Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 16
16|Morgunblaðið
Fornar sálir á öllum aldri geta ekki
hugsað sér jól án þess að kíkja við
hjá Fríðu frænku. Það er eins gott
að gefa sér góðan tíma í heimsókn-
ina til þess að geta grúskað í ótal
koppum og kirnum sem í margra
augum eru sannkallaðar fjársjóðs-
kistur.
,,Hér kaupir fólk allt milli himins
og jarðar,“ segir Anna Ringsted
verslunareigandi. ,,Fólk gefur ótrú-
legustu hluti til jólagjafa, allt frá
einni fallegri, gamalli tölu til þess að
skreyta jólaskyrtuna og upp í mik-
ilfenglega ljóskrónu. Hér er bók-
staflega allt til, bollar og diskar,
skartgripir, töskur, húsgögn, stór og
smá, hattar og húfur, hanskar, skór
og treflar sem allt hefur yfir sér
gamalt og gott yfirbragð.“ Anna
segir að margir viðskiptavinanna
séu svo forsjálir að byrja að kaupa
jólagjafirnar í júní og geti með því
móti sparað bæði tíma og peninga.
Anna er þó ekki á því að mesta jóla-
ösin sé byrjuð þó fólk sé greinilega
komið í startholurnar.
,,Annars hafa margir af fasta-
kúnnunum mínum það fyrir sið að
kíkja hingað á Þorláksmessu og þá
er alltaf mikið fjör og mikið gaman.“
Stærsta fjársjóðs-
kistan í bænum
Morgunblaðið/Sverrir
Gína Það væri ekki ónýtt að fá svona
jólagjöf til að hafa á snyrtiborðinu
og hengja hatt og skartgripi á.
Morgunblaðið/Sverrir
Vetr-
arfuglar
Undurfagrir
svanir sem
sóma sér á
hvaða heim-
ili sem er. Morgunblaðið/Sverrir
Spákúla Þessi glerkúla er skrautleg og
skemmtileg. Kannski er hægt að nota hana
til að sjá inn í framtíðina?
Morgunblaðið/Sverrir
Ekki byrjað Anna Ringsted húsráðandi á Vesturgötunni segir að jólaösin
sé ekki komin á fullt en fólk sé greinilega komið í startholurnar.
Morgunblaðið/Sverrir
dsf asddf sf
JÓLAGJAFIR
FYRIRTÆKJA
VANDAÐAR VÖRUR SEM BERA MERKIÐ ÞITT VÍÐA
FÖT / TÖSKUR / KLUKKUR / LYKLAKIPPUR / REGNHLÍFAR / V
Ö
Í
Í
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 567 0500, fax 587 8495
M
b
l
9
2
2
3
4
7
auglýsingavörur
Jólagjafa-
bæklingurinn
kominn út
Erum með ýmsar stærðir af gjafakössum
fyrir vín, bæði úr tré og pappa.
Bjóðum fyrirtækjum upp á að útbúa
kveðju með lýsingu á víninu og festum
á viðkomandi flösku.
Vínó ehf. • www.vino.is • vino@vino.is • Sími 568 2290/860 2291