Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 4

Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 4
Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is HREIÐAR Már Sigurðsson, forstjóri Kaup- þings, segir það ekki rétt að Kaupþing hafi feng- ið aðvörun frá Fjármálaeftirlitinu í þá veru að FME myndi ekki fallast á yf- irtöku Kaupþings á hollenska bankanum NIBC. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins sendi FME skriflegar fyrirspurnir til Kaupþings, í kjölfar stjórnar- fundar Fjármálaeftirlitsins sl. föstudag, þar sem spurt var mjög ákveðið og gagnrýnið, sérstaklega út í þætti sem lutu að stöðu og fjárhag hollenska bankans, NIBC. Samkvæmt sömu heimildum var það sameiginlegur skiln- ingur bandaríska seljandans, JC Flowers, og Kaupþings, að í ljósi fyrirspurna FME væri rétt og skynsamlegt að semja um að fallið yrði frá yf- irtökunni. Munu báðir aðilar hafa talið líklegt að þegar FME skilaði niðurstöðu á annað borð yrði hún neikvæð og yfirtökunni hafnað. „Við gengum til samninga í ágúst á síðasta ári, þegar markaðsaðstæður voru byrjaðar að versna á alþjóðafjármálamörkuðum. Síðan þá hafa aðstæður farið stöðugt versnandi. Bæði við og seljendur vorum búnir að sjá fram á að mjög erfitt yrði að ná fram þeim samlegðaráhrifum sem við höfðum áætlað að yrðu við kaupin,“ sagði Hreiðar Már í samtali við Morgunblaðið í gær. „Bæði höfðum við áætlað að fjármagnskostn- aður sameinaðs banka í stærri og öflugri einingu yrði lægri og eins töldum við að eftir sameiningu gætu tekjur aukist umtalsvert. Við vorum ein- faldlega sammála um að við núverandi markaðs- aðstæður væri þetta illmögulegt og því væri best fyrir alla að hætta við kaupin,“ sagði Hreiðar Már. Hreiðar Már segir að Kaupþing hafi haldið FME vel upplýstu um viðræður við seljendur undanfarnar vikur. „Það er ekki rétt að við höfum fengið aðvörun frá FME. Það er einfaldlega rangt. Fjármálaeft- irlitið hefur haft málið til skoðunar lengi og við höfum verið í nánum samskiptum við eftirlitið vegna kaupanna. Ég geri fastlega ráð fyrir því að versnandi markaðsaðstæður hafi haft áhrif á það, hversu lengi kaupin hafa verið til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu.“ – Hreiðar Már, þú sagðir snemma í janúar að þið og Exista gætuð fjármagnað þessi kaup. Gát- uð þið fjármagnað þau, nú þegar þið sömduð við JC Flowers um að falla frá yfirtökunni? „Já, við gátum það, en málið verður að skoðast í því ljósi, að JC Flowers var ekki einungis að selja okkur NIBC, heldur hefði fyrirtækið orðið okkar næststærsti hluthafi, ef af kaupunum hefði orðið. Það var sameiginlegt mat okkar, að markaðsaðstæður hefðu breyst svo mikið, að það væri hagstæðara fyrir okkur að falla frá þessum viðskiptum en að fullnusta samninginn.“ Hreiðar Már segir að lausafjárstaða Kaup- þings sé mjög sterk í kjölfar þess að fallið hefur verið frá kaupunum. Hann telur að bankar þurfi að undirbúa sig fyrir það, að markaðsaðstæður lagist ekki alveg á næstunni, og þegar það gerist þá muni það ekki gerast hratt. Fjármálaeftirlitið spurði ákveðið og gagnrýnið, einkum út í stöðu NIBC Kaupþing og JC Flowers bjuggust við synjun FME Í HNOTSKURN »Kaupþing féll í gær frá yfirtökuáformumá NIBC upp á tæpa þrjá milljarða evra. »Jafnframt hefur Kaupþing fallið frá fyrir-huguðu forgangsréttarútboði, sem áform- að var vegna kaupanna. »Forstjóri Kaupþings á von á því að mark-aðsaðstæður verði erfiðar áfram. Hreiðar Már Sigurðsson 4 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SVAVAR Pétur Eysteinsson tónlist- armaður afhenti í gær borgarstjóra Reykjavíkur, Ólafi F. Magnússyni, undirskriftalista þar sem fyrirhug- uðu niðurrifi Klapparstígs 30, þar sem Sirkus er til húsa, er mótmælt. Húsið var byggt 1917. Undirskriftirnar eru yfir 2.000 talsins og var safnað inni á Sirkus í síðustu viku. Baráttufólkið afhenti Ólafi einnig veggspjald með nöfn- um þeirra tónlistarmanna og hljóm- sveita sem komu fram á tónlistar- og baráttuhátíðinni Látíð í bæ um síðustu helgi. Ólafur tók vel á móti baráttufólkinu og sagðist ætla að bera erindið upp í borgarstjórn. Barist gegn niðurrifi Gegn niðurrifi Sirkuss Ólafur F. Magnússon tekur við undirskriftalista og veggspjaldi í Ráðhúsinu í gær. LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu hefur hætt rannsókn sinni á meintri tilraun ótilgreindra manna til þess að nema 8 ára stúlku á brot í nágrenni Laugarnesskóla snemma í janúar á þessu ári. Stúlkan bar að nokkrir menn á grænum bíl hefðu reynt að nema sig á brott og fór málið til lögreglunnar sem hóf rannsókn. Að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar, yfirlögregluþjóns hjá LRH, virðist málið hins vegar hafa verið byggt á misskilningi frá byrjun og mun rannsóknadeild lög- reglunnar því ekki aðhafast meira í málinu. Telpan var ekki í hættu AL Jazeera- sjónvarpsstöðin mun á laug- ardaginn kemur senda út hálftíma viðræðuþátt með forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni. Þátt- urinn verður sendur út á arab- ískri rás stöðv- arinnar klukkan 14 að íslenskum tíma. Þátturinn var tekinn upp í höf- uðstöðvum sjónvarpsstöðvarinnar í Doha í Katar við lok opinberrar heimsóknar forseta Íslands til landsins í síðustu viku. Áætlað er að rúmlega 50 miljónir manna horfi reglulega á hina arab- ísku útgáfu stöðvarinnar. Forsetinn á Al Jazeera Ólafur Ragnar Grímsson TVEIR Litháar sem nýlega voru dæmdir í 5 ára fangelsi fyrir nauðg- un hafa áfrýjað málinu til Hæsta- réttar og jafnframt verið úrskurð- aðir í áframhaldandi gæslu- varðhald til 22. og 29. febrúar. Mennirnir hafa setið í gæslu- varðhaldi frá 12. nóvember en sam- kvæmt lögum lýkur gæsluvarðhaldi þegar dómur er kveðinn upp. Mennirnir voru dæmdir í héraði 25. janúar og gerðu báðir kröfu um að þeir sættu aðeins farbanni en ekki gæsluvarðhaldi út áfrýjunarfrest- inn en hvorki neðra né efra dómstig urðu við því. Áfrýja nauðg- unarmálinu Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is ÓVISSA um kaup Kaupþings á hol- lenska bankanum NIBC ýtti undir óróleika á íslenska hlutabréfamark- aðinum. Kaupin gengu í gegn stuttu áður en þrengja fór um á lánsfjár- markaði sem gerði Kaupþingi erfitt um vik að klára þessi viðskipti, sem hefðu orðið þau stærstu í Íslandssög- unni. Greint var frá kaupum Kaupþings á NIBC 15. ágúst sl. Kaupverðið var tæplega þrír milljarðar evra eða 266 milljarðar króna miðað við gengi á þeim tíma. Stærstu yfirtökur fram að þessu höfðu verið kaup Novators á Actavis sem kostuðu 190 milljarða og kaup Exista í Sampo sem kostuðu 170 milljarða. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, sagði í samtali við Morg- unblaðið þegar tilkynnt var um við- skiptin að kaupin hefðu fyrst og fremst þá þýðingu fyrir Kaupþing að bankinn stækkaði töluvert og fengi aðgang að fjórum nýjum mörkuðum; Hollandi, Þýskalandi, Belgíu og Singapúr. Hann sagðist sérstaklega telja mikil tækifæri til vaxtar í Singapúr. Breyttar aðstæður á markaði Á blaðamannafundi sem efnt var til í Amsterdam þegar tilkynnt var um yfirtökuna kom fram að Kaup- þing myndi fjármagna kaupin með útgáfu nýs hlutafjár í Kaupþingi, út- gáfu skuldabréfa og með reiðufé af handbæru fé bankans. Í ágúst í fyrra höfðu borist fréttir af því að veruleg vanskil væru af svo- kölluðum undirmálslánum í Banda- ríkjunum. Þegar kom fram á haustið var orðið ljóst að þessar fréttir myndu hafa víðtæk áhrif á allt fjár- málakerfi heimsins. Upplýst var að margir bankar þyrftu að afskrifa umtalsverða fjármuni og mun erfið- ara var fyrir fjármálastofnanir að tryggja sér nægt lánsfé. Við þessar breyttu aðstæður á mörkuðum beindu menn eðlilega sjónum sínum að fjármögnun á kaupunum á NIBC. Óvissa um hvort Kaupþingi tækist að ljúka fjármögnun á kaupunum ýtti undir óróa á íslenska hlutabréfa- markaðinum sem lækkaði hratt í nóvember líkt og aðrir markaðir. Aðstæður til að fara út í stórt hlutafjárútboð voru orðnar allt ann- að en ákjósanlegar. Hlutabréfaverð lækkaði hratt, skuldabréfaálag ís- lensku bankanna var á uppleið og fyrirtæki í miklum erfiðleikum við að fá lánsfé til nýrra verkefna. Í lok nóvember sendi Kaupþing frá sér tilkynningu um að búið væri að ganga endanlega frá fjármögnun á NIBC. Í tilkynningunni kom fram að J.C. Flowers [seljandi NIBC] og Exista myndu sölutryggja allt að 210 milljón nýja hluti í hlutafjárútboði Kaupþings, en sölutrygging felur í sér að náist ekki að selja hlutina skuldbinda fyrirtækin tvö sig til að kaupa þá. Ennfremur kom fram að J.C. Flowers fengi meira í hlutabréf- um í Kaupþingi og þar með minna í peningum en áður hafði verið samið um. J.C. Flowers hefði eignast tæp 16% í Kaupþingi og þar með orðið næststærsti hluthafi bankans. Jafn- framt kom fram í tilkynningunni að enn væri beðið eftir samþykki ís- lenskra og hollenskra fjármálayfir- valda, en kaupin voru gerð með fyr- irvara um samþykki þeirra. Forstjóri NIBC óskar eftir að hætta störfum Michael Enthoven, forstjóri NIBC, og Jurgen Stegmann, yfir- maður áhættustýringar, sögðu upp störfum í gær í kjölfar tilkynningar um að ekkert yrði úr kaupunum. Í yfirlýsingu frá Enthoven segir: „Óstöðugleiki á fjármálamarkaði hefur leitt til ólgu í bankageiranum, m.a. hjá okkur. Það er sameiginleg niðurstaða okkar og Kaupþings að núverandi staða á mörkuðum stefni í tvísýnu ávinningnum af sameiningu og ekki sé vænlegur grunnur að sameiginlegri framtíð. Skuldbind- ingin við hluthafa undirstrikar trú okkar á framtíð NIBC. Jurgen Steg- mann og ég gerum okkur grein fyrir þörf bankans til að aðlaga viðskipta- módel sitt nýjum kringumstæðum og trúum því að þetta sé rétti tíminn til að breyta um forystu.“ Í gær birti NIBC upplýsingar um afkomu síðasta árs. Bankinn hagn- aðist um 235 milljónir evra eða 22,4 milljarða króna. Nettóhagnaður varð hins vegar 91 milljón erva og minnkaði um 62% milli ára. Í til- kynningu bankans segir að ástæður fyrir minni hagnaði megi fyrst og fremst rekja til taps sem bankinn hafi orðið fyrir af bandarískum fast- eignalánum. Áttu að verða stærstu viðskipti sögunnar  Kaupþing ætlaði að kaupa hollenska bankann NIBC fyrir þrjá milljarða evra  Aðstæður á fjár- málamarkaði voru hins vegar bankanum ekki hagstæðar og leiddu til þess að hætt var við viðskiptin Í HNOTSKURN »NIBC var stofnaður árið1945, en bankinn hefur lagt mesta áherslu á þjónustu við meðalstór fyrirtæki í V-Evrópu. »Heildareignir NIBC um mittsíðasta ár voru 32,6 millj- arðar evra, en það þýðir að hann var álíka stór og Landsbankinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.