Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 18
18|Morgunblaðið Margir trúa því og treysta aðundir jólatrénu leynist freist-andi karfa frá Ostabúðinni,full af girnilegum kræs- ingum. Mörgum verður að þeirri ósk sinni því þau eru ófá fyrirtækin og einstakling- arnir sem fá starfsfólk Ostabúðarinnar til þess að útbúa körfur, stórar sem smáar, til jólagjafa. Sælkerakörfur Að sögn Jóhanns Jónssonar eru þetta svokallaðar sælkerakörfur og í þær ratar hitt og þetta sem þeir hjá Ostabúðinni framleiða sjálfir og er ekki til sölu í stór- mörkuðunum. „Stjórnendur fyrirtækja jafnt sem einstaklingar leita til okkar með ákveðnar óskir í huga og við útbúum körf- urnar samkvæmt þeim. Þær innihalda til dæmis ýmsar tengundir af forréttum ásamt sérhrærðum rjómaostum og sósum til þess að nota með forréttunum. Und- anfarin ár hefur heitreykt gæsabringa verið vinsæl og einnig paté sem við fram- leiðum sjálfir úr gæsalærum.“ Fyrir einu ári hóf Ostabúðin innflutning á alls kyns lostæti frá Suður-Frakklandi, svo sem kexi, sem bæði er hægt að borða með ostum og nota sem snakk eitt og sér. Einnig flytja þeir inn dýrindis chutney og fleira í þeim dúr, sannkallað jólahnoss- gæti. Jóhann segir fólk koma með hitt og þetta sem það vill láta fylgja með góðgæt- inu í körfunum, svo sem rauð- og hvítvíns- flöskur, og jafnvel bækur og geisladiska. Þessu er svo öllu pakkað inn í fallegar gja- faumbúðir. Jólagjöf á að vera falleg „Sælkerakörfurnar njóta sívaxandi vin- sælda,“ segir Jóhann og bætir við að í fyrra hafi þeir ekki getað orðið við beiðn- um frá um það bil eitt þúsund manns. „Það er því betra að panta tímanlega. Við viljum frekar segja nei en að lofa upp í ermina á okkur og kasta til höndunum. Mottóið okkar er að gera vel. Jólagjöf á að vera falleg og það þarf að vera góður hug- ur og hugsun á bak við hana. Það er ekk- ert gaman að því að henda bara einhverju saman.“ Starfsfólk Ostabúðarinnar gefur sér ekki tíma til skemmtanahalds fyrir jól. „En við bætum okkur það upp með því að halda veglega árshátíð strax eftir jólin, í byrjun janúar,“ segir Jóhann að lokum. Heitreykt gæsabringa, chutney frá Suður-Frakk- landi og fleira góðgæti Morgunblaðið/Eggert Ofgnótt Virkilegir ostaelsk- endur og sæl- kerar geta valið úr fjölda osta. Úrval Ostabúðin er með mikið úrval af alls konar ostum frá mörgum löndum. Morgunblaðið/G.Rúnar Jólin nálgast Jóhannes í Ostabúðinni biður fólk að panta tímanlega. Meðlæti Ostur er sjálfsagt veislu- kostur en ýmislegt annað gott er á boðstólunum í Ostabúðinni. Hafið samband í skerjaver@skerjaver.is eða síma 891-9344 og við gerum ykkur tilboð eftir stærð pöntunar. Bezt á - kryddin hafa algjörlega slegið í gegn sem gjafir til viðskiptavina fyrirtækja og stofnana, bæði hérlendis sem og erlendis. Kryddblöndurnar eru ein vinsælasta kryddvaran á Íslandi í dag og eiga sér fjölmarga trygga aðdáendur. www.alltmerkt.is Mikið úrval Jólagjafa fyrir starfsmenn og viðskiptavini S: 511 1080 / 861 2510 sala@alltmerkt.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.