Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 23
Morgunblaðið |23 Margir óska þess heitast að fá fal- legan skartgrip eða úr í jólapakk- anum og það er ekki óalgengt að pör ákveði að ganga upp að alt- arinu í kringum jól eða láti skíra afkvæmið. Í Meba í Kringlunni geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Þar er gríðarlega mikið úrval af fal- legum skartgripum, t.d. frá tísku- hönnuðunum frægu Dolce&Gabb- ana sem nýlega hófu framleiðslu á skartgripum. Hjá Meba hefur ver- ið hægt að kaupa úrin þeirra og eigendum verslunarinnar fannst ekki annað koma til greina en að taka inn skartgripina sem hafa svo sannarlega slegið í gegn. Mal- lorca-perlurnar, sem eru búnar til úr móðurskelinni í Mancor á Spáni undir eftirliti sérfræðinga, eru sí- vinsælar og í Meba er að finna úr- val af perlufestum, perluarmbönd- um, perlulokkum og hálsmenum úr þessum heimsfrægu perlum. Ítölsku Zoppini-hlekkjabönd eru vinsæl hjá ungum og öldnum, en þau eru til úr stáli og 18 karata gulli. Einnig selur Meba skart- gripi dönsku hönnuðanna Gitte Dyrberg og Hennig Kern, en skartgripir þeirra eru sannkölluð gæðavara. Hönnun þeirra er byggð á hefð skandinavískra hönnunar, hún er ávallt tengd nú- verandi tísku og skartgripir þeirra þykja einstakir og marka tískuna hverju sinni. Giftingarhringir úr gulli, hvítagulli og stáli eru til í miklu úrvali og í stuttu máli býður verslunin upp á barnaskartgripi, klukkuskeið- og -gaffal, hnífapör, skartgripaskrín. myndaalbúm, silf- urhúðaða hólka fyrir fæðingar- og skírnarvottorð, barnasett, ramma, sparibauka, box fyrir fyrsta lokk og tönn barnsins, hringlur og mál. Sem sagt, eitthvað fyrir allar, börn, konur og karla. Fallegt Margir óska sér pakka með einhverjum skartgripum í um jól. Glæsilegt Skartgripir, perlur, gull og silfur fylla verslunina Meba. Gullakista fyrir alla Tímabært Skrautleg armbandsúr eru ávallt velkomin undir jólatréð. Það hefur löngum verið siður Íslend- inga að gefa bækur við ýmis tæki- færi, hvort heldur er á afmælum eða jólum. Stærri bókverk eru oft gefin á há- tíðisdögum, fermingardögum, brúð- kaupsdögum eða öðrum merkum dögum í lífi mannanna. Orðabækur, landabréfabækur eða ritverk einstakra höfunda hafa verið vinsælar gjafir. Fyrir þá sem vilja gefa þeim minnstu bækur er úrvalið ágætt, enda eiga Íslendingar frábæra barnabókahöfunda. Um þessar mundir er til dæmis að koma út ljóðabók eftir Þórarin Eld- járn, sem ætluð er fyrir börn. Bókin er um leið eins konar háttatal eða leiðbeiningar um ljóðahætti, sem er við hæfi barna. Annars er af nógu að taka, sög- urnar eru til dæmis ennþá í fullu gildi sem bókmenntir. Morgunblaðið/Ásdís Góð gjöf Bókin er ævinlega vel þeg- in gjöf bæði hjá ungum sem öldnum. Bók er besta gjöfin Einstök jólagjöf til starfsmanna og viðskiptavina Jógahelgar Heilsuhelgar Gisting Gjafabréf frá kr. 6000.- nóttin Nánari upplýsingar: gjafabref@fosshotel.is www.fosshotel.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.