Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 1

Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 30. TBL. 96. ÁRG. FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is ERTU AÐ VINNA? Einn af hverjum níu Íslendingum svaraði játandi og fékk vinning í Happdrætti Háskólans á síðasta ári. Við stefnum að því að enn fleiri jánki á þessu ári. – Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni. Lík í óskilum >> 33 Allir í leikhús Leikhúsin í landinu SPENNIÐ BELTIN! UPPÁHALDSFLUGFREYJA ELTONS JOHNS OG MADONNU SKEMMTIR ÍSLENDINGUM >> 32 Eftir Agnesi Bragadóttur og Bjarna Ólafsson HREIÐAR Már Sigurðsson, for- stjóri Kaupþings, segist ekki hafa fengið aðvörun frá Fjármálaeftirlit- inu þess efnis að eftirlitið myndi ekki fallast á yfirtöku Kaupþings á hol- lenska bankanum NIBC. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins sendi eftirlitið skriflegar fyrirspurnir til Kaupþings eftir stjórnarfund þess sl. föstudag, þar sem spurt var mjög ákveðið og gagn- rýnið, sérstaklega út í þá þætti sem lutu að stöðu og fjárhag NIBC. Sömu heimildir herma að það hafi verið sameiginlegur skilningur bandaríska seljandans, JC Flowers, og Kaupþings að í ljósi fyrirspurna FME væri rétt og skynsamlegt að semja um að fallið yrði frá yfirtök- unni. Munu báðir aðilar hafa talið líklegt að þegar eftirlitið skilaði nið- urstöðu þá yrði hún neikvæð og yf- irtökunni hafnað. Þrátt fyrir að hafa hækkað um- talsvert í upphafi dags í gær fór svo að Úrvalsvísitala Kauphallar OMX á Íslandi lækkaði um 0,21%. Bréf Eim- skipa hækkuðu um 4,33% og bréf Kaupþings um 0,78%. Trygginga- álag á skuldabréf bankanna lækkaði í gær. Álag á bréf Kaupþings lækk- aði um 65 punkta og er um 475 punktar. Álag Glitnis lækkaði um 15 punkta og er um 430 punktar og álag Landsbanka lækkaði um 45 punkta er nú um 240 punktar. Erlendar vísitölur lækkuðu al- mennt en ekki var um miklar lækk- anir að ræða. Breska FTSE-vísital- an lækkaði um 0,81% og þýska DAX um 0,26%. Bandarískar vísitölur lækkuðu þrátt fyrir 0,5 prósentu- stiga stýrivaxtalækkun þar í landi í gær. Lækkaði Dow Jones-vísitalan um 0,30% og Nasdaq 0,38%. Töldu að yfirtöku yrði hafnað                                                              !       ! Segist ekki hafa fengið aðvörun frá FME Árvakur/Ómar Hæstánægð Jón Áskell Þorbjarnarson, Ólafur Kjaran Árnason og Auður Tinna Aðalbjarnardóttir, sigurlið Hagaskóla í spurningakeppni grunnskól- anna, Nema hvað?, eftir frækinn sigur á Árbæjarskóla í gærkvöldi. Hagaskóli vann Nema hvað? Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is ALLIR lyfseðlar heilsugæslunnar í landinu verða frá og með mars nk. sendir rafrænt í lyfjaverslanir. Heilsugæslustöðvar og langflest apó- tek á landsbyggðinni eru nú þegar tengd kerfinu og á næstu vikum bæt- ist höfuðborgarsvæðið við. Í fram- haldinu er unnið að því að tengja sjúkrahús, aðrar heilbrigðisstofnanir og sérfræðinga á stofum kerfinu og er vonast til að það verði orðið að veru- leika í lok þessa árs. Til greina kemur að heilbrigðis- ráðuneytið bjóði út nýtt tölvukerfi fyrir rafræna sjúkraskrá heilbrigðis- stofnana. Kerfið sem nú er stuðst við á nær öllum heilbrigðisstofnunum, svonefnt Sögukerfi, hefur sætt mikilli gagnrýni af notendum, m.a. hefur læknaráð Landspítala ályktað ítrekað vegna málsins. „Það eru tveir kostir, að hætta við Sögukerfið eða laga það að þörfum sjúkrahúsanna eins og t.d. hefur verið reynt á Landspítalanum og víðar seinustu ár,“ segir Ingimar Einars- son, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðu- neytinu. „Það er hins vegar alls óvíst að menn nái í höfn með það. Þá þarf að skoða aðra kosti í stöðunni.“ | 11 Lyfseðlar verða allir rafrænir Sjúkraskrárkerfin hugsanlega boðin út BYGGING Búðarhálsvirkjunar er aftur komin á dagskrá Landsvirkj- unar og miðast undirbúningur við að útboð geti farið fram á þessu ári ef samningar takast um raforkusölu frá virkjuninni. Öll leyfi fyrir Búð- arhálsvirkjun liggja fyrir sem og umhverfismat. Endanleg ákvörðun verður þó ekki tekin fyrr en nið- urstöður liggja fyrir um raforkusölu. Ráðgert er að Búðarhálsvirkjun verði 80-90 MW virkjun. Skipulagsstofnun féllst árið 2001 á fyrirhugaða byggingu Búðarháls- virkjunar með stíflun Köldukvíslar og Tungnaár við Búðarháls, lagningu Búðarhálslínu 1 og lagningu vega á Búðarhálsi með því skilyrði að bætt yrði fyrir umhverfisáhrif vegna gróðurlendis sem tapaðist af völdum Sporð- öldulóns við Búðarháls. Þær umbætur fælust í endurreisn gróðurlendis. Sporðöldulón verður um 7 km², þar af eru um 2 km² vel gróið svæði. | 6 Búðarhálsvirkjun komin á dagskrá á ný Eftir Bjarna Ólafsson og Guðrúnu Hálfdánardóttur HALLDÓR Kristjánsson, banka- stjóri Landsbankans, segist undr- ast þá ákvörðun matsfyrirtækisins Moody’s að taka lánshæfiseinkunn bankans til athugunar, en Moody’s tilkynnti í gær að lánshæfisein- kunnir Glitnis og Landsbanka hefðu verið teknar til athugunar til hugsanlegrar lækkunar. Lánshæf- iseinkunn Kaupþings er enn í at- hugun hjá matsfyrirtækinu, en í öllum þremur tilfellum er um að ræða einkunnir vegna langtíma- lána og fjárhagslegs styrkleika. Í tilkynningu frá Moody’s segir að ástæða athugunarinnar sé áhyggjur af því hve viðkvæmir bankarnir séu fyrir sveiflum á markaði, þar sem stór hluti tekna þeirra komi af fjárfestingabanka- og fyrirtækjasviðum þeirra. Gagnrýnir Halldór það að Moody’s skuli setja alla bankana undir sama hatt þegar áhrif hrær- inga á mörkuðum séu metin. „Við áttum okkur á þessari ákvörðun hvað Landsbankann varðar,“ segir Halldór, en bankinn hafi gert það sem matsfyrirtækið hafi bent á sem atriði sem styrkt gætu lánshæfismat bankans. Hafi lausafjárstaða verið bætt og dregið úr markaðsáhættu svo dæmi séu tekin. Segir hann að farið verði yfir málið með Moody’s á næstu dög- um. Lárus Welding, forstjóri Glitnis, segist setja afstöðu Moody’s í sam- hengi við óvissu á alþjóðamörkuð- um. Staða Glitnis sé hins vegar sterk og stefnan skýr. Áttar sig ekki á ákvörðun Moody’s  Kaupþing og JC Flowers | 4  Um misskilning | Miðopna  Fáir standa nú betur | Viðskipti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.