Morgunblaðið - 21.01.2008, Page 9

Morgunblaðið - 21.01.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 2008 9 Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 40-70% afsláttur www.friendtex.is Faxafen 10 sími 568 2870 NÚ ALGJÖRT VERÐHRUN Allir jakkar á 1.900 Kápa 3.900 Allar buxur á 1.900 Allar peysur á 1.900 1.500 og 2000 Komið og gerið frábærlega skemmtileg kaup Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-16 ATH. síðasta laguardagsopnunin okkar Útsölunni lýkur þriðjudaginn 22. janúar www.nb.is – kemur á óvart Reyndar er það skrifstofa Netbankans sem flyst úr Ármúla 13a í Lágmúla 6, aðra hæð. Netbankinn verður eftir sem áður á sama stað á Netinu – www.nb.is. Kostir Netbankans eru ótvíræðir: • Betri vextir • Fjölbreytt íbúðalán • Hagstæðari kjör á lánum • Lægri yfirdráttarvextir TB W A\ RE YK JA VÍ K \ SÍ A \ 90 71 57 5 Útsala Útsala 20-70% afsláttur Laugavegi 69 - sími 551 0821 m bl 9 62 12 0 Skeifan 11d • 108 Reykjavík • sími 517 6460 www.belladonna.is Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Stærðir 38-60 990 kr. slá Útsala 30-50% afsláttur 25% a ukaafs láttur af útsö luvöru m og f lestum öðrum vörum í vers luninn i ER veldi Baugs á breska smásölu- markaðnum að riða til falls? Þannig hefst frétt breska blaðsins Sunday Telegraph í gær þar sem sagt er frá rekstrartapi tveggja verslanakeðja í eigu Baugs, Whittard of Chelsea og Julian Graves, á síðasta ári. Þar seg- ir að samanlagt tap þessara versl- ana, fyrir skatta, hafi numið 8,8 milljónum punda, jafnvirði um 1,1 milljarðs króna. Hefur blaðið þetta upp úr árs- reikningum fyrirtækjanna sem skil- að var til Company House í byrjun þessa árs, sem svipar til hinnar ís- lensku Fyrirtækjaskrár. Í reikning- um fyrirtækjanna komi einnig fram að Baugur hafi endurfjármagnað rekstur þeirra og lagt til 11,2 millj- ónir punda, eða um 1.400 milljónir króna. Hefur Sunday Telegraph eftir Nicholas Shutts, stofnanda og for- stjóra Julian Graves, að rekstrarárið 2006 til 2007 hafi verið erfitt hjá verslunum sem selja tískufatnað. Hins vegar sé núverandi rekstrarár mun betra hjá Julian Graves og Whittard of Chelsea. Blaðið segir að á síðasta rekstr- arári hafi sjö helstu fyrirtæki Baugs í Bretlandi, ef undan er skilið House of Fraser, sem keypt var árið 2006, skilað 26,4 milljóna punda hagnaði fyrir skatta, tæpum 3,4 milljörðum króna, og sameiginlegar sölutekjur numið 2,8 milljörðum punda. Verslunarkeðjan Iceland, sem Malcolm Walker rekur, gekk best á árinu og þótt sölutekjur hafi lækkað úr 1,7 milljörðum punda í 1,6 millj- arða milli ára var hagnaðurinn 54,3 milljónir punda fyrir skatta, rúmir 6,9 milljarðar króna, samanborið við 5 milljóna punda tap árið áður. Fataverslunarkeðjan Mk One gekk hins vegar verst og sölutekjur lækkuðu úr 169 milljónum punda í 118 milljónir, eða um 15 ma. kr. „Veldi Baugs í breskri smásölu að riða til falls?“ Bretland Tap varð á rekstri Whittard of Chelsea og Julian Graves á síðasta rekstrarári en báðar eru þessar bresku verslanakeðjur í eigu Baugs. FRAMTÍÐ hins skuldum vafða banka, Northern Rock, hefur mikið verið til umfjöllunar í Bretlandi síð- ustu daga. Búist er við yfirlýsingu frá Gordon Brown forsætisráðherra í dag þar sem hann muni lýsa stuðn- ingi við hugmyndir um að bankar eins og Goldman Sachs komi North- ern Rock til bjargar, frekar en að bankinn verði ríkisvæddur eins og hugmyndir hafa komið fram um und- anfarið. Áform Goldman Sachs miða að því að taka yfir skuldir Northern Rock við breska ríkið og breyta þeim í hlutabréf sem geymd verða þar til rofa fer til á alþjóðlegum mörkuðum, og þá seld í skömmtum til fagfjár- festa, að því er fram kemur í frétt BBC í gær. Ganga áformin einnig út á það að hlutabréfin muni bera rík- isábyrgð næstu árin. Samkvæmt frétt BBC gætu þessi áform mætt andstöðu innan fram- kvæmdastjórnar Evrópusambands- ins þar sem svo umfangsmikill rík- isstyrkur væri í andstöðu við reglur þess. Framtíð Northern Rock gæti ráðist í dag PENNINN heldur áfram útrás sinni. Samkvæmt fregnum írskra fjölmiðla hefur fyrirtækið keypt 51% hlut í írsku kaffihúsakeðjunni In- somnia. Kaupverðið er sagt 16 millj- ónir evra, jafnvirði um 1,5 milljarða króna. Forstjórinn og fleiri hluthaf- ar munu áfram eiga 49% hlut. Stofn- endurnir hafa haft húmor fyrir nafn- inu en enska orðið insomnia þýðir svefnleysi, en margir kannast við þá tilfinningu eftir mikla kaffidrykkju. Vitnað er í írskum fréttum í for- stjórann, Bobby Kerr, sem segir að opna eigi 20 ný kaffihús undir merkj- um Insomnia á Írlandi. Með tilkomu Pennans sé stefnt að útrás í N-Evr- ópu á næstunni. Munu helstu stjórn- endur halda áfram störfum sínum hjá fyrirtækinu. Kaupa írsk kaffihús

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.