Morgunblaðið - 31.01.2008, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SAMORKA, Samtök orku- og veitu-
fyrirtækja heldur í samstarfi við
hitaveitur í landinu upp á hundrað
ára afmæli hitaveitu á Íslandi. Er
þar miðað við frumkvöðlastarf
Stefáns B. Jónssonar sem virkjaði
hver til húshitunar á Suður-
Reykjum í Mosfellssveit árið 1908.
Af því tilefni hefur verið hannað
merki hundrað ára hitaveitu á Ís-
landi. Merkið á að sýna á táknræn-
an hátt þau bættu lífsgæði sem fólg-
in eru í hitaveituvæðingu á Íslandi.
Samorka vill beina sjónum að því
hlutverki sem heita vatnið hefur
gegnt í því skyni að bæta heilsufar
og lífsgæði almennt. Er þar m.a.
horft til betri hitunar hýbýla, heil-
næmara andrúmslofts og aukinna
tækifæra til útivistar og hreyfingar
tengt sundlaugamenningu.
Samorka mun minnast afmæl-
isins með ýmsu móti, m.a. með gerð
heimildarmyndar um hitaveitur á
Íslandi, útilistarverki í Mosfellsbæ
og fjölþjóðlegri ráðstefnu um hita-
veitur, sem skipulögð er í samstarfi
við Háskóla Íslands.
Hundrað ára
hitaveita
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
GERA verður gangskör að
því að mennta fleiri heim-
ilislækna þar sem á næstu
10-15 árum munu allt að
75 heimilislæknar á land-
inu öllu hætta störfum
þegar þeir komast á eft-
irlaunaaldur. Elínborg
Bárðardóttir, formaður
Félags heimilislækna, seg-
ir að nú séu um 25 læknar
í sérnámi í heimilislækn-
ingum. „Það er auðvitað alveg ljóst að það
vantar heimilislækna,“ segir Elínborg og að
það hafi verið vitað árum saman. Þó er mis-
jafnt eftir stöðvum á höfuðborgarsvæðinu
hversu mikil vöntunin er. Ástandið er, að
sögn Elínborgar, einna verst í Árbæ og á
Heilsugæslustöð Miðbæjar. Það kemur ekki
síst til af því að við stöðina í Árbæ bættust
skjólstæðingar úr Grafarholti og nú síðast
Norðlingaholti.
Kvörtun í hverri viku
Elínborg er heimilislæknir á heilsugæslu-
stöðinni í Efstaleiti og hún nefnir sem dæmi
að þar séu fimm fastir heimilislæknar starf-
andi og tveir sérnámslæknar. „Þetta hverfi
telur 11-12.000 manns og 3 læknar af 7 eru í
hlutastarfi í móttöku. Sjálf er ég í 80%
starfshlutfalli og með 1.560 skjólstæðinga,“
segir hún og að hún fái nánast í hverri viku
kvörtun um að erfitt sé að fá tíma hjá henni.
„Það er alveg klárt í mínum huga að við hér í
Efstaleitinu þurfum nýjan lækni en það hef-
ur ekki fengist fjárveiting til þess.“
Ástandið segir hún ekki nógu gott á mörg-
um stöðvum á höfuðborgarsvæðinu en tekur
fram að ástandið hafi batnað fyrir nokkrum
árum, þegar við bættust læknar í Glæsibæ
og Hafnarfirði. „Þá hafði verið mjög slæmt
ástand í Hafnarfirði lengi,“ segir hún með
áherslu. Fjölgun læknanna gangi þó ekki
nógu hratt og „nú sýna tölur að við stöndum
okkur ekki nógu vel í að mennta heimilis-
lækna“.
Ef fjárveiting fengist fyrir fleiri stöðum á
heilsugæslustöðvunum vaknar sú spurning
hvort læknar fengjust til að manna þær við-
bótarstöður. Því svarar Elínborg að það væri
hægt að hluta til. „En það er samt hitt
áhyggjuefnið,“ viðurkennir hún.
„Við erum að átta okkur á því að stór hluti
af heimilislæknum á landinu er á aldrinum
55-65 ára. Og hvað gerist á næstu 10-15 ár-
um með þessa menn? Þeir hætta að vinna,
ekki satt?“ spyr hún og bætir við að á öllu
landinu séu 75 heimilislæknar á þessum
aldri.
Fleiri vilja komast að en geta
Sérnámsstöður geta þeir unglæknar feng-
ið sem búnir eru með kandidatsárið. Eftir
sex ára læknanámið fer eitt ár í kandidatsár,
þ.e. að vinna á ýmsum deildum sjúkrahúsa
og á heilsugæslustöð. Í kjölfar þess tekur
viðkomandi ákvörðun um hvaða sérnám
hann vill fara í en sérnám tekur að jafnaði
4-5 ár. Hér á Íslandi er hægt að fara í sér-
nám í lyflækningum, heimilislækningum og
geðlækningum. „Fagfélagið [Félag heimilis-
lækna] hefur lagt mikla vinnu í kennslupró-
grammið frá því árið 2000,“ segir Elínborg,
„og það er almenn ánægja með það og fleiri
vilja komast í prógrammið en geta því það
er ekki til fjárveiting,“ segir hún og útskýrir
að sérnámslæknar sem eru í prógramminu
séu á starfslaunum, fái þannig laun sem að-
stoðarlæknar. Slíkar sérnámsstöður eru
ekki á öllum heilsugæslustöðvum, sumar eru
kennslustöðvar en aðrar ekki. Nú um stund-
ir eru 25 manns að fara í gegnum
kennsluprógrammið í heimilislækningum.
Sérnámsstöður hafa verið veittar af heil-
brigðisráðuneytinu og að sögn Elínborgar
hefur verið um að ræða u.þ.b. 2 stöður á ári.
„Samt ekki alveg svo og það gerðist til
dæmis ekki síðastliðið haust. Við erum líka
að ýta á eftir því að við fáum fleiri sérnáms-
stöður. Nú hafa 27 manns óskað eftir því að
fá viðtal við kennslustjórann, af því að þeir
hafa áhuga á að fara í heimilislækningar, en
hún hefur engar stöður handa þeim.“
Á landinu öllu eru tæplega 200 heim-
ilislæknar starfandi. Miðað við að þegar séu
25 að sérhæfa sig, eins og staðan er núna, sú
tala tvöfaldist á næstu árum og 75 muni
hætta störfum á næstu 10-15 árum má
reikna með að yfir 80 heimilislækna muni
vanta að þessum tíma liðnum ef einnig er
tekin inn mannfjöldaspá Hagstofunnar. Á
höfuðborgarsvæðinu eru 110-115 heimilis-
læknar starfandi en þar af eru margir í
hlutastöðum. Þörfin er 130 læknar. Miðað er
við að til að heimilislæknir geti veitt þá
þjónustu sem þörf er á sé hann með 1.500
skjólstæðinga.
Árvakur/Kristinn
Í Árbæjarstöðinni Gunnar Ingi Gunnarsson yfirlæknir skoðar einn skjólstæðing sinn.
Ef svo fer fram sem horfir mun vanta 80 heimilislækna til að hægt sé að veita fullnægjandi þjónustu
Misjafnt eftir heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins hversu mikil vöntun er á heimilislæknum
Elínborg
Bárðardóttir
75 hætta á næstu 10-15 árum
GUNNAR Ingi Gunnarsson, yfirlæknir á
heilsugæslunni í Árbæ, segir að erfitt sé að
„vera á austurvígstöðvum höfuðborgarinnar
með heilbrigðisþjónustu þar sem hin hraða
uppbygging fer fram. Grafarholtið og Norð-
lingaholtið eru að byggjast upp með miklum
hraða.“ Eðli málsins samkvæmt eru þetta
ungar fjölskyldur sem flytjast á svæðið og
gjarnan með börn. „Við finnum mjög fyrir
því, þetta er jú á okkar svæði. Fyrir vorum
við með of fáa lækna í alltof þröngu hús-
næði,“ segir hann.
Ný stöð fyrir Árbæ er í byggingu en að
sögn Gunnars Inga hefur ekki verið veitt
heimild til að bæta við stöðugildi.
Margir eru á biðlista eftir lækni í Árbæ og
að sögn Gunnars Inga bætast að meðaltali við
á stöðina tíu skjólstæðingar dag hvern. Þegar
vantar einn lækni á stöðina og styttist í þeir
verði tveir.
Tíu skjólstæðingar
bætast við á
degi hverjum „JÚ, ÞAÐ vantar heim-ilislækna hérna,“ segir
Jón Bjarni Þorsteinsson,
heimilislæknir á heilsu-
gæslustöðinni Sólvangi í
Hafnarfirði. Hann upp-
lýsir að eftir áramót hafi
þurft að loka fyrir skrán-
ingu á nýjum skjólstæð-
ingum, en með bréfi sem
barst frá forstjóra heilsugæslunnar, Guð-
mundi H. Einarssyni, hinn 22. janúar sl. sé
skylt að skrá alla sem þess óska hjá heim-
ilislækni á heilsugæslustöðvum höfuðborg-
arsvæðisins. „Það þýðir einfaldlega að við
skráum núna aukalega á menn. Það er
bara beiðni um að við gerum það,“ segir
Jón Bjarni.
Á Sólvangi eru átta stöður fastra heim-
ilislækna. „Það er talað um að 1.500 manns
séu á hvern lækni. Einstaka læknir er með
meira og allt upp í 2.300,“ segir Jón
Bjarni.
Allt að 2.300
manns á lækni