Morgunblaðið - 01.11.2007, Blaðsíða 20
20|Morgunblaðið
Eitt af því sem er ómissandi á aðventunni er
heimsókn í Tiger-verslanirnar. Þar er hægt að
finna sniðugu, nytsömu og ódýru jólagjafirnar
handa mömmu og pabba, afa og ömmu og vin-
um og vandamönnum á öllum aldri.
Vinsæl hjá unga fólkinu
Þar er til dæmis hægt að kaupa skvísugler-
augu handa ömmu, inniskó handa afa, fallega
skál handa mömmu, skrifstofugræjur handa
pabba og ódýr og flott kerti fyrir nákomna
rómantíkera af báðum kynjum. Aðalkosturinn
er auðvitað sá að það þarf ekki að kafa langt
ofan í budduna til þess að kaupa fína jólagjöf
því allt sem stendur viðskiptavinunum til boða
kostar annaðhvort tvö- eða fjögur hundruð
krónur. Það má líklega slá því föstu að Tiger-
verslanirnar séu vinsælustu gjafavöruversl-
anir unga fólksins sem hefur yfir ákveðinni
upphæð að ráða til þess að kaupa jólagjafir.
Þetta unga fólk er löngu búið að komast að því
að það er hægt að labba út úr Tiger með fullan
poka af jólagjöfum fyrir nokkra hundrað kalla
og eiga afgang fyrir heitum súkkulaðibolla til
þess að hlýja sér á áður en lengra er haldið á
vit jólaævintýranna.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölbreytni Ótrúlegt vöruúrval og í hillum og á borðum ægir öllu saman.
Flottar jólagjafir
sem gæla við budduna
Gleraugu Inniskór fyrir afa, skvísu-
gleraugu fyrir ömmu eða eitthvað
annað skemmtilegt undir tréð.
Morgunblaðið/Kristinn
Ódýrt Tiger-verslanirnar eru vinsælar meðal ungs fólks. Verðið er viðráðanlegt.
Kerti Ljós í skammdeginu í
öllum litum og stærðum eru
á boðstólunum.
Tiger, Laugavegi
13 og Kringlunni
Allir vilja ilma eins og englar um jólin
og að sjálfsögðu er sjálft jólabaðið há-
tíðleg athöfn sem krefst þess að bað-
vatnið sé flauelsmjúkt og freistandi.
Í Lush-búðunum er til fjöldinn all-
ur af spennandi baðvörum og fljót-
lega í næstu viku er von á þessum
sætu gjafapökkum eins og sjást á
myndunum.
Hér eru dæmi um skemmtilegar
baðbombur og sápur með mismun-
andi eiginleikum:
Ef þú ert glamúrkisa er sniðugt að
eiga glitrandi jól með sápu sem kall-
ast Bling Crosby en hún lítur út eins
og hálf appelsína sem búið er að dýfa
í glimmer. Sápan er með svokölluðum
karma-ilmi; appelsínum og kryddi.
Gott er að mylja eitt „bling“ undir
bununni sem tryggir hressandi og
glitrandi bað með froðu. Jólaandinn
gerist varla fjörugri.
Angel’s Delight er draumkennd
ávaxtasápa sem ilmar eins og Jellie
babies og hún er líka glitrandi. Þetta
er sápan sem lætur manni líða eins og
engli þótt eitthvert kringlótt græn-
meti hafi verið sett í skóinn í gluggan-
um – dag einn í desember.
Big Blue-bomban er úr heilnæmu
sjávarsalti, slakandi lavender, líf-
rænum þara og endurnærandi sítr-
usolíu. Í túrkisbláu ævintýraperluna
vantar ekkert nema höfrungana.
Í Butterball-bombunni er kakósm-
jör sem unnið er úr ristuðum kakó-
baunum og hún gerir hörundið silki-
mjúkt. Auk þess inniheldur hún t.d.
muskolíu og sindur af súkkulaði sem
bráðnar í baðkarinu.
Sex Bomb(an) þokkafulla er nátt-
úrlega eggjandi enda unnin úr jas-
mínu og fagurbleiku blómi. Tilvalin til
þess að deila með öðrum.
Jólabaðið – flauels-
mjúkt og freistandi
Morgunblaðið/Þorkell
Ilmur Lush-sápurnar ilma vel.
Mjúkur pakki, silki, blúndur, hlýr
sloppur og notalega náttföt. Allt
þetta tilheyrir notalegheitum
jólanna. Margir karlmenn hafa fyr-
ir löngu áttað sig á því að konur
elska að fá slík herlegheit í jóla-
pakkann og þeir gera sér árlega
ferð í La Senza í Kringlunni, alsæl-
ir í þeirri vissu að eiginkonan kunni
vel að meta jólagjöfina. Vanessa
Terrazas hjá La Senza segir eig-
inmenn vissulega skipa stóran sess
í kúnnahópnum.
,,Karlmenn koma hér til þess að
kaupa jólagjöf handa sinni heitt-
elskuðu en einnig koma ömmur til
þess að kaupa náttföt fyrir ungling-
inn á heimilinu. Fyrir jólin er vin-
sælt að kaupa náttföt sem eru eins
og gömlu, góðu náttfötin, þessi með
síðu buxunum og náttjakka sem
eru hannaðir eins og stórar karl-
mannsskyrtur. Við erum líka með
rosalega góða náttsloppa, þykka og
hlýja, sem verða til í sex fallegum
litum fyrir jólin og eru einstaklega
vinsælir í jólapakkann.“
Að sögn Vanessu er hreint út
sagt brjálað að gera hjá þeim fyrir
jólin.
,,Það má í rauninni segja að hér
sé allt fullt út úr dyrum í jólaösinni
og þegar við lokum versluninni á
Þorláksmessu eru allar hillur og
slár í versluninni hreinlega gal-
tómar,“ segir Vanessa að lokum.
Silki, blúndur og nota-
leg náttföt fyrir jólin
Ostabúðin, Bitruhálsi býður upp á fyrirfram samsettar
gjafakörfur auk þess sem þú getur sjálf(ur) sett saman körfu
eftir eigin höfði og smekk. Auk þess erum við með frábært
úrval af sælkeravörum.
Hafðu samband við okkur
ostar@ostar.is eða í síma 569 1651
...eða komdu við.
GEFÐU GJAFAKÖRFU
FULLA AF GÓMSÆTUM
VÖRUM
Ostabúðin | Bitruhálsi 2 | 110 Reykjavík
ÍSLENSKIR OG ERLENDIR OSTAR
HRÁSKINKA
ÓLÍFUR
GÆÐASÚKKULAÐI
SÆLKERASULTUR
…og fjöldi af öðrum gæðavörum.