnir eru mjög vinsæl- ir, enda kaupa þá margir sem jólagjafir. Morgunblaðið/RAX Númeraðar Stærstu stytturnar frá Úrúgvæ sem María sel- ur eru númeraðar frá eitt til þúsund. Carbajales-bræðurnir, sem flúðu grimmd spænsku borgarastyrjald- arinnar aðeins sex ára gamlir og fóru til Úrúgvæ með foreldrum sín- um, völdu náttúruna sem viðfangs- efni í listaverkum sínum, blandaða venjulegum suður-amerískum stíl en með sterkum súrrealískum áhrifum. Nafnið Artesiana Rinconada er spænskt orðasamband sem þýðir „list hornsins“ en bræðurnir völdu þetta nafn af því að þeir unnu í litlu horni af stofunni sinni í mörg ár. Þrátt fyrir nafnið gátu listamenn- irnir og hönnuðirnir Jesus og Javier ekki lokað sig og listmuni sína af í horni lítillar vinnustofu. Heimurinn uppgötvaði þessi listaverk og síðan hafa bæði þau og hróður bræðranna borist víða um heim. Bræðurnir halda samt áfram að kenna muni sína við Artesiana Rinconada. Súrrealísk áhrif

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.