Morgunblaðið - 21.01.2008, Page 4

Morgunblaðið - 21.01.2008, Page 4
4 MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skíðaveisla í Austurríki 26. janúar frá kr. 29.990 Frábært skíðafæri í Austurríki! Heimsferðir bjóða nú frábært tilboð á allra síðustu sætunum 26. janúar. Tryggðu þér flugsæti og gistingu á besta verðinu. Mjög takmarkaðframboð á þessum frábæru kjörum! Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 49.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á gististað "án nafns" í Zell am See / Schuttdorf (sjá skilmála "stökktu tilboðs") með morgunverði í 7 nætur. Sértilboð 26. janúar. Verð kr. 29.990 Flugsæti með sköttum. Sértilboð 26. janúar. Verð kr. 69.990 Vikuferð með hálfu fæði. Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Skihotel Speiereck í Lungau með hálfu fæði í viku. Sértilboð 26. janúar. Verð kr. 94.590 - Frábært **** hótel með hálfu fæði. Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli á Hotel Unterberghof í Flachau með hálfu fæði í viku. Sértilboð 26. janúar. ÞÓTT mannekla og veðurfar hafi hamlað fullum rekstri skíðasvæð- isins í Bláfjöllum síðustu daga tókst ágætlega að anna miklum straum skíðaiðkenda sem lögðu leið sína á svæðið í gær. Formaður Bláfjallanefndar segir að búið sé að ráða margt starfsfólk og von- andi sé búið að ráða fram úr þeim vanda sem menn hafi átt við að etja upp á síðkastið. Um 10 þúsund manns lögðu leið sína í Bláfjöll í gær og skapaðist oft umferðarteppa þegar verr búnu bílarnir festust eða runnu út af veginum. Í samtali við Morg- unblaðið sagði Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæðisins, að hann hefði áhyggjur af því ef keyra þyrfti sjúkrabíl á svæðið. Ekki sást heldur til lögreglu til að aðstoða við að greiða úr umferð. Magnús sagði hins vegar, líkt og margir gestir svæðisins sem Morg- unblaðið náði tali af í gær, að raðir í lyftur hefðu gengið nokkuð örugglega, þrátt fyrir mannfjöld- ann. Nær allar lyftur voru í rekstri og var góður andi í fólki. Um 30 manns voru að störfum á svæðinu í gær og segir Magnús að það dugi þótt álagið sé mikið. Gagnrýnt hefur verið síðustu daga að ekki sé boðið upp á meiri þjón- ustu á svæðinu þótt færi sér gott. Segir Magnús að þangað til í síð- ustu viku hafi gestir svæðisins ekki liðið fyrir þá manneklu sem verið hefur. Það hafi hins vegar sýnt sig að ekki er hægt að treysta eins mikið á aukafólk og gert hafði ver- ið ráð fyrir síðastliðið vor þegar flestum föstum starfsmönnum var sagt upp eftir að reksturinn hafði verið tekinn til endurskoðunar. „Það var lagt upp með að ég færi inn í veturinn með lítinn fasta- kostnað og reynt að einblína á að nota aukafólkið. Það þýðir að ég mátti helst ekki ráða fast starfs- fólk. Svo fór maður að hringja í aukafólkið og þá segja 70% þess að þau geti ekki unnið. Þá sáum við strax að þetta gæti ekki gengið upp.“ Magnús segir það af og frá að manneklan hafi haft áhrif á ör- yggi fólks á svæðinu. „Mér dettur ekki í hug að opna lyftu nema ég sé 100% viss um öryggið. Við höfum lokað lyftum til að vera pottþéttir og það hefur þá náttúrlega skapað óánægju af því að það eykur álagið annars staðar.“ Síðustu daga hefur skíðasvæðið bæði auglýst eftir starfsfólki í full störf og aukastörf. Hermann Valsson, formaður Blá- fjallanefndar, segir að fjölmargar umsóknir hafi borist og nú sé bjartara framundan en verið hafi. Hann vill ekki tjá sig um uppsagn- irnar snemma árs í fyrra þar sem þær komu til fyrir hans stjórn- arsetu. „Við höfum bara átt erfitt með að fá fólk af því að eft- irspurnin eftir starfsfólki hefur al- mennt verið svo mikil.“ Sjálfur var Hermann við störf í Bláfjöllum í gær og segir allt hafa gengið vel. Spurður hvort ekki hafi tapast reynsla með því starfsfólki sem sagt hefði verið upp játar Hermann því og viðurkennir að þurft hafi að fá framleiðanda nýju stólalyft- unnar til að senda mann hingað til lands til að aðstoða starfsmenn. Dagarnir í síðustu viku hafi verið erfiðir en engu að síður hafi geng- ið tiltölulega vel í vetur. Þjóðvegahátíð Margir þurftu að bíða í bílnum í nokkra stund eftir að komast á skíðasvæðið. Framkvæmdastjóri svæðisins segir vel hafa verið rutt en ekki hafi allir bílar verið nægilega vel búnir til að aka veginn. Árvakur/Frikki Mannhaf Um 10 þúsund manns fóru á skíði í Bláfjöllum í gær. Þótt ýmis vandkvæði hafi komið upp á svæðinu síð- ustu daga nutu borgarbúar veðurblíðunnar og þóttu raðirnar í lyfturnar ganga nokkuð örugglega. Í HNOTSKURN » Mannekla og hvassviðri hafavaldað því að ekki hefur gengið sem best að halda skíða- svæðinu í Bláfjöllum opnu. » Forsvarsmenn skíðasvæð-isins segja að starfsfólk svæðisins hafi þurft að leggja mikið á sig síðustu daga í mann- eklunni. » Í upphafi árs 2007 var flest-um fastráðnum starfs- mönnum sagt upp til að lækka rekstrarkostnað. » Sú aðgerð virðist hafa mis-tekist en nú á að fjölga fast- ráðnum starfsmönnum á ný. Mikið álag á skíðasvæðinu þegar um tíu þúsund manns fóru á skíði í Bláfjöllum í gær Bílaröð í Bláfjöll Fastráðið starfsfólk ráðið á ný þrátt fyrir uppsagnirnar í fyrra Fámennt Á meðan fólk sat fast á veginum til Bláfjalla var Guðmundur Guðjónsson einn fárra í Skálafelli. Þar voru engir starfsmenn. EKKI hefur verið opið á skíðasvæðinu í Skálafelli í langan tíma. Þetta hryggir marga skíðaiðkendur sem annt er um svæðið. Guðmundur Guðjónsson starf- aði á svæðinu fyrir rúmum áratug og segir hann skrýtið að borgin láti fjár- festinguna sem sé í Skálafelli grotna niður. Margir sem stunduðu skíði í Skálafelli og sem búi í nágrenninu fari í fjallið og skilji ekki af hverju það sé ekki notað. „Við erum rosalega sár að koma þarna upp eftir dag eftir dag og sjá að það er bara ekkert að gerast þarna. Við höfum ekki séð starfsmann þarna í tvö ár.“ Möguleikar til uppbyggingar séu betri í Skálafelli en Bláfjöllum og þegar aðstæður séu til skíðaiðkunar hafi það margsýnt sig að Bláfjöll anni ekki höf- uðborgarsvæðinu öllu. Hvað með Skálafell? Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is VBS fjárfestingarbanki hefur flutt starfsemi sína í nýtt húsnæði í Borgartúni 26. Í tilkynningu frá bankanum segir að töluverðar breytingar hafi átt sér stað á starf- semi hans að undanförnu og þörfin fyrir nýtt húsnæði því orðin aðkall- andi. VBS fjárfestingarbanki hét áður Verðbréfastofan og var á Suð- urlandsbraut frá stofnun, 1996. VBS flytur í Borgartún KARLMAÐUR á níræðisaldri sem lenti í árekstri á Hrútafjarðarhálsi fyrr í mánuðinum er látinn. Hann hét Eiríkur Jónsson og var búsettur á Neðri-Svertingsstöðum, hann var ókvæntur og barnlaus. Áreksturinn varð 9. janúar við afleggjarann að Svertingsstöðum en þá rákust á bifreið mannsins og vörubifreið. Maðurinn slasaðist mikið og var hann fluttur með þyrlu til Reykja- víkur. Maður látinn eftir bílslys Í GRÍMSEY urðu menn áþreifan- lega varir við norðanhvassviðrið að- faranótt laugardagsins. Vöknuðu þá margir þorpsbúar þegar þakið á Vélaverkstæði Sigurðar Bjarnason- ar losnaði og fór á flug. Fauk það með miklu bramli eftir götunni og þurftu björgunarsveitarmenn að njörva niður það sem eftir var af þakinu og koma braki í skjól. Fleiri þök í þorpinu þurfti að festa betur. Allt gekk þó slysalaust fyrir sig. Morgunblaðið/Helga Mattína Hvassviðri Björgunarsveitarmennirnir Þór Vilhjálmsson og Svafar Gylfa- son höfðu í nógu að snúast við störf í Grímsey þegar hvassviðrið gekk yfir. Þak losnaði af véla- verkstæði í Grímsey

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.